Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.2017, Side 6

Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.2017, Side 6
6 Páskablað 11. apríl 2017fréttir Austur vegur 69 - 800 Selfoss // Lónsbakk i - 601 Akureyr i // Sólvangi 5 - 700 Egilsstaðir // Sími 480 0400 // jotunn@jotunn.is // www.jotunn.is Jötunn kynnir Goes Iron og Goes Cobalt • Lengd: 2.130 mm • Þyngd: 371 kg • Vél: Vatnskæld fjórgengis SOHC • Drif: 2x4 / 4x4 / 4x4 LOCK • Driflæsing 100% læsanleg framan og aftan • Stillanlegir demparar, sjálfstæð afturfjöðrun • Rafléttistýri (EPS) • Diskabremsur framan og aftan • Bensíntankur 18 L • Bein innspýting (EFI) • Götuskráð • Dekk framan 25x8x12 • Dekk aftan 25x10x12 með vsk IRON 450 Kr. 1.259.000 • Lengd: 2.330 mm • Þyngd: 383 kg • Vél: Vatnskæld fjórgengis SOHC • Drif: 2x4 / 4x4 / 4x4 LOCK • Driflæsing 100% læsanleg framan og aftan • Stillanlegir demparar, sjálfstæð afturfjöðrun • Rafléttistýri (EPS) • Diskabremsur framan og aftan • Bensíntankur 18 L • Bein innspýting (EFI) • Götuskráð • Dekk framan 25x8x12 • Dekk aftan 25x10x12 með vsk Kr. 1.499.000COBALT MAX 550 • Lengd: 2.330 mm • Þyngd: 383 kg • Vél: Vatnskæld fjórgengis SOHC • Drif: 2x4 / 4x4 / 4x4 LOCK • Driflæsing 100% læsanleg framan og aftan • Stillanlegir demparar, sjálfstæð afturfjöðrun • Rafléttistýri (EPS) • Diskabremsur framan og aftan • Bensíntankur 18 L • Bein innspýting (EFI) • Götuskráð • Dekk framan 25x8x12 • Dekk aftan 25x10x12 með vsk Kr. 1.299.000IRON MAX 450 M agnús Jónsson, fyrrver- andi forstjóri Atorku, hefur beðið Þorstein Vil- helmsson opinberlega afsökunar vegna um- mæla sem hann lét falla á Face- book. Þorsteinn hefur verið um- svifamikill í íslensku viðskiptalífi og átti stóran hlut í Samherja. Hann var einnig stærsti eigandi Atorku. Vísir greindi frá því í byrjun árs að Atorku hefði verið formlega slitið þann 9. desember 2016 og lauk þá 26 ára sögu félags sem var lengi eitt umsvifamesta fjárfestingarfé- lag landsins. Magnús er fyrrverandi tengdasonur Þorsteins. Biður Þorstein afsökunar Magnús Jónsson hefur áður beðist afsökunar á ummælum sem hann hefur látið falla á Facebook. Í byrj- un árs greindi Vísir frá því að Magn- ús hefði dregið til baka ummæli um hæstaréttardómarana Benedikt Bogason og Karl Axelsson. Einka- mál tengt Magnúsi og fyrrverandi konu hans hafði farið fyrir dóm og var Magnús ósáttur við niðurstöð- una. Eftir að Magnús baðst afsök- unar létu dómararnir málin niður falla. Þorsteinn ákvað svo að leita réttar síns eftir að Magnús tjáði sig um hann á Facebook-síðu sinni. Magnús skrifaði í júlí 2016: „… Eða stálu þessu frá föður sínum í formi skipstjórakvóta líkt og Þorsteinn Vilhelmsson „fjár- festingasnillingur“ gerði þegar hann stal kvótanum undan Vilhelmi föð- ur sínum framkvæmdastjóra Út- gerðarfélags Akureyrar.“ Tilæfulausar ásakanir Fannst Þorsteini vegið að æru sinni og starfsheiðri. Var Magnúsi gefið að birta afsökunarbeiðni á Face- book. Magnús hefur nú beðið Þor- stein afsökunar. Magnús segir: „Þann 23. júlí, birti ég færslu hér á Facebook, þar sem ég dróttaðist að æru Þorsteins Vihelmssonar. Sú háttsemi sem ég lýsti í færslunni átti sér aldrei stað og því voru umrædd- ar ásakanir með öllu tilhæfulausar. Ég bið hér með Þorstein Vilhelms- son afsökunar á hinum tilhæfu- lausu ásökunum. Ég vil jafnframt biðja þá sem deildu færslunni með hinum tilhæfulausu ásökunum að deila jafnframt þessari afsökunar- beiðni.“ Magnús var forstjóri Atorku allt þar til í september 2009 en þá hafði fyrirtækið hlotið áframhaldandi heimild til greiðslustöðvunar. Með- al helstu eigna fyrirtækisins á þeim tíma var ráðandi eignarhlutur í Promens sem var ein stærsta plast- verksmiðja heims. Atorka Group hafði tapað verulegum fjármunum í hruninu, en tapið árin 2008 og 2009 nam 56,4 milljörðum króna. n ritstjorn@dv.is Magnús biður Þorstein afsökunar n Biðst aftur afsökunar á Facebook n Biður fólk að deila færslunni Magnús Jónsson Hefur beðið Þorstein Vilhelmsson afsökunar á ummælum sem hann lét falla. Þorsteinn Vilhelmsson Var stærsti eigandi Atorku. Mynd 365 Útgáfa DV DV gefur í dag út veglegt páskablað sem dreift er inn á hvert heimili í landinu. Út- gáfu DV verður þannig háttað eftir páska að næsta blað kemur til áskrifenda föstudaginn 21. apríl. Öflug fréttaþjón- usta verður venju samkvæmt á DV.is yfir páskana. DV óskar lesendum, sem og landsmönnum öllum, gleðilegra páska.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.