Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.2017, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.2017, Blaðsíða 12
12 Páskablað 11. apríl 2017fréttir Tvöfalt líf Gunnars sem kona á Barnalandi n Dæmdur barnaníðingur virkur á spjallborðinu n Sótti myndir af nöktum börnum á Barnalandi D æmdur barnaníðingur Gunnar Jakobsson, sem áður hét Roy Svanur Shannon, hefur um árabil lifað tvöföldu lífi í netheim- um undir dulnefni sem ráðagóð eldri kona á spjallborðum Barnalands sem síðar varð er.is og nú Bland. DV rakti slóð Gunnars á netinu og af- hjúpaði bloggsíðu, sem hann hélt úti um árabil eftir að hann flúði land, auk prófíls sem hann hefur notað til að fara huldu höfði um myndasíður og spjallborð Barnalands. Gunnar var í Héraðsdómi Suður- lands á dögunum dæmdur í átján mánaða skilorðsbundið fangelsi eftir að gríðarlegt magn af barnaníðsefni fannst við húsleit á heimili hans 10. janúar 2013 og fíkniefnabrot, vegna mikils magns kannabisefna sem fundust í bifreið hans árið 2016. Sótti myndir af börnum á Barnalandi Samkvæmt dómnum var um að ræða 48.212 ljósmyndir og 484 hreyfimyndir sem sýna börn á kyn- ferðislegan og klámfenginn hátt. Gunnar játaði brot sín skýlaust fyrir dómi. Mikið magn af geymslulausn- um og tölvubúnaði var gert upptækt í málinu. Harðir diskar, DVD-diskar, CD-diskar og turntölva. Meðal efnis sem fannst voru myndir af nöktum íslenskum börn- um sem grunur leikur á að Gunnar hafi sótt og vistað af myndasíðum foreldra á barnaland.is, sömu síðu og hann hefur verið virkur á undir dul- nefni frá árinu 2003. Gunnar upp- lýsti í umtöluðu viðtali í helgarblaði DV að hann girntist stúlkur á aldr- inum 3 til 11 ára, hann sé haldinn ólæknandi barnagirnd og hafi safn- að hári og skeggi til að geta farið óá- reittur í sund á höfuðborgarsvæðinu þar sem hann, að eigin sögn, virðir fyrir sér ungar stúlkur. Lögreglan á Selfossi sendi frá sér tilkynningu vegna handtökunnar þann 11. janúar 2013 sem sagt var frá á dv.is. Þar kom fram að Gunnar væri grunaður um kynferðisbrot gegn þremur ungum börnum. Brotin voru sögð talin hafa átt sér stað tveim- ur til þremur árum áður og var lögð fram gæsluvarðhaldskrafa í málinu. Við húsleit sem gerð var í kjölfarið á heimili hans á Stokkseyri, fannst síð- an þetta mikla magn barnaníðsefnis. Rannsókn á meintum kynferðisbrot- um sem Gunnar var sakaður um í janúar 2013 leiddi ekki til ákæru, en eftir stóð ákæra fyrir vörslu barna- níðsefnis og fíkniefna. Hlaut þungan dóm 1997 Líkt og fram hefur komið í fjölmiðl- um var ákveðið að skilorðsbinda dóminn yfir Gunnari í síðustu viku að teknu tilliti til þess að verulegur dráttur varð á rannsókn málsins hjá lögreglu og skýlausrar játningar Gunnars. Athygli vekur að í dómn- um kemur fram að samkvæmt fram- lögðu sakavottorði hafi Gunnar ekki áður sætt refsingu. Ljóst er að það er ekki rétt. Árið 1997 var Gunnar, sem þá hét Roy Svanur Shannon, dæmdur í fjögurra ára fangelsi í Héraðsdómi Norðurlands eystra fyrir kynferðis- brot gegn sex ungum stúlkubörnum, en sum brotin tók hann upp á mynd- band og deildi með öðrum, auk þess sem mikið magn af barnaníðsefni fannst á heimili hans. Var um að ræða einn þyngsta dóm sem barn- aníðingur hefur hlotið hérlendis á þeim tíma, og fékk málið mikla um- fjöllun í fjölmiðlum. Eftir að hafa lok- ið afplánun breytti Roy Svanur nafni sínu í Gunnar Jakobsson og flutti til Danmerkur. Í viðtalinu við Gunnar í síðasta blaði DV kom fram að í Dan- mörku hefði hann starfað sem au- pair hjá