Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.2017, Síða 32
32 Páskablað 11. apríl 2017fréttir - erlent
U
m leið og hann sér aðsteðj-
andi hættu frá Bandaríkj-
unum mun hann beita
kjarnorkuvopnum sínum
með langdrægum eldflaug-
um.“ Þetta sagði Thae Yong-ho, fyrr-
verandi sendiherra Norður-Kóreu í
Lundúnum, í viðtali við Lester Holt
hjá NBC á dögunum. Viðtalið hefur
vakið talsverða athygli enda var Thae
mjög náinn æðstu embættismönn-
um í Pyongyang í Norður-Kóreu þegar
hann lét sig hverfa í fyrrahaust og fór í
útlegð til Suður-Kóreu.
Fágæt innsýn
Ekki hefur hærra settur embættis-
maður farið í útlegð frá Norður-Kóreu
síðastliðin tuttugu ár eða svo og er
Thae sagður geta gefið fágæta innsýn
í þankagang yfirvalda í Norður-
Kóreu.
Thae var búsettur í London og
gegndi stöðu sendiherra Norður-
Kóreu í Bretlandi þegar hann,
ásamt fjölskyldu sinni, ákvað að
snúa baki við heimalandi sínu.
Áður hafði hann gegnt embætti
erindreka Norður-Kóreu í Dan-
mörku.
Óvíst með tækniþekkingu
Tilraunir Norður-Kóreumanna
með kjarnavopn hafa vakið mikla
athygli á undanförnum árum.
Alþjóðasamfélagið, sem vill að
Norður-Kóreumenn hætti tilraun-
um sínum, hefur talað fyrir dauf-
um eyrum yfirvalda í Norður-
Kóreu sem virðast tvíeflast í hvert
skipti sem þau eru gagnrýnd.
Thae tók ekki beinan þátt í
vopnaáætlun Norður-Kóreu-
manna en segist engu að síður telja að
Norður-Kóreumenn séu komnir mjög
langt á veg með þróun langdrægra
eldflauga sem geta borið kjarnorku-
vopn. Fullyrt hefur verið að yfirvöld
í Norður-Kóreu búi yfir átta kjarn-
orkusprengjum en ekki virðist liggja
ljóst fyrir hvort þeir búi yfir þeirri
tækniþekkingu sem þarf til að koma
sprengjunum fyrir á langdrægum
flaugum. NBC greindi frá því í janúar
– og hafði eftir sérfræðingi í Norður-
Kóreu – að yfirvöld væru tilbúin að
gera tilraunir með langdrægar eld-
flaugar „á hverri stundu og hvar sem
er“. Þá hefur verið fullyrt að Norður-
Kóreumenn hafi gert tilraunir á vél
fyrir langdræga skotflaug með góð-
um árangri en með henni væri hægt
að gera kjarnavopnaárás á Bandaríkin
eða bandamenn þeirra.
Bandaríkjamenn áhyggjufullir
Í umfjöllun NBC News var rætt við
Scott Swift, yfirmann Kyrrahafsflota
Bandaríkjahers, sem sagði að Banda-
ríkjamenn hefðu áhyggjur af þróun
mála á Kóreuskaga. „Þeir hafa getuna
til að framleiða kjarnavopn – þeir
hafa sýnt það. Áhyggjurnar beinast að
því hvort þeir geti skotið kjarnorku-
sprengjum með langdrægum flaug-
um.“ Það var síðast í liðinni viku, að
kvöldi þriðjudags, sem Norður-Kóreu-
menn skutu eldflaug á loft en hún fór
um 60 kílómetra áður en hún hrapaði
í Japanshaf. Sameiginlegar heræfingar
Suður-Kóreumanna og Bandaríkj-
anna hafa staðið yfir undan ströndum
Suður-Kóreu og þær fara illa í Norður-
Kóreumenn sem telja sér ógnað.
Útiloka ekki aðgerðir
Svo virðist sem spennan fari vaxandi
dag frá degi milli Norður-Kóreu-
manna og annarra þjóða. Donald
Trump Bandaríkjaforseti hefur kall-
að eftir því að Kínverjar, sem hingað
til hafa verið bandamenn yfirvalda í
Norður-Kóreu, beiti sér í meira mæli
gegn auknum vígbúnaði Norður-
Kóreumanna. Áður hefur James Matt-
is, varnarmálaráðherra Bandaríkj-
anna, sagt að „það þurfi að stöðva“
Norður-Kóreumenn og Rex Tillerson,
utanríkisráðherra landsins, hefur ekki
útilokað að gripið verði til hernaðar-
aðgerða gegn Norður-Kóreu.
„Staðan í dag er eldfim af þremur
ástæðum: Í fyrsta lagi ber að nefna til-
viljanakennda hegðun Kim Jong-un
sem leiðtoga Norður-Kóreu, í öðru
lagi óstöðugleikann í Suður-Kóreu.
Forseti landsins var handtekinn og
settur í fangelsi fyrir skemmstu. Og í
þriðja lagi ber að nefna nýja og árásar-
gjarnari utanríkisstefnu Bandaríkj-
anna,“ segir James Stavridis, sér-
fræðingur NBC og deildarforseti við
Tufts University í Massachusetts.
