Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.2017, Qupperneq 40
40 Páskablað 11. apríl 2017fréttir
S
óknarpresturinn Saurbæjar
kirkju óskaði eftir því við
tvenn brúðhjón að þau leit
uðu annað vegna þess að
bókaðir voru tónleikar í
kirkjunni á sama tíma. Um var að
ræða tónleika með Megasi þar sem
hann flutti Passíusálmana. Síðast
liðin laugardag gengu brúðhjónin í
hjónaband, annars vegar í Akranes
kirkju og hins vegar Seltjarnarnes
kirkju, og eru bæði alsæl með
hvernig til tókst. „Við vorum löngu
búin að boða gesti og gera allar ráð
stafanir í tengslum við brúðkaupið.
Okkur var einfaldlega úthýst og sagt
að við þyrftum sjálf að redda þessu,
án þess að vera boðin nokkur að
stoð. Það fannst okkur eiginlega
sárast og tilfinningin sú að prestur
inn hafi aðeins verið að hugsa um
að bjarga eigin skinni,“ segir Ásdís
Hauksdóttir, önnur nývígðu brúð
anna. „Það er bæði rosalega skrítið
og óforskammað að svona skuli ger
ast hjá kirkjunni. Biskupsstofa var
mjög hissa á þessu en prófasturinn
í héraðinu gerði ekkert fyrir okkur.
Þarna þurftum við að gjalda mis
taka annarra og okkur fannst dáldið
súrt að vera beðin um að víkja. Það
var stórmál og hefði getað endað
mjög illa, sem betur fer náðum við
að bjarga þessu sjálf.“
Á ekki að gerast
Ása Einarsdóttir, hin nývígða brúð
urin, tekur undir og segir það hafa
komið henni á óvart að hafa ekki
fengið aðstoð við að gera aðrar
ráðstafanir. Hún segir brúðkaups
daginn hafa verið yndislegan.
„Auðvitað kom þetta sér illa fyrir
okkur. Við fengum aðra kirkju en
þurftum sjálf að standa í öllum
reddingum. Brúðkaupsdagurinn
var hins vegar alveg frábær og mað
ur er alveg á bleiku skýi,“ segir Ása
Einarsdóttir. Eðvarð Ingólfsson,
prestur í Akraneskirkju, undrast
að þessi tilvik hafi komið upp því
mikilvægt sé að kirkjulegar athafn
ir standist að fullu. Hann segir al
mennar vinnureglur kirkna þær
að tvíbókanir eigi ekki að geta átt
sér stað. „Maður gætir þess vel og
vandlega að tvíbóka aldrei og þetta
á ekki að geta gerst. Það er mjög
eðlilegt að kirkjulega athafnir, líkt
og gifting, gangi fyrir öðrum at
burðum því þetta eru svo stórir at
burðir í lífi fólks. Hvað mig varðar
þá mætir maður jafnvel með fjörtíu
stiga hita til þess að láta allt stand
ast,“ segir Eðvarð Ingólfsson.
Farsæl lausn
Kristinn Jens Sigurþórsson, sóknar
prestur Hallgrímskirkju í Saurbæ,
segir engum hafa verið vísað frá
heldur hafi einfaldasta lausnin ver
ið að spyrja brúðhjónin. Aðspurður
segir hann tónleikana hafa verið
bókaða síðar en giftingarnar. „Þetta
var bara klaufaskapur að kirkjan
hafi verið tvíbókuð og í fyrsta sinn
sem þetta kemur fyrir hjá mér. Búið
var að leggja mikla vinnu í tónleik
ana og því einfaldast að spyrja brúð
hjónin hvort þau væru tilbúin til að
færa sig. Þau voru til í það og þannig
leystist málið,“ segir Kristinn Jens.
„Það var engum vísað frá, ég bara
spurði brúðhjónin hvort þau væru
til í þessa leið. Þau voru tilbúin til að
leysa þetta með okkur og fyrir það
erum við ákaflega þakklát. Sem bet
ur fer leystist þetta farsællega og í
sameiningu allra aðila,“ segir Krist
inn Jens. n
PreStur bað brúðhjón að
giftaSt í annarri kirkju
Hætt var við tvö brúðkaup í Saurbæjarkirkju í Hvalfirði vegna tónleika Megasar
11. apríl
11. apríl er 101. dagur ársins
(102. á hlaupári) samkvæmt
gregoríska tímatalinu.
264 dagar eru eftir af árinu.
