Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.2017, Síða 12
12 Páskablað 11. apríl 2017fréttir
Tvöfalt líf Gunnars
sem kona á Barnalandi
n Dæmdur barnaníðingur virkur á spjallborðinu n Sótti myndir af nöktum börnum á Barnalandi
D
æmdur barnaníðingur
Gunnar Jakobsson, sem
áður hét Roy Svanur
Shannon, hefur um árabil
lifað tvöföldu lífi í netheim-
um undir dulnefni sem ráðagóð eldri
kona á spjallborðum Barnalands
sem síðar varð er.is og nú Bland. DV
rakti slóð Gunnars á netinu og af-
hjúpaði bloggsíðu, sem hann hélt
úti um árabil eftir að hann flúði land,
auk prófíls sem hann hefur notað til
að fara huldu höfði um myndasíður
og spjallborð Barnalands.
Gunnar var í Héraðsdómi Suður-
lands á dögunum dæmdur í átján
mánaða skilorðsbundið fangelsi eftir
að gríðarlegt magn af barnaníðsefni
fannst við húsleit á heimili hans 10.
janúar 2013 og fíkniefnabrot, vegna
mikils magns kannabisefna sem
fundust í bifreið hans árið 2016.
Sótti myndir af börnum á
Barnalandi
Samkvæmt dómnum var um að
ræða 48.212 ljósmyndir og 484
hreyfimyndir sem sýna börn á kyn-
ferðislegan og klámfenginn hátt.
Gunnar játaði brot sín skýlaust fyrir
dómi. Mikið magn af geymslulausn-
um og tölvubúnaði var gert upptækt
í málinu. Harðir diskar, DVD-diskar,
CD-diskar og turntölva.
Meðal efnis sem fannst voru
myndir af nöktum íslenskum börn-
um sem grunur leikur á að Gunnar
hafi sótt og vistað af myndasíðum
foreldra á barnaland.is, sömu síðu og
hann hefur verið virkur á undir dul-
nefni frá árinu 2003. Gunnar upp-
lýsti í umtöluðu viðtali í helgarblaði
DV að hann girntist stúlkur á aldr-
inum 3 til 11 ára, hann sé haldinn
ólæknandi barnagirnd og hafi safn-
að hári og skeggi til að geta farið óá-
reittur í sund á höfuðborgarsvæðinu
þar sem hann, að eigin sögn, virðir
fyrir sér ungar stúlkur.
Lögreglan á Selfossi sendi frá sér
tilkynningu vegna handtökunnar
þann 11. janúar 2013 sem sagt var frá
á dv.is. Þar kom fram að Gunnar væri
grunaður um kynferðisbrot gegn
þremur ungum börnum. Brotin voru
sögð talin hafa átt sér stað tveim-
ur til þremur árum áður og var lögð
fram gæsluvarðhaldskrafa í málinu.
Við húsleit sem gerð var í kjölfarið á
heimili hans á Stokkseyri, fannst síð-
an þetta mikla magn barnaníðsefnis.
Rannsókn á meintum kynferðisbrot-
um sem Gunnar var sakaður um í
janúar 2013 leiddi ekki til ákæru, en
eftir stóð ákæra fyrir vörslu barna-
níðsefnis og fíkniefna.
Hlaut þungan dóm 1997
Líkt og fram hefur komið í fjölmiðl-
um var ákveðið að skilorðsbinda
dóminn yfir Gunnari í síðustu viku
að teknu tilliti til þess að verulegur
dráttur varð á rannsókn málsins
hjá lögreglu og skýlausrar játningar
Gunnars. Athygli vekur að í dómn-
um kemur fram að samkvæmt fram-
lögðu sakavottorði hafi Gunnar ekki
áður sætt refsingu. Ljóst er að það er
ekki rétt.
Árið 1997 var Gunnar, sem þá
hét Roy Svanur Shannon, dæmdur
í fjögurra ára fangelsi í Héraðsdómi
Norðurlands eystra fyrir kynferðis-
brot gegn sex ungum stúlkubörnum,
en sum brotin tók hann upp á mynd-
band og deildi með öðrum, auk þess
sem mikið magn af barnaníðsefni
fannst á heimili hans. Var um að
ræða einn þyngsta dóm sem barn-
aníðingur hefur hlotið hérlendis á
þeim tíma, og fékk málið mikla um-
fjöllun í fjölmiðlum. Eftir að hafa lok-
ið afplánun breytti Roy Svanur nafni
sínu í Gunnar Jakobsson og flutti til
Danmerkur. Í viðtalinu við Gunnar í
síðasta blaði DV kom fram að í Dan-
mörku hefði hann starfað sem au-
pair hjá Íslendingi og séð um að fara
með börnin á heimilinu í leikskóla
og sækja þau seinna um daginn. Tók
hann fyrir að hafa misnotað þau.
