Fréttablaðið - 02.09.2017, Blaðsíða 38
Jóhann Berg Guðmundsson er á sínu öðru tímabili hjá Burnley sem freistar þess að endur-
taka leikinn frá því í fyrra og halda
sæti sínu í ensku úrvalsdeildinni.
Það gerðist síðast á miðjum 8. ára-
tugnum að Burnley náði að leika
þrjú tímabil í röð í efstu deild.
Meiðsli settu strik í reikninginn
hjá Jóhanni Berg á síðasta tímabili.
Hann byrjaði á bekknum í fjórum af
fyrstu fimm deildarleikjum Burnley
en Sean Dyche, knattspyrnustjóri
liðsins, setti hann í byrjunarliðið
fyrir leik gegn Watford á heimavelli
í lok september. Íslenski landsliðs-
maðurinn spilaði allan tímann í 2-0
sigri og hélt sæti sínu í byrjunar-
liðinu í næstu sjö leikjum.
Jóhann Berg spilaði sinn besta leik
fyrir Burnley þegar liðið vann 3-2
heimasigur á Crystal Palace 5. nóv-
ember. Hann skoraði og lagði upp
mark í 3-2 sigri sem kom Burnley
upp í 9. sæti deildarinnar.
Burnley steinlá fyrir West Brom
í næstu umferð og í leiknum þar
á eftir, gegn Manchester City, meidd-
ist Jóhann Berg aftan í læri og var
frá í mánuð. Meiðsli héldu áfram að
plaga íslenska landsliðsmanninn
og hann var aðeins einu sinni í byrj-
unarliðinu í ensku úrvalsdeildinni
það sem eftir lifði tímabils. Hann lék
alls 20 deildarleiki á síðasta tíma-
bili, skoraði eitt mark og gaf tvær
stoðsendingar. Auk þess lék hann
samtals fjóra leiki í ensku bikar- og
deildarbikarkeppninni.
Jóhann Berg virðist hafa nýtt
undirbúningstímabilið vel því hann
nýtur nú trausts Dyche og byrjaði
alla þrjá leiki Burnley í ensku úrvals-
deildinni á þessu tímabili.
Stærsta ástæðan fyrir því að Burn-
ley hélt sér örugglega í deildinni á
síðasta tímabili var frábær árangur
á heimavelli. Alls fékk Burnley 33
stig á Turf Moor sem var eins gott því
uppskeran í 19 útileikjum var aðeins
sjö stig.
Í upphafi þessa tímabils hefur
þessu verið öfugt farið. Burnley gerði
sér lítið fyrir og vann 2-3 útisigur
á Englandsmeisturum Chelsea í 1.
umferð ensku úrvalsdeildarinnar.
Jóhann Berg og félagar töpuðu
því næst fyrir West Brom á Turf
Moor en náðu svo í gott stig gegn
Tottenham á Wembley. Fjögur stig
úr útileikjum gegn tveimur efstu
liðum deildarinnar í fyrra verður að
teljast afar góður árangur fyrir lið
sem vann aðeins einn útileik í fyrra.
Burnley missti tvo af sínum
bestu mönnum í sumar; Michael
Keane og Andre Gray. Í staðinn náði
Dyche í menn með reynslu úr ensku
úrvalsdeildinni. Jack Cork, Jonathan
Walters og Phil Bardsley eru ekki
mest spennandi leikmenn í heimi
en þeir eru traustir liðsmenn og eiga
samtals 640 leiki í ensku úrvals-
deildinni. Þá keypti Burnley Chris
Wood, markahæsta leikmann ensku
B-deildarinnar á síðasta tímabili, á
metverði frá Leeds. Nýsjálendingur-
inn minnti strax á sig og skoraði
jöfnunarmarkið gegn Tottenham í
sínum fyrsta leik fyrir Burnley.
Annað árið hefur oft reynst liðum
sem koma upp í ensku úrvalsdeild-
ina erfitt. Burnley virðist hins vegar
ágætlega í stakk búið til að halda
sæti sínu í deildinni. Stjórinn er fær
í sínu starfi, leikmannahópurinn
nokkuð þéttur og liðið þekkir sín
takmörk.
Hið erfiða annað ár
Landsliðsmaðurinn Jóhann Berg Guðmundsson mætir aftur til leiks með Burnley í ensku úrvals-
deildinni í vetur. Meiðsli gerðu honum erfitt fyrir í fyrra en hann hefur byrjað tímabilið í ár af krafti.
Burnley náði í 33
stig á heimavelli á
síðasta tímabili en aðeins
sjö á útivelli.
Jóhann Berg
hefur byrjað
alla þrjá leiki
Burnley í ensku
úrvalsdeildinni
á tímabilinu.
nordicpHotos/
getty
ALLT HEFST MEÐ
4 KynningArBLAÐ 2 . s e p t e m B e r 2 0 1 7 L AU G A R DAG U RensKi BoLtinn
0
2
-0
9
-2
0
1
7
0
4
:2
5
F
B
1
2
0
s
_
P
0
8
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
7
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
A
6
-0
E
6
0
1
D
A
6
-0
D
2
4
1
D
A
6
-0
B
E
8
1
D
A
6
-0
A
A
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
1
2
0
s
_
1
_
9
_
2
0
1
7
C
M
Y
K