Fréttablaðið - 02.09.2017, Blaðsíða 82

Fréttablaðið - 02.09.2017, Blaðsíða 82
Frammistaðan var fullkomin og úrslit voru afleiðing af frammistöðunni,“ sagði Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, himinlifandi eftir 4-0 stórsigur liðsins á Arsenal um síðasta sunnudag. Það er eðlilegt að Klopp hafi verið í skýjunum eftir frammi- stöðuna gegn Arsenal enda bar hún öll „höfundareinkenni“ Þjóð- verjans. Liverpool setti leikmenn Arsenal undir stífa pressu og þegar boltinn vannst sótti Rauði herinn hratt og af krafti. Liverpool skoraði þrjú mörk eftir skyndisóknir og þau hefðu getað orðið fleiri. Þetta var sannkallaður „heavy metal“ fótbolti eins og Klopp hefur kallað leikstílinn sem hann predikar. Góð vika átti eftir að verða enn betri því áður en félagaskipta- glugginn lokaðist keypti Liver- pool Alex Oxlade-Chamberlain frá Arsenal og Naby Keïta frá RB Leipzig. Sá síðarnefndi gengur þó ekki í raðir Liverpool fyrr en næsta sumar. Bítlaborgarfélagið hélt líka Philippe Coutinho sem hefur verið þrálátlega orðaður við Barcelona í nær allt sumar. Brassinn hefur ekk- ert spilað með Liverpool það sem af er tímabils en því var borið að hann glímdi við bakmeiðsli. Það verður spennandi að sjá í hvaða hugarástandi hann verður þegar hann snýr aftur til Liverpool eftir landsleikjahléið. Fyrr í sumar fékk Liverpool Dominic Solanke, ungan og efnilegan framherja frá Chelsea, Andrew Robertson frá Hull City og Mohamed Salah frá Roma. Sá síðastnefndi hefur farið frábær- lega af stað í rauða búningnum og Liverpool er ekki árennilegt með Salah og Sadio Mané sinn á hvorum kantinum. Stuðningsmenn Liverpool geta líka glaðst yfir því að Mané verður með liðinu allt tímabilið, að því gefnu að hann haldist heill. Fjar- vera Manés vegna Afríkukeppn- innar setti stórt strik í reikninginn hjá Liverpool í fyrra en liðið vann aðeins einn af sjö leikjum sínum á því tímabili. Sóknarleikurinn verður væntan- lega ekki vandamál hjá Liverpool í vetur. Varnarleikurinn er meira spurningarmerki. Liverpool fékk á sig 42 mörk á síðasta tímabili og gamlir draugar létu á sér kræla í 1. umferðinni þar sem Liverpool fékk á sig þrjú mörk gegn Wat- ford. Tvö þeirra komu eftir föst leikatriði sem Rauði herinn hefur átt í miklum vandræðum með að verjast síðan Klopp tók við. Það er eitthvað sem Þjóðverjinn þarf að laga ef hann ætlar að koma Liver- pool ofar í töfluna. Liverpool tókst ekki að landa Hollendingnum Virgil van Dijk áður en félagaskiptaglugginn lokaðist og breiddin í miðvarða- stöðunum er ekki mikil. Joël Matip þarf að haldast heill en hann er einn mikilvægasti leikmaður Liver- pool. Á síðasta tímabili fékk liðið 2,03 stig í leikjum sem hann spilaði en aðeins 1,59 stig úr leikjunum sem Kamerúninn missti af. Liverpool var ekki með í Evrópu- keppni á síðasta tímabili en álagið í vetur verður meira þar sem liðið er komið í riðlakeppni Meistara- deildar Evrópu. Klopp þarf að nýta leikmannahópinn skynsamlega því leikstíll Liverpool útheimtir mikla orku. Klopp er í guðatölu hjá Liver- pool og svo lengi sem hann verður hjá félaginu hljómar heavy metall- inn á Anfield. Þjóðverjinn þarf bara að passa að