Fréttablaðið - 02.09.2017, Blaðsíða 90

Fréttablaðið - 02.09.2017, Blaðsíða 90
Í sumar komst eyjan Gúam í Kyrrahafi óvænt í heimsfrétt-irnar þegar hún dróst inn í deilur stjórnvalda í Banda-ríkjunum og Norður-Kóreu. Gúam, sem lýtur bandarískri stjórn, hefur að geyma mikilvæga herstöð auk þess sem stjórnendur Norður-Kóreu mátu það svo að eld- flaugar þeirra gætu drifið alla leið til Gúam. Yfirráð Bandaríkjanna á Gúam má rekja til stríðs Spánar og Bandaríkj- anna, sem stóð í tíu vikur árið 1898 og lauk með fullnaðarsigri þeirra síðarnefndu. Við ósigurinn misstu Spánverjar völd sín á Filippseyjum, Kúbu og nokkrum eyjum í Kyrra- hafi og Karíbahafi. Áhrif stríðsins á mannkynssöguna urðu þó enn afdrifaríkari. Einn atburður er öðrum fremur talinn hafa verið kveikjan að styrjöld- inni. Það var mannskæð sprenging í bandaríska herskipinu Maine í höfn- inni í Havana þann fimmtánda febrú- ar árið 1898. Margt er þó á huldu um hvað gerðist í raun í höfninni þennan örlagaríka dag og væntanlega fást ekki við því óyggjandi svör úr þessu. Herskipið USS Maine átti upphaf- lega að verða öflugasta vígtól banda- ríska flotans. Bandaríkin stóðu langt að baki stórþjóðum Evrópu á sviði vígbúnaðar á höfunum og höfðu í raun lítinn áhuga sýnt á að keppa við þær. Árið 1883 komu Brasilíumenn sér hins vegar upp voldugu herskipi, Riachuelo, sem taldist það kröft- ugasta í Nýja heiminum. Það þótti valdhöfum í Washington óþolandi tilhugsun og ákveðið var að ráðast í gerð tveggja risaherskipa. Hönnun og smíði skipanna tók miklu lengri tíma en ráð var fyrir gert, á sama tíma og þróun í her- skipatækni var gríðarlega ör. Niður- staðan varð sú að þegar Maine var loks hleypt af stokkunum árið 1895 var það í raun þegar orðið úrelt og reyndist erfitt að finna því hentugt hlutverk í flotanum. Í ársbyrjun 1898 fengu stjórnendur herskipsins fyrirmæli um að sigla til Havana á Kúbu og bíða þar átekta. Að nafninu til var um kurteisisheimsókn að ræða, en engum duldist að alvar- legri ástæður lágu að baki. Vaxandi spenna Á Kúbu ríkti stríðsástand, þar sem heimamenn höfðu eina ferðina enn risið upp gegn spænskum yfirráðum. Í fyrri uppreisnum höfðu Bandaríkja- menn leynt og ljóst dregið taum sjálf- stæðissinna, enda yfirlýst stefna þeirra að draga sem mest úr áhrifum gömlu evrópsku nýlenduveldanna í Róm- önsku Ameríku. Árið 1873 hafði raunar mátt litlu muna að atburðir á Kúbu leiddu til stríðs milli Bandaríkjanna og Spánar. Þá höfðu Spánverjar stöðvað banda- ríska skipið Virginius, sem leigt hafði verið til að flytja kúbönskum upp- reisnarmönnum vopn og vistir. Spán- verjar drógu skipverja í skyndi fyrir herrétt, dæmdu þá fyrir sjórán og tóku nokkra tugi þeirra tafarlaust af lífi og svívirtu líkin. Í hópnum voru fjölmarg- ir Bandaríkjamenn og ollu atburðirnir gríðarlegri reiði þar í landi. Að lokum náðust þó samningar um ríflegar bætur til fjölskyldna hinna látnu. Hrottaskapur Spánverja í Virginius- ar-málinu sat í mörgum og bandarísk dagblöð sögðu margar safaríkar en misáreiðanlegar fréttir af