Fréttablaðið - 29.06.2017, Side 76

Fréttablaðið - 29.06.2017, Side 76
Plötusnúðurinn DJ Earl kemur til landsins á vegum tónlistaraka-demíu Red Bull og býður í vinnustofu þann 15. júlí. Hann mun þeyta skífum um kvöldið eftir vinnustofuna. Í vinnustofunni fer DJ Earl yfir græjurnar sem hann notar og kennir áhorfendum hvernig eigi að henda í eitt gott Footwork-lag. Hvað er footwork? Footwork er tónlistarstefna og götudans sem á rætur sínar að rekja til Chicagoborgar og varð þar til snemma á tíunda áratugnum. Í fátækrahverfum borgarinnar dönsuðu ungmennin og kepptu sín í milli, líkt og breakdansinn í New York virkar. Hins vegar er footwork dansinn öðruvísi enda er tónlistar- Fótafimi beint frá Tónlistarakademía Red Bull býður foot- work-plötusnúðnum og pródúsernum DJ Earl til landsins á næstunni. Hann kemur beina leið frá Chicago til að kenna Íslendingum að gera footwork lög. DJ Earl er einn af aðalmönnunum í Teklife hópnum sem DJ Rashad heitinn stofnaði. stefnan sem dregur nafn sitt frá dansinum margfalt hraðari en sú tónlist sem tíðkast í breakinu. Flest lögin eru í kringum 160 bpm („beats per minute“ – slög á mínútu) en það er töluvert hraðara en „venjuleg“ tón- list sem er oft- ast 80 – 100 bpm. F o o t w o r k er bræðingur af ýmsum stefnum eins og ghetto house, juke og hiphopi. Footwork- stefnan var bundin við Chi- cago þangað til árið 2007 þegar footwork-dansarar voru sýndir í myndbandinu við lagið Watch my feet með Dude ‘N Nem. DJ Rashad og Teklife hópurinn DJ Rashad hefur oft verið kallaður faðir footwork stefnunnar. Hann gerðist plötusnúður á unga aldri og spilaði mest house og juke, starfaði DJ RashaD eR oFtast kallaðuR FRumkvöð- ull FootwoRksins. hann stoFnaði tekliFe-plötu- FyRiRtækið. DJ RashaD lést áRið 2014. síðar á útvarpsstöð Kennedy-King Collage skólans og var meðlimur nokkurra danshópa – en það var þar sem hann tók að þróa footwork- stefnuna. Fyrsta útgefna lag DJ Rashads kom út árið 1998. Það var hins vegar ekki fyrr en árið 2013 sem Rashad gaf út sína fyrstu breiðskífu, Double Cup, en hún fékk mjög góðar viðtökur – Mixmag gaf henni fimm stjörnur og Pitchfork (sem er þekkt fyrir nísku þegar kemur að einkunnagjöf ) smellti á hana 8,6 af 10 mögulegum. Double Cup reyndist því miður vera fyrsta og eina plata Rashads en hann lést árið 2014. Áður en hann lést stofnaði Ras- had þó plötufyrirtækið Teklife Records og þá komum við að DJ Earl sem er á leiðinni til landsins – en hann er meðlimur Teklife-hópsins og gefur út á Teklife Records. Hann hefur spilað á boiler room kvöldum og óteljandi klúbbum – því ættu tónlistaraðdáendur ekki að láta Earl fram hjá sér fara. Stefán þór Hjartarson stefanthor@frettabladid.is Í hlutafélagaskrá kemur það fram að stjörnuparið Pálmi Ragnar Ásgeirs- son, StopWaitGo-maður, og Dóra Júlía Agnarsdóttir plötusnúður eru að stofna félagið Rok Records ehf. Tilgangur félagsins er eins og segir í hlutafélagsskráningunni „Þróun, ráðgjöf, útflutningur og framleiðsla á tónlist. Umboðsmennska og inn- heimta stefgjalda og útgáfuréttar (publishing/master rights). Rekstur hljóðvers.“ Það má leiða líkur að því að hér sé að verða til nýtt „powerhouse“ í tón- listarbransanum á Íslandi en Pálmi Ragnar hefur, ásamt bróður sínum Ásgeiri Orra og Sæþóri Kristjáns- syni, komið nálægt nánast öllum vinsælum poppsmellum lands- ins síðasta áratuginn eða svo en virðist nú vera að færa sig út í rekstur plötufyrirtækis ásamt kærustu sinni. Dóra Júlía hefur verið að gera það gott sem plötusnúður og þær Þórunn Antonía halda vikulegt karókíkvöld á Sæta svíninu. Hvorki Dóra né Pálmi vildu tjá sig um málið og því ekki ljóst hvernig rekstri plötufyrirtækisins verður háttað að öðru leyti en kemur fram í hlutafélagsskráningu en þar er Pálmi skráður sem stjórnarmaður og Dóra Júlía í varastjórn. Tónlistarútgáfa hér á landi virðist vera að vakna úr ákveðnum dvala en seint á síðasta ári stofnuðu þeir Sölvi Blöndal og Ólafur Arnalds plötu- fyrirtækið Alda Music sem nú hefur á sínum snærum listamenn eins og Úlfur Úlfur, Hildi og Ella Grill. – sþh nýtt nafn í útgáfubransanum Pálmi Ragnar Ásgeirsson, Ás- geir Orri Ásgeirsson og Sæþór Kristjánsson hafa starfað lengi saman sem upptökuhópurinn StopWaitGo. Dóra Júlía er einn vinsælasti plötusnúður bæjarins og hafa karókíkvöld hennar og Þórunnar Antoníu slegið í gegn. fRéTTAblAðið/vilHElm 2 9 . j ú n í 2 0 1 7 F I M M T U D A G U R52 l í F I ð ∙ F R É T T A B l A ð I ð 2 9 -0 6 -2 0 1 7 0 4 :3 2 F B 0 8 0 s _ P 0 7 6 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 6 5 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 D 3 9 -8 8 4 C 1 D 3 9 -8 7 1 0 1 D 3 9 -8 5 D 4 1 D 3 9 -8 4 9 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 8 0 s _ 2 8 _ 6 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.