Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.2016, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.2016, Blaðsíða 28
Jólablað 22. desember 201624 Fólk Viðtal á Bensinum?“. Í því kemur fram að kaupin hafi vakið mikla athygli og gefur Tommi þar upp kaupverð bíls­ ins sem var á þessum tíma „einn dýrasti einkabíll landsins“. Segir að bílakaupin hafi verið mörgum undrunarefni þar sem Tommi hafi einungis „verið í hamborgarabiss­ nesnum í hálft ár“. „Þegar ég opnaði svo Búlluna var ég rosalega blankur en Hótel Borg fór illa með mig og Hard Rock var slík fjárfesting að hún skilaði ekki neinu heldur slapp ég einungis lif­ andi frá henni. Ég var því búinn að ströggla það mikið að ég tók engu sem sjálfsögðum hlut. Ég held ég sé því skárri núna heldur en eftir vel­ gengnina í Tommahamborgurum. Ég hef ekki náð tökum á þessu en ég er skárri og meira niðri á jörðinni. Ég bý í kjallaraíbúð í Grjótaþorp­ inu og keyri á sex ára gömlum bíl. Ég fer mikið til útlanda en það er allt tengt vinnunni og yfirleitt vinnu­ ferðir sem eru oft og tíðum ekkert spennandi og stundum erfiðar.“ Útilokar ekkert Á skrifstofu Tomma hangir inn­ rammað viðurkenningarskjal þar sem tilkynnt er að hann hafi verið heiðursmeðlimur í líkamsræktar­ stöðinni World Class árið 1991. Blaðamaður hafði spurnir af því að Tommi hefði 65 ára gamall lyft 105 kílóum í bekkpressu en frægt er að hann borðar að minnsta kosti einn hamborgara á dag. Veitingamað­ urinn mætir fjórum sinnum í viku í ræktina hjá sama fyrirtækinu og heiðraði hann fyrir 25 árum. „Eftir að ég seldi Tommaham­ borgara árið 1983 fór ég ásamt Sveinbirni Guðjohnsen til Los Angeles til að æfa í víðfrægu líkamsræktar stöðinni Gold's Gym. Þá var ég eins og illa vafin rúllupylsa í laginu. Sveinbjörn var líkams­ ræktarfrömuður og við vorum þarna í tæpt ár og æfðum og æfðum. Ég kom til baka og hafði náð smá ár­ angri og svo hefur þetta verið upp og niður. Núna undanfarin ár hef ég verið mjög duglegur að halda mér við,“ segir Tómas og tekur upp mynd af sér í níðþröngum stuttermabol sem var tekin í World Class í vor. „Ég er orðinn 67 ára og maður verður að æfa oft og halda sér við. Annars er þetta bara búið. Ég var nú svolítið móðgaður þegar ég var í bíó í Ameríku og var látinn borga ellefu dollara fyrir miðann í staðinn fyrir þrettán. Þá var ég ekki orðinn 67 og sagði „I'm not that old“.“ En nú ertu orðið „löggilt gamal- menni“. Hvað tekur þá við? „Eins og ég segi hefur sonur minn tekið svona við stjórn fyrir­ tækisins að mestu leyti. Ég sagði alltaf við strákana mína að þegar ég yrði það gamall að ég yrði hættur að vinna þá myndi ég byrja að bera út Moggann. Þá fengi ég ákveðið hlut­ verk og þyrfti að standa mig sex daga í viku. Ég sé fyrir mér að ég fái mér hlutverk þar sem ég þarf að vakna og skila af mér ákveðnu verki. Að bera út Moggann eru bara smápen­ ingar en arðsemin er gríðarleg. Þú ert kominn á fætur snemma og ferð út í hvaða veðri sem er. Hvort sem það verður Mogginn eða eitthvað annað. Á einhverjum tímapunkti langaði mig nú að fara í stjórnmál. Donald Trump er sjötugur og ég á þrjú ár í það,“ segir Tommi. Þannig að þú útilokar ekki af- skipti af stjórnmálum? „Ef mér endist aldur til þá útiloka ég ekkert. Einu sinni hitti ég Stein­ grím Hermannsson og settist niður með honum. Hann sagði við mig: Faðir minn sagði við mig farðu ekki í stjórnmál fyrr en þú ert orðinn fjár­ hagslega sjálfstæður. Þá skuldarðu engum neitt og getur tekið þínar ákvarðanir. Þannig þarf þetta að vera. Ef þú færð milljón í kosn­ ingasjóð frá einhverjum, og milljón skiptir máli, þá hlýturðu að hugsa jákvætt til þess sem gaf þér hana þegar þú ert kominn í embætti.