grimmdar- verkum þeirra á Kúbu. Ýmsir banda- rískir borgarar áttu líka hagsmuna að gæta í borgarastríðinu og töldu margir að með endalokum spænsku landstjórnarinnar myndu opnast mikil tækifæri til fjárfestinga og jafn- vel bandarískra yfirráða í landinu. Æðsti sendifulltrúi Bandaríkja- stjórnar á Kúbu kallaði eftir að Maine yrði sent til Havana, ef átök borgara- stríðsins leiddu til þess að koma þyrfti bandarískum ríkisborgurum til bjargar. En koma skipsins sendi líka skilaboð í allar áttir. Hana mátti túlka sem áminningu til Spánverja um að Bandaríkin teldu Kúbu til áhrifasvæðis síns og skilaboð til ann- arra Evrópuríkja um að reyna ekki að blanda sér í leikinn. Hafa Bandaríkin og önnur stórveldi leikið þennan sama leik ótal oft í gegnum tíðina og minnt á styrk sinn með því að senda herskip í „kurteisisheimsóknir“ til landa þar sem stjórnmálaástandið er viðkvæmt. Eftir þriggja vikna tíðindalausa dvöl í höfninni í Havana riðu ósköpin yfir. Um miðja nótt varð gríðarleg spreng- ing sem tætti fremri hluta herskips- ins í sundur og afgangurinn sökk á skömmum tíma. Sprengiefnageymslur skipsins voru í framhlutanum sem og svefnrými óbreyttu sjóliðanna. Þeir voru flestir í fastasvefni og fórust því 260 manns en rétt um 90 komust lífs af. Stríð brýst út Hvernig stóð á þessum skelfilega atburði? Og var sprengingin af mannavöldum? Bandarísku dag- blöðin voru ekki lengi að sannfærast um að sprengja eða tundurdufl hefði grandað skipinu og skelltu skuldinni á Spánverja. Spænsk yfirvöld hefðu sprengt Maine í loft upp að yfirlögðu ráði. Sá möguleiki var þó einnig viðr- aður að spænskt tundurdufl hefði fyrir slysni rekið í átt að skipinu og sprungið. Það kæmi þó í sama stað niður, þar sem Spánverjum hefði borið að tryggja öryggi skipsins í höfninni og bæru þeir því ábyrgð á atvikinu. Stríð selja dagblöð og stóru blaða- risarnir nýttu sér atburðina í Havana út í ystu æsar og var málarinn kunni, Frederick Remington, sendur til Kúbu til að teikna dramatískar fréttamynd- ir. Í hverri ritstjórnargreininni á eftir annarri var kallað eftir hefndum: að Bandaríkjastjórn refsaði Spánverjum grimmilega. Bandaríkjastjórn lét ekki segja sér þetta tvisvar og undir lok apríl var Spánverjum sagt stríð á hendur. Í ræðu McKinleys forseta, þar sem Spánarstjórn voru settir úrslitakostir, var ekki vikið sérstaklega að spreng- ingunni í Maine, en í hugum flestra var hún kornið sem fyllti mælinn. Bandaríski flotinn lét í skyndingu fara fram rannsókn á atburðunum í höfninni í Havana og voru rann- sakendur fljótir að komast að þeirri niður stöðu að utanaðkomandi sprengja hefði grandað skipinu. Rúmum áratug síðar, þegar skips- flakið var flutt úr höfninni og sökkt á opnu hafi, var önnur rannsóknar- nefnd skipuð sem komst að svip- uðum niðurstöðum. Ýmsir hafa þó dregið þá túlkun í efa. Nokkrar ítarlegar rannsóknir hafa farið fram í seinni tíð með hjálp nýrrar tækni. Niðurstöður þeirra hafa verið misvísandi. Sumir rannsókn- araðilar hallast að utanaðkomandi sprengju, en aðrir benda á að kyndi- klefi skipsins