Fréttablaðið - 30.09.2017, Page 46

Fréttablaðið - 30.09.2017, Page 46
Umbun hefur mikið að segja og fólk þarf að finna að það sem það gerir sé metið að verðleikum. Ragnheiður Tryggvadóttir heida@365.is 10 KYNNINGARBLAÐ 3 0 . S E P T E M B E R 2 0 1 7 L AU G A R DAG U RFYRIRTÆKJAGJAFIR Marteinn Steinar Jónsson sálfræð- ingur segir yfirmenn þurfa að vera vakandi fyrir líðan starfsfólks. Það er hlutverk yfirmanna að vera vakandi fyrir vellíðan starfsfólks á vinnustaðnum. Eitt af grundvallaratriðunum er að unnið sé strax með þau mál sem koma upp. Oft hamlar átaka- fælni því að þetta sé gert, sem er miður. Átök eru góð ef þau leiða til úrvinnslu,“ segir Marteinn Steinar Jónsson sálfræðingur. „Það eru auðvitað til alls konar stjórnendur. Sumir geta verið harðstjórar, hlusta lítið sem ekki neitt á starfsmenn og loka á umræður svo fólk þorir ekki að tjá sig. Það stuðlar að streitu og kvíða. En óskrifuðu reglurnar, það er hvernig við gerum hlutina, mótar menningu og starfsanda vinnustaðarins. Oft eru það hinir duldu áhrifaþættir sem ráða hvort starfsmönnum líður vel í starfi eða ekki. Hreinskiptin tjáskipti eru forsendur þess að hægt sé að taka á málum og finna sanngjarnar lausnir. Stjórnendur mega ekki hygla einum á kostnað annars. Þeir þurfa að gæta þess að starfsálagið sé ekki íþyngjandi og einhverjir séu til dæmis undir meira álagi en aðrir. Hvatakerfi geta verið vandmeð- farin. Til dæmis þar sem enginn má vera dragbítur á sameiginlega frammistöðu er hætta á að þeir starfsmenn innan starfshópsins sem ekki standa sig nógu vel verði fyrir þrýstingi og aðkasti. Hvata- kerfi geta, ef ekki er staðið rétt að málum, verið mikill streituvaldur. Stjórnendur þurfa að vera vakandi fyrir því hvort einhverjum ein- staklingi líði illa og skulu vekja aðra til meðvitundar um það sama.“ Skiptir máli að umbuna starfsfólki? „Ég held að það sé alltaf til góðs að gera vel við fólk,“ segir Marteinn. „Umbun hefur mikið að segja og fólk þarf að finna að það sem það gerir sé metið að verðleikum. Fólk hefur mikla þörf fyrir hvata í starfi. Umbunin getur verið í formi þess að stjórnandinn hrósi starfs- mönnum, veiti kaupauka þegar starfsmenn ná tilteknum árangri en gæta verður þess að starfsmenn fái ekki bágt fyrir ef þeir mæta ekki væntingum. Hægt er að umbuna starfsmönn- um með ýmsum hætti, gefa þeim leikhúsmiða eða annað í þeim dúr. Mörg fyrirtæki niðurgreiða til dæmis heilsurækt og er það beggja hagur. Það er svo margt sem hægt er að gera. Grunnatriði er að hlusta vel eftir hvað það er sem starfs- fólkið sækist eftir, að auk jólagjafa sé til dæmis munað eftir afmælis- dögum og svo framvegis.“ Marteinn segir daglegt vinnuum- hverfi skipta miklu máli, vinnuað- stöðu og hljóðvist. „Notaleg kaffiaðstaða er mikilvæg og að ekki sé hávaði, truflun eða þrengsli í vinnurýminu. Góðir stólar eru nauðsyn og að hitastigið í vinnu- rýminu sé þægilegt. Huga þarf að öllum streituvöldum. Lélegt upplýsingaflæði er ætíð uppspretta streitu og álags og slæmt skipulag er dragbítur á árangur. Óskýrar starfs- lýsingar orsaka misskilning og allt slíkt stuðlar að kvíða. Ef kerfið er þannig skipulagt að það ýtir undir streituálag þarf að laga kerfið fyrst, síðan skal sinna einstaklingunum,“ segir Marteinn. Fólk hefur þörf fyrir umbun Marteinn Steinar Jónsson sálfræðingur segir vellíðan á vinnustað að miklu leyti á ábyrgð stjórnenda. Bregðast þarf skjótt við vandamálum og umbuna starfsfólki fyrir vel unnin störf. 3 0 -0 9 -2 0 1 7 0 4 :2 0 F B 1 3 6 s _ P 0 9 1 K .p 1 .p d f F B 1 3 6 s _ P 0 8 6 K .p 1 .p d f F B 1 3 6 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 1 3 6 s _ P 0 5 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 D E 1 -E 9 E 8 1 D E 1 -E 8 A C 1 D E 1 -E 7 7 0 1 D E 1 -E 6 3 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 1 3 6 s _ 2 9 _ 9 _ 2 0 1 7 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.