Fréttablaðið - 14.10.2017, Side 96

Fréttablaðið - 14.10.2017, Side 96
Við erum ótrúlega kát með móttökurnar og þegar mynd er svona óhefðbundin þá er þetta enn þá meira spennandi,“ segir Hlynur Pálmason, leikstjóri kvik- myndarinnar Vetrarbræður sem er komin í sýningar hér á landi. Vetrar- bræður var heimsfrumsýnd í ágúst í aðalkeppni kvikmyndahátíðarinnar í Locarno og vann þar fern verðlaun, en á sama tíma hlaut hún einnig ein verðlaun á New Horizons hátíðinni í Wroclaw, Póllandi, og nýverið hlaut Hlynur New Talent Grand Prix verðlaunin á kvikmyndahátíðinni CPH:PIX. Hlynur er þó hinn rólegasti yfir allri þessari upphefð og bætir við að það gleðji hann hversu mikill áhugi sé fyrir mynd eins og þessari. „Þetta er mjög góð tilfinning. Viðtökurnar heima hafa líka verið frábærar og þar er markaðurinn lítill en þegar maður ber saman smæð samfélagsins og kraftinn í íslenskri kvikmyndagerð þá er alveg magnað að sjá hversu uppgangurinn er mikill. Þetta er ótrúlega gott.“ Fann sína rödd Hlynur er alinn upp á Hornafirði en þaðan lá leiðin til Kaupmannahafnar þar sem hann býr nú ásamt unn- ustu sinni og æskuástinni Hildi Ýri Ómarsdóttur og börnunum þeirra þremur. En er rétt að hann hafi fyrst farið til Kaupmannahafnar til þess að nema myndlist? „Þetta byrjaði eiginlega allt samhliða. Byrjaði með því að ég var nánast heltekinn af myndforminu og hljóði, að setja saman myndir bæði í vídeóformi og myndverkum, ljósmyndum og myndlist. Ég fór og lærði myrkraher- bergjaljósmyndun, gömlu tæknina, í Danmörku og þá fann ég á mér að kvikmyndagerðin var sá miðill sem blandar flestum miðlum saman og að ég hefði eitthvað að segja þar. Það var mikið af svona main-stream eða einsleitri kvikmyndagerð í gangi og mig langaði til þess að vera hinum megin og fór því að læra leikstjórn í Kaupmannahöfn. Mér fannst svo spennandi þessi samvinna sem kvik- myndagerðin býður upp á þar sem maður er að vinna með tökumanni, klippara og svo framvegis. Það er svo gefandi að vinna með skapandi fólki.“ Hlynur segir að það hafi alltaf verið í huga hans í náminu að hann ætlaði sér að fara sínar eigin leiðir í kvikmyndagerðinni og ekki sogast inn í meginstrauminn. „Þegar maður er í svona námi þá þarf maður á ein- hverjum tímapunkti að byrja að brjóta af sér skólann. Ég fór í þetta nám fyrst og fremst út frá samvinnu- elementinu með klippara, töku- manni, hljóðmanni og framleiðanda, það var mitt meginmarkmið. Ég notaði þessi fjögur ár til að finna fólk til þess að vinna með og til þess að finna mína eigin rödd. Þannig að ég gerði margar tilraunir og reyndi að vera eins trúr sjálfum mér og ég gat því ég held að maður þurfi að geta brotið af sér skólann ef maður ætlar að gera eitthvað af viti.“ Best sem upplifun Vetrarbræður er fyrsta mynd Hlyns í fullri lengd en útskriftarverkefni hans En Maler / Málarinn frá 2013 og stuttmyndin Sjö bátar hlutu einnig mikið lof en báðar eru þær sérstaklega myndrænar og fallegar. Að horfa á þessar myndir vekur með áhorfandanum tilfinningu eins og horft sé á lifandi málverk og Hlynur segir að það sé mikilvægt að leyfa myndunum að lifa og gefa sér góðan tíma. „Mér finnst lífið vera krefjandi og verk sem hafa áhrif á mig eru það líka. Ég er alls ekki að segja að þau eigi að vera leiðinleg en ég vil að kvikmyndir hafi áhrif á mig og hreyfi við mér. Mér finnst kvik- myndaformið lifa best sem upplifun en ekki bara saga. Mér finnst mikil- vægt að kvikmyndaformið sé þessi bíósalur í svartamyrkri, hljóðið allt í kring og svo þetta risastóra tjald. Maður þarf að nota þennan miðil og skapa í honum ákveðna upplifun í stað þess að búa eitthvað til sem gæti alveg eins verið sagt í bókarformi. Þess vegna er það mér líka mikilvægt að fólk sjái myndirnar mínar í bíói þar sem þær eiga heima. Sjö bátar er gott dæmi um þetta því hún gerði sig afskaplega vel í bíói en var eiginlega allt önnur upplifun í tölvu eða síma, þá var ekki lengur þessi líkamlega og andlega upplifun sem næst aðeins í bíósal.