hafi verið við hliðina á sprengiefnageymslunni. Lítið hefði þurft til að eldur í kolageymslunni bærist yfir í sprengiefnið með fyrirsjá- anlegum afleiðingum. Raunar hafði það gerst nokkrum sinnum á þessum árum að eldur kæmi upp í eldsneytis- geymslum herskipa, en stjórnendur flotans hafi lítið viljað ræða slík atvik af ótta við að beina athyglinni að eigin mistökum og slæmri hönnun. Hver hagnaðist? Hafi sprengingin verið af manna- völdum er alls ekki ljóst hver þar hefði átt að vera að verki. Þótt skuldinni væri skellt á Spánverja er erfitt að sjá hver tilgangurinn ætti að vera. Spánverjar vildu síst af öllu gefa Bandaríkjamönnum átyllu til að blanda sér í stríðið með beinum hætti. Engar heimildir í spænskum skjalasöfnum benda til að ákvörð- unin hafi verið tekin í Madrid og bent hefur verið á að stærsta her- skip spænska flotans hafi verið á leið til hafnar í Bandaríkjunum þegar sprengingin varð, svo tímasetningin kom sér alls ekki vel. Aðrir möguleikar koma til greina. Þannig mætti hugsa sér að kúbanskir stuðningsmenn spænskra yfirvalda hefðu gripið til þessa bragðs til að hefna sín á Bandaríkjamönnum fyrir stuðning þeirra við uppreisnarmenn. Eins mætti hugsa sér að uppreisnar- menn sjálfir hafi verið að verki, til að skella skuldinni á Spánverja og draga Bandaríkin þannig inn í styrjöld- ina. Ein samsæriskenningin gengur meira að segja út á að Bandaríkja- stjórn hafi sjálf sprengt upp skipið til að réttlæta stríðsþátttöku. Er sú túlkun hin opinbera afstaða komm- únistastjórnarinnar á Kúbu í dag. Líklegast verður þó að teljast að sprengingin um borð í Maine hafi verið slys og Spænsk-bandaríska stríðið árið 1898 hafi því brotist út, nánast fyrir misskilning. Stríðið reyndist þó afdrifaríkt. Með því tóku Bandaríkjamenn að seilast til áhrifa í Austur-Asíu, sem að lokum leiddi til árekstra við Japani í síðari heims- styrjöldinni. Skjótur sigurinn kom ráðamönnum í Washington líka á bragðið og markaði brotthvarf frá þeirri einangrunarstefnu sem ein- kennt hafði utanríkispólitík landsins áratugina á undan. Þess í stað tóku Bandaríkin að blanda sér í átök víða um lönd, með beinum og óbeinum hætti. Afleiðinga þeirrar stefnubreyt- ingar gætir enn í dag. Dularfulla sprengingin Saga til næsta bæjar Stefán Pálsson skrifar um umdeilda stríðsátyllu. Stóru blaðariSarnir nýttu Sér atburðina í Havana út í yStu æSar. Snyrtistofan Hafblik OKKAR SÉRSVIÐ ER Háræðaslitsmeðferðir HENDUR – ANDLIT – HÁLS – BRINGA Hraunbæ 102 • Reykjavík • S. 893 0098 • snyrtistofanhafblik@gmail.com PANTAÐU FRÍAN TÍMA Í SKOÐUN STRAX Í SÍMA 893-0098 2 . s e p t e m b e r 2 0 1 7 L A U G A r D A G U r38 H e L G i n ∙ F r É t t A b L A ð i ð 0 2 -0 9 -2 0 1 7 0 4 :2 5 F B 1 2 0 s _ P 1 0 3 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 9 0 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 D A 5 -A 1 C 0 1 D A 5 -A 0 8 4 1 D A 5 -9 F 4 8 1 D A 5 -9 E 0 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 1 2 0 s _ 1 _ 9 _ 2 0 1 7 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.