Fréttablaðið - 02.09.2017, Blaðsíða 32

Fréttablaðið - 02.09.2017, Blaðsíða 32
Fjölþjóðlegur hópur vís-indamanna hefur í fyrsta skipti varpað ljósi á algengi Lynch-heilkennis á Íslandi. Rannsóknin, sem byggir á ítarlegum erfða- og ætt- fræðiupplýsingum sem eru til staðar á Íslandi, er doktorsverkefni Sigurdísar Haraldsdóttur, aðstoðarprófessors í læknisfræði við Stanford-háskóla í Kaliforníu. Sigurdís kynnti niðurstöður sínar fyrr á þessu ári. Hér er hún við doktorsvörn sína í Háskóla Íslands. Mynd/KriStinn ingvarSSon Fyrsta rannsókn sinnar tegundar á Íslandi varpar ljósi á algengi arfgengrar stökkbreytingar sem eykur líkur á nokkrum tegundum krabbameins. Niður- staðan er mesta algengi sem hefur verið lýst eða 0,442% af íslensku þjóðinni. Einn af hverjum Íslendingum með Lynch-heilkenni 226 Rannsóknarniðurstöðurnar eru þær að algengi heilkennisins á Íslandi er það mesta sem fundist hefur, eða 1 af hverjum 226. Þetta eru 0,442 pró- sent íslensku þjóðarinnar. „Þetta kom okkur á óvart,“ segir Sigurdís. Hún bendir á að í vestrænum ríkjum er áætlað algengi 1 af 370 til 1 af 2.000. „Ég hafði aldrei heyrt um þetta heilkenni á Íslandi og það kom raunar í ljós að Lynch-heilkenni hafði ekki greinst í neinum áður en við fórum af stað með þessa rannsókn.“ Sögulegar niðurstöður Í samstarfi við lækna á Íslandi, Háskóla Íslands, Landspítala og Íslenska erfðagreiningu voru öll ristil- og endaþarmskrabbamein sem greinst hafa á tíu ára tímabili tekin til rannsóknar þar sem leitað var að mispörunarpróteinum (MMR) með litun, en vöntun á þessum próteinum í æxlum gefa vísbendingu um að Lynch-heilkenni geti verið til staðar. Einstaklingur með heilkennið fæðist með stökkbreytingu í MMR-geni sem sér um að leiðrétta villur í niturbösum sem mynda DNA þegar frumur skipta sér. Heilkennið eykur mjög líkurnar á ristil-, endaþarms- og legbolskrabba- meini, en heilkennið er einnig tengt öðrum tegundum krabbameins, á borð við krabbamein í eggjastokkum, smáþörmum og heila. Lynch-heil- kenni veldur 2-3 prósent allra tilfella krabbameins í ristli eða endaþarmi. Hópurinn fann þrjár landnema- stökkbreytingar í tveimur af fjórum mispörunargenum sem tengd eru við Lynch-heilkenni. Þetta eru genin MSH6 og PMS2. Í öðrum löndum er þessu öfugt farið, þar sem stökk- breytingar eru algengastar í genunum MLH1 og MSH2 og eru enn líklegri til að valda krabbameini en íslensku stökkbreytingarnar. „Í sjálfu sér er þetta hagstætt. Þetta þýðir að fólk með Lynch-heilkenni á Íslandi hefur ekki jafn miklar líkur á að fá krabba- mein á lífsleiðinni eins og fólk með sama heilkenni í Bandaríkjunum.“ Þegar þessar þrjár stökkbreytingar voru skoðaðar út frá áhættu kom í ljós að þær fela í sér nokkuð breyti- legar líkur á að einstaklingur með Lynch-heilkenni fái krabbamein, en þó sterk tengsl við krabbamein í ristli, endaþarmi og legbol. Stökkbreytingin í MSH6 er tengd við tæplega 50 pró- sent líkur á legbols- krabbameini. Sama stökkbreyting var tengd við 36 pró- sent og 25 prósent líkur á krabbameini í ristli og endaþarmi hjá körlum og konum hvorum um sig. Heilkenni kortlagt hjá heilli þjóð Sýni úr æxlisvef 1.182 ein- staklinga, sem greindust á árunum 2000 til 2009, voru notuð í rannsókninni. Magnús Karl Magnússon, prófessor við læknadeild HÍ, segir að ákveðnar hugmyndir hafi verið á lofti um tíðni heil- kennisins á Íslandi. „En það sem gerir verk Sigurdísar svona gott er að þarna er kortlagt hjá heilli þjóð bæði arfgerðir og afdrif þessara ein- staklinga,“ segir Magnús Karl. Hann tekur fram að mikilvægt sé að nota þessar niðurstöður og þá erfðaþekk- ingu sem er til staðar á Íslandi. „Þessar niðurstöður vekja okkur til umhugs- unar um að nýta þessar erfðaupp- lýsingar í fyrirbyggjandi læknisfræði.