Fréttablaðið - 02.09.2017, Blaðsíða 34
Það er þriðjudagshádegi, klukkan er rétt rúmlega ellefu. Hádegisönnin er nýhafin og inni í Mat-höllinni á Hlemmi er strax orðið margt um
manninn.
Á bekkjum inni í Höllinni sitja
saman strætófarþegar, ferðamenn,
mæður með börn, vinir í mat og pör
á hádegisstefnumóti.
Matarangan slæðist úr hverju
horni. Hlemmur er gjörbreyttur. Þar
sem áður var sjoppa sem seldi smurð
rúnstykki og majónessamlokur, sæl-
gæti og sígarettur er veitingastaður-
inn Kröst. Grill og vínbar sem rekinn
er af matreiðslumanninum Böðvari
Lemacks. Það er mikið að gera. Vin-
sælasti réttur staðarins er svokall-
aður Kröstí-hamborgari Hann er
gerður úr feitu rib-eye kjöti, bæði
hægeldaður og grillaður. Með ham-
borgaranum mælir starfsfólkið með
Drappier kampavíni. Réttur sem er
töluvert langt frá smurðu rúnstykki
og kókómjólk.
Eins og að vera í útlöndum
Vinkonurnar Kristín Ólafsdóttir, Val-
gerður Björk Pálsdóttir og Kristrún
Kristinsdóttir eru á meðal gesta sem
sitja á bekkjum og gæða sér á hádegis-
mat. Kristín og Valgerður fengu sér
samloku frá Bánh mi en Kristrún er
að gæða sér á tómatsúpu frá Rabbar
barnum með ferskri basilíku. „Súpan
er ofboðslega góð og fersk. Ég fékk að
klippa ferska basilíku út á súpuna,
segir Kristrún. Þær Kristín og Val-
gerður eru líka ánægðar með sam-
lokurnar. „Það var allt dautt hér á
Hlemmi,“ segir Valgerður Björk og
Kristín tekur undir. „Þetta er mikil-
vægur liður í að bæta miðborgina,
það er búið að umbreyta andanum
hér.“
„Ég held að breytingarnar á
Hlemmi skipti máli í stærra sam-
hengi. Nú verður tengingin við
Hverfisgötu sterkari, efsti hluti mið-
borgarinnar lifnar við,“ segir Val-
gerður Björk. „Þetta er eins og að
vera í útlöndum, þessir spennandi
evrópsku markaðir sem er svo gaman
að sækja. Nú eigum við einn lítinn
slíkan,“ segir Kristín. „En svo er eitt
sem ég verð að nefna, ísinn hjá Ísleifi
heppna. Hann er sá trylltasti sem ég
hef smakkað,“ segir Valgerður Björk.
„Mig langaði eiginlega að fá mér hann
bara í hádegismat,“ segir hún.
Vinsælast hjá börnum
Þetta eru góð meðmæli sem ísbúðin
fær. Þar stendur vaktina Gunnar Logi
Málmkvist Einarsson, rekstrarstjóri
og matreiðslumaður. „Ég er að frysta
ís með fljótandi köfnunarefni. Það
sem gerir okkar ís sérstakan er að
við gerum allt á staðnum og notum
bara úrvalshráefni. Þegar þú frystir ís
með köfnunarefni þá verður áferðin
þéttari og ísinn loftminni. Þetta er
mjúkur og góður ís. Þetta er talin
vera besta aðferðin til að frysta ís. Þú
kemur bara og pantar einn skammt
af ís og við búum hann til. Börnum
finnst skemmtilegt að horfa á, nefnir
hann. Hér er eitthvað fyrir alla.
Snúðar og kaffi
Í einu horninu er útibú af Brauði
& Co. þar sem vinsælustu snúðar
borgarinnar eru bakaðir, þar við
hliðina geta gestir og strætófarþegar
fengið sér heitt kaffi hjá Te og Kaffi.
Maríanna Magnúsdóttir og Ágúst
Einþórsson bakarameistari standa
við bakaraofnana og baka pítsur og
snúða. Anna Ingólfsdóttir stendur
Löggurnar borða á Hlemmi
Mathöllin á Hlemmi hefur vakið eftirtekt. Þangað streymir fólk til að grípa sér bita og inni á milli sitja strætófarþeg-
ar með rjúkandi kaffibolla að bíða eftir strætó. Líkast til er Mathöllin eitt öruggasta svæði borgarinnar í hádeginu
því kaupmenn segja lögreglumenn góða kúnna. Eitt er víst, að töluvert meira líf hefur færst í miðju borgarinnar.
Ágúst Einþórsson og Maríanna Magnúsdóttir raða snúðum og pítsum í ofna Brauð&Co. FréttaBlaðið/Ernir
Georg Jónas-
son beið eftir
strætisvagni og
finnst Mathöllin
mega bæta sig.
