Fréttablaðið - 29.06.2017, Blaðsíða 78

Fréttablaðið - 29.06.2017, Blaðsíða 78
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is, Hafsteinn Hafsteinsson hafsteinn@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Jóhann Waage johannwaage@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Ólafur H. Hákonarson olafurh@365.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is Íslenska skómerkið KALDA fer í sölu í tískuversluninni Browns Fashion á verslunar-götunni South Molton Street í London í næstu viku. Um mikið tækifæri er að ræða en búðin selur mörg af þekktustu tískumerkjum heims, þannig að KALDA verður í góðum félagsskap með þekktum tískumerkjum og sem dæmi má nefna Miu Miu, Gucci, D&G og Balenciaga. „Þau komu á fund hjá mér síðast þegar ég var í París, í mars, og þau ákváðu að velja okkur inn,“ segir Katrín Alda Rafnsdóttir, eigandi KALDA, aðspurð hvernig það kom til að KALDA komst inn í Browns. „Þau höfðu séð fyrstu skólínu KALDA og voru búin að fylgjast með síðan þá. Svo keyptu þau inn línu númer tvö,“ útskýrir Katrín sem segir þetta tækifæri vera ákveðinn stökkpall fyrir KALDA. „Browns hefur nefnilega í gegnum tíðina verið þekkt fyrir að upp- götva ný merki, þannig að það er mjög gaman og gott að þau hafi trú á okkur.“ Katrín segir þetta vera spenn- andi tíma fyrir KALDA. „Þegar svona ungt merki kemst í svona stóra búð þá er það ákveðinn „game changer“. Ég finn alveg mikinn mun strax á áhuga frá fjölmiðlum og svoleiðis. Með tilkomu Browns er merkið að stækka, því núna gerum við fjórar línur á ári í staðinn fyrir tvær. Og framleiðslan er að aukast. Pöntun Browns var til dæmis mjög stór þannig að þetta breytir frekar miklu,“ segir Katrín. Töskulína mögulega væntanleg Spurð út í hvar hún sjái merkið fyrir sér eftir fimm eða tíu ár segir Katrín: „Úff, tíu ár? Mig langar allavega að halda áfram að hanna skó og koma þeim í fleiri búðir, því það er að ganga mjög vel. Ég er með topplista yfir búðir sem mig langar að komast inn í, en þetta tekur auðvitað alltaf svolítinn tíma. Við stefnum að því að kynna tösku línu fljótlega og svo hugsa ég að ef allt gengur vel þá er hægt að bæta inn fötum líka. En það er alltaf best að byrja bara með einn vöru- flokk, eins og skó, og ná merkinu þannig af stað. Svo er hægt að bæta við í framhaldinu. Og 10 ára draum- urinn er að hafa fimm KALDA búðir, staðsettar í uppáhaldsborgunum mínum!“ Katrín er greinilega að fara skyn- samlega leið með merkið. „Já, ég veit bara að það er langbest að gera þetta svona. Í allri þessari samkeppni þá virkar vel að sérhæfa sig í einhverju einu og ef þú nærð því á flug þá getur þú fikrað þig áfram í öðru.“ Það eru spennandi tímar fram undan hjá KALDA og margt í gangi. „Það er ýmislegt fleira á döfinni, en ekkert sem ég get sagt nánar frá eins og er. Nema að við verðum með viðburð á tískuvikunni í New York í september,“ segir Katrín að lokum. Þess má geta að KALDA fæst í Yeoman á Skólavörðustíg og í vef- versluninni Shopbop.com. Von bráðar fer línan svo inn í Browns Fashion og samhliða því í vefversl- unina Farfetch en Browns er í eigu Farfetch. Það er því ljóst að KALDA er komið inn á kortið á erlendri grundu. gudnyhronn@365.is KALDA verður í góðum félagsskap í London KALDA hefur verið að gera það gott undanfarið og heldur áfram að fagna velgengni. Nýjustu fréttir af KALDA eru þær að merkið mun brátt fást í versluninni Browns Fashion sem er á besta stað í London. Katrín Alda segir það vera mikinn stökkpall fyrir KALDA að komast inn í Browns Fashion tískuverslunina í Lundúnaborg. MYND/SILJA MAGG NoKKur þeKKt merKi í BrowNs FAshioN og FrAmLeiðsLAN er Að AuKAst, PöNtuN BrowNs vAr tiL Dæmis mjög stór þANNig Að þettA Breytir FreKAr miKLu. l Gucci l Dolce & Gabbana l Balenciaga l Missoni l Miu Miu l Acne Studios l Helmut Lang l Givenchy l Isabel Marant l Chloé l Fendi l Missoni l Valentino l Stella McCartney l Saint Laurent l Proenza Schouler l Christian Louboutin SAMKVÆMT BÓKSÖLU Í PENNANUM EYMUNDSSON UM LAND ALLT METSÖLULISTI EYMUNDSSON 21.06.17 - 27.06.17 1 2 5 6 7 8 109 43 Ítalskir skór Henning Mankell Nornin Camilla Läckberg Brestir Fredrik Backman Allt í himnalagi hjá Eleanor Gail Honeyman Stúlkan á undan J.P. Delaney Eftirlýstur Lee Child Gestir utan úr geimnum Ævar Þór Benediktsson Litla bakaríið við Strandgötu Jenny Colgan Talin af Sara Blædel Með lífið að veði Yeonmi Park 2 9 . j ú n í 2 0 1 7 F I M M T U D A G U R54 l í F I ð ∙ F R É T T A B l A ð I ð 2 9 -0 6 -2 0 1 7 0 4 :3 2 F B 0 8 0 s _ P 0 7 8 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 6 3 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 D 3 9 -7 4 8 C 1 D 3 9 -7 3 5 0 1 D 3 9 -7 2 1 4 1 D 3 9 -7 0 D 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 8 0 s _ 2 8 _ 6 _ 2 0 1 7 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.