Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.2017, Side 4
4 Páskablað 11. apríl 2017fréttir
Rekstrarkostnaður sjóðsins
rauk upp um 36% milli ára
n „Þetta eru svakalegar tölur,“ segir formaður VR sem vill launaþak á stjórann
R
ekstrarkostnaður Lífeyris-
sjóðs verzlunarmanna nam
ríflega 2,3 milljörðum króna
árið 2016 og hefur hækkað
um ríflega 45 prósent frá ár-
inu 2014. Launakostnaður sjóðsins
hefur hækkað um rúmlega 40 prósent
frá árinu 2013, en stöðugildum hefur
fjölgað um 8. Fimm æðstu stjórnend-
ur sjóðsins fengu tæpar 135 milljónir
í laun í fyrra. Formaður VR segir laun
stjórnenda ekki í neinu siðferðilegu
sambandi við hlutverk sjóðanna og
það sem þeir greiði út til lífeyrisþega
og segir rekstrarkostnaðinn svaka-
legan. Hann hyggst beita sér fyrir
launaþaki á framkvæmdastjórann.
Lífeyrissjóður verzlunarmanna
birti nýverið ársreikning sinn fyrir
árið 2016. DV tók saman þróun
rekstrar- og launakostnaðar sjóðs-
ins, eins og hún birtist í ársreikning-
um sjóðsins aftur til ársins 2013, þar
sem upplýsingar voru fyrirliggjandi.
Ragnar Þór Ingólfsson, nýkjörinn for-
maður VR, hefur um árabil gagnrýnt
það sem hann hefur kallað glóru-
lausan rekstrarkostnað lífeyrissjóð-
anna, sem og ofurlaun æðstu stjórn-
enda þeirra.
Skipta má rekstrarkostnaði Líf-
eyrissjóðs verzlunarmanna í tvo liði.
Annars vegar skrifstofu- og stjórn-
unarkostnað, sem felur meðal annars
í sér launakostnað starfsmanna, og
hins vegar svokölluð fjárfestingar-
gjöld sem eru að langmestu leyti um-
sýsluþóknun vegna fjárfestinga í inn-
lendum og erlendum verðbréfa- og
framtakssjóðum.
Eins og sjá má á úttekt DV nam
svokallaður skrifstofu- og stjórnunar-
kostnaður 824 milljónum króna í
fyrra samanborið við 712 milljónir
2015 og 621 milljón árið 2013.
Við þann uppgefna rekstrarkostn-
að leggjast síðan fjárfestingargjöld,
sem er áætluð umsýsluþóknun vegna
fjárfestinga sem að mestu er greidd til
erlendra verðbréfa- og framtakssjóða,
eða 1,1 milljarður af þessum ríflega
1,5 milljörðum sem fjárfestingargjöld
ársins 2016 námu.
Samantekinn rekstrarkostnaður
sjóðsins árið 2016 nam því alls ríflega
2,3 milljörðum króna samanborið við
ríflega 1,7 milljarða króna árin tvö
á undan. Ekki fundust viðlíka upp-
lýsingar um þau gjöld í ársreikningi
ársins 2013. Rekstrarkostnaðurinn
á tímabilinu nemur ríflega 8,5 millj-
örðum á tímabilinu 2013–2016 og
er hann þá varlega áætlaður að mati
Ragnars.
„Svakalegar tölur“
„Fjárfestingargjöld hafa alltaf verið
tekin inn sem rekstrarkostnaður í
ársreikningum en þeir hafa aldrei
sagt nema hálfa söguna og þessi tala,
áætlaður einn og hálfur milljarður í
fjárfestingargjöld á ári, sem við erum
að borga inn í fjármálakerfið til að
sýsla með eignir okkar, er bara brot af
raunveruleikanum. Það vantar heil-
mikið inn í þetta. Þetta er varlega
áætlað, en þetta eru svakalegar tölur
og þetta er bara einn lífeyrissjóður af
26 virkum hér á landi,“ segir Ragnar í
samtali við DV.
Sjóðirnir fá ekkert frítt
Hann segir engan vafa leika á að
þessi fjárfestingargjöld heyri undir
rekstrarkostnað, þótt heitið sé þetta.
„Ef sjóðirnir tapa þá borga þeir um-
sýslugjöld fyrir eignastýringu, ef þeir
græða þá borga þeir umsýslugjöld
fyrir eignastýringu. Þetta hefur alltaf
verið skilgreint sem rekstrarkostnað-
ur í ársreikningum, en nú hefur þetta
í auknum mæli verið falið inni í sjóð-
stýringum. Eftir hrun voru stofnaðir
margir framtakssjóðir sem sjóðirnir
gerðust aðilar að og settu peninga
í. Þetta er ekki tekið fram í bókum
sjóðanna en svo sannarlega er þetta
kostnaður, það er enginn að vinna
frítt fyrir íslenska lífeyrissjóði, ég get
lofað þér því.“
Launin ekki í neinu jarðsambandi
Ragnar hefur verið mjög gagnrýninn á
laun forsvarsmanna lífeyrissjóðanna
en Guðmundur Þ. Þórhallsson, fram-
kvæmdastjóri Lífeyrissjóðs verzlunar-
manna, ber þar höfuð og herðar yfir
aðra kollega sína með tæpar 39,7 millj-
ónir í laun árið 2016. Hann og fjórir
aðrir lykilstjórnendur sjóðsins fengu
alls 135 milljónir í sinn hlut í fyrra.