Íslendingi og séð um að fara með börnin á heimilinu í leikskóla og sækja þau seinna um daginn. Tók hann fyrir að hafa misnotað þau. Hélti úti bloggi í útlöndum DV rakti á dögunum slóð Gunnars í netheimum til bloggsíðu sem hann stofnaði árið 2003 eftir að hann flutti út. Þar skrifar hann um dag- legt líf sitt, fólkið í kringum sig, ferða- lög til Spánar og lífið í Danmörku. Enginn vafi leikur á að bloggið til- heyri Gunnari enda rakti DV það til hans með tölvupóstfangi sem hann gefur sjálfur upp opinberlega í síma- skrá auk þess sem bloggsíðan heitir í höfuðið á honum; GunniJak í Dan- mörku. Fátt ef nokkuð virðist orka tvímælis í færslum Gunnars. Ekkert virðist þar að finna um samskipti hans við börn í það minnsta, ef frá eru talin nokkur orð um að hann sé að fylgja stúlkunni á heimilinu í skól- ann. Færslurnar eru reglulegar fyrstu árin en síðan líður lengra á milli skrifa. Meðal þess sem hann fjallar um eru veikindi sín í einni færslu frá því síðla árs 2003: „Ég er búinn að liggja í þung- lyndi undanfarna daga. Fyrsta skipti síðan ég fékk blessaða gleðipilluna fyrir 4 árum. Nú ryfjast upp fyrir mér hvernig mér leið alla ævina fram að því. Skelfilegt að hugsa til þess hvað mikið er hægt að þjást af þunglyndi. Og fáir eða engir sýna samúð, fyrst og fremst vegna þess að það er ótrú- lega auðvelt að fela þunglyndi, það kemur bara fram á öðrum sviðum og þá er maður gjarnan rakkaður niður fyrir aumingjaskap.“ Bloggaði eftir rassíuna Rúmum tveimur mánuðum eftir að Gunnar var handtekinn og húsleit gerð á heimili hans í janúar 2013, rit- ar hann færslu, sína fyrstu í fjögur ár. Er hún dagsett 17. mars 2013. Þá er hann fluttur til Stokkseyrar og tjáir sig um nýliðna atburði. „Það hefur ýmislegt drifið á daga mína síðan síðast. Ég er endalaust að bíta úr nálinni vegna gerða minna fyrir 20 árum. Á því er ekkert lát. Nú á ég heima á Stokkseyri og er búinn að vera í stöðugum hremmingum síðan ég flutti hingað fyrir fjórum árum frá Danmörku. Ég hef verið borinn ýms- um ásökunum sem ég er saklaus af, á að hafa verið að ofsækja krakka hér á Stokkseyri. Ég hef ekki borið hönd fyrir höfuð mér, en er búinn að skrifa langa greinargerð um mína hlið á málum. Ég ætla að setja hana hérna á bloggið þegar ég hef lokið þessum pistli. Svo langar mig til að Blogga eins og flestir aðrir eru farnir að gera, veit samt ekki hvort ég get það vegna síþreytu og framkvæmdaleysis, sem ég vil meina að sé sjúkt ástand en ekki leti og ómennska eins og sumir/ margir halda fram.“ Greinargerðin birtist þó aldrei og ritaði Gunnar aðeins eina færslu á bloggsíðuna til viðbótar sem birtist í nóvember 2015 og er lítt markverð. Þykist vera eldri kona á spjallborðum Bloggsíðan vísaði þó á frekari virkni Gunnars í netheimum, en þá vís- bendingu er að finna í færslu frá því í desember 2003. Þar gefur Gunnar upp Hotmail-netfang sitt og auglýs- ir eftir fólki til að spjalla við á MSN- spjallforritinu sáluga. Það netfang Sigurður Mikael Jónsson mikael@dv.is „Ég er enda- laust að bíta úr nálinni vegna gerða minna fyrir 20 árum. Á því er ekkert lát. Hlaut þungan dóm Fyrir tuttugu árum hlaut Roy Svanur Shannon þungan dóm fyrir kynferðisbrot gegn fjórum ungum stúlkum. Hann breytti nafni sínu í Gunnar Jakobsson eftir afplánunina og var á dögunum dæmdur fyrir vörslu mikils magns barnaníðsefnis. Netfangið Í bloggfærslu á jóladag 2003 greinir Gunnar frá póstfangi sínu á MSN. Strantos2@hotmail.com. MyNd SkJáSkot
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.