Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.2017, Side 54
54 lífsstíll Páskablað 11. apríl 2017
Sjö merki um
meðfæddar
gáfur
Þ
eir sem jafnan stóðu sig best
í skóla eru ekki endilega þeir
gáfuðustu. Gáfur geta verið
af ýmsu tagi og er engin
ákveðin skilgreining til á
þeim. Til að mynda búa margir yfir
gríðarlegum námsgáfum og góðu
minni en skortir samskiptahæfni og
skilning á tilfinningum.
Greind er margþætt
Oft er litið svo á að greind eigi aðeins
við um bóklegan lærdóm, en góð rök
má færa fyrir því að allt frá listrænu
eðli, tilfinninganæmi og þrautseigju
til göngulags, talsmáta og skaplyndis
sé form af greind.
Sumir fá hæfileika á borð við
talnaskilning og minni í vöggugjöf
og geta reiknað lygilegar summur
í huganum á svipstundu, á með-
an aðrir verða gífurlega góðir í ein-
hverju vegna áhuga eða þjálfunar.
Hæfileikar geta því bæði verið
áunnir og meðfæddir allt eftir að-
stæðum. En eru þeir sem fæddust
með „gáfnaskeið“ í munnunum
heppnari en hinir? Stutta svarið er:
nei!
Þú getur allt
Hver og einn hefur sína styrk- og
veikleika og þótt einstaklingur þurfi
að leggja mikið á sig til að verða góð-
ur í einhverju, er það ekki merki um
lægri greindarvísitölu – og ekki held-
ur seinheppni.
Margir kannast við gömlu klisj-
una: allt er hægt ef viljinn ef fyrir
hendi. Stundum áttar maður sig
ekki fyllilega á því hve mik-
ið er til í þeim boð-
skap. Ef tölur eru
teknar sem
dæmi, er
aug-
ljóst
að sá sem fæðist einfald-
lega sem ungbarn en ekki
undrabarn getur náð
jafngóðum tökum tölum
– hafi hann æft sig vel á
slíku.
Eins og að bera saman
epli og appelsínur
Sömu sögu má segja um tungumál.
Hægt er að ímynda sér tvær mis-
munandi mann-
eskjur sem
báðar eru
látnar læra sama erlenda tungu-
málið. Önnur er afskaplega „gáfuð“
í hinni sígildu merkingu hugtaks-
ins, á meðan hin virðist „venjuleg“
við fyrstu sýn.
Þegar þessar tvær manneskjur
hefjast loks handa er það
bókað mál að ýmiss konar
hulin hæfni kemur upp
á yfirborðið hjá þeirri
„venjulegu“ – sú hæfni
er líka form af greind.
Ákveðið langur
tími er nú liðinn
og báðar mann-
eskjurnar eru
látnar spreyta sig
á götum erlendr-
ar borgar og beita
þeirri þekkingu
sem þær hafa aflað
sér á tungumálinu.
Sú „gáfaða“ er
komin með ótrú-
lega góðan orða-
forða og er búin að
leggja á minnið allt
mögulegt. Það kem-
ur henni býsna langt,
enda er hægur leikur
að panta mat á erlendu
veitingahúsi ef maður er
búinn að leggja á minnið
blaðsíðu 97 í frasa-
bókinni, ekki
satt?
Gott minni er vissulega mikið
þarfaþing, en stendur fyrri mann-
eskjan betur að vígi en sú seinni
bara vegna þess að hún getur kallað
fram orð og setningar úr minni sínu
eftir að hafa séð þær aðeins einu
sinni? – athugum málin nánar.
Seinni manneskjan er miður
sín vegna þess að hún er að spyrja
til vegar og man ómögulega hvert
orðið fyrir „stoppistöð“ er. En í stað
þess að gefast upp nær hún léttilega
að umorða spurninguna og koma
henni skilmerkilega áleiðis.
