Fréttablaðið - 02.09.2017, Page 90
Í sumar komst eyjan Gúam í Kyrrahafi óvænt í heimsfrétt-irnar þegar hún dróst inn í deilur stjórnvalda í Banda-ríkjunum og Norður-Kóreu. Gúam, sem lýtur bandarískri
stjórn, hefur að geyma mikilvæga
herstöð auk þess sem stjórnendur
Norður-Kóreu mátu það svo að eld-
flaugar þeirra gætu drifið alla leið til
Gúam.
Yfirráð Bandaríkjanna á Gúam má
rekja til stríðs Spánar og Bandaríkj-
anna, sem stóð í tíu vikur árið 1898
og lauk með fullnaðarsigri þeirra
síðarnefndu. Við ósigurinn misstu
Spánverjar völd sín á Filippseyjum,
Kúbu og nokkrum eyjum í Kyrra-
hafi og Karíbahafi. Áhrif stríðsins
á mannkynssöguna urðu þó enn
afdrifaríkari.
Einn atburður er öðrum fremur
talinn hafa verið kveikjan að styrjöld-
inni. Það var mannskæð sprenging í
bandaríska herskipinu Maine í höfn-
inni í Havana þann fimmtánda febrú-
ar árið 1898. Margt er þó á huldu um
hvað gerðist í raun í höfninni þennan
örlagaríka dag og væntanlega fást
ekki við því óyggjandi svör úr þessu.
Herskipið USS Maine átti upphaf-
lega að verða öflugasta vígtól banda-
ríska flotans. Bandaríkin stóðu langt
að baki stórþjóðum Evrópu á sviði
vígbúnaðar á höfunum og höfðu í
raun lítinn áhuga sýnt á að keppa við
þær. Árið 1883 komu Brasilíumenn
sér hins vegar upp voldugu herskipi,
Riachuelo, sem taldist það kröft-
ugasta í Nýja heiminum. Það þótti
valdhöfum í Washington óþolandi
tilhugsun og ákveðið var að ráðast í
gerð tveggja risaherskipa.
Hönnun og smíði skipanna tók
miklu lengri tíma en ráð var fyrir
gert, á sama tíma og þróun í her-
skipatækni var gríðarlega ör. Niður-
staðan varð sú að þegar Maine var
loks hleypt af stokkunum árið 1895
var það í raun þegar orðið úrelt og
reyndist erfitt að finna því hentugt
hlutverk í flotanum.
Í ársbyrjun 1898 fengu stjórnendur
herskipsins fyrirmæli um að sigla til
Havana á Kúbu og bíða þar átekta. Að
nafninu til var um kurteisisheimsókn
að ræða, en engum duldist að alvar-
legri ástæður lágu að baki.
Vaxandi spenna
Á Kúbu ríkti stríðsástand, þar sem
heimamenn höfðu eina ferðina enn
risið upp gegn spænskum yfirráðum.
Í fyrri uppreisnum höfðu Bandaríkja-
menn leynt og ljóst dregið taum sjálf-
stæðissinna, enda yfirlýst stefna þeirra
að draga sem mest úr áhrifum gömlu
evrópsku nýlenduveldanna í Róm-
önsku Ameríku.
Árið 1873 hafði raunar mátt litlu
muna að atburðir á Kúbu leiddu til
stríðs milli Bandaríkjanna og Spánar.
Þá höfðu Spánverjar stöðvað banda-
ríska skipið Virginius, sem leigt hafði
verið til að flytja kúbönskum upp-
reisnarmönnum vopn og vistir. Spán-
verjar drógu skipverja í skyndi fyrir
herrétt, dæmdu þá fyrir sjórán og tóku
nokkra tugi þeirra tafarlaust af lífi og
svívirtu líkin. Í hópnum voru fjölmarg-
ir Bandaríkjamenn og ollu atburðirnir
gríðarlegri reiði þar í landi. Að lokum
náðust þó samningar um ríflegar
bætur til fjölskyldna hinna látnu.