feilnóturnar verði ekki of margar. Liverpool fékk 2,03 stig úr leikjunum sem Joël Matip spilaði á síðasta tímabili en aðeins 1,59 stig úr leikjunum sem hann missti af. Það er þungskýjað yfir Emirates vellinum þessa dagana. Arse-nal steinlá fyrir Liverpool, 4-0, í síðasta leiknum fyrir landsleikja- hléið og situr í 16. sæti ensku úrvals- deildarinnar með þrjú stig eftir þrjá leiki. Aðeins West Ham (10) hefur fengið á sig fleiri mörk en Arsenal (8) í fyrstu þremur umferðunum. Skytturnar enduðu í 5. sæti ensku úrvalsdeildarinnar á síðasta tímabili sem er versti árangur liðsins síðan 1995. Fyrir vikið missti Arsenal af Meistaradeildarsæti í fyrsta sinn í tæpa tvo áratugi. En liðið vann bikarkeppnina í þriðja sinn á síðustu fjórum árum og Arsene Wenger var verðlaunaður með nýjum tveggja ára samningi. Óánægja stuðningsmanna Arsenal með Wenger var mikil fyrir og hún minnkaði ekkert við þessa vondu byrjun á tímabilinu. Til við- bótar við slæm úrslit missti Arsenal sterka leikmenn undir lok félaga- skiptagluggans. Liðið í dag er því veikara en liðið sem hóf tímabilið. Það versta er svo kannski að Wenger virðist ekki læra af mis- tökunum eins og sást gegn Liver- pool. Metnaðurinn til að spila góðan varnarleik var lítill og þegar boltinn tapaðist var allt opið fyrir Rauða herinn sem skoraði þrjú mörk eftir skyndisóknir í leiknum. Allt þetta hefur sést áður í leikjum Arsenal gegn hinum toppliðunum í ensku úrvalsdeildinni. Samt breytist ekkert. Það er ólíklegt að Arsenal verði í titilbaráttu í vetur og stefnan verður væntanlega sett á að tryggja sér Meistaradeildarsæti, annaðhvort með því að enda í einu af efstu fjórum sætum ensku úrvalsdeildar- innar eða vinna Evrópudeildina eins og Manchester United gerði í fyrra. Þungskýjað yfir Emirates Arsene Wenger er undir gríðarlega mikilli pressu. nordicphotos/getty heavy metallinn hljómar áfram á Anfield Liverpool hefur farið vel af stað á þriðja tímabilinu undir stjórn Jürgens Klopp. Þjóðverjinn er í miklum metum á Anfield og honum er treyst fyrir því að koma Liverpool aftur í hóp þeirra bestu. Liverpool-menn fagna einu fjögurra marka sinna í stórsigrinum gegn Arsenal. nordicphotos/getty Opið: Mán. til fimmtudaga kl. 9 -18 Föstudaga kl. 9 - 17 Lokað á laugardögum í sumar Askalind 3 • 201 Kópavogur • Sími: 562 1500 • friform.is GASELDAVÉLAR HÁGÆðA Við höfum mörg járn í eldinum þegar það kemur að úrvali á gaseldavélum því við vitum að ekki elda allir kokkar eins. Hvort sem þú ert ástríðukokkur eða ekki, þá höfum við réttu græjurnar fyrir þig. Ofnarnir okkar eru með fjölda stillinga sem henta ástríðukokkum sem og áhugafólki um matargerð. ELBA - 106 PX ELBA - 126 EX 3ja ára ábyrgð ELBA Í YFiR 60 ÁR 8 KynningArBLAÐ 2 . s e p t e m B e r 2 0 1 7 L AU G A R DAG U RensKi BoLtinn 0 2 -0 9 -2 0 1 7 0 4 :2 5 F B 1 2 0 s _ P 0 8 2 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 7 9 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 D A 6 -1 D 3 0 1 D A 6 -1 B F 4 1 D A 6 -1 A B 8 1 D A 6 -1 9 7 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 A F B 1 2 0 s _ 1 _ 9 _ 2 0 1 7 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.