Vill ekki enda eins og Gaddafi og
Saddam Hussein
Sérfræðingar hafa varað við afleiðing-
um þess að gripið verði til hernaðar-
íhlutunar gegn Norður-Kóreu. Slíkt
gæti haft ófyrirséðar afleiðingar í för
með sér. Í því samhengi er bent á að
Seúl, höfuðborg Suður-Kóreu, er
skammt frá landamærum Norður-
Kóreu. Thae sagði í viðtalinu við NBC
News að Bandaríkin og bandamenn
þeirra þurfi að vera tilbúnir. „Ef Kim
Jong-un býr yfir kjarnorkuvopnum og
langdrægum eldflaugum er hann til
alls vís. Heimsbyggðin þarf að vera til-
búin að takast á við slíkan einstakling.“
Í viðtalinu sagði Thae einnig að
Kim Jong-un væri í raun heltekinn
af því að fullkomna kjarnorkuáætlun
sína. Ástæðan sé sú að hann sá hvað
gerðist í Líbíu undir stjórn Moammar
Gadhafi og í Írak undir stjórn Saddam
Hussein. Báðar þjóðir sögðu skilið
við kjarnorkuáætlun sína en ekki leið
á löngu þar til leiðtogar beggja land-
anna voru hraktir frá völdum fyrir til-
stilli vestrænna ríkja. Skýrendur sem
NBC ræddi við eru sammála um að
sú ógn, að búa yfir kjarnorkuvopnum,
sé því eins konar trygging fyrir því að
slíkt gerist ekki í Norður-Kóreu. „Þess
vegna telur hann [Kim Jong-un] að
aðeins kjarnorkuvopn geti tryggt
valdasetu hans í landinu.“
Tilbúinn að ryðja öllum úr vegi
Thae bendir á að Kim sé til alls vís.
Gjörðir hans hingað til hafi sýnt það.
Fullyrt hefur verið að Kim beri ábyrgð
á hreinsunum og aftökum á hátt sett-
um embættismönnum landsins og
jafnvel einstaklingum úr eigin fjöl-
skyldu. Þannig var greint frá því í mars
að allt benti til þess að Norður-Kóreu-
menn hefðu staðið á bak við morðið á
Kim Jong-nam, hálfbróður Kim Jong-
un, í Malasíu. „Hann er einstaklingur
sem hikar ekki við að drepa frænda
sinn og bróður. Hann er einstaklingur
sem er tilbúinn að ryðja öllum úr vegi
til að ná sínu fram.“
Síðan Thae fór í útlegð í fyrrahaust
hefur hann verið duglegur að tala gegn
yfirvöldum í Pyongyang. Hann sagð-
ist í viðtalinu við NBC óttast að hann
gæti orðið næstur í röðinni í hreinsun-
um stjórnvalda. „Ég er merktur maður.
Kim vill ryðja öllum þeim úr vegi sem
hann telur ógna sér. Og ég held að ég
sé einn af þeim.“
Þegar hann var spurður hvers
vegna hann hafi ákveðið að snúa baki
við heimalandi sínu sagðist hann hafa
gert það að vel ígrunduðu máli. Hann
segir að synir hans tveir hafi fengið
hann til að hugsa, þeir hafi spurt hvers
vegna almenningur í Norður-Kóreu
hefði ekki aðgang að netinu, hvers
vegna dómskerfi landsins væri í lama-
sessi og hvers vegna embættismenn
væru teknir af lífi án dóms og laga. Þá
hafi skólafélagar sona hans í London
gert grín að þeim og uppruna þeirra.
Almenningur rís upp
Frelsið, ef svo má segja, gæti hafa
reynst dýru verði keypt að sögn Thae.
Honum tókst að flýja með eiginkonu
sína og börn en óttast um öryggi bróð-
ur síns og systur sem búsett eru í Norð-
ur-Kóreu. „Þegar einhver svíkst undan
merkjum og flýr bitnar það iðulega á
fjölskyldumeðlimum sem eru sendir í
þrælkunarbúðir eða pólitísk fangelsi.“
Norður-Kórea er eitt lokaðasta ríki
heims, aðgangur að internetinu er tak-
markaður og upplýsingar sem íbúar
fá, fréttir til dæmis, eru einhliða og
áróðurskenndar. Thae segir að sífellt
fleiri Norður-Kóreumenn geti nýtt
sér tæknina og horft til dæmis á sjón-
varpsstöðvar í Suður-Kóreu. Hægt
og bítandi sé gríman að falla. „Ég er
handviss um það að þegar almenning-
ur verður nægjanlega upplýstur mun
hann rísa upp. Norður-Kóreumenn
vita að Suður-Kórea er lýðræðisríki
með sterkan efnahag.“
Hann bendir á að önnur ríki hafi
í raun verið í svipaðri stöðu fyrir
nokkrum áratugum og Norður-
Kórea er í í dag. „Hvað gerðist í
Sovétríkjunum, hvað gerðist í komm-
únistaríkjunum í Austur-Evrópu?
Þegar fólk í þessum ríkjum vissi að
lífsgæðin væru miklu betri í Vestur-
Evrópu – lýðræðisríki væru betur
heppnuð en kommúnistaríki og ríki
með eins flokks kerfi – þá skyndilega
reis fólk upp gegn kerfinu. Þetta gæti
líka gerst í Norður-Kóreu.“ n
Mundi ekki hika við að
beita kjarnorkuvopnuM
n Thae Yong-ho gefur fágæta innsýn í þankagang Kim Jong-un n Sendiherra sem gerðist liðhlaupi
Kim Jong-un
Leggur ríka
áherslu á að
Norður-Kóreu-
menn búi yfir
fullbúnum
kjarnorkuvopn-
um. Mynd EPA
„Heims-
byggðin
þarf að vera
tilbúin að tak-
ast á við slíkan
einstakling
Gríman fellur „Ég er handviss
um það að þegar almenningur
verður nægjanlega upplýstur
mun hann rísa upp,“ segir Thae
Yong-ho, fyrrverandi sendiherra
Norður-Kóreu.
Einar Þór Sigurðsson
einar@dv.is
norður-Kórea Er eitt lokaðasta ríki
heims. Almenningur fær áróðurskenndar
upplýsingar um stöðu mála í heiminum.