Fréttablaðið - 29.06.2017, Page 21

Fréttablaðið - 29.06.2017, Page 21
skattur.is Álagningu skatta á einstaklinga er lokið Álagningar- og innheimtuseðlar einstaklinga 2017 eru aðgengilegir á þjónustuvef ríkisskattstjóra rsk.is og skattur.is. Barnabætur, vaxtabætur og inneign vegna álagningar verður greidd út 30. júní. Upplýsingar um greiðslustöðu veita tollstjóri og sýslumenn. Álagningarskrár liggja frammi á starfsstöðvum ríkisskatt stjóra dagana 29. júní til 13. júlí 2017 að báðum dögum meðtöldum. Kærufresti lýkur 31. ágúst 2017. Álagning einstaklinga 2017 Þjónustuver opið: Mán.-fim. 9:00-15:30 Fös. 9:00-14:00 442 1000 rsk@rsk.is Algeng eftirnöfn eins og t.d. Hallgrímsdóttir og Sigfús son eru yfirleitt ekki fýsileg rímorð í skáldskap og eru þar sjaldgæf eftir því. Innlend og erlend ættarnöfn eru annað mál. Minnugur fjörlegs samtals Péturs Blöndal blaðamanns við Elías Mar í bókinni Sköpunarsögur kastaði ég þessum hversdagslega fyrri parti til Kristjáns Hreinssonar skáldvinar míns símleiðis sem ég stóð í biðröð á flugvellinum í Róm: Elías Mar var óttalegt skar/ en alls ekki þar sem mest á mæddi./ Kristján svaraði um hæl: Hann gerði sér far um gáfulegt svar/ og gleymdi þá hvar um veg hann æddi./ Sciöth, Rist og Maack Við höfum skipt svo með okkur verkum við Kristján sem ég skjögra um skáldskaparsvellið þar sem hann leikur listir sínar með miklum brag að ég glími við auðveldu ættar- nöfnin en hann sér um hin sem erfiðari eru eins og t.d. Bieltvedt, Farestveit og Flygenring. Hér er eitt alkunnugt og auðvelt ættarnafn: Ættarnöfn eru annað mál Þorvaldur Gylfason Í dag Að halda því fram að Elliðárbrekkan sé brött/ er broslegt og eiginlega alveg út í hött,/ er haft eftir Sigfúsi Schiöth./ Og hér birtist vatnamælinga- maðurinn þjóðkunni: Enginn veit hvað átt hefur eða misst,/ en allir geta faðmað, sungið og kysst,/ sagði Sigurjón Rist./ Og hér er skipaverkfræðingurinn vinur minn sem vann hjá Eimskipa- félaginu um árabil og ég var þar sendiherra á viðreisnarárum Ólafs Thors og þeirra nema ég hef breytt millistafnum í nafni hans úr E í P: Í suðvestangarra og súld/ sagði mér Kristófer Kúld/ að vinur hans Viggó P. Maack/ vildi helzt búa í blokk/ ellegar verða innlyksa/ á afskekktri ey/ með Dórisi Day/ eða Droplaugu Mixa./ Clooney og Kaye Og hér er söngkonan góða, föðursystir sjarmatröllsins George Clooney, ásamt Dannie Kaye sem var tíður gestur í Trípólibíói sem stóð ryðgaður braggi milli prófess- orabústaða bernsku minnar: Fegurstar þykja mér rauðar rósir í júní,/ sagði Rosemary Clooney./ Sjaldan hef ég dansað við svo draumfagra mey,/ sagði Dannie Kaye./ Proust og Pálína Allt sitt líf lét hún sig dreyma um liðmjúkan dans, en/ hún dró það úr hömlu að skrá sig hjá Rigmor Hansen./ Hún dansaði heldur í kofanum heima við kúst/ sem hún kallaði Proust./ Þau dönsuðu foxtrott og rúmbu og ræl og polka./ Það rauk upp úr háfnum hjá Proust og Pálínu Kolka./ Algeng eftirnöfn eins og t.d. Hallgrímsdóttir og Sigfússon eru yfirleitt ekki fýsileg rím- orð í skáldskap og eru þar sjaldgæf eftir því. 365.is . Opið allan sólarhringinn í Engihjalla, Vesturbergi og Arnarbakka S k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 21F i M M T u d a g u R 2 9 . j ú n Í 2 0 1 7 2 9 -0 6 -2 0 1 7 0 4 :3 2 F B 0 8 0 s _ P 0 6 0 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 D 3 9 -6 A A C 1 D 3 9 -6 9 7 0 1 D 3 9 -6 8 3 4 1 D 3 9 -6 6 F 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 0 8 0 s _ 2 8 _ 6 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.