Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.2017, Side 24
24 Páskablað 11. apríl 2017fréttir
B
irna Kristel, sem ólst upp í
Keflavík, tók sinn fyrsta sopa
af áfengum drykk í Fram-
haldsskólann á Laugum.
Þetta kvöld drakk hún einn
bjór en fékk svo mikið samviskubit
að hún hringdi undir eins og móður
sína til að segja henni sannleikann.
„Mamma sagði: „Þú veist þú get-
ur endað sem alkóhólisti, en þetta
er þitt líf“,“ segir Birna.
Varnarorð móður hennar höfðu
lítið að segja. Birna var í áhættuhópi
varðandi misnotkun áfengis vegna
sjúkdóms föður og bróður síns, en hún
gerði sér ekki grein fyrir hættunni.
„Ég hélt bara áfram að drekka og
þetta stoppaði mig ekki.“
Birna hafði engar áhyggjur. Hún
drakk aðeins um helgar, en síð-
an urðu helgarnar lengri og hún
drakk frá fimmtudegi til sunnudags.
Bjórarnir tíu til fimmtán í hvert sinn.
Alkar í fjölskyldunni
Félagsskapurinn lék stórt hlutverk
þegar Birna tók þá ákvörðun að
byrja að drekka áfengi. Hún vildi
vera með og var einnig forvitin um
áhrif áfengis. Bæði faðir hennar og
bróðir hafa glímt við sjúkdóminn.
Bróðir hennar er edrú í dag en faðir
hennar er virkur alkóhólisti. Þrátt
fyrir það styður hann Birnu í einu
og öllu.
„Ég hef alltaf getað leitað til hans.
Kannski ekki þegar ég var lítil en
hann reyndi sitt besta. Ég hef sætt
mig við að hann sé alkóhólisti. Ég
get ekki breytt lífi hans, þetta er
hans val,“ segir Birna.
Ofbeldi á heimilinu
Bróðir Birnu var djúpt sokkinn í
neyslu þegar hún var yngri og því
fylgdi mikið ofbeldi. „Hann var eins
og alkóhólistar og fíklar eru oft. Þeir
virða ekki nein mörk og vilja oft að
fólk tipli á tánum í kringum þá því
þeir eiga svo bágt. Það er ekkert
að hjá þeim, heldur eru allir aðrir
asnar. Þannig hugsaði ég og geri ráð
fyrir að bróðir minn hafi gert það
líka.“
Birna segist hafa þurft að vera
afar varkár í kringum bróður sinn
og var oft hrædd við að koma heim.
„Ef ég gerði ekki eitthvað sem hann
vildi, eða sagði eitthvað
sem stuðaði hann, þá
lamdi hann mig, til dæmis
með ryksugu, þá sló hann
mig og henti mér niður
stiga.“
Bróðir Birnu var í
hennar huga birtingar-
mynd fíkils. Þegar hún
horfði á hann fannst
henni ekkert vera að
sér. Hennar áfengis- og
fíkniefnaneysla var ekki
vandamál þegar hún
miðaði sig við bróður
sinn og hún hélt því sinni
neyslu ótrauð áfram.
Í umsjá barnaverndar
Birna gafst upp á fram-
haldsskólanum á Laug-
um og dvaldi á Hraun-
bergi í tvær vikur.
Hraunberg er úrræði
á vegum Reykjavíkur-
borgar þar sem börn og
ungmenni eru vistuð á
vegum barnaverndar.
Hún fór á Hraunberg eft-
ir að hafa fengið reiði-
kast á Laugum. Hún
kveðst hafa verið áreitt
kynferðislega af öðrum
nemendum og í kjölfar-
ið misst stjórn á skapi sínu. Hún skar
sig og rústaði herberginu sínu. Þegar
heim var komið fékk móðir hennar
að kenna á vanlíðan Birnu og var hún
þá send á Hraunberg og vistuð þar.
Á sama tíma var Birna einnig í Fjöl-
smiðjunni, vinnusetri fyrir ungt fólk.
Á þessum tíma kynntist hún ung-
mennum sem notuðu örvandi efni,
eins og kókaín, amfetamín og e-töfl-
ur. Hún þorði þó ekki að prófa þessi
efni af hræðslu við að enda eins og
bróðir hennar og faðir.
Birna ákvað að fara aftur í skóla
og skráði sig í Flensborg í Hafnar-
firði en hætti þar 17 ára og hóf nám
í Kvikmyndaskólanum. Til þessa
hafði hún aðeins neytt áfengis. Í
skólanum kynntist hún bæði fólki
sem reykti gras og notaði örvandi
efni. Í kjölfarið byrjaði hún að reykja
og nota amfetamín. „Ég
man ekki hversu oft ég reykti gras á
þessum tíma, en það var ekki dag-
lega samt.“
Flutti til Keflavíkur
Birna var í Kvikmyndaskólanum í
eitt og hálft ár. Þá flutti hún aftur til
Keflavíkur þar sem hún komst í enn
verri félagsskap en áður. Hún átti
heimili hjá móður sinni en dvaldi
sjaldan þar.
„Ég var mikið á flakkinu, alltaf að
redda mér gistingu eða partíi,“ segir
Birna. Þannig liðu þrjú ár, hún flakk-
aði um, leitaði að partíi og neyslan
ágerðist.
Kynferðislegt ofbeldi
Þegar Birna hugsar til baka telur
hún að kynferðisofbeldi sem hún
varð fyrir yfir nokkurra
ára tímabil eigi sinn þátt
í neyslunni. Það hafi haft
gríðarleg sálræn áhrif. Hún
var fjórtán ára þegar hún
fór inn á Barna- og ung-
lingageðdeild. Það gerði
hún eftir að hafa stigið fram
og sagt frá ofbeldinu.
„Ofbeldið stóð yfir í fjög-
ur ár, þegar ég var ellefu til
fjórtán ára,“ segir Birna og
bætir við að hún hafi ekki
fyrirgefið honum ofbeldið
sem hann beitti hana en hún hef-
ur engu að síður fundið eigin frið.
Sá sem beitti Birnu ofbeldi var jafn-
aldri hennar, sonur konu sem tók
Birnu að sér eina helgi í mánuði sem
stuðningsbarn því faðir hennar var
ekki í stakk búinn til að hugsa um
hana á þeim árum. Birna segir kon-
una hafa verið yndislega og ber góð-
ar tilfinningar til hennar í dag.
„Þetta byrjaði þannig að hann
var hrifinn af mér, en ég vissi ekki
neitt um kynlíf enda ellefu ára.
Hann fikraði sig bara áfram, káfaði
á mér og misnotaði mig þær helgar
sem ég var hjá þeim. Ég sagði eng-
um frá í fjögur ár.“
Upp komst um misnotkunina
eftir sumarbústaðarferð sem Birna
fór í með konunni og stráknum.
„Það besta sem mamma
gerði fyrir mig
var að henda
mér út“
Birtir myndir í forvarnarskyni Birna með áfengiseitrun eftir að hafa drukkið of mikið. Hún man ekki mikið eftir kvöldinu sökum ölvunar og það eina sem hún man er að hún drakk viskí beint úr flöskunni. Næsta sem hún man er þegar hún kom til meðvitundar í sjúkrabíl. „Ég skyrpti á læknana og sagði þeim að fokka sér og hélt fram að mér hefði verið byrlað og ég myndi aldrei drekka svona mik-ið. Það fannst ekkert í blóðinu, ég hafði bara drukkið svona mikið.“
„Ég er
bara
ég og er að
reyna að
sættast við
sjálfa mig.
Ég er á hár-
réttri leið.
Full af lífi og
tilfinningum
Birna er þakklát á
hverjum einasta
degi fyrir að vakna
edrú. „Það er ekki
sjálfsagt að lifa.“
Mynd Sigtryggur Ari
Ef þú leyfir barni að búa heima hjá þér á meðan það
er í neyslu, þá ertu að gefa grænt ljós. Alkóhólistar
lofa öllu en svíkja allt. Barnið verður að reka sig sjálft
á. Það er bara mín skoðun en eflaust margir ósam-
mála mér.“ Þetta segir Birna Kristel, tvítug kona
sem hefur játað sig sigraða af áfengi og fíkniefnum.
Hún er alkóhólisti sem hefur farið niður í dýpsta
myrkur og oft verið hætt komin en með hjálp góðra
vina og fjölskyldu rataði hún aftur heim. Birna settist
niður með blaðamanni og opnaði sig um áfengisfíkn
og kynferðismisnotkun og svo litlu sigrana og leiðina
til baka sem var þyrnum stráð. Í dag hefur hún verið
án áfengis í níu mánuði.
guðrún Ósk guðjónsdóttir
gudrun@bleikt.is