Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.2017, Síða 44

Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.2017, Síða 44
44 sport Páskablað 11. apríl 2017 Baráttan um sæti í Meistaradeildinni n Leikirnir sem toppliðin eiga eftir n Hvaða lið fylgja Chelsea og Tottenham í Meistaradeildina? F átt bendir til annars en að Chelsea hampi Eng- landsmeistaratitilinum í knattspyrnu áður en langt um líður. Liðið er með sjö stiga forskot þegar sjö umferðir eru eftir. Tottenham virðist vera langt komið með að tryggja sér 2. sætið. Liðið er með 5 stiga forskot á Liverpool og á auk þess leik til góða. En baráttan um hin tvö sætin sem gefa þátttöku- rétt í Meistaradeild Evrópu næsta vor er hörð; Liverpool, Manchester City, Arsenal og Manchester United berjast um þessi tvö sæti. Breska blaðið Daily Mail lagði á dögunum mat á möguleika þessara liða á að ná einu af fjórum efstu sætunum, meðal annars með tilliti til þeirra leikja sem liðin eiga eftir. n Einar Þór Sigurðsson einar@dv.is City-liðið hefur náð betri takti í leik sinn eftir því sem liðið hefur á tímabilið. Úrslitin hafa þó ekki verið liðinu í hag að undanförnu en vinni City þá leiki sem það á eftir er Meistaradeildar- sætið þeirra. City á tiltölulega þægilega leiki eftir og þar af fjóra heimaleiki af þeim sjö sem eftir eru. Jákvæð merki: Þetta er í þeirra höndum og leikirnir sem eru eftir ættu að geta unnist, ef liðið spilar sinn leik. Þó að úrslitin hafi ekki verið liðinu í hag hefur liðið spilað vel að undanförnu. Neikvæð merki: Varnarleikur liðsins er áhyggjuefni og þá hafa verið sett spurningarmerki við hugarfar leikmanna, nú þegar ljóst er að titillinn er runninn liðinu úr greipum. Leikir eftir: n 14. apríl: Southampton (ú) n 27. apríl: Manchester United (h) n 30. apríl: Middlesbrough (ú) n 6. maí: Crystal Palace (h) n 13. maí: Leicester (h) n 21. maí: Watford (ú) n Óákveðin dagsetning: West Brom (h) Einkunn (líkur á topp 4): 4/5 Manchester City – 31 leikur, 61 stig Gengi Liverpool hefur verið nokkuð sveiflukennt á tímabilinu. Liðið hefur staðið sig vel gegn toppliðunum en átt í basli með lið sem fyrirfram eru talin lakari. Það sýndi sig til dæmis í 2-2 jafnteflinu við Bournemouth á dögunum. Jákvæð merki: Ekkert lið hefur skorað fleiri mörk í úrvalsdeildinni í vetur. Liðið er auk þess taplaust síðan í lok febrúar sem gefur Liverpool-mönnum ákveðna von. Neikvæð merki: Liðið hefur átt í basli með lið í neðri hlutanum. Liðið á sex leiki eftir og allir eru þeir gegn liðum sem eru um eða fyrir neðan miðja deild. Þá er Sadio Mane meiddur og spilar ekki meira á tímabilinu. Liverpool hefur átt í basli með að vinna leiki þegar hann spilar ekki. Leikir eftir: n 16. apríl: West Brom (ú) n 23. apríl: Crystal Palace (h) n 1. maí: Watford (ú) n 7. maí: Southampton (h) n 13. maí: West Ham (ú) n 21. maí: Middlesbrough (h) Einkunn (líkur á topp 4): 3/5 Liverpool – 32 leikir, 63 stig Nú reynir á Arsene Wenger og lærisveina hans. Liðið verður ekki Englandsmeistari og heyr nú harða baráttu um að komast í Meistaradeildina. Liðið vann öruggan sigur á West Ham á dögunum og þótti spila ágætlega í jafnteflinu gegn City. Það er spurning hvort Arsenal-liðið sé búið að finna taktinn. Jákvæð merki: Liðið á einn til tvo leiki til góða á liðin fyrir ofan og hefur spilað betur í síðustu leikjum eftir erfiðar vikur í febrúar og mars. Neikvæð merki: Liðið á tvo mjög erfiða leiki eftir, úti gegn Tottenham og heima gegn Manchester United. Arsenal hefur verið í basli með toppliðin í vetur. Álagið næstu vikurnar verður mikið; átta leikir í deild og einn í undanúrslitum FA Cup gætu gert liðinu erfitt fyrir. Leikir eftir: n Leikur Arsenal og Crystal Palace stóð yfir þegar blaðið fór í prentun. n 17. apríl: Middlesbrough (ú) n 26. apríl: Leicester (h) n 30. apríl: Tottenham (ú) n 7. maí: Manchester United (h) n 13. maí: Stoke (ú) n 21. maí: Everton (h) n Óákveðin dagsetning: Sunderland (h) n Óákveðin dagsetning: Southampton (ú) Einkunn (líkur á topp 4): 2,5/5 Arsenal – 29 leikir, 54 stig Manchester United er á kunnuglegum slóð- um, 6. sætinu. Þrátt fyrir að fúlgum fjár hafi verið varið í nýja leikmenn hefur gengi United valdið vonbrigðum í vetur. Liðið er þó ekki úr leik í baráttunni um 4. sætið en útlitið er ekki sérstaklega bjart um þessar mundir. Jákvæð merki: Ef United kemst á sigur- braut verður 3. eða 4. sætið þess. Liðið er með Zlatan Ibrahimovic í fremstu víglínu sem getur unnið leiki upp á eigin spýtur. Neikvæð merki: Zlatan er eiginlega sá eini sem virðist geta skorað mörk. Þegar hann á ekki góðan dag er liðinu vandi á höndum. Liðið gerir allt of mörg jafntefli og það á erfiða og marga leiki eftir; City, Tottenham og Arsenal úti og Chelsea heima. Við þetta gætu fimm leikir bæst ef liðið fer alla leið í úrslit Evrópudeildarinnar. Leikir eftir: n 16. apríl: Chelsea (h) n 23. apríl: Burnley (ú) n 27. apríl: Manchester City (ú) n 30. apríl: Swansea (h) n 7. maí: Arsenal (ú) n 13. maí: Tottenham (ú) n 21. maí: Crystal Palace (h) n Óákveðin dagsetning: Southampton (ú) Einkunn (líkur á topp 4): 2/5 Manchester United – 30 leikir, 57 stig Góðir City hefur spilað ágætlega að undanförnu. Sergio Aguero er langmarkahæsti leikmaður liðsins í vetur með 24 mörk. Lykilmaður Liverpool varð fyrir áfalli þegar Sadio Mane meiddist á dögunum. Hann er liðinu gríðarlega mikilvægur. Mynd EPA Takturinn kominn? Arsenal hefur verið að rétta úr kútnum eftir erfiðar vikur í febrúar og mars. Mikið leikjaálag United á marga leiki eftir. Góðu fréttirnar eru þær að liðið þarf í raun bara að vinna sína leiki en slæmu fréttirnar eru þær að það hefur gengið illa í vetur. Mynd EPA
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.