Kristín, Valgerður Björk og Kristrún gæða sér á veitingum í Mathöllinni. rakel Eva á Borðinu í undirbúningi.
rib-eye hamborgarar á Kröst í undirbúningi.
Ís á vöfflu frá Ísleifi heppna. Davíð á Bánh mí segir lögregluna fjölmenna í hádeginu.
Bryndís Sveins-
dóttir rekur
rabbar barinn
og selur ferskt
grænmeti beint
frá bónda.
vaktina í afgreiðslunni. „Viðtökurnar
hafa verið frábærar. Maður finnur
að fólk er að fatta þetta. Snúðarnir
okkar eru alltaf vinsælastir og strætó-
farþegar versla mikið hjá okkur. Þeir
koma við á morgnana og líka þegar
líður á daginn,“ segir Anna.
Veitingastaðurinn Borðið sem
er á Ægisíðu rekur glæsilegt útibú
á Hlemmi. Rakel Eva Sævarsdóttir,
einn eigenda, undirbýr hádegisösina.
„Þetta er smækkuð útgáfa af veitinga-
staðnum okkar á Ægisíðu. Við erum
með fleiri smárétti hér, erum með
kjötáleggin okkar sem við skerum
niður fersk hér, áleggsplatta með
grilluðu og pikkluðu grænmeti,
osta og fleira góðgæti sem gestir
okkar þekkja. Fullkomið til að deila
og fá sér gott vín eða bjórglas með,
segir Rakel. „Hádegin eru annasöm.
Strætófarþegar versla líka hér. Í gær
kom einstaklingur sem var að bíða
eftir strætó, hann fékk sér smárétt og
rauðvínsglas áður og sat og las í bók
áður en hann náði vagninum. Svo
kemur líka mikið af fólki á milli sex
og sjö og fær sér kvöldmat.“
Fáir í mötuneyti lögreglu
Við innganginn á móti lögreglu-
stöðinni er víetnamski staðurinn
Bánh mi. Þar er boðið upp á víet-
namskar samlokur. Davíð Davíðs-
son stendur vaktina. „Það er búið
að vera mjög mikið að gera og góð
stemning. Í hádeginu koma margir
starfsmenn fyrirtækja úr nágrenninu
og lögreglumenn. Þeir versla mikið
hér,“ segir Davíð og telur líklegt að í
mötuneyti lögreglumanna á Hverfis-
götu sé fámennt þessa dagana.
að kaupa það sem þarf
Í einu horninu rekur Bryndís Sveins-
dóttir Rabbar barinn þar sem má
kaupa ferskt íslenskt grænmeti,
humarlokur og súpur. „Íslenskir
grænmetisbændur senda grænmetið
beint til mín. Ég sel það í lausasölu
og því getur fólk komið og keypt sér
akkúrat það sem það vantar,“ segir
Bryndís og segir hugmyndina að
vekja fólk til þess að kaupa það sem
það þarf, jafnvel í umbúðum sem
það kemur með sjálft. „Við bjóðum
líka upp á súpur á hverjum degi og
humarlokur sem eru vinsælar svo
eitthvað sé nefnt,“ segir hún.
Blómabúðin á Hlemmi
Bryndís hefur búið töluvert erlendis,
í Danmörku og Svíþjóð og athygli
vekur að hún selur einnig blóm og
pottaplöntur. „Við erum blóma-
búðin á Hlemmi. Ég er búin að búa
erlendis, sex ár í Danmörku og fjögur
ár í Svíþjóð, og er alin upp í því núna
að fara á markaðinn og kippa blómi
með og hjóla með það heim í körf-
unni. Blóm gleðja, mér finnst þetta
ómissandi,“ segir Bryndís.
Fyrir utan Mathöllina situr Georg
Jónasson myndlistarnemi og bíður
eftir strætisvagni. Hann er ekki jafn-
hrifinn. „Ég varð fyrir vonbrigðum og
átti von á meira lífi en minni kaup-
mennsku.“
kristjanabjorg@frettabladid.is
Þetta er
eins og
að vera í
útlöndum.
Kristín Ólafsdóttir
Kristjana Björg
Guðbrandsdóttir
kristjana@frettabladid.is
2 . s e p t e m b e r 2 0 1 7 L A U G A r D A G U r34 H e L G i n ∙ F r É t t A b L A ð i ð
0
2
-0
9
-2
0
1
7
0
4
:2
5
F
B
1
2
0
s
_
P
0
8
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
8
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
A
5
-E
6
E
0
1
D
A
5
-E
5
A
4
1
D
A
5
-E
4
6
8
1
D
A
5
-E
3
2
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
1
2
0
s
_
1
_
9
_
2
0
1
7
C
M
Y
K