“ Allt er jafn mikilvægt Vetrarbræður segir frá tveimur bræðrum sem búa í einangraðri verkamannabyggð. Yngri bróðirinn lendir í ofbeldisfullum deilum við vinnufélaga sína þegar heimabrugg hans er talið ástæða þess að maður liggur við dauðans dyr. Stigmagn- andi útskúfun hans í framhaldi þess reynir á samstöðu bræðranna en þegar eldri bróðirinn virðist hafa unnið ástir draumastúlku þess yngri fer óhefluð atburðarás af stað. Vetr- arbræður er saga um skort á ást og löngun eftir því að vera elskaður og þráður. Hlynur segir að fyrir honum eigi sagan rætur sínar í þessari vönt- un á ást. „Það er hjartað í myndinni. En ég vissi líka að ég þyrfti að búa til einhvers konar heim utan um þetta ef ég ætlaði vera frjáls í þeirri könnun. Frjáls til þess að leyfa sögu- hetjunum að gera ákveðna hluti sem ganga kannski alveg í þessum hefð- bundna veruleika sem við þekkjum frá degi til dags. Til þess að skapa ákveðinn fókus þurfti ég að taka burt og einfalda. Hlynur segir að sem kvikmynda- gerðarmaður leitist hann líka við að allt sem skapar myndina sé jafn mik- ilvægt. „Fyrir mér er allt í ferlinu jafn mikilvægt og ég hef það í huga þegar ég byrja að skrifa og þróa verkin mín. Samræðurnar eru jafn mikilvægar og tilfinningin, hljóðið jafn mikilvægt og myndformið og hreyfingin jafn mikilvæg og persónurnar og þannig mætti áfram telja.“ Á heimleið Þessa dagana er Hlynur á ferð og flugi á milli kvikmyndahátíða að kynna myndina og taka við verðlaunum. Hann segir að þetta sé óneitanlega sérstök tilfinning þar sem þetta er eitthvað sem hann hefur unnið að síðan hann var þrettán ára gamall. „En núna þegar ég fór í þetta lengra format með mynd í fullri lengd þá breytist ansi margt og auðvitað er ég alsæll með viðtökurnar. En þessi velgengni snýst um það að hún gefur okkur tækifæri til þess að vinna næsta verk og það er stóra málið. Það er það ferli sem ég er upptekinn af þessa dagana.“ Hlynur segir að þetta næsta verkefni sé íslensk framleiðsla og íslensk kvikmynd sem verði skotin hér á landi. „Myndin heitir Hvítur, hvítur dagur og við stefnum að því að aðaltökurnar verði í lok sumars á næsta ári. Kvikmyndin er fram- leidd af vini mínum Antoni Mána Svanssyni sem meðframleiddi mín tvö síðustu verkefni. Við fjölskyldan erum líka að fara að flytja heim til Hornafjarðar þar sem næsta mynd verður tekin þar. Við Hildur erum bæði sveitalarfar inn við beinið og eftir mörg ár í borginni hlökkum við til að taka kafla í sveitinni, setja niður kartöflur og leyfa börnunum okkar að upplifa íslenska sveitalífið. Málið er að sveitarfélagið og Horn- firðingar almennt hafa stutt vel við bakið á mér í mínum verkefnum og reynst mér vel þannig að það er mjög ánægjulegt að vera á leiðinni heim á Hornafjörð til þess að gera kvikmynd á heimslóð. Við erum búin að vera úti í tíu ár og hlökkum mikið til að koma heim.“ Þurfti að búa til heim til að gefa söguhetjunum frelsi Vetrarbræður, fyrsta kvikmynd Hlyns Pálmasonar í fullri lengd, hefur hlotið fjölda verðlauna og mikið lof. Hlynur segir það veita frelsi til þess að huga að næstu mynd sem verður tekin á Hornafirði næsta sumar. Atriði út myndinni Vetrarbræður þar sem Hlynur skapar sérstakan heim til þess að þjóna sögupersónum sínum. Hlynur Pálmason leikstjóri, Maria von Hausswolff tökukona og Anton Máni Svansson framleiðandi. Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is 1 4 . o k t ó b e r 2 0 1 7 L A U G A r D A G U r52 m e n n i n G ∙ F r É t t A b L A ð i ð menning 1 4 -1 0 -2 0 1 7 0 4 :2 5 F B 1 1 2 s _ P 0 9 6 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 8 1 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 D F 8 -8 F C 4 1 D F 8 -8 E 8 8 1 D F 8 -8 D 4 C 1 D F 8 -8 C 1 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 1 1 2 s _ 1 3 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.