Fréttablaðið - 02.09.2017, Blaðsíða 36
Útgefandi:
365 miðlar
Veffang:
Visir.is
Ábyrgðarmaður:
Svanur Valgeirsson
Sölumaður auglýsinga:
Ólafur H. Hákonarson, olafurh@365.is, s. 512 5433
Mikið að gera á
skrifstofunni
Everton var aðsópsmikið á félaga-
skiptamarkaðinum og keypti alls
níu leikmenn. Félagið seldi líka
nokkra leikmenn, þ. á m. Romelu
Lukaku til Manchester United fyrir
76,2 milljónir punda. Ross Barkley
endaði þó á því að vera áfram hjá
Everton.
Í heildina keypti Ronald Koeman,
stjóri Everton, eftirtalda leikmenn
fyrir samtals 142,5 milljónir punda:
l Gylfi Þór Sigurðsson keyptur frá
Swansea á 44,5 milljónir punda.
l Wayne Rooney á frjálsri sölu frá
Man. Utd.
l Michael Keane keyptur frá
Burnley á 25,7 milljónir punda.
l Jordan Pickford keyptur frá Sun-
derland á 25,7 milljónir punda.
l Davy Klaassen keyptur frá Ajax á
24,3 milljónir punda.
l Nikola Vlasic keyptur frá Hajduk
Split á 9,7 milljónir punda.
l Sandro Ramírez keyptur frá
Málaga á 5,4 milljónir punda.
l Cuco Martina á frjálsri sölu frá
Southampton.
l Henry Onyekuru keyptur frá
Eupen á 7,2 milljónir punda.
Lánaður til Anderlecht.
Framhaldssögunni um félaga-skipti Gylfa Þórs Sigurðssonar lauk loks 16. ágúst þegar hann
var kynntur sem nýr leikmaður
Everton. Talið er að Everton hafi
borgað Swansea City um 45 millj-
ónir punda fyrir Gylfa sem gerir
hann að dýrasta leikmanni í sögu
bláa liðsins í Liverpool. Þá er hann
langdýrasti íslenski fótboltamaður-
inn frá upphafi.
Gylfi brosti breitt eftir að hafa
skrifað undir fimm ára samning við
Everton. Ronald Koeman, knatt-
spyrnustjóri liðsins, var einnig alsæll
með að hafa landað íslenska lands-
liðsmanninum sem hann hefur lengi
haft augastað á.
„Allt frá upphafi var hann einn
af þeim leikmönnum sem ég vildi
fá til Everton. Fyrst og fremst út af
því hversu góður hann er og vegna
reynslu hans úr ensku úrvaldsdeild-
inni sem hann býr yfir. Að mínu
mati er hann einn af bestu leik-
mönnum ensku úrvalsdeildarinnar
í sinni stöðu,“ sagði Koeman um
Gylfa.
Íslenski landsliðsmaðurinn kom
inn á sem varamaður í 1-1 jafntefli
gegn Manchester City í 2. umferð
ensku úrvalsdeildarinnar mánudag-
inn 21. ágúst. Þremur dögum síðar
var hann í byrjunarliðinu í seinni
leiknum gegn Hajduk Split í umspili
um sæti í riðlakeppni Evrópu-
deildarinnar. Í upphafi seinni hálf-
leiks skoraði hann sitt fyrsta mark
fyrir Everton sem stuðningsmenn
liðsins eru eflaust búnir að horfa
100 sinnum á. Gylfi skoraði þá með
óvæntu skoti yfir markvörð Hajduk,
nánast frá miðju. Stórkostlegt mark
sem létti eflaust smá pressu af Gylfa
sem er sem áður sagði dýrasti leik-
maður í sögu Everton.
Koeman á sér stóra drauma og vill
koma Everton í fremstu röð. Þessi
hugsunarháttur Hollendingsins
virðist hafa höfðað til Gylfa ef marka
má orð hans eftir að félagaskiptin
frá Swansea gengu í gegn.
„Hann [Koeman] var frábær leik-
maður og einn sá besti á sínum tíma.
Nú er hann góður stjóri og framtíð-
arsýn hans hjá Everton er skýr. Það
skipti miklu máli fyrir mig að hann
væri stjórinn. Það er bæði draumur
minn og allra hjá félaginu að vinna
titla með Everton,“ sagði Gylfi.
Það verður þó enginn hægðar-
leikur fyrir Everton að komast í hóp
þeirra bestu. Koeman hefur verið
duglegur á félagaskiptamarkaðinum
í sumar og fékk meðal annars Wayne
Rooney aftur heim á Goodison Park.
En það er vandséð að Koeman hafi
fyllt skarðið sem Romelu Lukaku
skildi eftir sig. Belginn öflugi skoraði
25 mörk í fyrra og Everton þarf að
finna þessi mörk einhvers staðar.
Rooney og Gylfi munu skora sín
mörk en þeir þyrftu helst að njóta
aðstoðar alvöru framherja. Miðað
við frammistöðuna í 2-0 tapinu
fyrir Chelsea um síðustu helgi er
Sandro Ramírez ekki í þeim flokki.
Í þeim leik vantaði Everton sárlega
einhvern til að hlaupa aftur fyrir
vörn Chelsea. Hinn ungi og efnilegi
Dominic Calvert-Lewin er mjög
fljótur og býður upp á þann mögu-
leika. En hann hefur bara skorað tvö
mörk fyrir Everton síðan hann kom
til liðsins og býr yfir lítilli reynslu.
Hvað svo sem gerist hjá Everton
í vetur, þá verður alltaf gaman að
fylgjast með Gylfa. Hann er í stóru
hlutverki í stóru liði og þar á bæ
búast menn við miklu af honum.
Annars hefðu þeir ekki borgað 45
milljónir punda fyrir íslenska lands-
liðsmanninn sem átti stærstan þátt
í því að Swansea hélt sér í ensku
úrvalsdeildinni á síðasta tímabili.
En nú stendur Gylfi frammi fyrir
nýrri áskorun sem hann mun eflaust
stand ast með stæl.
Getur Gylfi komið Everton
upp í næstu tröppu?
Everton galopnaði veskið til að fá
Gylfa Þór Sigurðsson á Goodison
Park. Hann stimplaði sig inn með
glæsilegu marki í fyrsta byrjunarliðs-
leiknum. Gylfi á að hjálpa Everton að
komast í fremstu röð.
Gylfi hefur farið vel af stað með Everton og er þegar búinn að opna markareikning sinn með félaginu. NORDiCPHOtOS/GEtty
Wayne Rooney er kominn aftur heim til Everton. NORDiCPHOtOS/GEtty
Getrtaunanúmerið er
121
Íþróttafélag fatlaðra í Reykjavík
Ingvi Þór
Sæmundsson
ingvithor@365.is
UmsjónarmaðUr efnis Ingvi Þór Sæmundsson ingvithor@365.is
2 KyNNiNGARBLAÐ 2 . S E P t E M B E R 2 0 1 7 L AU G A R DAG U RENSKi BOLtiNN
0
2
-0
9
-2
0
1
7
0
4
:2
5
F
B
1
2
0
s
_
P
0
8
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
7
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
A
5
-F
A
A
0
1
D
A
5
-F
9
6
4
1
D
A
5
-F
8
2
8
1
D
A
5
-F
6
E
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
1
2
0
s
_
1
_
9
_
2
0
1
7
C
M
Y
K