Fréttablaðið - 29.06.2017, Side 54
Golf Í dag rennur upp stór stund
fyrir íslenskt golf þegar Ólafía
Þórunn Kristinsdóttir verður fyrsti
íslenski kylfingurinn til að spila á
risamóti í golfi. Það gerir hún á PGA-
meistaramóti kvenna sem hefst á
Olympia Fields í útjaðri Chicago-
borgar í Bandaríkjunum.
KPMG er aðalstyrktaraðili móts-
ins en Ólafía er einnig á samningi
hjá fyrirtækinu. Það hefur því verið
nóg að gera hjá henni í aðdraganda
mótsins en í fyrradag spilaði hún
á svokölluðu Pro-Am móti, þar
sem atvinnukylfingarnir spila með
áhugamönnum.
„Maður nær lítið að æfa sig í
slíkum aðstæðum. Maður er líka
beðinn um að tala við alls konar
fólk, sem er gaman en maður verður
líka að muna af hverju maður er
kominn hingað,“ sagði Ólafía við
Fréttablaðið.
Væri ekki það sama
Ólafía vann sér sjálf inn þátttöku-
rétt á mótinu með stöðu sinni á
stigalista LPGA-mótaraðarinnar, og
kom það því aldrei til þess að KPMG
þurfti að bjóða henni sæti á mótinu,
en aðalstyrktaraðili mótsins má
bjóða tveimur kylfingum þátttöku
á mótinu.
Fyrstu fréttir voru hins vegar
á þann veg að henni hefði verið
boðin þátttaka sem reyndist mis-
skilningur.
„Það gerir mig enn stoltari að
hafa komist inn á eigin frammi-
stöðu. Mér hefði fundist svekkjandi
Vil sýna hvað ég spila vel
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir heldur áfram að vera brautryðjandi íslenskra kylfinga þegar hún hefur í dag
keppni á stórmóti í golfi, fyrst íslenskra kylfinga. Hún hefur fundið fyrir ofþreytu eftir álag síðustu vikna.
Ólafía ásamt Stacy Lewis, Phil Mickelson, Mariah Stackhouse og Klara Spilkova í aðdraganda risamótsins. fréttabLaðið/getty
að hugsa til þess að fyrsti Íslending-
urinn sem keppir á stórmóti hafi
fengið boð. Það væri ekki alveg það
sama,“ segir hún.
Ólafía ætlar að reyna að undirbúa
sig fyrir þetta mót eins og öll önnur,
þótt það kunni að vera erfitt.
„Það er meira umstang hér og
fleiri áhorfendur. Ég þarf fyrst og
fremst að passa mig á því að ég mæti
fersk til leiks – að ég sé andlega sterk
og vel hvíld. Ég þarf að vera dugleg
að æfa en um leið passa mig á því að
gera ekki of mikið.“
Nýliðamistök
Það hefur verið nóg að gera hjá
Ólafíu sem hefur tekið þátt í ell-
efu mótum á LPGA-mótaröðinni.
Hún hefur komist í gegnum niður-
skurðinn á fjórum þeirra, en eftir
mjög öfluga byrjun sat hún eftir í
sjö mótum af síðustu ellefu.
Axlarmeiðsli hafa verið að hrjá
hana lítillega síðustu vikurnar en
Ólafía viðurkennir einnig fúslega
að hafa keppt á of mörgum mótum.
„Það eru dæmigerð mistök fyrir
kylfinga á fyrsta ári sem eru að berj-
ast fyrir því að halda þátttökurétt-
inum sínum. Mann langar að spila á
öllum mótum en það er manni ekki
fyrir bestu, eins og sést á niðurstöð-
unni,“ segir hún en Ólafía dró sig úr
móti fyrir tveimur vikum og hún sá
um leið mikinn mun á sér á mótinu
í Arkansas um síðustu helgi, þar sem
hún komst áfram og náði sínum
öðrum besta árangri á mótaröðinni.
Vantaði nanósentimetra
„Ég var allt önnur manneskja en
tveimur vikum áður. Ég var mun
skýrari í hugsun,“ segir Ólafía sem
kveðst hafa lært mjög mikið á þessu
hálfa ári sem hún hefur keppt í
sterkustu mótaröð heims.
„Þetta hefur liðið ótrúlega hratt.
Mér finnst að ég hafi spilað mjög
vel en samt er ég enn að bíða eftir
að ég nái að sýna það alveg, hversu
vel ég er að spila.“
Hún nefnir sem dæmi lokahring-
inn í Arkansas um síðustu helgi þar
sem hún átti góðan möguleika á að
vera á betra skori en einu höggi
undir pari og klífa þar með hærra
upp stigatöfluna en hún gerði.
Ólafía hafnaði í 56. sæti.