Hrottaskapur Spánverja í Virginius-
ar-málinu sat í mörgum og bandarísk
dagblöð sögðu margar safaríkar en
misáreiðanlegar fréttir af grimmdar-
verkum þeirra á Kúbu. Ýmsir banda-
rískir borgarar áttu líka hagsmuna
að gæta í borgarastríðinu og töldu
margir að með endalokum spænsku
landstjórnarinnar myndu opnast
mikil tækifæri til fjárfestinga og jafn-
vel bandarískra yfirráða í landinu.
Æðsti sendifulltrúi Bandaríkja-
stjórnar á Kúbu kallaði eftir að Maine
yrði sent til Havana, ef átök borgara-
stríðsins leiddu til þess að koma
þyrfti bandarískum ríkisborgurum
til bjargar. En koma skipsins sendi
líka skilaboð í allar áttir. Hana mátti
túlka sem áminningu til Spánverja
um að Bandaríkin teldu Kúbu til
áhrifasvæðis síns og skilaboð til ann-
arra Evrópuríkja um að reyna ekki að
blanda sér í leikinn. Hafa Bandaríkin
og önnur stórveldi leikið þennan sama
leik ótal oft í gegnum tíðina og minnt
á styrk sinn með því að senda herskip
í „kurteisisheimsóknir“ til landa þar
sem stjórnmálaástandið er viðkvæmt.
Eftir þriggja vikna tíðindalausa dvöl
í höfninni í Havana riðu ósköpin yfir.
Um miðja nótt varð gríðarleg spreng-
ing sem tætti fremri hluta herskips-
ins í sundur og afgangurinn sökk á
skömmum tíma. Sprengiefnageymslur
skipsins voru í framhlutanum sem og
svefnrými óbreyttu sjóliðanna. Þeir
voru flestir í fastasvefni og fórust því
260 manns en rétt um 90 komust lífs
af.
Stríð brýst út
Hvernig stóð á þessum skelfilega
atburði? Og var sprengingin af
mannavöldum? Bandarísku dag-
blöðin voru ekki lengi að sannfærast
um að sprengja eða tundurdufl hefði
grandað skipinu og skelltu skuldinni
á Spánverja. Spænsk yfirvöld hefðu
sprengt Maine í loft upp að yfirlögðu
ráði. Sá möguleiki var þó einnig viðr-
aður að spænskt tundurdufl hefði
fyrir slysni rekið í átt að skipinu og
sprungið. Það kæmi þó í sama stað
niður, þar sem Spánverjum hefði
borið að tryggja öryggi skipsins í
höfninni og bæru þeir því ábyrgð á
atvikinu.
Stríð selja dagblöð og stóru blaða-
risarnir nýttu sér atburðina í Havana
út í ystu æsar og var málarinn kunni,
Frederick Remington, sendur til Kúbu
til að teikna dramatískar fréttamynd-
ir. Í hverri ritstjórnargreininni á eftir
annarri var kallað eftir hefndum: að
Bandaríkjastjórn refsaði Spánverjum
grimmilega.
Bandaríkjastjórn lét ekki segja
sér þetta tvisvar og undir lok apríl
var Spánverjum sagt stríð á hendur.
Í ræðu McKinleys forseta, þar sem
Spánarstjórn voru settir úrslitakostir,
var ekki vikið sérstaklega að spreng-
ingunni í Maine, en í hugum flestra
var hún kornið sem fyllti mælinn.
Bandaríski flotinn lét í skyndingu
fara fram rannsókn á atburðunum
í höfninni í Havana og voru rann-
sakendur fljótir að komast að þeirri
niður stöðu að utanaðkomandi
sprengja hefði grandað skipinu.
Rúmum áratug síðar, þegar skips-
flakið var flutt úr höfninni og sökkt
á opnu hafi, var önnur rannsóknar-
nefnd skipuð sem komst að svip-
uðum niðurstöðum.
