Fréttablaðið - 29.06.2017, Blaðsíða 48

Fréttablaðið - 29.06.2017, Blaðsíða 48
Hvaða mann hefur Guðrún Ýr að geyma? Hún er listræn og yfir- veguð og með ágæta kímnigáfu. Hver er fyrsta minning þín um tísku og útlit? Mér fannst ótrúlega flott að vera með freknur þegar ég var yngri en var því miður ekki svo heppin að fá þær. Ég ákvað þá að taka til minna ráða, fann mér sigti og lagðist í sólbað úti í garði í von um að ég gæti nælt mér í nokkrar freknur. Því miður virkaði það ekki sem skyldi, og ég er enn alveg freknulaus. Hvernig er stíllinn þinn? Hann er töff en líka stílhreinn. Svona „Prikið meets París“. Hvað er það fyrsta sem þú tekur eftir í fari annarra kvenna? Ég tek fyrst og fremst eftir viðmóti þeirra og því þegar konur eru ákveðnar í fasi og vita hvað þær vilja. Mér finnst það flottur eiginleiki. Áttu flík eða skart sem þú klæðist úr fataskáp formæðra þinna? Ég fékk lánaða (stal) gull- keðju frá mömmu sem hún fékk í útskriftargjöf þegar hún útskrifað- ist úr menntaskóla. Ég held mikið upp á þetta hálsmen og það passar líka við allt. Röndóttu bux- urnar keypti Guðrún Ýr á fatamarkað- inum Loftinu í Bankastræti. Gallajakkinn er vintage-jakki sem hún gróf upp í Kola- portinu. Guðrún Ýr heldur mikið upp á Adidas-merkið og klæðist því við öll möguleg tækifæri. MYNDIR/ERNIR Reyndi að fá freknur með sigti Mosfellska mærin Guðrún Ýr Eyfjörð er töff týpa sem missteig sig þó aðeins á fermingardaginn. Hún kallar sig GDRN að sviðsnafni, menntar sig í djassi og vekur nú athygli fyrir smellinn sinn, Ein. Guðrúnu Ýr finnst hún alltaf vera fín í loðjakkanum úr Urban Out- fitters. Í hverju ertu fínust? Ég er alltaf fín í svarthvíta loðjakkanum mínum. Áttu þér veikleika þegar kemur að tísku? Já, ég er veik fyrir fallegu skarti og flottum skóm. Nýjasta flíkin og fylgihluturinn? Tískuvarningur getur leynst víða. Þannig keypti ég splunkuný, blá sólgleraugu í 10/11 um daginn og skjannahvíta FILA-skó í Lundúna- borg. Stærsta tískuklúðrið? Ég held að ekkert tískuklúður muni toppa mosagræna fermingarkjólinn minn og svörtu ermarnar sem fylgdu með. Ég ákvað líka að fá Þórdís Lilja Gunnarsdóttir thordisg@365.is mér 60’s-greiðslu með týpísku fermingarslöngulokkunum og skil ekki enn af hverju enginn stoppaði mig af og sagði mér að þetta væri ekki málið! Hvað er ómissandi í snyrti- buddunni? Naglaklippur. Flottasta kona í heimi? Amma mín og nafna var flottasta kona í heimi. Hún var ótrúlega töff, saumaði öll sín föt sjálf og líka á börnin sín. Besta bjútíráðið? Allavega ekki að notast við sigti til að fá freknur! Hvað er fram undan? Ég er á fullu í tónlist, nýbúin að gefa út lagið mitt „Ein“ og á leið að gefa út meira af eigin efni á næstunni undir nafninu GDRN. Ég læri djasssöng og djasspíanó í tónlist- arskóla FÍH, eftir að hafa stundað klassískt fiðlunám í meira en áratug. Mig langaði að prófa eitt- hvað nýtt og ákvað að söðla yfir í djassinn og sé ekki eftir því. Hvaðan koma lagasmíðarnar til þín? Þær koma úr öllum áttum, þegar ég keyri, horfi á mynd eða jafnvel í ræktinni. Þá kemur oftar en ekki upp setning sem mér finnst sniðug og ég vinn út frá þeirri hugmynd. Um hvað er „Ein“? Lagið er um þrá fyrir staðfestingu og viður- kenningu einhvers en innst inni leynist vitneskja um að það muni ekki gerast. Fylgstu með Guðrúnu Ýr á insta­ gram.com/gdrnmusic og hlustaðu á nýja lagið Ein á Spotify undir GDRN. Velkomin í nýja sérverslun með dróna í miðbæ Reykjavíkur Lækjargata 2a, 101 Reykjavík AUTHORIZED RETAIL STORE REYKJAVÍK 12 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 9 . j ú N í 2 0 1 7 F I M MT U DAG U R 2 9 -0 6 -2 0 1 7 0 4 :3 2 F B 0 8 0 s _ P 0 5 3 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 D 3 9 -A A D C 1 D 3 9 -A 9 A 0 1 D 3 9 -A 8 6 4 1 D 3 9 -A 7 2 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 B F B 0 8 0 s _ 2 8 _ 6 _ 2 0 1 7 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.