Fréttablaðið - 29.06.2017, Page 66
Baby Driver
HHHHH
Leikstjóri: Edgar Wright
Framleiðendur: Tim Bevan, Eric
Fellner, Nira Park
Handrit: Edgar Wright
Kvikmyndataka: Bill Pope
Aðalhlutverk: Ansel Elgort, Lily
James, Kevin Spacey
Ungur og eldklár flóttabílstjóri sem
kallar sig Baby er í skuld við glæpa-
manninn Doc og dreymir um líf þar
sem hann er laus við skyldur sínar.
Það sem gerir Baby sérstaklega
magnaðan undir stýri er hvernig
hann leikur bókstaflega eftir eyr-
anu. Hann skipuleggur líf sitt og
akstursleiðir eftir tónlistinni sem
hann hlustar á.
Baby lenti í bílslysi í æsku sem
olli sífelldu suði í eyrum hans og
notar hann músík allar stundir til
þess að drekkja suðinu. Þegar fer
aðeins að birta til í lífinu myndar
hann náin tengsl við huggulegu
þjónustustúlku, Deboru. Að losna
úr krimmaheiminum er hins vegar,
eðlilega, hægara sagt en gert.
Fagmaðurinn Edgar Wright,
sem er þekktastur fyrir Cornetto-
þríleikinn svokallaða, vinnur úr
kunnuglegri uppskrift en af mikl-
um stæl. Hér er hugað að púlsinum
og sálinni á sama tíma í léttum og
spennandi glæpatrylli. Það sem
límir allt saman er hnyttið hand-
rit, rokkandi orka, meiriháttar
tónlistarnotkun, flottir leikarar og
brakandi fersk stemning alla leið.
Það eitt hvernig leikstjórinn
Massakeyrsla,
mjúkur töffari
og trufluð tónlist
Baby Driver fær toppeinkunn.
Ansel
Elgort
stendur sig
vel í hlut-
verki sínu
sem Baby.
NORDIC
PHOTOS/AFP
vefur saman flóttasenur, adr-
enalín og músík setur myndina
í eins konar sérflokk sem frum-
legan, naglharðan en blíðan „elt-
inga(söng)leik“ og heldur dampi
allan tímann. Samsetningin og sér
í lagi klippingin er helber snilld, en
þetta myndi virka ef Ansel Elgort
brilleraði ekki í aðalhlutverkinu.
Án vandræða tekst honum að gera
hinn fámála Baby að þeim mjúka
töffara sem hann á að vera. Hann
er viðkunnanlegur, berskjaldaður
en í senn klár, sjarmerandi og svo
gott sem óstöðvandi með heyrnar-
tólin á.
Baby notar tónlist sem ákveðna
flóttaleið, í andlegri og bókstaflegri
merkingu. Út söguna fylgjumst við
með drengnum neyðast til þess að
taka fullorðinslegar ákvarðanir
þegar haldið er aftur af honum,
á meðan hann þráir fátt heitara
en að láta sig hverfa með Deboru.
Óútreiknanlegu samstarfsfélag-
arnir þrengja að tilveru drengsins
og reynir á hversu fljótur hann er
að hugsa.
Með hlutverk Deboru fer Lily
James og hún fer létt með að bræða
áhorfandann með útgeislun sinni
og heillandi karakter. Ef það þarf
að setja út á eitthvað þá mættu
alveg vera fleiri senur með henni.
En þau Elgort smella engu að
síður nógu krúttlega saman til
að áhorfandinn haldi upp á þau.
Reyndar hefur hver og einn einasti
leikari í myndinni einhverju bita-
stæðu að bæta við heildina.
Persónurnar eru margar klisju-
kenndar erkitýpur en alls engar
pappafígúrur. Og það sakar ekki að
það sést að flestir eru að njóta sín
í botn. Enginn virðist þó skemmta
sér betur en Kevin Spacey, þó Jamie
Foxx, Eiza González og Jon Hamm
séu líka í dúndurgóðum fíling.