“ Styður þú einhvern ákveðinn flokk eða hallar annaðhvort til vinstri eða hægri? „Nei, raunverulega ekki. Ég er svona bara eftir því sem vindar blása. Ég hélt einu sinni að Fram­ sóknarflokkurinn væri minn flokk­ ur. Þegar ég byrjaði með Tomma­ borgara keypti ég svo mikið nautakjöt, og geri ennþá, að ég horfði þangað. En síðan hefur um­ hverfi mitt breyst mikið og mér finnst pólitík almennt standa og falla með leiðtogum flokkanna. Ég held til dæmis að Björt framtíð hafi náð þetta langt því fólk fílar Óttar Proppé. Katrín Jakobsdóttir er líka mjög flottur frontur á Vinstri græna en með henni eru þessir menn sem hafa fylgt flokknum frá upphafi sem gerir það að verkum að hún er ekki alveg frjáls. Ég lít mjög mikið á það hver skipstjórinn er.“ Rækjusalat í jólamatinn Tómas er einhleypur og á fjögur börn á aldrinum níu til 48 ára. Yngsta dóttirin býr hjá honum í Grjótaþorpinu í miðbæ Reykja­ víkur aðra hvora viku. Þangað flutti Tommi fyrst árið 1998 þegar hann hafði selt rekstur Hard Rock í Kringlunni og tekið við Hótel Borg. „Grjótaþorpið er dásamlegur staður. Þegar ég flutti þangað fyrst var þar samansafn af sérvitringum og ég varð ástfanginn af umhverf­ inu. Síðan hefur þetta þróast út í það að það eru færri sérvitringar og meira um að fólk sé að leigja útlendingum gistingu. Þetta er eins og lítil vin í eyðimörkinni. Þú ert niðri í miðbæ en verður ekki var við neinn hávaða frá næturlífinu eða öðru. Ég varð ekki einu sinni var við neitt þegar það var nektarbúlla í næstu götu í Grjótaþorpinu.“ Hvað eldar hamborgarakóngur- inn á aðfangadag? „Ég verð hjá Tómasi syni mínum og hef hann grunaðan um að verða með tvær þrjár rjúpur í forrétt og svo kalkún. Hann er alinn upp í Ameríku og gerir góðan kalkún. Í minningunni fannst mér ham­ borgarhryggur það dásamlegasta sem ég gat fengið en mig langar ekki í hann í dag. Einu sinni æxluðust hlutirnir þannig að ég var einn ein jólin. Þá borðaði ég uppáhaldsmat­ inn minn, flatköku með roastbeef og rækjusalati. Önnur eftirminnileg jól eru þau þegar ég var búinn að selja Tommahamborgara og fór með Sveinbirni til Los Angeles. Við vor­ um svolítið eins og sveitamenn á Santa Monica og fórum og fengum okkur nautasteik á aðfangadags­ kvöld. Þá var ég búinn að fá auga­ stað á Hard Rock Café en ekki búinn að hitta eigandann. Ég hafði sagst ætla að opna staðinn á Íslandi en þetta var bara draumur. Þessi jól tók Sveinbjörn upp lítinn pakka sem hann gaf mér. Hann hafði þá far­ ið upp á sitt einsdæmi og mútað einni þjónustustúlkunni á Hard Rock í Los Angeles og keypt af henni barmmerki með lógói Hard Rock. Þetta gaf hann mér og er eftirminni­ legasta jólagjöfin. Þetta var ákveðið „statement“. Ég skrifaði svo undir samninginn og eftirleikinn þekkja allir.“ n Retor Fræðsla Íslenskukennsla fyrir innflytjendur Vorönn 2017 hefst 9. janúar. Skráning hafin á retor.is eða í síma 519 4800. Retor Fræðsla - Hlíðasmára 8, Kópavogi - Sími: 519 4800 - www.retor.is „Ég er orðinn 67 ára og maður verður að æfa oft og halda sér við. Annars er þetta bara búið. Stiginn til hliðar Tommi hefur falið syni sínum að sinna daglegum rekstri Hamborgara- búllu Tómasar. Hann verður þó áfram viðloðandi reksturinn en útilokar ekki að hann fari að bera út Moggann eða dembi sér út í stjórnmál. Mynd SigtRygguR ARi Í góðu formi Tommi æfir fjórum sinnum í viku en var að eigin sögn eins og „illa vafin rúllupylsa“ þegar hann fór að stunda líkamsrækt í Los Angeles árið 1983.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.