Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.2017, Síða 46
46 sport Páskablað 11. apríl 2017
M
atthías Vilhjálmsson er
þrítugur knattspyrnu-
maður sem sleit barns-
skónum á Vesturlandi
áður en hann hélt ungur
á höfuðborgarsvæðið og gekk í rað-
ir FH. Matthías var einn allra besti
leikmaðurinn sem Pepsi-deildin
hefur fengið að fylgjast með en árið
2012 hélt hann svo til Noregs og lék
með Start til ársins 2015. Þá fór hann
til Rosenborg sem er sögufrægasta
lið Noregs og nú, eftir tvö tímabil
þar, hefur Matthías unnið deildina í
bæði skiptin.
Þrátt fyrir að spila með besta liði
Norðurlandanna og gera það vel fær
Matthías ekki nein tækifæri með ís-
lenska landsliðinu. Í þessu viðtali
ræðir hann lífið í Noregi og hvernig
hann tekur mótlætinu.
„Við erum búnir að fara vel af stað
á þessu tímabili og það var sterkt að
gefa tóninn strax í fyrsta leik um
meistara meistaranna gegn Brann
og klára það. Deildin hefur svo farið
vel af stað, vonandi eigum við bara
eftir að gefa vel í. Við misstum auð-
vitað mjög mikilvæga leikmenn úr
liðinu eins og Hólmar og norskan
landsliðsmann sem var bakvörður
hjá okkur. VIð fengum fimm eða
sex nýja leikmenn og erum að púsla
þessu enn betur saman. Þetta lítur
vel út en það er of snemmt að segja
núna, við erum réttri leið,“ segir
Matthías.
Erfitt að byrja ekki alla leiki
Hjá Rosenborg er gríðarleg
samkeppni um stöður og breiddin
í liðinu er afar mikil. Sökum þess
er þjálfarinn, Kåre Ingebrigtsen,
mikið fyrir það að spila ekki alltaf
sama liðinu fram. Matthías var til
að mynda á bekknum í fyrsta leik
og kom ekkert við sögu, en í öðrum
leiknum byrjaði hann og skoraði.
Hann segir að svona geti pirrað
menn „Ég var virkilega pirraður að
fá ekkert að spila í fyrsta leiknum
en þjálfarinn er með þá hugmynda-
fræði að dreifa álaginu á milli leik-
manna. Hann er voðalega hrifinn
af þessu, við leikum marga leiki og
hann vill hafa menn ferska. Það var
gott fyrir mig að koma inn og gera
vel, við spilum marga leiki ef þú tek-
ur saman deildina og bikarinn og
svo vonandi mun okkur vegna vel
Í Evrópu. Þetta gætu því orðið allt
að 50 leikir og maður skilur vel að
hann vilji hafa alla ferska. Það er
ekkert sérstakt fyrir andlegu hliðina
að vera leikmaður í svona kerfi
eins og þjálfarinn vill hafa. Maður
á kannski mjög góðan leik og þá er
pirrandi að vera settur á bekkinn.
Það er ekkert sem maður getur gert
í þessu, við erum með mjög góðan
hóp. Þetta eru 18–20 leikmenn sem
geta allir byrjað leiki og það er for-
skot sem við höfum á hin liðin. Við
erum með mikla breidd sem skilar
vonandi sínu.“
Rosenborg er eins og Liverpool
Rosenborg er sögufrægt félag og
hér á árum áður átti liðið öruggt
sæti í riðlakeppni Meistaradeildar
Evrópu, félagið stefnir þangað
aftur og Matthías finnur fyr-
ir þeirri pressu. „Markmið okkar
er að vinna deildina og bikar eins
og síðustu ár, aðalmarkmið allra
er samt að komast í riðlakeppni
Evrópu. Það er helsta markmiðið
og til að stuðningsmennirnir telji
þetta gott tímabil þá þurfum við
að fara í riðlakeppni í Evrópu. Við
vorum svo nálægt því í fyrra að fara
lengra í Evrópu og það er stefnan í
ár. Fyrsta markmiðið er að komast
í riðlakeppni Meistaradeildarinnar
en til vara er það Evrópudeildin.
Það er mjög mikilvægt fyrir okkur,
þar koma fleiri leikir og menn fá að
spila meira. Ég finn það að hérna
var Meistaradeildin á hverju ári í
gamla daga því það er það eina sem
stuðningsmennir tala um þegar
maður hittir þá. Rosenborg er svip-
að Liverpool, menn tala bara um
fortíðina. Ég þekki það sem harður
stuðningsmaður Liverpool en fót-
boltinn í dag lifir ekki á því. Í dag er
miklu meiri samkeppni í fótboltan-
um, það eru komin inn miklu fleiri
lönd sem hafa miklu meira fjár-
magn. Það er erfiðara að ná árangri
í Evrópu.“
Lifir af án samherja frá Íslandi
Í vetur seldi Rosenborg tvo ís-
lenska samherja Matthíasar
og því er hann einn eftir
af þeim, Hólmar Örn
Eyjólfsson var seldur
til Ísrael og Guð-
mundur Þórarins-
son fór til Svíþjóðar.
Þrátt fyrir það líður
Matthíasi vel og
það er kominn
smá Norðmaður í
okkar mann.
