Fréttablaðið - 14.10.2017, Page 96
Við erum ótrúlega kát með móttökurnar og þegar mynd er svona óhefðbundin þá er þetta enn þá meira spennandi,“ segir
Hlynur Pálmason, leikstjóri kvik-
myndarinnar Vetrarbræður sem er
komin í sýningar hér á landi. Vetrar-
bræður var heimsfrumsýnd í ágúst í
aðalkeppni kvikmyndahátíðarinnar
í Locarno og vann þar fern verðlaun,
en á sama tíma hlaut hún einnig ein
verðlaun á New Horizons hátíðinni
í Wroclaw, Póllandi, og nýverið
hlaut Hlynur New Talent Grand Prix
verðlaunin á kvikmyndahátíðinni
CPH:PIX.
Hlynur er þó hinn rólegasti yfir
allri þessari upphefð og bætir við að
það gleðji hann hversu mikill áhugi
sé fyrir mynd eins og þessari. „Þetta
er mjög góð tilfinning. Viðtökurnar
heima hafa líka verið frábærar og þar
er markaðurinn lítill en þegar maður
ber saman smæð samfélagsins og
kraftinn í íslenskri kvikmyndagerð
þá er alveg magnað að sjá hversu
uppgangurinn er mikill. Þetta er
ótrúlega gott.“
Fann sína rödd
Hlynur er alinn upp á Hornafirði en
þaðan lá leiðin til Kaupmannahafnar
þar sem hann býr nú ásamt unn-
ustu sinni og æskuástinni Hildi Ýri
Ómarsdóttur og börnunum þeirra
þremur. En er rétt að hann hafi fyrst
farið til Kaupmannahafnar til þess
að nema myndlist? „Þetta byrjaði
eiginlega allt samhliða. Byrjaði
með því að ég var nánast heltekinn
af myndforminu og hljóði, að setja
saman myndir bæði í vídeóformi
og myndverkum, ljósmyndum og
myndlist. Ég fór og lærði myrkraher-
bergjaljósmyndun, gömlu tæknina,
í Danmörku og þá fann ég á mér að
kvikmyndagerðin var sá miðill sem
blandar flestum miðlum saman og
að ég hefði eitthvað að segja þar. Það
var mikið af svona main-stream eða
einsleitri kvikmyndagerð í gangi og
mig langaði til þess að vera hinum
megin og fór því að læra leikstjórn
í Kaupmannahöfn. Mér fannst svo
spennandi þessi samvinna sem kvik-
myndagerðin býður upp á þar sem
maður er að vinna með tökumanni,
klippara og svo framvegis. Það er
svo gefandi að vinna með skapandi
fólki.“
Hlynur segir að það hafi alltaf
verið í huga hans í náminu að hann
ætlaði sér að fara sínar eigin leiðir í
kvikmyndagerðinni og ekki sogast
inn í meginstrauminn. „Þegar maður
er í svona námi þá þarf maður á ein-
hverjum tímapunkti að byrja að
brjóta af sér skólann. Ég fór í þetta
nám fyrst og fremst út frá samvinnu-
elementinu með klippara, töku-
manni, hljóðmanni og framleiðanda,
það var mitt meginmarkmið. Ég
notaði þessi fjögur ár til að finna fólk
til þess að vinna með og til þess að
finna mína eigin rödd. Þannig að ég
gerði margar tilraunir og reyndi að
vera eins trúr sjálfum mér og ég gat
því ég held að maður þurfi að geta
brotið af sér skólann ef maður ætlar
að gera eitthvað af viti.“
Best sem upplifun
Vetrarbræður er fyrsta mynd Hlyns
í fullri lengd en útskriftarverkefni
hans En Maler / Málarinn frá 2013
og stuttmyndin Sjö bátar hlutu
einnig mikið lof en báðar eru þær
sérstaklega myndrænar og fallegar.
Að horfa á þessar myndir vekur
með áhorfandanum tilfinningu
eins og horft sé á lifandi málverk og
Hlynur segir að það sé mikilvægt að
leyfa myndunum að lifa og gefa sér
góðan tíma. „Mér finnst lífið vera
krefjandi og verk sem hafa áhrif á
mig eru það líka. Ég er alls ekki að
segja að þau eigi að vera leiðinleg en
ég vil að kvikmyndir hafi áhrif á mig
og hreyfi við mér. Mér finnst kvik-
myndaformið lifa best sem upplifun
en ekki bara saga. Mér finnst mikil-
vægt að kvikmyndaformið sé þessi
bíósalur í svartamyrkri, hljóðið allt
í kring og svo þetta risastóra tjald.
Maður þarf að nota þennan miðil
og skapa í honum ákveðna upplifun í
stað þess að búa eitthvað til sem gæti
alveg eins verið sagt í bókarformi.