„Fólk sem horfði á mig spila
sagði að ég hefði þess vegna getað
verið tíu höggum undir. Það voru
nanósentimetrar sem vantaði upp
á púttin og fleira í þeim dúr. Stund-
um falla svona hlutir með manni og
stundum ekki.“
Hún segist hafa verið svekkt
út í sjálfa sig úti á vellinum. „Ég
klúðraði þessu sjálf og því nokkuð
pirruð. Mig langar auðvitað að vera
hærra á peningalistanum en ég
held að þetta sé allt að koma með
þolinmæðinni,“ segir Ólafía sem er
sem stendur í 131. sæti listans en
efstu 100 fá sjálfkrafa þátttökurétt
á næsta keppnistímabili.
reynir að vera hún sjálf
Ólafía er vitanlega stolt af því að
verða fyrsti Íslendingurinn sem
keppir á risamóti í golfi en það má
heyra á henni að hún er afar hóg-
vær og dvelur ekki lengi við eigin
afrek.
„Jú, ég finn að ég er fyrirmynd
fyrir aðra þegar ég kem heim til
Íslands og hitti unga krakka. Það er
bara skemmtilegt. Ég reyni að vera
góð fyrirmynd og vera ég sjálf,“ segir
hún að lokum. eirikur@frettabladid.is
Mann langar til að
spila á öllum
mótum en það er manni ekki
fyrir bestu, eins og sést á
niðurstöðunni.
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir
grindavík - fylkir 2-1
1-0 Carolina Mendes (47.), 1-1 Thelma Her-
mannsdóttir (48.), 2-1 Ásta Guðlaugsdóttir,
sjm (61.).
Pepsi-deild kvenna
Nýjast
Í dag
Sjónvarp:
16.30 Pga-mót kvenna Golfstöðin
19.30 Quicken Loans Golfstöðin
19.05 fylkir - fH Sport 2
19.05 Ír - Leiknir r. Sport 3
19.05 Kr - SJK Sport
Leikir:
19.15 Stjarnan - Shamrock rovers
19.15 Kr - SJK
19.15 fylkir - fH
19.15 Ír - Leiknir r.
19.15 grótta - Keflavík
Staðan
féLag L U J t MÖrK S
Þór/Ka 10 9 1 0 23-4 28
breiðablik 10 8 0 2 26-4 24
Stjarnan 10 7 1 2 25-9 22
ÍbV 10 7 1 2 20-8 22
Valur 10 6 1 4 25-9 19
fH 10 4 0 6 11-17 12
grindavík 10 3 0 7 8-29 9
Kr 10 2 0 8 6-22 6
fylkir 10 1 1 8 5-22 4
Haukar 10 0 1 9 5-30 1
PAuL tiL HOuStOn
LA Clippers hefur komist að sam-
komulagi um að skipta leikstjórn-
andanum Chris Paul til Houston
Rockets samkvæmt heimildum
Adrian Wojnarwoski hjá Yahoo.
Í staðinn fær Clippers bakverðina
Patrick Beverley og Lou Williams,
framherjann Sam Dekker og val-
rétt í 1. umferð nýliðavalsins 2018.
Hinn 32 ára gamli Paul átti eitt
ár eftir af samningi sínum við
Clippers og í staðinn fyrir að missa
hann fyrir ekki neitt næsta sumar
náði félagið samkomulagi við Hou-
ston um skipti.
AROn á Leið tiL BARCA
Aron Pálmarsson hefur samið við
spænska stórveldið Barcelona.
Þetta er fullyrt í frétt spænska
blaðsins el Mundo Deportivo.
Þar segir að Aron muni ganga í
raðir Barcelona sumarið 2018
þegar samningur hans við ung-
verska meistaraliðið Veszprém
rennur út. Hann gæti þó komið
til Barcelona í sumar ef spænska
félagið nær samkomulagi við
Veszprém.
Paris Saint-Germain og Kiel,
gamla félagið hans Arons, vildu
einnig fá íslenska landsliðsmann-
inn en hann valdi Barcelona.
Þá vildi Veszprém halda Aroni í
sínum röðum.
Í frétt el Mundo Deportivo er því
haldið fram að hluti af ástæðunni
fyrir því að Aron valdi Barcelona
sé að ágústa eva erlendsdóttir,
verðandi barnsmóðir Arons, vilji
búa í þar í borg.
Aron hóf feril sinn í atvinnu-
mennsku með Kiel 2009. eftir að
hafa fimm sinnum orðið þýskur
meistari, þrisvar sinnum bikar-
meistari og unnið Meistaradeild
evrópu í tvígang gekk Aron í raðir
Veszprém 2015.
Aron hefur
orðið tvöfaldur
meistari bæði
árin sín í ung-
verjalandi.
Þá vann
hann SeHA-
deildina,
eins konar
Meistaradeild
Austur-evrópu,
með Veszprém í fyrra.
2 9 . j ú n í 2 0 1 7 f I M M T U D A G U R30 S p o R T ∙ f R É T T A B l A ð I ð
Sport
2
9
-0
6
-2
0
1
7
0
4
:3
2
F
B
0
8
0
s
_
P
0
5
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
3
9
-A
5
E
C
1
D
3
9
-A
4
B
0
1
D
3
9
-A
3
7
4
1
D
3
9
-A
2
3
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
A
F
B
0
8
0
s
_
2
8
_
6
_
2
0
1
7
C
M
Y
K