„Það er bara
ágætt þrátt fyrir að
ég sé einn hérna
eftir af þeim, ég
var mjög góður
vinur Hólmars og
Gumma. Maður
er ýmsu vanur
í fótboltanum,
menn koma og
fara. Auðvitað
væri skemmti-
legra að hafa einn
Íslending með sér
en ég á marga góða
félaga og maður nýt-
ir bara Skype núna
til að heyra í mönn-
um. Ég er auðvitað búinn
að vera í sex ár í Noregi og
það er smá Norðmaður kom-
inn í mig, mér líður ótrúlega
vel hérna og umhverfið er nota-
legt. Innst inni er maður samt alltaf
harður Íslendingur.“
Glaumgosi
fótboltans
nýr liðsfélagi
Nicklas
Bendnter,
framherj-
inn frá Dan-
mörku, varð
liðsfélagi
Matthíasar á
dögunum en hann
er heimsfrægur.
Bendtner hefur
ótrúlega hæfileika
en vesen á
honum
innan
sem utan vallar er ástæða þess að
hann spilar nú í Noregi. Matthías
ber honum söguna vel og segir hann
frábæran leikmann. „Hann er ótrú-
lega fínn, algjör toppnáungi í raun.
Hann gefur mikið af sér til leik-
manna og er mjög skemmtilegur.
Hann er með rosaleg gæði og maður
sér það bara á æfingum þegar hann
sendir boltann, móttaka og hvernig
hann skilar honum frá sér er fyrsta
flokks. Hann 196 sentimetrar á hæð
og er búinn að vera í Arsenal, Juvent-
us og Wolfsburg, hann hefur
mátt þola gagnrýni á sín-
um ferli en ég er bara
ánægður með að fá
hann hingað og að
hann hafi valið
Rosenborg. Ég
þekki ekki alveg
sögu hans úr
enskum blöð-
um en hann er
ákveðin goð-
sögn í boltan-
um. Eins og
einn danskur
vinur sagði
við mig, hann
er bara einn fræg-
asta manneskjan í
Danmörku. Það er
konungsfjölskyldan
og svo er það Lord
Bendnter, hann
var undra-
barn
og varð strax mjög frægur. Ég er
mjög spenntur yfir því að hann hafi
valið Rosenborg að hann hafi viljað
koma hingað til að koma ferlinum af
stað.“
Finnst hann eiga skilið
tækifæri með landsliðinu
Matthías lék síðast landsleik í upp-
hafi árs 2016 en hann á að baki 15 A-
landsleiki fyrir Ísland. Aðeins tveir af
þeim eru keppnisleikir en hinir hafa
verið æfingarleikir. Heimir Hall-
grímsson hefur ekki valið Matthías
undanfarið og yfir því er Matthías
svekktur. „Ég veit í rauninni ekki al-
veg hvað ég á að segja, ég er svekkt-
ur að hafa ekki verið valinn. Ég held
að flestir leikmenn sem telja sig vera
að gera góða hluti og að spila vel í
sterku liði séu svekktir ef þeir kom-
ast ekki í landsliðið. Ef þú ert ekki
svekktur með það þá er eitthvað
að, það er voðalega lítið sem ég get
gert í stöðunni. Ég reyni að standa
mig í hverjum leik með Rosenborg
en hingað til hefur Heimir talið
að aðrir leikmenn séu betri en ég í
þær stöður sem hann hefur viljað fá
inn menn. Það verður að hafa það,
ég hef verið mjög sáttur við mína
frammistöðu í Noregi. Ég er í líklega
besta liðinu á Norðurlöndunum og
við erum alltaf að vinna titla, það er
voða lítið meira sem ég get gert en
auðvitað er maður svekktur.
Án þess að ætla að vera með ein-
hverjar yfirlýsingar þá finnst mér ég
eiga skilið að fá tækifæri. Ef þjálfar-
anum finnst það ekki þá fer það ekk-
ert lengra, ég sá að Heimir talaði
um að verkefni í upphafi árs
eins og í Kína um daginn
væru mjög mikilvæg fyrir
leikmenn til að sanna
sig. Rosenborg gaf mér
ekki leyfi til að fara í
það verkefni núna,
það kom fyrirspurn
hingað en Rosen-
borg vildi fá mig
með í æfingaferð.
Ég lýsti yfir áhuga
á því að fara en gat
ekkert meira gert,
við vorum að fara
að spila leiki við
sterk lið og þjálf-
arinn taldi best að
ég væri með þar.
Það er mjög
langt síðan ég
var síðast í lands-
liðinu en maður
á aldrei að gefast
upp. Ég reyni bara
að halda áfram að
standa mig vel og sé
svo hvað gerist. Ég tel
mig eiga mörg ár eftir
í boltanum, ég er ekki
leikmaður sem treystir
á hraða. Ég hugsa mjög
vel um mig og vonandi
skilar það sér í mörgum góð-
um árum til viðbótar og von-
andi kemur kallið í landsliðið
einn daginn.“ n
Fær ekki tækifæri
með landsliðinu
en gefst ekki upp
Matthías Vilhjálmsson er ánægður með samkeppnina frá Nicklas Bendtner
Hörður Snævar Jónsson
hoddi@433.is
„Rosen-
borg er
svipað Liver-
pool, menn
tala bara um
fortíðina.
Heldur áfram
„Ég hugsa mjög
vel um mig og
vonandi skilar
það sér í mörgum
góðum árum
til viðbótar og
vonandi kemur
kallið í landsliðið
einn daginn,“
segir Matthías.