Þess vegna er það mér líka mikilvægt
að fólk sjái myndirnar mínar í bíói
þar sem þær eiga heima. Sjö bátar er
gott dæmi um þetta því hún gerði sig
afskaplega vel í bíói en var eiginlega
allt önnur upplifun í tölvu eða síma,
þá var ekki lengur þessi líkamlega og
andlega upplifun sem næst aðeins í
bíósal.“
Allt er jafn mikilvægt
Vetrarbræður segir frá tveimur
bræðrum sem búa í einangraðri
verkamannabyggð. Yngri bróðirinn
lendir í ofbeldisfullum deilum við
vinnufélaga sína þegar heimabrugg
hans er talið ástæða þess að maður
liggur við dauðans dyr. Stigmagn-
andi útskúfun hans í framhaldi þess
reynir á samstöðu bræðranna en
þegar eldri bróðirinn virðist hafa
unnið ástir draumastúlku þess yngri
fer óhefluð atburðarás af stað. Vetr-
arbræður er saga um skort á ást og
löngun eftir því að vera elskaður og
þráður. Hlynur segir að fyrir honum
eigi sagan rætur sínar í þessari vönt-
un á ást. „Það er hjartað í myndinni.
En ég vissi líka að ég þyrfti að búa
til einhvers konar heim utan um
þetta ef ég ætlaði vera frjáls í þeirri
könnun. Frjáls til þess að leyfa sögu-
hetjunum að gera ákveðna hluti sem
ganga kannski alveg í þessum hefð-
bundna veruleika sem við þekkjum
frá degi til dags. Til þess að skapa
ákveðinn fókus þurfti ég að taka burt
og einfalda.
Hlynur segir að sem kvikmynda-
gerðarmaður leitist hann líka við að
allt sem skapar myndina sé jafn mik-
ilvægt. „Fyrir mér er allt í ferlinu jafn
mikilvægt og ég hef það í huga þegar
ég byrja að skrifa og þróa verkin mín.
Samræðurnar eru jafn mikilvægar og
tilfinningin, hljóðið jafn mikilvægt
og myndformið og hreyfingin jafn
mikilvæg og persónurnar og þannig
mætti áfram telja.“
Á heimleið
Þessa dagana er Hlynur á ferð og flugi
á milli kvikmyndahátíða að kynna
myndina og taka við verðlaunum.
Hann segir að þetta sé óneitanlega
sérstök tilfinning þar sem þetta er
eitthvað sem hann hefur unnið að
síðan hann var þrettán ára gamall.
„En núna þegar ég fór í þetta lengra
format með mynd í fullri lengd þá
breytist ansi margt og auðvitað er
ég alsæll með viðtökurnar. En þessi
velgengni snýst um það að hún gefur
okkur tækifæri til þess að vinna
næsta verk og það er stóra málið.
Það er það ferli sem ég er upptekinn
af þessa dagana.“
Hlynur segir að þetta næsta
verkefni sé íslensk framleiðsla og
íslensk kvikmynd sem verði skotin
hér á landi. „Myndin heitir Hvítur,
hvítur dagur og við stefnum að því
að aðaltökurnar verði í lok sumars
á næsta ári. Kvikmyndin er fram-
leidd af vini mínum Antoni Mána
Svanssyni sem meðframleiddi mín
tvö síðustu verkefni. Við fjölskyldan
erum líka að fara að flytja heim til
Hornafjarðar þar sem næsta mynd
verður tekin þar. Við Hildur erum
bæði sveitalarfar inn við beinið og
eftir mörg ár í borginni hlökkum
við til að taka kafla í sveitinni, setja
niður kartöflur og leyfa börnunum
okkar að upplifa íslenska sveitalífið.
Málið er að sveitarfélagið og Horn-
firðingar almennt hafa stutt vel við
bakið á mér í mínum verkefnum og
reynst mér vel þannig að það er mjög
ánægjulegt að vera á leiðinni heim á
Hornafjörð til þess að gera kvikmynd
á heimslóð. Við erum búin að vera
úti í tíu ár og hlökkum mikið til að
koma heim.“
Þurfti að búa til heim til að gefa söguhetjunum frelsi
Vetrarbræður, fyrsta kvikmynd Hlyns Pálmasonar í fullri lengd, hefur hlotið fjölda verðlauna og mikið lof.
Hlynur segir það veita frelsi til þess að huga að næstu mynd sem verður tekin á Hornafirði næsta sumar.
Atriði út myndinni Vetrarbræður þar sem Hlynur skapar sérstakan heim til þess að þjóna sögupersónum sínum.
Hlynur Pálmason leikstjóri, Maria von Hausswolff tökukona og Anton Máni Svansson framleiðandi.
Magnús
Guðmundsson
magnus@frettabladid.is
1 4 . o k t ó b e r 2 0 1 7 L A U G A r D A G U r52 m e n n i n G ∙ F r É t t A b L A ð i ð
menning
1
4
-1
0
-2
0
1
7
0
4
:2
5
F
B
1
1
2
s
_
P
0
9
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
8
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
F
8
-8
F
C
4
1
D
F
8
-8
E
8
8
1
D
F
8
-8
D
4
C
1
D
F
8
-8
C
1
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
1
1
2
s
_
1
3
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K