“ Sigurdís tekur í sama streng: „Algjörlega, það er mjög mikilvægt. Við viljum auðvitað koma þessum upplýsingum út og erum að vinna að klínískum leiðbeiningum í sambandi við hvernig eigi að skima einstaklinga með Lynch-heilkenni.“ Mögulega mætti koma í veg fyrir krabbamein hjá einstaklingum með Lynch-heil- kenni með því að framkvæma reglu- lega ristilspeglanir og skima fyrir leg- bolskrabbmeinum. Stökkbreytingarnar þrjár sem nefndar voru hér að ofan eru svo- kallaðar landnemastökkbreytingar. Stökkbreyting í PMS2 er algengust en hún er talin hafa komið að utan. Hinar landnemabreytingarnar, ein í MSH6 og önnur PMS2, eru yngri. Þá síðarnefndu má rekja aftur til ein- staklinga sem voru uppi á árunum 1700 til 1800. „Þetta eru stökkbreyt- ingar sem hafa ekki fundist víða. Þannig að það er möguleiki að þær hafi komið upp í einhverjum ein- staklingi á Íslandi fyrir löngu.“ Ísland er með eindæmum heppi- legur staður fyrir slíka rannsókn enda er hér að finna gríðarlegt magn af erfða- og ættfræðiupplýsingum. Þar á meðal er krabbameinsskrá sem haldin hefur verið síðan 1955 og ættfræðiupplýsingar rúmlega 800 þúsund einstaklinga sem finna má í Íslendingabók. Enn fremur hafa Íslendingar verið viljugir til að gefa erfðaefni sitt til rannsókna og greiningar. Þannig geymir Íslensk erfðagreining erfðaefni 150 þúsund Íslendinga og hefur að fullu raðgreint erfðamengi 8.453 einstaklinga. vísindasamfélagið launi greiðann „Það er hægt að gera þessar yfirgrips- miklu rannsóknir sem aðrar þjóðir geta ekki gert.“ segir Sigurdís. „Með þessari rannsókn höfum við í raun og veru kortlagt Lynch-heilkenni hjá heilli þjóð í einni rannsókn. Það hefur ekki verið gert áður.“ Fólk sem telur sig vera með Lynch- heilkenni, t.d. út frá fjölskyldusögu, getur leitað á erfða- og sameinda- læknisfræðideild Landspítala. Eftir umræðu síðustu ára um aðrar land- nemastökkbreytingar eins og BRCA (ættgengt brjóstakrabbamein) og MYBPC3 (algengasti hjartasjúkdóm- urinn) hefur fyrirspurnum þangað fjölgað mjög. Talið er að erfðaupp- lýsingar eigi eftir að verða fyrirferðar- meiri í heilbrigðisþjónustunni á næstu árum. „Það er ekki spurning,“ segir Sigurdís. „Íslenska þjóðin hefur lagt svo mikið til vísindasamfélagsins og hjálpað okkur að skilja ákveðna sjúkdóma betur. Núna held ég að sé kominn tími til að vísindasamfélagið komi á framfæri upplýsingum sem gætu hjálpað þjóðinni. Við viljum koma í veg fyrir alvarlega sjúkdóma.“ Fruma Kjarni DNA Lynch-heilkenni meðal Íslendinga 36% líkur á krabbameini í ristli eða enda- þarmi hjá körlum má rekja til lynch. Litningur Lynch- stökkbreyting Íslendinga Birtist með þrennum hætti í genum Íslendinga MSH6 og PMS2. Hún kemur til vegna stökkbreytingar í geni sem leiðréttir villur í niturbösum kjarnsýra. Gen/erfða vísi r Kjartan Hreinn Njálsson kjartanh@365.is 2 . s e p t e m b e r 2 0 1 7 L A U G A r D A G U r32 H e L G i n ∙ F r É t t A b L A ð i ð 0 2 -0 9 -2 0 1 7 0 4 :2 5 F B 1 2 0 s _ P 1 0 4 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 8 9 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 1 7 K _ N Ý. p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 D A 5 -9 C D 0 1 D A 5 -9 B 9 4 1 D A 5 -9 A 5 8 1 D A 5 -9 9 1 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 1 2 0 s _ 1 _ 9 _ 2 0 1 7 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.