Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.2017, Síða 58
58 menning Páskablað 11. apríl 2017
Norrænar konur hafa
alltaf verið sterkar
Hin danska Lone Theils hefur slegið í gegn fyrir bækur sínar um blaðakonuna Nóru Sand
S
túlkurnar á Englandsferj-
unni eftir danska rithöf-
undinn Lone Theils er
nýkomin út í íslenskri þýð-
ingu Þórdísar Bachmann.
Þetta er fyrsta bókin í fjögurra bóka
röð um blaðakonuna Nóru Sand.
Bókin sló strax í gegn og hefur Lone
Theils átt mikilli velgengni að fagna
eftir útkomu hennar fyrir tveimur
árum. Þýðandi bókarinnar hitti
Lone í Kaupmannahöfn og átti við
hana stutt samtal, í tilefni af því að
hún haslar sér nú völl á íslenska
glæpasagnamarkaðnum.
Lone Theils er með uppteknari
konum Danmerkur þessa dagana.
Þrátt fyrir þessar annir tekur hún
vel í að hitta mig og fara yfir undan-
farin tvö ár, en þá venti hún sínu
kvæði í kross og gerðist rithöfund-
ur, eftir að hafa verið fréttaritari
Berlingske Tidende og Politiken í
London í 16 ár.
Um síðustu helgi kom út eftir
hana í Danmörku bókin 87 sek-
úndur, unnin sem bók og átta þátta
útvarpsleikrit; í sama mund skil-
aði hún til útgefanda síns þriðju
Nóru Sand-bókinni, en fyrsta bók-
in í þeim bókaflokki er Stúlkurnar
á Englandsferjunni, og þegar við
hittumst var hún á leiðinni til Jót-
lands að kenna við Blaðamanna-
háskólann í Árósum, hvaðan hún
útskrifaðist á sínum tíma.
Allt fór á flug eftir að fyrsta
Nóru-bókin kom út
„Það kom mér reyndar mikið á óvart
hvað hlutirnir fóru að gerast hratt,
eftir að fyrsta Nóru-bókin kom út,“
segir Lone, sem var á bókamess-
unni í London á dögunum, í tilefni
þess að Stúlkurnar á Englandsferj-
unni kemur þar út í maí.
„Ég hélt að þegar ég væri hætt að
vera fréttaritari, þar sem ég þeyttist
um höf og lönd, og yrði rithöfund-
ur, myndi ég sitja ein heima dögum
saman og skrifa í rólegheitum – en
þannig varð það alls ekki þannig!
Vitanlega er rithöfundi gleðiefni að
fá að vera með, eins og til dæmis á
Glæpamessunni í Horsens í Dan-
mörku, sem haldin var í fangelsinu
þar um síðustu helgi. Hinn kostur-
inn væri að síminn hringdi aldrei
og það væri óskemmtileg staða.“
Sönn sakamál
„Nýja bókin, 87 sekúndur, var á
við maraþonhlaup, þar sem sífellt
er brugðið fyrir mann fæti,“ segir
Lone, sem gat ekki mætt með fyr-
irfram skrifað handrit í útvarpshús-
ið, heldur þurfti að vinna það fyrir
framan opinn hljóðnema. „Vinnu-
dagurinn var þannig að ég mætti á
DR [danska ríkisútvarpið] og gekk
þar frá viðtölum við fólk sem kom
að þessu glæpamáli sem verið var
að skrifa um og rannsaka niður í
kjölinn. Eftir heilan vinnudag fór ég
heim og hélt áfram að skrifa bókina
og næsta dag aftur á DR og talaði
inn á þættina – svo ég var alveg
búin eftir þessa törn.“
Hún tekur þó fram, að þetta hafi
verið afar spennandi verkefni að fá
upp í hendurnar; að skrifa um sönn
glæpamál og meðhöndla þau eftir
reglum skáldsögunnar, í beinni út-
sendingu.
Fréttaritari í London
Fréttaritari í London – varstu aðal-
lega í pólitíkinni?
