Fréttablaðið - 29.06.2017, Qupperneq 31
Vinsældir dróna fara vaxandi enda sjá ýmsir sér hag í því að nýta þá, bæði ein-
staklingar og fyrirtæki,“ segir
Arnar Þór Þórsson hjá fyrirtækinu
Drone fly á Krókhálsi 6. Hann segir
dróna mjög vinsæla í auglýsinga-
og kvikmyndagerð en þeir nýtist
fjölmörgum öðrum. „Bændur eru
til dæmis mjög hrifnir af drónum
enda eru þeir mjög vinnusparandi.
Þeir geta leitað að kindum og
skoðað girðingar. Drone fly vinnur
nú að því að hanna flautu fyrir
bændur til að nota við smala-
mennsku. Þá hafa garðyrkjumenn
til dæmis notað þá til að taka fyrir
og eftir myndir,“ lýsir Arnar.
Mikil gæði í DJI-drónum
Dronefly hefur til sölu DJI dróna
sem eru afar notendavænir. „Þeir
tengjast allt að 21 gervitungli og
stinga þannig ekki af undan vindi.
Þeir halda sér á punktinum ef
fjarstýringu er sleppt og eru þar
af leiðandi mjög stöðugir. Þeir
koma sjálfir heim á heimapunkt
og geta einnig elt þig. Þeir bjóða
upp á marga fleiri eiginleika sem
hjálpa þér að ná þínu fullkomna
skoti,“ segir
Arnar. Hann
bætir við að
DJI drónarnir
hafi svokallað
gáfað batt erí.
„Dróninn
lætur vita ef
hann er að
verða bat-
teríslaus og passar að láta
vita í tíma svo að nóg
sé eftir á batteríinu til
að snúa við og fljúga
heim. Þá byrjar hann að
lækka flugið ef hættu-
lega lítil hleðsla er á
batteríinu.“
Leigja út flugmenn og
stöðugleikakerfi
Stór hluti af starfsemi Dronefly er
útleiga á drónum sem stjórnað er
af starfsmönnum fyrirtækisins en
þeir eru með um fimm ára reynslu
í að fljúga drónum. „Við erum með
dróna sem henta í hvaða verkefni
sem er, allt frá litlum auglýsingum
upp í þær stærstu.
Við erum einnig
að leigja út „Ronin
Gimbal“ sem er stöðugleikakerfi
fyrir myndavélar en það hentar
bæði fyrir DSRL vélar upp í nánast
fullvaxnar kvikmyndavélar.“
Sérhæfð viðgerðarþjónusta
Hjá Dronefly er rekin viðgerðar-
þjónusta sem sérhæfir sig í
viðgerðum á drónum. Hátækni-
verkfræðingur með sérmenntun
í ómönnuðum loftförum frá
Bretlandi starfar þar við viðgerðir.
„Við gerum við allar tegundir
flygilda, og eigum flesta varahluti
til á lager fyrir DJI dróna. Við
græjum þá á einum eða tveimur
dögum ef varahluturinn er til á
lager hjá okkur.“
Dronefly mun einnig bjóða
upp á námskeið fyrir byrjendur
og lengra komna. „Þar förum við
yfir það helsta sem þarf að vita
varðandi reglur, umhirðu og við-
hald á drónanum og svo auðvitað
hvernig á að fljúga í fyrsta skipti og
hvernig skal bregðast við og koma
í veg fyrir óhöpp,“ segir Arnar.
Dronefly, Krókhálsi 6, s. 566-6666.
Nánari upplýsingar má nálgast á
www.dronefly.is.
Vaxandi vinsældir dróna
Dronefly sér um sölu á DJI drónum fyrir áhugafólk og fagfólk. Boðið er
upp á sérhæfða viðgerðarþjónustu og reynslumiklir flugmenn Dronefly
taka ljósmyndir og myndbönd fyrir auglýsingar og önnur verkefni.
Dronefly rekur viðgerðarverkstæði
sem sérhæfir sig í viðgerðum á
drónum. Dronefly hefur til sölu stóra og smáa dróna af gerðinni DJI í verslun sinni að Krókhálsi 6. Stór hluti af starfsemi Drone-
fly er útleiga á drónum sem stjórnað er af reynslumiklum starfsmönnum fyrirtækisins. MynDIr/Eyþór
DJI Spark, fyrsti
mínídróninn
frá DJI. Dróninn
er útbúinn
skynjara sem les
handahreyfingar
og því er hægt
að stjórna
honum með
höndunum.
Dronefly
leigir einnig
úr ronin Gimbal
stöðugleika-
kerfi fyrir
myndavélar.
FóLK KynnInGArBLAÐ 3 F I M MT U DAG U r 2 9 . J ú N í 2 0 1 7
2
9
-0
6
-2
0
1
7
0
4
:3
2
F
B
0
8
0
s
_
P
0
5
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
5
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
3
9
-B
E
9
C
1
D
3
9
-B
D
6
0
1
D
3
9
-B
C
2
4
1
D
3
9
-B
A
E
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
8
0
s
_
2
8
_
6
_
2
0
1
7
C
M
Y
K