Fréttablaðið - 29.06.2017, Blaðsíða 66

Fréttablaðið - 29.06.2017, Blaðsíða 66
Baby Driver HHHHH Leikstjóri: Edgar Wright Framleiðendur: Tim Bevan, Eric Fellner, Nira Park Handrit: Edgar Wright Kvikmyndataka: Bill Pope Aðalhlutverk: Ansel Elgort, Lily James, Kevin Spacey Ungur og eldklár flóttabílstjóri sem kallar sig Baby er í skuld við glæpa- manninn Doc og dreymir um líf þar sem hann er laus við skyldur sínar. Það sem gerir Baby sérstaklega magnaðan undir stýri er hvernig hann leikur bókstaflega eftir eyr- anu. Hann skipuleggur líf sitt og akstursleiðir eftir tónlistinni sem hann hlustar á. Baby lenti í bílslysi í æsku sem olli sífelldu suði í eyrum hans og notar hann músík allar stundir til þess að drekkja suðinu. Þegar fer aðeins að birta til í lífinu myndar hann náin tengsl við huggulegu þjónustustúlku, Deboru. Að losna úr krimmaheiminum er hins vegar, eðlilega, hægara sagt en gert. Fagmaðurinn Edgar Wright, sem er þekktastur fyrir Cornetto- þríleikinn svokallaða, vinnur úr kunnuglegri uppskrift en af mikl- um stæl. Hér er hugað að púlsinum og sálinni á sama tíma í léttum og spennandi glæpatrylli. Það sem límir allt saman er hnyttið hand- rit, rokkandi orka, meiriháttar tónlistarnotkun, flottir leikarar og brakandi fersk stemning alla leið. Það eitt hvernig leikstjórinn Massakeyrsla, mjúkur töffari og trufluð tónlist Baby Driver fær toppeinkunn. Ansel Elgort stendur sig vel í hlut- verki sínu sem Baby. NORDIC­ PHOTOS/AFP vefur saman flóttasenur, adr- enalín og músík setur myndina í eins konar sérflokk sem frum- legan, naglharðan en blíðan „elt- inga(söng)leik“ og heldur dampi allan tímann. Samsetningin og sér í lagi klippingin er helber snilld, en þetta myndi virka ef Ansel Elgort brilleraði ekki í aðalhlutverkinu. Án vandræða tekst honum að gera hinn fámála Baby að þeim mjúka töffara sem hann á að vera. Hann er viðkunnanlegur, berskjaldaður en í senn klár, sjarmerandi og svo gott sem óstöðvandi með heyrnar- tólin á. Baby notar tónlist sem ákveðna flóttaleið, í andlegri og bókstaflegri merkingu. Út söguna fylgjumst við með drengnum neyðast til þess að taka fullorðinslegar ákvarðanir þegar haldið er aftur af honum, á meðan hann þráir fátt heitara en að láta sig hverfa með Deboru. Óútreiknanlegu samstarfsfélag- arnir þrengja að tilveru drengsins og reynir á hversu fljótur hann er að hugsa. Með hlutverk Deboru fer Lily James og hún fer létt með að bræða áhorfandann með útgeislun sinni og heillandi karakter. Ef það þarf að setja út á eitthvað þá mættu alveg vera fleiri senur með henni. En þau Elgort smella engu að síður nógu krúttlega saman til að áhorfandinn haldi upp á þau. Reyndar hefur hver og einn einasti leikari í myndinni einhverju bita- stæðu að bæta við heildina. Persónurnar eru margar klisju- kenndar erkitýpur en alls engar pappafígúrur. Og það sakar ekki að það sést að flestir eru að njóta sín í botn. Enginn virðist þó skemmta sér betur en Kevin Spacey, þó Jamie Foxx, Eiza González og Jon Hamm séu líka í dúndurgóðum fíling. Leikstjórinn setur brandara ekki eins mikið í forgrunninn hér og í fyrri myndum, en heildarferill hans sýnir þó fram á að hann hefur masterað afbragðstök á því að setja þroskasögur (sem í flestum tilfellum fela ástar- sögu í sér) í poppaðan búning. Baby Driver er þar engin und- antekning. Fyrir utan byrjendaverk sitt hefur Wright aldrei gert slaka kvikmynd og með aldrinum hefur hann sýnt fram á vaxandi hæfileika í fjöl- breyttum hasar, oftar en ekki af gamla skólanum. Wright og hans teymi útfærir hér glæsilega eltingarleiki og sækir í takta frá myndum eins og The Driver, The French Connection og meira að segja The Blues Brot- hers á einhvern máta. Leikstjórinn leikur sér auðvitað helling að hraða og byssuhvellum en gælir líka við afleiðingarnar sem fylgja lífsstílnum sem er svo oft sýndur í rómantísku ljósi í bíó- myndum. Baby Driver ristir kannski ekki djúpt en það er með ólík- indum hvernig stílbrögð og frá- sögn Wrights pakka miklum upplýsingum í myndmálið. Það fer enginn rammi til spillis á hnitmiðuðum, snyrtilegum sýningartíma. Þetta er mynd sem kallar eftir fleiru en einu glápi. Heildin er ekki laus við smágalla en hina flippuðu þeysireið hennar er bara of erfitt að standast. Tómas Valgeirsson Niðurstaða: Stílísk úr- vinnsla, rjúkandi orka, flottir leikarar og æðisleg stemning. Erfitt verður að finna ferskari mynd í sumar. Undirbúningstökur á kvikmyndinni Deadpool 2 eru hafnar. Ryan Reyn- olds hefur sprellað mikið á setti eins og má sjá á Twitter-síðu leikarans, en þar hefur hann deilt slatta af myndum af setti. Ekki er komið alveg á hreint hverjir munu leika í myndinni með Ryan Reynolds – þó er vitað að Josh Brolin muni fara með hlutverk Cables og vakti athygli fyrir að hafa massað sig upp fyrir hlutverkið og Zazie Beetz úr Atlanta verður í hlut- verki Dominos. Hins vegar má kalla það nokkuð óvænt að Julian Dennison er mættur í hópinn samkvæmt Instagramsíðu leikarans þangað sem hann smellti mynd af sér sitjandi á baki Ryans Reynolds í einhverju sturluðu flippi. Þeir sem kannast ekki við Julian Dennison hafa greinilega ekki séð kvikmyndina Hunt for the Wilder- people þar sem þessi kornungi leikari fór gjörsamlega á kostum. Þar lék hann á móti Sam Neill í mjög sérstakri „buddy comedy“ þar sem Julian Dennison er sérstaklega fyndinn. Hann ætti því að falla eins og flís við rass inn í allt grínið sem ein- kennir Deadpool karakterinn en fyrri myndin þótti ákaflega fyndin. Það verður spennandi að sjá hvort að framhaldið verði jafn gott. - sþh Óvænt stjarna bætist við Deadpool 2 leikarahópinn Julian Dennison fór á kostum í Hunt for the Wilderpeople. SKRÁÐU ÞIG Á 365.IS SUMARLEIÐIN Save the Children á Íslandi 2 9 . j ú N í 2 0 1 7 F i M M t u D a G u r42 M e N N i N G ∙ F r É t t a B L a ð i ð Bíó 2 9 -0 6 -2 0 1 7 0 4 :3 2 F B 0 8 0 s _ P 0 7 5 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 6 6 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 D 3 9 -8 D 3 C 1 D 3 9 -8 C 0 0 1 D 3 9 -8 A C 4 1 D 3 9 -8 9 8 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 8 0 s _ 2 8 _ 6 _ 2 0 1 7 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.