Henni er nefnilega orðið ljóst að
þó að hún hafi ekki sambærilegar
gáfur og fyrri manneskjan, þá á hún
mjög gott með að koma fyrir sig
orði. Hún getur tjáð sig með góðu
flæði, án þess að hika. Hún getur
umorðað hlutina á augabragði og
nær að nýta orðaforða sinn afar vel
– þótt umfang hans sé minna en
hinnar manneskjunnar.
Svo hvor stóð sig betur? Svarið er
einfaldlega að báðar manneskjurn-
ar náðu að bjarga sér afbragðsvel á
nýja málinu, með því að nýta ólíkar
gáfur sínar.
Dæmisagan hér að ofan skýrir
hvað greind getur verið breytileg.
Ef þú átt gott með að gera ákveðna
hluti en ekki aðra, þá er samt um
greind að ræða í meirihluta tilvika
– jafnvel þótt hæfileikasvið þitt falli
ekki inn í hina hefðbundnu skýr-
ingu á greind. n
Býr þá falið undra-
barn í mér eftir allt?
Svona getur þú gengið úr skugga um hvort þú ert fæddur með náttúrulegar gáfur:
1 Þú liggur í leti Samkvæmt nýlegri könnun, eins og greint er frá á vef Independent, unir afburðagreint fólk sér best eitt. Það eyðir meiri tíma í að
hugleiða og velta vöngum yfir hinu og þessu og er því ekki eins líkamlegt virkt fyrir vikið.
2 Þú lærir af mistökum þínum Gáfað fólk sættir sig jafnan betur við mistök sín og er reiðubúið til að læra af þeim.
3 Þú blótar mikið Fólk með sorakjaft sem bölvar og hreytir út úr sér fúkyrðum í annarri hverri setningu kann að vera með greindarvísitölu vel yfir meðallagi.
4 Þú ferð seint í háttinn Gáfuð börn eru líklegri til þess að þróa með sér öðruvísi svefnvenjur. Samkvæmt rannsókn sem birtist í blaðinu Psychology
Today er líklegt að greind börn verði með tímanum meiri nátthrafnar en aðrir.
5 Þú ert lestrarhestur Lestur eykur vissulega við þekkingu þína á ýmsum sviðum, en samkvæmt nýjustu rannsóknum bætir hann líka samskiptafærni,
minni og einbeitingu!
6 Svartur húmor Þeir sem kútveltast af hlátri yfir skrýtlum um t.d. hernað, sjúkdóma, óhöpp og slys gætu verið greindari en aðrir.
7 Ólifnaður og regluleysi Breskir vísindamenn komust að því árið 2012 að tenging væri á milli hárrar greindarvísitölu í æsku og
notkun ólöglegra vímuefna síðar á lífsleiðinni. Börn og unglingar sem fengu
hærri einkunn á greindarprófum en aðrir eru því líklegri til að þróa með sér
áfengis- og vímuefnavandamál á fullorðinsárunum.
Lestur Lestur er ekki aðeins
fræðandi, sýnt hefur verið
fram á að hann skerpi ein-
beitinguna og efli minnið.
Drykkja og gáfnafar Öl er böl, ekki
satt? Kannski ekki. Það hefur verið sýnt
fram á að drykkfelldir einstaklingar, hafi
staðið sig hlutfallslega betur á greindar-
prófum í æsku – sama gildir um neytendur
vímuefna. MynD ShuttErStock
Guðmundur Bjartur Einisson
ritstjorn@dv.is
Skapsveiflur Þeir sem blóta
mikið eru ekki endilega tómir
í kollinum – þvert í mót hafa
rannsóknir sannað að tengsl eru
á milli bræðiskasta og hárrar
greindarvísitölu.
Greind er dularfullt fyrirbrigði Færð hafa verið
rök fyrir því að þeir sem hafa eitt eða fleiri af þessum
sjö einkennum séu greindari en aðrir.
Það gæti búið meira í þér en þú heldur