„Mikið í henni, því ég hef fylgst
með breskri og írskri pólitík undan-
farin 20 ár. Sem dæmi, þá var ég í
London þegar John Major féll og
Tony Blair var kosinn, en ég fékk
líka að fjalla um viðskipti, leikhús,
bækur og kvikmyndir – svo að segja
allt nema íþróttir, sem ég sá ekki
eftir að fá ekki að dekka.“
Sterkar konur
Lone er fædd á Vestur-Jótlandi
og finnur vel fyrir sameiginlegum
örlögum Norðurlandaþjóðanna.
„Sagnfræðilega eigum við sam-
eiginlega fortíð og menning okkar
er á margvíslegan hátt sú sama.
Þessar þjóðir eru mikið til sammála
um hvernig samfélag þær vilja og ef
við tökum þá staðreynd að norræn-
ar konur eru svona sterkar, þá á það
sér rætur alveg aftur til sögualdar.
Þegar mennirnir lögðust í víking,
þurftu konur að taka stórar ákvarð-
anir, varðandi rekstur býlisins og
afkomu alls fólksins sem tengdist
því.
Sem minnir mig á Vikings-sjón-
varpsþáttaröðina, sem ég var mjög
hrifin af. Svo lenti ég í miklum rök-
ræðum við brasilískan mann, sem
sagði það forkastanlegt af BBC, að
lúffa fyrir pólitískri rétthugsun og
gera konurnar svona sterkar!
Þar neyddist ég til þess að taka
hann í smá sögutíma. Að þetta væri
hárrétt, að skjaldmeyjarnar hefðu
verið til og að konurnar hefðu tekið
þátt í „bardaganum“, af hreinni og
skærri nauðsyn og þetta væri ekkert
sem vonda vinstra liðið hefði fund-
ið upp, heldur hefði þetta verið
þeirra veruleiki.“
Ísland sveipað töfrahulu!
Hvernig lítur framtíðin út?
„Ég var að skila þriðju Nóru
Sand-bókinni, sem í þetta skipti
snýst um vúdú-galdra og er byggð
á sakamáli frá 2001. Samningurinn
hljóðar upp á fjórar bækur, svo
það kemur ein í viðbót. Svo koma
margar þýðingar út á árinu, meðal
annars á Spáni og í Þýskalandi, svo
ég fer þangað – og svo er ég að von-
ast eftir að komast á bókmennta-
hátíðina á Íslandi í haust!
Ég varð svo ánægð þegar ég
frétti að Nóra kæmi út á Íslandi; ég
hef alltaf séð það fyrir mér sveipað
töfrahulu og lít á ykkur sem ljóð-
rænasta fólk Norðurlandanna.
Góðar viðtökur bókanna eru
ómetanlegar, svo ég er enn að vona
að hægt sé að hafa lifibrauð af því
að vera rithöfundur – og skrifa svo
nokkrar blaðagreinar inni á milli, að
gamni. Þar fyrir utan er ég að fara að
byggja hús á lóðinni sem ég keypti
á Amager – og ætli það taki nú ekki
töluvert af tíma mínum og orku. Ég
er með arkitekt sem bað mig um að
lýsa draumainnréttingunni og eftir
að ég gerði það, sagði hún: „Já, þú
vilt semsagt hafa eldhúsið og bóka-
herbergið sambyggt!“
Jákvæð orka
Síminn hennar hringir. Þetta er
rektor Blaðamannaháskólans í Ár-
ósum, að athuga hvort hún verði
ekki klár í slaginn á eftir, því hún á
að fara yfir verkefni nemendanna í
kvöld og síðan leiðbeina þeim um
það sem betur mætti fara næstu
daga.
Við kveðjumst og Lone Theils
brunar af stað til Jótlands, full
hressleika og jákvæðrar orku. n
„Ég varð svo
ánægð þegar ég
frétti að Nóra kæmi út á
Íslandi; ég hef alltaf séð
það fyrir mér sveipað
töfrahulu og lít á ykkur
sem ljóðrænasta fólk
Norðurlandanna.
Lone Theils „Góðar viðtökur bókanna eru ómetanlegar.“