Hélti úti bloggi í útlöndum
DV rakti á dögunum slóð Gunnars í
netheimum til bloggsíðu sem hann
stofnaði árið 2003 eftir að hann
flutti út. Þar skrifar hann um dag-
legt líf sitt, fólkið í kringum sig, ferða-
lög til Spánar og lífið í Danmörku.
Enginn vafi leikur á að bloggið til-
heyri Gunnari enda rakti DV það til
hans með tölvupóstfangi sem hann
gefur sjálfur upp opinberlega í síma-
skrá auk þess sem bloggsíðan heitir
í höfuðið á honum; GunniJak í Dan-
mörku. Fátt ef nokkuð virðist orka
tvímælis í færslum Gunnars. Ekkert
virðist þar að finna um samskipti
hans við börn í það minnsta, ef frá
eru talin nokkur orð um að hann sé
að fylgja stúlkunni á heimilinu í skól-
ann. Færslurnar eru reglulegar fyrstu
árin en síðan líður lengra á milli
skrifa. Meðal þess sem hann fjallar
um eru veikindi sín í einni færslu frá
því síðla árs 2003:
„Ég er búinn að liggja í þung-
lyndi undanfarna daga. Fyrsta skipti
síðan ég fékk blessaða gleðipilluna
fyrir 4 árum. Nú ryfjast upp fyrir mér
hvernig mér leið alla ævina fram að
því. Skelfilegt að hugsa til þess hvað
mikið er hægt að þjást af þunglyndi.
Og fáir eða engir sýna samúð, fyrst
og fremst vegna þess að það er ótrú-
lega auðvelt að fela þunglyndi, það
kemur bara fram á öðrum sviðum og
þá er maður gjarnan rakkaður niður
fyrir aumingjaskap.“
Bloggaði eftir rassíuna
Rúmum tveimur mánuðum eftir að
Gunnar var handtekinn og húsleit
gerð á heimili hans í janúar 2013, rit-
ar hann færslu, sína fyrstu í fjögur ár.
Er hún dagsett 17. mars 2013. Þá er
hann fluttur til Stokkseyrar og tjáir
sig um nýliðna atburði.
„Það hefur ýmislegt drifið á daga
mína síðan síðast. Ég er endalaust að
bíta úr nálinni vegna gerða minna
fyrir 20 árum. Á því er ekkert lát. Nú á
ég heima á Stokkseyri og er búinn að
vera í stöðugum hremmingum síðan
ég flutti hingað fyrir fjórum árum frá
Danmörku. Ég hef verið borinn ýms-
um ásökunum sem ég er saklaus af,
á að hafa verið að ofsækja krakka hér
á Stokkseyri. Ég hef ekki borið hönd
fyrir höfuð mér, en er búinn að skrifa
langa greinargerð um mína hlið á
málum. Ég ætla að setja hana hérna
á bloggið þegar ég hef lokið þessum
pistli. Svo langar mig til að Blogga
eins og flestir aðrir eru farnir að gera,
veit samt ekki hvort ég get það vegna
síþreytu og framkvæmdaleysis, sem
ég vil meina að sé sjúkt ástand en
ekki leti og ómennska eins og sumir/
margir halda fram.“
Greinargerðin birtist þó aldrei og
ritaði Gunnar aðeins eina færslu á
bloggsíðuna til viðbótar sem birtist
í nóvember 2015 og er lítt markverð.
Þykist vera eldri kona á
spjallborðum
Bloggsíðan vísaði þó á frekari virkni
Gunnars í netheimum, en þá vís-
bendingu er að finna í færslu frá því
í desember 2003. Þar gefur Gunnar
upp Hotmail-netfang sitt og auglýs-
ir eftir fólki til að spjalla við á MSN-
spjallforritinu sáluga. Það netfang
Sigurður Mikael Jónsson
mikael@dv.is
„Ég er enda-
laust að bíta úr
nálinni vegna gerða
minna fyrir 20 árum. Á
því er ekkert lát.
Hlaut þungan dóm Fyrir tuttugu
árum hlaut Roy Svanur Shannon þungan
dóm fyrir kynferðisbrot gegn fjórum
ungum stúlkum. Hann breytti nafni sínu
í Gunnar Jakobsson eftir afplánunina
og var á dögunum dæmdur fyrir vörslu
mikils magns barnaníðsefnis.
Netfangið Í bloggfærslu á jóladag 2003 greinir Gunnar frá póstfangi sínu á MSN. Strantos2@hotmail.com. MyNd SkJáSkot