„Launakostnaðurinn er ekki í
neinu siðferðilegu sambandi við
hlutverk sjóðanna og það sem þeir
eru að greiða út til lífeyrisþega.
Þetta er sjálftaka og ég mun beita
mér fyrir því að sett verði launa-
þak á framkvæmdastjóra sjóðs-
ins. Hann ber höfuð og herðar yfir
aðra framkvæmdastjóra lífeyrissjóð-
anna og það er búið að samþykkja
innan stjórnar VR og stendur til að
beina því til stjórnar lífeyrissjóðsins
að launakjör framkvæmdastjórans
verði endurskoðuð. Ég mun fylgja því
mjög fast eftir. Þetta er til háborinnar
skammar,“ segir Ragnar Þór.
Fari þeir þá í bankana
Lífeyrissjóðurinn hefur ítrekað, þegar
laun framkvæmdastjórans hefur bor-
ið á góma á umliðnum árum, bent á
að þau séu samkeppnishæf við það
sem gengur og gerist innan annarra
fjármálafyrirtækja. Samanburðurinn
virðist því vera viðskiptabankarnir,
ekki endilega aðrir lífeyrissjóðir. Um
þær skýringar talar Ragnar tæpitungu-
laust: „Þá segi ég við þessa menn, far-
ið þá bara og fáið ykkur vinnu þar og
verði ykkur að góðu. Ég get fullyrt að
það er til fjöldi strangheiðarlegs fólks
sem er tilbúið að vinna fyrir sanngjörn
laun. Það er nóg framboð af svoleið-
is fólki, þannig fólk viljum við inn en
ekki fólk sem heltekið er af græðgi og
eigin ágæti sem er síðan oft takmark-
að þegar upp er staðið.“
En því verður ekki að neitað að líf-
eyrissjóðirnir eru stórir, umsvif þeirra
mikil og Lífeyrissjóður verzlunar-
manna með þeim stærstu. Er þessi
mikli rekstrarkostnaður óþarfi, eða
er svigrúm til að hagræða þar í þágu
sjóðfélaga? „Þetta er einn lífeyrissjóð-
ur, og í 330 þúsund manna samfélagi
getum við spurt okkur hvort við þurf-
um alla þessa yfirbyggingu? Af hverju
er sjóðurinn að láta eigna- og sjóð-
stýra fyrir sig nánast öllum eignun-
um ef við erum með alla þessa yfir-
byggingu í sjóðnum sjálfum?“ n
Sigurður Mikael Jónsson
mikael@dv.is
Laun- og launatengd gjöld
Ár Kostnaður í millj. kr. Stöðugildi
2016 601,9 41
2015 499,7 35,1
2014 451,6 32,7
2013 429 32,9
Breytingar 2013-2016 40,3% hækkun Fjölgun stöðugilda: 8,1
Árlegur launakostnaður hefur hækkað um 179,8 milljónir á tímabilinu, þó stöðugildum hafi
aðeins fjölgað um 8 að meðaltali.
Laun lykilstjórnenda
Heildarlaun, hlunnindi og þóknanir til stjórnar, endurskoðunarnefndar og
stjórnenda auk viðbótarframlags til lífeyrissparnaðar til stjórnenda
Ár Laun, hlunnindi og þóknanir í millj.kr.
2016 156,3
2015 147,4
2014 142,7
Hækkun 9,5% hækkun
Þak verði
sett á
toppinn
Formaður VR
heitir því að
ganga mjög
fast á eftir því
að launaþak
verði sett á
Guðmund
Þ. Þórhalls-
son, fram-
kvæmdastjóra
Lífeyrissjóðs
verzlunar-
manna.
Rekstrarkostnaður sjóðsins
Skrifstofu- og stjórnunarkostnaður og fjárfestingargjöld
Ár Skrifstofu- og stjórnunarkostnaður Fjárfestingargjöld (1) Alls
2016 824 1.514 2.338
2015 712 998,3 1.710**
2014 663 1.042,9 1.705**
2013 621 Ekki uppgefið X
Hækkun 32,7% 45,3% ('14–'16) Samtals: 5.7 milljarðar
Árlegur skrifstofu- og stjórnunarkostnaður hefur hækkað um 203 milljónir á tímabilinu 2013–2016. Fjárfestingargjöld hafa á sama tíma
hækkað um 633 milljónir.*
(1) Samanlögð heildarþóknun vegna fjárfestinga í innlendum og erlendum verðbréfa- og framtakssjóðum. Umsýsluþóknun sjóðsins
er innifalin í gengi viðkomandi sjóða og greidd skv. reikningi frá fjárvörsluaðilum sjóðsins. Samanlögð heildarþóknun vegna þessara
fjárfestinga er áætluð 1.514 miljónir á árinu 2016. Upplýsingar um áætlaða heildarþóknun vegna fjárfestinganna var ekki að finna í
ársreikningi ársins 2013.
Ný Góu páskaegg með
bragðgóðum marsipandýrum