Fréttablaðið - 29.06.2017, Blaðsíða 62

Fréttablaðið - 29.06.2017, Blaðsíða 62
TónlisT Kammertónleikar ★★★★★ Verk eftir: Brahms, Kodaly, Bartók, Halvorsen, Cage og fleiri. Flytjendur voru allir þátttakendur á Reykjavík Midsummer Music. Eldborg í Hörpu sunnudaginn 25. júní Á lokatónleikum Reykjavík Mid­ summer Music var eins konar óvissu­ dagskrá, því hún var ekki prentuð. Maður vissi ekki fyrirfram hvað átti að leika, sem var spennandi. Gaman var að fólki skyldi komið á óvart, verri var óvissan í miðasöl­ unni á undan. Allmargir gestir, e.t.v. flestir, voru með hátíðarpassa sem gilti á alla tónleika hátíðarinnar. Tónleikarnir nú voru haldnir í Eld­ borg, þar sem eru númeruð sæti, en ekki í Norðurljósum eins og hinir viðburðir hátíðarinnar í Hörpu. Þegar fólk ætlaði inn í salinn var þeim sagt að fara niður í miðasölu til að velja sér sæti. Þar myndaðist löng og mikil röð, því aðeins einn var að afgreiða. Er tónleikarnir voru alveg að fara að hefjast, og röðin enn hin lengsta, var gestum hins vegar tilkynnt að þeir ættu að flýta sér upp í sal og mættu velja sér sæti í tilteknum röðum. Þetta skapaði merkjanlegan pirring meðal fólks að vera þannig sent fram og til baka að ástæðulausu. Eftir þessa byrjunarörðugleika hófust tónleikarnir. Dagskráin var bland í poka og var í fjörlegri kant­ inum. Þar kenndi margra grasa. Atriðin voru flest stutt og óþarfi að telja þau öll upp. Það fyrsta var Passakalían eftir Halvorsen sem þau Rosanne Philippens fiðluleikari og István Várdai sellóleikari léku af eftirminnilegum glæsibrag. Síðan tók við runa af verkum sem voru flutt af tveimur eða fleiri hljóðfæra­ leikurum, og smám saman komu fram allir flytjendur hátíðarinnar. Víkingur Heiðar Ólafsson kynnti dagskrána. Hann sagði í leiðinni frá hljóðfærunum sem var leikið á, og ekki var laust við að það færi um mann að heyra hversu verðmæt þau voru. Þarna var t.d. sellóið sem einn frægasti sellisti 20. aldarinnar, Jaqueline du Pré, lék á, en hún lést langt fyrir aldur fram. Enn merki­ legri var fiðlan sem enginn annar en Napoleon Bonaparté átti, en það var Sayaka Shoji sem spilaði á hana. Andrúmsloftið var létt á tónleik­ unum. Víkingur var hinn skemmti­ legasti sem kynnir og mörg atriðin voru frábær. Fyrsti kaflinn í g­moll píanókvartettinum eftir Brahms var sérlega vel fluttur, sama má segja um rúmenska dansa eftir Bartók, vals eftir Cage, sönglag eftir Fauré í sellóútsetningu og spuna. Opening eftir Philip Glass sem Víkingur lék ásamt Strokkvartett­ inum Sigga var hrífandi fagurt, og þeim mun aðdáunarverðara sem strokkvartettinn var nýbúinn að flytja kvartett eftir Morton Feldman í Mengi fyrr um daginn. Hann tók rúma fimm klukkutíma! Tónleik­ arnir nú voru líka heldur langir, þrír tímar er ansi ríflegt, verður að segj­ ast. Að öðru leyti var þetta notaleg stund og flottur endir á metnaðar­ fullri hátíð. Jónas Sen niðursTaða: Lokatónleikar Reykja- vík Midsummer Music voru líflegir og áheyrilegir. Langar raðir flytjenda og tónleikagesta L itrík verk mæta augum í Hverfisgalleríi við Hverfisgötu í Reykjavík. Sum þeirra eru máluð á gamla nytjahluti og teygja sig jafnvel út á veggina. Sýningin ber titilinn River únd bátur og Davíð segir hana fjalla um forgengileika listamannsins. Kveðst þó ekki vera að segja sögur, ekki í þetta skiptið. „En maður fær á tilfinninguna að eitthvað sé nýbúið að gerast eða eitthvað sé að fara að gerast,“ segir hann og bætir við til skýringar: „Málverkin mín eru þannig að þau eru á einhverri línu sem er abstrakt en þó með tengingar við raunheima, samt eru engar fígúrur, engar persónur, heldur táknmyndir sem koma fram, kannski blóm? – hvað sem er.“ Davíð Örn segir titla verkanna annaðhvort hjálpa fólki að ráða í þau eða villa algerlega fyrir. „Það eru bara mínir eigin prívat brand­ arar sem hjálpa mér að muna hvaða málverk er um að ræða. Engar alger­ lega heilagar reglur.“ Hann notar húsgögn og hurðir og hvað sem er til að mála á. Fer hann kannski í hús og málar á gamlar hurðir fyrir fólk? „Ha, ha, nei, en ég hef málað eitt borðstofuborð fyrir vinafólk mitt. Ég er með opna vinnustofu, ef fólk er að henda ein­ hverju sem ég gæti nýtt mér. Á þess­ ari sýningu eru nokkrar myndir málaðar á skáphurðir úr sömu innréttingunni. Svo eru hér tvær borðplötur, önnur úr leikskóla og hin grunnskóla,“ bendir hann á og hefur augljóslega leyft gömlum tölu­ stöfum að halda sér á annarri plöt­ unni. Er alltaf gaman hjá honum í vinnunni? „Já, já. Núna er ég samt kominn í frí. Málið er að ég er búinn að vanrækja tíu mánaða son minn og heimili síðustu vikur og er að reyna að bæta það upp nú þegar ég er búinn að ýta sýningunni úr vör. Síðar stilli ég upp nýrri vinnustofu og byrja að mála fyrir næstu sýn­ ingu. Það kemur að því.“ Á abstraktlínu en þó með tengingar við raunheima Davíð Örn Halldórsson myndlistarmaður er með sýningu í Hverfisgalleríi sem nefnist River únd bátur. Titlar verkanna gera ýmist að hjálpa fólki að ráða í verkin eða villa um fyrir því. „Maður hefur á tilfinningunni að eitthvað sé nýbúið að gerast,“ segir Davíð Örn í Hverfisgalleríi. Fréttablaðið/Ernir Skrifborð nefnist þetta verk sem er 71x100 cm. brúðarbíllinn – brúðubíllinn 43x152 cm. rosanne Philippens og istván Várdai. Fréttablaðið/anDri Marinó Gunnþóra Gunnarsdóttir gun@frettabladid.is -50% Jarðarber 250 GR ASKJA 199 KRASKJAN ÁÐUR: 398 KR/ASKJAN 2 9 . j ú n í 2 0 1 7 F i M M T u D a G u r38 M e n n i n G ∙ F r É T T a B l a ð i ð menning 2 9 -0 6 -2 0 1 7 0 4 :3 2 F B 0 8 0 s _ P 0 7 9 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 6 2 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 D 3 9 -6 5 B C 1 D 3 9 -6 4 8 0 1 D 3 9 -6 3 4 4 1 D 3 9 -6 2 0 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 8 0 s _ 2 8 _ 6 _ 2 0 1 7 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.