Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.2017, Page 48

Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.2017, Page 48
48 sakamál Páskablað 11. apríl 2017 Arkitektinn sem myrti flugumferðArstjórAnn n Ótrúleg saga af hefnd n Schwarzenegger leikur í kvikmynd um málið Á fallegum sumardegi þann 1. júlí árið 2002 kollvarpaðist veröld rússneska arkitekts­ ins Vitaly Kaloyev. Þennan dag missti hann eiginkonu sína, Svetlönu, soninn Konstantin, 10 ára, og dótturina Diönu, 4 ára, í hörmulegu flugslysi yfir Þýska­ landi. Tvær flugvélar rákust saman þegar þær voru á flugi skammt frá bænum Uberlingen; vöruflutn­ ingavél frá DHL og farþegaflugvél frá rússneska flugfélaginu Bash­ kirian Airlines. Afleiðingarnar urðu þær að 69 manns létust. Misvísandi upplýsingar Vél Bashkirian Airlines var á leið til Barcelona á Spáni þegar slysið varð og beið Vitaly eftir fjölskyldu sinni á flugvellinum. Fjölskyldan hafði ætl­ að að koma sér fyrir á Spáni og var Vitaly að vinna við byggingu húss undir fjölskylduna í Barcelona. Þýsk rannsóknarnefnd komst að þeirri niðurstöðu að misvísandi upplýsingar frá flugumferðar­ stjóra í Sviss, sem var í samskipt­ um við vélarnar, hefðu valdið slys­ inu. Þá hefði öryggisbúnaður um borð í vélunum, sem áttu að láta flugmennina vita af yfirvofandi árekstri, ekki virkað sem skyldi. Var einn á vaktinni Á vakt í flugturninum í Sviss þenn­ an örlagaríka dag var danskur flug­ umferðarstjóri, Peter Nielsen að nafni. Peter var sýknaður í málinu; réttarrannsókn sem fram fór leiddi ekkert athugavert við störf hans í ljós og sitt sýndist hverjum um það. Þar sem Peter var eini flugumferð­ arstjórinn á vakt þennan daginn var áfallið mikið fyrir hann. Eftir að rannsókn lauk hætti hann störfum sem flugumferðarstjóri og vonaðist til þess að geta eytt æviárunum í faðmi fjölskyldu sinnar í bænum Kloten í Sviss þar sem hann hafði búið í tæp tuttugu ár. Þjakaður af reiði og sorg Vitaly bar þá von í brjósti að ein­ hver yrði dreginn til ábyrgðar vegna dauða eiginkonu sinnar og barna. Sú von varð að engu þegar ákveðið var að draga Nielsen ekki til ábyrgðar í málinu. Þjakaður af reiði og sorg ákvað Vitaly að leita Nielsen uppi og það tókst honum í febrúar árið 2004 með aðstoð rúss­ nesks einkaspæjara. Vitaly mætti heim til Nielsens í Kloten í Sviss og lagði til hans með hníf. Þann 24. febrúar árið 2004 hafði Vitaly tek­ ist að hefna, ef svo má segja, fyrir dauða eiginkonu sinnar og barna. Sleppt eftir tvö ár í fangelsi Vitaly var að sjálfsögðu handtek­ inn fyrir morðið á Nielsen. Fyrir dómi sagði hann að líf hans hefði endað daginn sem hann missti fjölskyldu sína. „Mitt annað heim­ ili undanfarin tvö ár hefur verið í kirkjugarðinum þar sem þau hvíla,“ sagði hann. Hann neitaði að hafa heimsótt Nielsen með það í huga að myrða hann. Hann hafi ætlað að ræða við hann um dauða barna sinn en Nielsen hefði tekið fálega í það. Kaloyev gat þó ekki útskýrt hvers vegna hann tók með sér hníf í þetta rólega hverfi. Þann 26. október 2005 var Kaloyev sakfelldur og dæmdur í átta ára fangelsi fyrir morðið. Hon­ um var sleppt úr haldi tæpum tveimur árum síðar eftir að dómur­ inn yfir honum var ógiltur. Að mati dómsins var ekki tekið nægjanlegt tillit til geðheilsu Kaloyev og var honum því sleppt úr haldi. Kaloyev sneri heim til Rússlands í kjölfar­ ið, til heimaborgar sinnar í Norður­Osse­ tíu, Vladikavkaz. Við komuna til heima­ borgar sinnar fékk hann höfðinglegar móttökur og var hampað sem hetju. Kaloyev býr enn í Rússlandi og er hann í dag embættismað­ ur í Alania­héraði í Norður­Ossetíu. Kvikmynd um málið Á dögunum var frumsýnd kvikmyndin Aftermath með Arnold Schwarzenegger í aðal­ hlutverki. Myndin er byggð á þessari óvenjulegu sögu og fer Schwarzenegger með hlutverk Kaloyevs í myndinni. Kaloyev hefur ekki tjáð sig um myndina að öðru leyti en því að framleiðendur myndar­ innar hafi ekki haft sam­ band við hann áður en tök­ ur hófust. n „Mitt annað heimili undanfarin tvö ár hefur verið í kirkjugarðin- um þar sem þau hvíla. Með dóttur sinni Vitaly sést hér með dóttur sinni Diönu sem var fjögurra ára þegar hún lést. Minnisvarði Hér sést Vitaly við minnisvarða um fjölskyldu sína. Falleg systkin Konstantin og Diana saman á góðri stund. Aftermath Myndin byggir á sögu Vitalys og leikur Arnold Schwarzenegger aðalhlutverkið. Þitt er valið Þú velur að kaupa innréttinguna í ósamsettum einingum, eða lætur okkur um samsetninguna. Að sjálfsögðu önnumst við líka uppsetningu og endanlegan frágang. Fullkomin þjónusta, eigið verkstæði. Fjölbreytt úrval aF hurðum, Framhliðum, klæðningum og einingum ELDHÚSINNRÉTTINGAR styrkur - ending - gæði HÁGÆða DaNSKar Askalind 3 • 201 Kópavogur • Sími: 562 1500 • friform.is Opið: Mán. til föstudaga kl. 09 til 18 Laugardaga kl. 11 til 15

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.