Atburðir:
1700 - Hvergi var messað á landinu
þó páskadagur væri vegna mikillar
snjókomu á norðan. Veturinn var því
kallaður páskavetur.
1912 - Mánaðarlöngu verkfalli
kvenna í fiskverkun í Hafnarfirði lauk
með samningum. Þetta var fyrsta
verkfall kvenna á Íslandi og jafnvel
fyrsta skipulagða verkfallið.
1915 - Flækingurinn með Charlie
Chaplin var frumsýnd.
1959 - Rannveig Þorsteinsdóttir
fékk rétt til þess að flytja mál fyrir
Hæstarétti fyrst kvenna.
1970 - Minkarækt hófst að nýju á
Íslandi.
Dáin
1165 - Stefán 4., konungur Ungverja-
lands (f. um 1133).
1778 - Miklabæjar-Solveig, vinnukona
á Miklabæ í Blönduhlíð (fyrirfór sér).
2007 - Kurt Vonnegut, bandarískur
rithöfundur (f. 1922).
11. apríl 2007:
f
ranklín Steiner, fimmtugur
Hafnfirðingur, var í gær
dæmdur í rúmlega tveggja ára
fangelsi fyrir að hafa ætlað 252
grömm af amfetamíni og 139
grömm af hassi til sölu í ágóðaskyni en
efnin fundust á heimili hans, í húsa
garði og í bíl hans að kvöldi 13. apríl
1996. Auk langs sakaferils tók dómur
inn mið af því við refsiákvörðun að
Franklín „tafði nokkuð framgang“
refsimálsins. Tafirnar eru ekki nán
ar skýrðar í dómnum en hins vegar
er nákvæmlega tíundað í niðurstöð
um hans hvernig vitni gaf sig fram í
fyrstu réttarhöldum málsins í desem
ber síðastliðnum – maður sem sagð
ist eiga þau fíkniefni sem fundust á
heimili Franklíns. Eftir þetta þurfti að
fara fram ítarleg sérrannsókn. Niður
staða ríkissaksóknara og nú dómsins
hefur síðan orðið á þá leið að fram
burður vitnisins er metin sem „mark
leysa og ekki byggt á honum í mál
inu“, eins og dómurinn segir. Eins og
fram hefur komið í DV viðurkenndi
Franklín við fyrstu yfirheyrslur í apríl
'96 að hann ætti efnin eða öllu held
ur að hann „tæki þetta á sig“. Við rétt
arhöld í desember kvaðst hann síðan
ekki eiga efnin. Hann kvaddi síðan til
vitni sem sagðist eiga meirihluta.
Rannsókn RLR leiddi í ljós fjölda
augljósra atriða sem þóttu sýna fram
á að framburður vitnisins stangaðist
verulega á við staðreyndir málsins,
s.s. felustað, tímasetningar, umbúðir
fíkniefnanna og fleira. Franklín Stein
er mætti ekki í dómsuppsögu í gær.
Þegar dómurinn var kveðinn upp
lýsti Hilmar Ingimundarson, verjandi
hans, því yfir að skjólstæðingur hans
hefði ekki verið boðaður. Dómur
inn tekur ekki gildi strax enda hef
ur ákvörðun ekki verið tekin um það
hvort dómnum verður unað eða hon
um verður áfrýjað.
Guðmundur L. Jóhannesson kvað
upp dóminn. Í málinu var Franklín
einnig ákærður fyrir brot á sérlögum
með því að hafa haft 17 skotvopn á
heimili sínu og 10 bit eða eggvopn,
s.s. byssustingi og sverð. Niðurstað
an varð sú að aðeins eitt skotvopn
anna væri sannanlega virkt og því var
Franklín sakfelldur fyrir vörslu á því
svo og að hafa ekki haft margfrægt
skotvopnaleyfi sem til þarf. Hin skot
vopnin 16 voru ekki dæmd upptæk og
mun eigandinn því væntanlega halda
þeim. Hann telst hins vegar hafa gerst
brotlegur við refsiákvæði vegna allra
framangreindra bitvopna. n
franklín Steiner fær
25 mánaða fangelsi
Refsiþyngjandi að hann er talinn hafa tafið málið með „marklausu vitni“
Megas Tvenn
brúðhjón voru
beðin um að flytja
brúðkaup sitt
vegna tónleika
Megasar.
Réttarhöld Frá réttarhöldunum
í máli Franklíns Steiners. Franklin
mætti ekki í dómsuppkvaðninguna.
11. apríl 1997: