Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.2017, Page 16

Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.2017, Page 16
16 Páskablað 11. apríl 2017fréttir Wise lausnir ehf. » Borgartún 26, 105 Reykjavík » Hafnarstræti 93-95, 600 Akureyri sími: 545 3200 » wise@wise.is » wise.is Bókhaldskerfi í áskrift Microsoft Dynamics NAV er eitt mest selda bókhaldskerfi landsins og fæst í mánaðarlegri áskrift. kr. 9.900 pr. mán.án vsk. Bjóðum einnig Oce 365 í áskrift. Þú færð fullbúna viðskiptalausn, hýsingu og afritun í Azure ásamt vottuðum sérkerfum Wise á navaskrift.is Reynt að bjarga þjóðargersemum Listgluggar Gerðar Helgadóttur og altarismynd Nínu Tryggvadóttur liggja undir skemmdum M iðað við fjölda þeirra sem leitað hefur verið til er óhætt að segja að söfn- unin hafi í heild gengið frekar treglega til þessa,“ segir Kristján Valur Ingólfsson, vígslubiskup í Skálholti. Verndar- sjóður Skálholtsdómkirkju hóf ný- lega að safna framlögum til viðgerða á listgluggum Gerðar Helgadóttur sem liggja undir skemmdum og altarismynd Nínu Tryggvadóttur. Leitað hefur verið eftir fjárfram- lögum bæði hjá einstaklingum og fyrir tækjum, en einnig var sótt um styrk í Húsafriðunarsjóð. Kristján Valur segir að svar við umsókn- inni í Húsafriðunarsjóð sé væntan- legt innan skamms. „Við munum ekki leggja af stað með viðgerð fyrr en séð verður að við náum endum saman,“ segir hann. Gæti kostað 70 milljónir Hann segir kostnaðinn geta orðið um 70 milljónir króna. Spurður hvar viðgerðir muni fara fram segir hann: „Bæði listgluggar Gerðar og altarismynd Nínu eru frá Oidtmann fyrirtækinu í Linnich í Þýskalandi (Dr. H. Oidtmann & Cie.). Fulltrúi þeirra, dr. Stefan Oidtmann, var kallaður til ráðgjafar og úttektar á ástandi glugganna fyrst árið 2010 og skilaði þá mjög ítarlegri skýrslu og kom síðan aftur árið 2014, þegar ákveðið hafði verið að ráð- ast í nauðsynlega viðgerð, og gerði þá nýja úttekt á ástandi glugganna og á mósaíkmynd Nínu, en í henni eru sprunguskemmdir sem urðu til í stóru Suðurlandsskjálftunum. Út- tektin sýndi að ástand glugganna hafði verulega versnað milli 2010 og 2014.“ Þarf að taka alla glugga niður Hversu miklar eru skemmdirnar á listgluggum Gerðar og hafa þær orðið á löngum tíma? „Skemmdirnar eru að stærstum hluta tilkomnar vegna þess að bilið milli hlífðarglers og listglers var í upphafi haft of lítið og án loftunar. Þess vegna hefur alveg frá upphafi orðið til raki sem með tímanum veldur fúa í tréverki og tæringu í blýi og stuðningsrömmum. Þar að auki hafa glerflísar brotnað. Til þess að bregðast við þessu þarf að taka alla gluggana niður og fara yfir þá í verk- stæðinu í Linnich, gera nýja ramma og setja þá upp að nýju með góðri loftun.“ Ef ekki tekst að safna nægu fé hvað þá? „Það er ekki í boði. Þetta eru þjóðargersemar.“ n Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrun@dv.is Listgluggar Gerðar Helgadóttur Gersemar í Skálholtsdómkirkju. Kristján Valur „Þetta eru þjóðargersemar.“ MyNd SiGTryGGur Ari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.