Leikstjórinn setur brandara ekki
eins mikið í forgrunninn hér og í
fyrri myndum, en heildarferill
hans sýnir þó fram á að hann
hefur masterað afbragðstök á
því að setja þroskasögur (sem
í flestum tilfellum fela ástar-
sögu í sér) í poppaðan búning.
Baby Driver er þar engin und-
antekning.
Fyrir utan byrjendaverk
sitt hefur Wright aldrei
gert slaka kvikmynd
og með aldrinum
hefur hann sýnt
fram á vaxandi
hæfileika í fjöl-
breyttum hasar,
oftar en ekki af
gamla skólanum.
Wright og hans
teymi útfærir
hér glæsilega
eltingarleiki og
sækir í takta frá
myndum eins og
The Driver, The
French Connection
og meira að segja
The Blues Brot-
hers á einhvern
máta. Leikstjórinn
leikur sér auðvitað
helling að hraða og
byssuhvellum en gælir líka
við afleiðingarnar sem fylgja
lífsstílnum sem er svo oft
sýndur í rómantísku ljósi í bíó-
myndum.
Baby Driver ristir kannski
ekki djúpt en það er með ólík-
indum hvernig stílbrögð og frá-
sögn Wrights pakka miklum
upplýsingum í myndmálið.
Það fer enginn rammi til spillis
á hnitmiðuðum, snyrtilegum
sýningartíma. Þetta er mynd
sem kallar eftir fleiru en einu
glápi. Heildin er ekki laus við
smágalla en hina flippuðu
þeysireið hennar er bara of
erfitt að standast.
Tómas Valgeirsson
Niðurstaða: Stílísk úr-
vinnsla, rjúkandi orka, flottir
leikarar og æðisleg stemning.
Erfitt verður að finna ferskari
mynd í sumar.
Undirbúningstökur á kvikmyndinni
Deadpool 2 eru hafnar. Ryan Reyn-
olds hefur sprellað mikið á setti eins
og má sjá á Twitter-síðu leikarans,
en þar hefur hann deilt slatta af
myndum af setti.
Ekki er komið alveg á hreint
hverjir munu leika í myndinni með
Ryan Reynolds – þó er vitað að Josh
Brolin muni fara með hlutverk
Cables og vakti athygli fyrir að hafa
massað sig upp fyrir hlutverkið og
Zazie Beetz úr Atlanta verður í hlut-
verki Dominos.
Hins vegar má kalla það nokkuð
óvænt að Julian Dennison er mættur
í hópinn samkvæmt Instagramsíðu
leikarans þangað sem hann smellti
mynd af sér sitjandi á baki Ryans
Reynolds í einhverju sturluðu flippi.
Þeir sem kannast ekki við Julian
Dennison hafa greinilega ekki séð
kvikmyndina Hunt for the Wilder-
people þar sem þessi kornungi
leikari fór gjörsamlega á kostum.
Þar lék hann á móti Sam Neill í
mjög sérstakri „buddy comedy“ þar
sem Julian Dennison er sérstaklega
fyndinn.
Hann ætti því að falla eins og flís
við rass inn í allt grínið sem ein-
kennir Deadpool karakterinn en
fyrri myndin þótti ákaflega fyndin.
Það verður spennandi að sjá hvort
að framhaldið verði jafn gott. - sþh
Óvænt stjarna
bætist við
Deadpool 2
leikarahópinn
Julian Dennison fór á kostum í
Hunt for the Wilderpeople.
SKRÁÐU ÞIG
Á 365.IS
SUMARLEIÐIN
Save the Children á Íslandi
2 9 . j ú N í 2 0 1 7 F i M M t u D a G u r42 M e N N i N G ∙ F r É t t a B L a ð i ð
Bíó
2
9
-0
6
-2
0
1
7
0
4
:3
2
F
B
0
8
0
s
_
P
0
7
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
6
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
3
9
-8
D
3
C
1
D
3
9
-8
C
0
0
1
D
3
9
-8
A
C
4
1
D
3
9
-8
9
8
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
8
0
s
_
2
8
_
6
_
2
0
1
7
C
M
Y
K