Ýmsir hafa þó dregið þá túlkun í
efa. Nokkrar ítarlegar rannsóknir
hafa farið fram í seinni tíð með hjálp
nýrrar tækni. Niðurstöður þeirra hafa
verið misvísandi. Sumir rannsókn-
araðilar hallast að utanaðkomandi
sprengju, en aðrir benda á að kyndi-
klefi skipsins hafi verið við hliðina á
sprengiefnageymslunni. Lítið hefði
þurft til að eldur í kolageymslunni
bærist yfir í sprengiefnið með fyrirsjá-
anlegum afleiðingum. Raunar hafði
það gerst nokkrum sinnum á þessum
árum að eldur kæmi upp í eldsneytis-
geymslum herskipa, en stjórnendur
flotans hafi lítið viljað ræða slík atvik
af ótta við að beina athyglinni að eigin
mistökum og slæmri hönnun.
Hver hagnaðist?
Hafi sprengingin verið af manna-
völdum er alls ekki ljóst hver þar
hefði átt að vera að verki. Þótt
skuldinni væri skellt á Spánverja er
erfitt að sjá hver tilgangurinn ætti
að vera. Spánverjar vildu síst af öllu
gefa Bandaríkjamönnum átyllu til
að blanda sér í stríðið með beinum
hætti. Engar heimildir í spænskum
skjalasöfnum benda til að ákvörð-
unin hafi verið tekin í Madrid og
bent hefur verið á að stærsta her-
skip spænska flotans hafi verið á leið
til hafnar í Bandaríkjunum þegar
sprengingin varð, svo tímasetningin
kom sér alls ekki vel.
Aðrir möguleikar koma til greina.
Þannig mætti hugsa sér að kúbanskir
stuðningsmenn spænskra yfirvalda
hefðu gripið til þessa bragðs til að
hefna sín á Bandaríkjamönnum fyrir
stuðning þeirra við uppreisnarmenn.
Eins mætti hugsa sér að uppreisnar-
menn sjálfir hafi verið að verki, til að
skella skuldinni á Spánverja og draga
Bandaríkin þannig inn í styrjöld-
ina. Ein samsæriskenningin gengur
meira að segja út á að Bandaríkja-
stjórn hafi sjálf sprengt upp skipið
til að réttlæta stríðsþátttöku. Er sú
túlkun hin opinbera afstaða komm-
únistastjórnarinnar á Kúbu í dag.
Líklegast verður þó að teljast að
sprengingin um borð í Maine hafi
verið slys og Spænsk-bandaríska
stríðið árið 1898 hafi því brotist
út, nánast fyrir misskilning. Stríðið
reyndist þó afdrifaríkt. Með því tóku
Bandaríkjamenn að seilast til áhrifa
í Austur-Asíu, sem að lokum leiddi
til árekstra við Japani í síðari heims-
styrjöldinni. Skjótur sigurinn kom
ráðamönnum í Washington líka á
bragðið og markaði brotthvarf frá
þeirri einangrunarstefnu sem ein-
kennt hafði utanríkispólitík landsins
áratugina á undan. Þess í stað tóku
Bandaríkin að blanda sér í átök víða
um lönd, með beinum og óbeinum
hætti. Afleiðinga þeirrar stefnubreyt-
ingar gætir enn í dag.
Dularfulla sprengingin
Saga
til næsta
bæjar
Stefán Pálsson
skrifar um umdeilda
stríðsátyllu.
Stóru blaðariSarnir
nýttu Sér atburðina í
Havana út í yStu æSar.
Snyrtistofan Hafblik
OKKAR SÉRSVIÐ ER
Háræðaslitsmeðferðir
HENDUR – ANDLIT – HÁLS – BRINGA
Hraunbæ 102 • Reykjavík • S. 893 0098 • snyrtistofanhafblik@gmail.com
PANTAÐU FRÍAN TÍMA
Í SKOÐUN STRAX Í SÍMA
893-0098
2 . s e p t e m b e r 2 0 1 7 L A U G A r D A G U r38 H e L G i n ∙ F r É t t A b L A ð i ð
0
2
-0
9
-2
0
1
7
0
4
:2
5
F
B
1
2
0
s
_
P
1
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
9
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
A
5
-A
1
C
0
1
D
A
5
-A
0
8
4
1
D
A
5
-9
F
4
8
1
D
A
5
-9
E
0
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
1
2
0
s
_
1
_
9
_
2
0
1
7
C
M
Y
K