Fréttablaðið - 29.06.2017, Qupperneq 48
Hvaða mann hefur Guðrún Ýr að
geyma? Hún er listræn og yfir-
veguð og með ágæta kímnigáfu.
Hver er fyrsta minning þín um
tísku og útlit? Mér fannst ótrúlega
flott að vera með freknur þegar ég
var yngri en var því miður ekki svo
heppin að fá þær. Ég ákvað þá að
taka til minna ráða, fann mér sigti og
lagðist í sólbað úti í garði í von um að
ég gæti nælt mér í nokkrar freknur.
Því miður virkaði það ekki sem
skyldi, og ég er enn alveg freknulaus.
Hvernig er stíllinn þinn? Hann
er töff en líka stílhreinn. Svona
„Prikið meets París“.
Hvað er það fyrsta sem þú tekur
eftir í fari annarra kvenna? Ég tek
fyrst og fremst eftir viðmóti þeirra
og því þegar konur eru ákveðnar
í fasi og vita hvað þær vilja. Mér
finnst það flottur eiginleiki.
Áttu flík eða skart sem þú
klæðist úr fataskáp formæðra
þinna? Ég fékk lánaða (stal) gull-
keðju frá mömmu sem hún fékk í
útskriftargjöf þegar hún útskrifað-
ist úr menntaskóla. Ég held mikið
upp á þetta hálsmen og það passar
líka við allt.
Röndóttu bux-
urnar keypti
Guðrún Ýr á
fatamarkað-
inum Loftinu
í Bankastræti.
Gallajakkinn er
vintage-jakki
sem hún gróf
upp í Kola-
portinu.
Guðrún Ýr heldur mikið upp á Adidas-merkið og klæðist því við öll möguleg tækifæri. MYNDIR/ERNIR
Reyndi að fá freknur með sigti
Mosfellska mærin Guðrún Ýr Eyfjörð er töff týpa sem missteig sig þó aðeins á fermingardaginn.
Hún kallar sig GDRN að sviðsnafni, menntar sig í djassi og vekur nú athygli fyrir smellinn sinn, Ein.
Guðrúnu Ýr
finnst hún
alltaf vera fín í
loðjakkanum
úr Urban Out-
fitters.
Í hverju ertu fínust? Ég er
alltaf fín í svarthvíta loðjakkanum
mínum.
Áttu þér veikleika þegar kemur
að tísku? Já, ég er veik fyrir fallegu
skarti og flottum skóm.
Nýjasta flíkin og fylgihluturinn?
Tískuvarningur getur leynst víða.
Þannig keypti ég splunkuný, blá
sólgleraugu í 10/11 um daginn og
skjannahvíta FILA-skó í Lundúna-
borg.
Stærsta tískuklúðrið? Ég held
að ekkert tískuklúður muni toppa
mosagræna fermingarkjólinn
minn og svörtu ermarnar sem
fylgdu með. Ég ákvað líka að fá
Þórdís Lilja
Gunnarsdóttir
thordisg@365.is
mér 60’s-greiðslu með týpísku
fermingarslöngulokkunum og skil
ekki enn af hverju enginn stoppaði
mig af og sagði mér að þetta væri
ekki málið!
Hvað er ómissandi í snyrti-
buddunni? Naglaklippur.
Flottasta kona í heimi? Amma
mín og nafna var flottasta kona
í heimi. Hún var ótrúlega töff,
saumaði öll sín föt sjálf og líka á
börnin sín.
Besta bjútíráðið? Allavega ekki
að notast við sigti til að fá freknur!
Hvað er fram undan? Ég er á
fullu í tónlist, nýbúin að gefa út
lagið mitt „Ein“ og á leið að gefa
út meira af eigin efni á næstunni
undir nafninu GDRN. Ég læri
djasssöng og djasspíanó í tónlist-
arskóla FÍH, eftir að hafa stundað
klassískt fiðlunám í meira en
áratug. Mig langaði að prófa eitt-
hvað nýtt og ákvað að söðla yfir í
djassinn og sé ekki eftir því.
Hvaðan koma lagasmíðarnar
til þín? Þær koma úr öllum áttum,
þegar ég keyri, horfi á mynd eða
jafnvel í ræktinni. Þá kemur oftar
en ekki upp setning sem mér
finnst sniðug og ég vinn út frá
þeirri hugmynd.
Um hvað er „Ein“? Lagið er um
þrá fyrir staðfestingu og viður-
kenningu einhvers en innst inni
leynist vitneskja um að það muni
ekki gerast.
Fylgstu með Guðrúnu Ýr á insta
gram.com/gdrnmusic og hlustaðu
á nýja lagið Ein á Spotify undir
GDRN.
Velkomin í nýja
sérverslun með dróna
í miðbæ Reykjavíkur
Lækjargata 2a, 101 Reykjavík
AUTHORIZED RETAIL
STORE REYKJAVÍK
12 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 9 . j ú N í 2 0 1 7 F I M MT U DAG U R
2
9
-0
6
-2
0
1
7
0
4
:3
2
F
B
0
8
0
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
3
9
-A
A
D
C
1
D
3
9
-A
9
A
0
1
D
3
9
-A
8
6
4
1
D
3
9
-A
7
2
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
0
8
0
s
_
2
8
_
6
_
2
0
1
7
C
M
Y
K