Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.2016, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.2016, Blaðsíða 23
Jólin koma Áby rgðarmaður og umsjón: Steinn Kári Ra gnarsson / steinn@dv.is 22. desember 2016 Kynningarblað G RAF skiltagerð hefur sér- hæft sig í skiltum og merk- ingum fyrir heimili og fyrir tæki síðan árið 1980. Meðal fyrirtækja í viðskipt- um við GRAF eru fjármálafyrirtækið Gamma, verslunin Brynja, Íslands- póstur og Neyðarþjónustan í Skútu- vogi. Nýlega ákvað Hermann Smára- son, eigandi fyrirtækisins, að auka við reksturinn með íslensku hand- verki, þar sem sonur hans, Smári Hermannsson, er afar laginn við út- skurð í vélum þeirra og skiptir þá engu hvort efniviðurinn er tré, plexí- gler eða annað efni sem GRAF skilta- gerðin notar. Þeir feðgar fengu til liðs við sig hönnuðinn Kristínu Björgu Hall- björnsdóttur og fengu hana til að koma með tillögur um hvað heppi- legt væri að hanna fyrir íslenskan og erlendan markað. Niðurstaðan var að byrja á hönnun á íslenskum fugla- styttum úr plexígleri; rjúpu og hrafni. Kristín Björg hannar fuglana í samráði við Smára. Hún sækir inn- blástur í sögur og ljóð um rjúpuna og hrafninn við hönnun sína á þessum íslensku fuglum. Verkin eru unnin í plexígler og eru hin mesta híbýla- prýði og frábær jólagjöf. Stytturnar eru gullfallegar eins og myndirnar með þessari grein bera með sér. „Við erum með rjúpu fljúgandi í glugga. Annars vegar er þar um að ræða 20 sentímetra háa styttu og hins vegar örlitla fugla sem mynda óróa,“ segir Kristín en rjúpurnar eru til í fjórum litum: appelsínugulur, hvítur, gulllit- aður og fjólubleikur. „Síðan er það rjúpa á fæti. Það er sambærileg hönnun en það er hægt að letra í fótinn.“ Rjúpurnar eru af- hentar í kassa og í hverjum kassa fylgir lesning um rjúpuna á blöðum. Þar kemur fram að hún hafi áður verið fátækramatur en sé núna orðin veislumatur. Enn fremur er að finna ljóð og sögur um rjúpuna á þessum blöðum. Þessi lesning er bæði á ís- lensku og ensku. „Þessar sögur um rjúpuna hafa haft áhrif á mig og orðið mér inn- blástur. Þetta er tragískur fugl sem heldur að hann sé sloppinn en ann- að kemur á daginn,“ segir Kristín. Hrafninn bjargaði lífi konu „Ég vildi fyrst ekki hafa krumma því mér fannst hann ofnotaður. En síðan fundum við afskaplega fal- lega hrafnamynd hjá ljósmyndara og fengum að notast við hana við hönnunina,“ segir Kristín en hrafna- stytturnar eru eingöngu á fæti. Með hrafninum fylgja líka ljóð og sögur: „Hrafninn sat á öxl Óðins, fór út um allan heim og sagði fréttir á kvöldin. Hrafna-Flóki notaði hrafna til að finna Ísland. Síðan eru það öll kvæðin, til dæmis Krummi krunkar úti. Ein saga um krumma hafði líka mikil áhrif á mig þegar ég var barn: Það var kona ein sem gaf krumma að borða á hverjum degi. Einn daginn lét hann öllum illum látum og tókst að lokka konuna frá bænum. Heyrðust þá miklar drunur, það kom skriða úr fjallinu og fór yfir bæinn. Þannig laumaði krummi matargjafirnar, hann bjargaði lífi konunnar.“ Lesningin um hrafninn er bæði á ensku og íslensku. Þess má geta að rjúpan og hrafninn eru einnig til í risastærð, 40 sentímetrar á hæð. Kristín vill geta þess að þessi vinna hafi verið afskaplega gefandi fyrir sig og samstarfið við Smára Hermannsson frábært. Fuglastytturnar eru seldar í versl- un GRAF skiltagerðar, Hjallahrauni 2, Hafnarfirði. Síminn í GRAF er: 571-7808. Þangað er gott að hringja bæði fyrir verslanir sem hafa áhuga á að fá fuglana til sölu og fólk sem vill kaupa þá til að prýða híbýli sín, því þeir eru sannkölluð híbýlaprýði. Netfang er: graf@graf.is Fuglastytturnar eru einnig til sölu í versluninni Lilja Boutique, Strand- götu 21, Hafnarfirði. n Íslensku fuglarnir: Ný vörulína í GRAF

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.