Fréttablaðið - 29.06.2017, Blaðsíða 8
90g - 459 kr. pk.
120g - 579 kr. pk.
175g - 859 kr. pk.
NÝ AÐFERÐ
Betri hamborgari!
alltaf 2 stk. í pakka
hamborgara-
búðin þín!
100%
UNGNAUTA
HA
KK
EI
NS
O
G H
EIMAGERÐUR
100
%
Aðalfundur
Félagsmenn í Félagi skipstjórnarmanna.
Aðalfundur FS verður haldinn á morgun, föstudag
30. júní kl. 14.00 í Gallerí, sal í kjallara Grand Hólels.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Léttar veitingar
Félagar fjölmennið
Stjórnin
100
börn slasast árlega á Íslandi
við fall úr innkaupakerrum.
Það er oft verið að
setja krakka í
aðstæður sem foreldrar gera
sér í raun og veru ekki grein
fyrir að séu
hættulegar.
Árni Þór Eiríksson,
meistaranemi í
sálfræði
samfélag Með spjaldi með texta og
mynd í innkaupakerrum má draga úr
slysum sem verða þegar börn detta úr
innkaupakerrum. Þetta er niðurstaða
nýrrar meistararitgerðar í sálfræði
sem Árni Þór Eiríksson skrifaði.
Niðurstöðurnar hafa nú þegar
leitt til þess að breytingar hafa verið
gerðar í nokkrum verslunum. „Það
eru nú þegar komnar merkingar í
tveimur verslunum og verið er að
vinna að langtímamerkingu í þriðju
versluninni,“ segir Árni. „Við erum í
viðræðum við fullt af verslunum.“
Árlega slasast um 100 börn á
Íslandi við að detta úr innkaupakerr-
um. Markmið rannsóknarinnar var
að athuga hvort hægt væri að hafa
áhrif á þá hegðun að foreldrar settu
börn sín ofan í innkaupakerrur með
því að koma fyrir spjaldi með mynd í
innkaupakerrum fjögurra verslana á
höfuðborgarsvæðinu. Meiðslin sem
börn geta hlotið af falli úr innkaupa-
kerru eru sambærileg meiðslum sem
fullvaxinn karlmaður getur orðið
fyrir við fall af bílskúrsþaki.
„Það er oft verið að setja krakka
í aðstæður sem foreldrar gera sér í
raun og veru ekki grein fyrir að séu
hættulegar. Það er helsti vandinn.
Það er hættan þegar þessi slys verða
hversu slæm þau geta orðið. Það eru
dæmi um virkilega alvarleg slys þar
sem börn duttu úr innkaupakerrum,“
segir Árni.
„Með þessu inngripi (spjaldi) er
verið að nota aðferðir sem hafa verið
notað víðs vegar í heiminum en aldr-
ei í þessum tilgangi, að minnka líkur á
ákveðinni hegðun í svona stórum stíl,“
segir hann.
Niðurstöður rannsókna sýna að
spjald með texta og mynd virkar betur
en spjald með mynd eða táknmynd.
Árni segir þó þörf á frekari rann-
sóknum. „Eins og staðan er í dag er
ekki til nóg af rannsóknum til að við
getum alhæft um niðurstöðurnar. Það
er í vinnslu sem og viðræður við fleiri
verslanir til að taka þátt.“ – sg
Innkaupakerrur fá spjöld vegna slysa
lögreglumál Um sjöleytið í gær-
kvöldi kallaði ungur maður eftir
aðstoð lögreglu vegna þess að hann
fann sprengju í strætóskýli við Hlíðar-
veg í Kópavogi.
„Ég fattaði ekki alveg fyrst hvað
þetta var, ég tók þetta upp og hélt á
þessu, þetta var mjög þungt svo sá ég
þráðinn og þá lagði ég þetta frá mér
aftur,“ segir Hermann Örn Sigurðar-
son sem búsettur er í götunni.
„Ég ákvað að hringja í lögregluna og
láta þá vita af þessu. Ég beið hjá strætó-
skýlinu þangað til lögreglan kom
sem var um rétt rúmlega sjöleytið og
spurðu þeir mig út í þetta. Svo fór ég
inn og þeir biðu hérna fyrir utan í um
tuttugu mínútur, síðan kom sérsveitin
og kíkti eitthvað á þetta. En hún fór svo
aftur og þá kom sprengjusveitin ásamt
sérsveitinni og þeir lokuðu götunni,“
segir Hermann. Götunni var því tíma-
bundið lokað á meðan sprengjan var
tekin. Hermann segir lögregluna ekki
hafa upplýst sig frekar um málið í
framhaldinu.
Samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglunni er talið að um rörasprengju
hafi verið að ræða. – sg
Sprengja fannst í strætóskýli
Lögreglan mætti á vettvang um sjöleytið í gærkvöldi eftir að Hermann hafði samband við hana. Mynd/HerMann Örn SigurðarSon
Sprengjan, sem lögreglan telur vera rörasprengju, var að sögn Hermanns þung. Mynd/HerMann Örn SigurðarSon
Rörasprengja fannst í
strætóskýlí í Kópavogi í
gærkvöldi. Sprengjusveit
kom á svæðið og lokaði
götunni til að fjarlægja
sprengjuna af vettvangi.
Engan sakaði.
Hermann Örn
Sigurðarson
NOregur Flugmönnum hjá Nor-
wegian býðst nú tvöföld greiðsla
fyrir yfirvinnu. Flugstjórar geta til
dæmis þénað allt að 295 þúsund
íslenskum krónum, vinni þeir á frí-
degi sínum. Samkvæmt frétt Dagens
Næringsliv eru það fjórfalt hærri
laun en venjuleg daglaun. Meiri
skortur hefur verið á flugmönnum í
sumar en búist var við og hefur þurft
að aflýsa flugi að undanförnu. Haft
er eftir formanni stéttarfélags flug-
manna, að sumir segi kannski já við
vakt þótt þeir séu þreyttir. Í þessu
starfi eigi menn að vera í toppformi
allan tímann. - ibs
295 þúsund
á dag fyrir
aukavakt
sVÍÞJÓÐ Þýskur djákni, Arne Bölt,
var í undirrétti í Malmö dæmdur til
að greiða 50 dagsektir fyrir að aka
sýrlenskri konu og tveimur ungum
börnum hennar frá Þýskalandi til
Svíþjóðar til að hún gæti sameinast
fjölskyldu sinni þar, eiginmanni
og tveimur öðrum börnum þeirra
hjóna.
Bölt var ljóst að samkvæmt
lögum ætti að úrskurða um örlög
fjölskyldunnar í Þýskalandi sam-
kvæmt Dyflinngarreglugerðinni.
Hann krafðist hins vegar sýknu þar
sem um mannúðarástæður hefði
verið að ræða. Hann hefði ekki
átt annars úrkosti vegna andlegs
ástands konunnar. Hún hefði ekki
getað beðið lengur. – ibs
Djákni sektaður
fyrir að sameina
flóttafjölskyldu
2 9 . J ú N Í 2 0 1 7 f I m m T u D a g u r8 f r é T T I r ∙ f r é T T a B l a Ð I Ð
2
9
-0
6
-2
0
1
7
0
4
:3
2
F
B
0
8
0
s
_
P
0
7
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
6
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
3
9
-A
0
F
C
1
D
3
9
-9
F
C
0
1
D
3
9
-9
E
8
4
1
D
3
9
-9
D
4
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
0
8
0
s
_
2
8
_
6
_
2
0
1
7
C
M
Y
K