Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.2017, Page 58

Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.2017, Page 58
58 menning Páskablað 11. apríl 2017 Norrænar konur hafa alltaf verið sterkar Hin danska Lone Theils hefur slegið í gegn fyrir bækur sínar um blaðakonuna Nóru Sand S túlkurnar á Englandsferj- unni eftir danska rithöf- undinn Lone Theils er nýkomin út í íslenskri þýð- ingu Þórdísar Bachmann. Þetta er fyrsta bókin í fjögurra bóka röð um blaðakonuna Nóru Sand. Bókin sló strax í gegn og hefur Lone Theils átt mikilli velgengni að fagna eftir útkomu hennar fyrir tveimur árum. Þýðandi bókarinnar hitti Lone í Kaupmannahöfn og átti við hana stutt samtal, í tilefni af því að hún haslar sér nú völl á íslenska glæpasagnamarkaðnum. Lone Theils er með uppteknari konum Danmerkur þessa dagana. Þrátt fyrir þessar annir tekur hún vel í að hitta mig og fara yfir undan- farin tvö ár, en þá venti hún sínu kvæði í kross og gerðist rithöfund- ur, eftir að hafa verið fréttaritari Berlingske Tidende og Politiken í London í 16 ár. Um síðustu helgi kom út eftir hana í Danmörku bókin 87 sek- úndur, unnin sem bók og átta þátta útvarpsleikrit; í sama mund skil- aði hún til útgefanda síns þriðju Nóru Sand-bókinni, en fyrsta bók- in í þeim bókaflokki er Stúlkurnar á Englandsferjunni, og þegar við hittumst var hún á leiðinni til Jót- lands að kenna við Blaðamanna- háskólann í Árósum, hvaðan hún útskrifaðist á sínum tíma. Allt fór á flug eftir að fyrsta Nóru-bókin kom út „Það kom mér reyndar mikið á óvart hvað hlutirnir fóru að gerast hratt, eftir að fyrsta Nóru-bókin kom út,“ segir Lone, sem var á bókamess- unni í London á dögunum, í tilefni þess að Stúlkurnar á Englandsferj- unni kemur þar út í maí. „Ég hélt að þegar ég væri hætt að vera fréttaritari, þar sem ég þeyttist um höf og lönd, og yrði rithöfund- ur, myndi ég sitja ein heima dögum saman og skrifa í rólegheitum – en þannig varð það alls ekki þannig! Vitanlega er rithöfundi gleðiefni að fá að vera með, eins og til dæmis á Glæpamessunni í Horsens í Dan- mörku, sem haldin var í fangelsinu þar um síðustu helgi. Hinn kostur- inn væri að síminn hringdi aldrei og það væri óskemmtileg staða.“ Sönn sakamál „Nýja bókin, 87 sekúndur, var á við maraþonhlaup, þar sem sífellt er brugðið fyrir mann fæti,“ segir Lone, sem gat ekki mætt með fyr- irfram skrifað handrit í útvarpshús- ið, heldur þurfti að vinna það fyrir framan opinn hljóðnema. „Vinnu- dagurinn var þannig að ég mætti á DR [danska ríkisútvarpið] og gekk þar frá viðtölum við fólk sem kom að þessu glæpamáli sem verið var að skrifa um og rannsaka niður í kjölinn. Eftir heilan vinnudag fór ég heim og hélt áfram að skrifa bókina og næsta dag aftur á DR og talaði inn á þættina – svo ég var alveg búin eftir þessa törn.“ Hún tekur þó fram, að þetta hafi verið afar spennandi verkefni að fá upp í hendurnar; að skrifa um sönn glæpamál og meðhöndla þau eftir reglum skáldsögunnar, í beinni út- sendingu. Fréttaritari í London Fréttaritari í London – varstu aðal- lega í pólitíkinni? „Mikið í henni, því ég hef fylgst með breskri og írskri pólitík undan- farin 20 ár. Sem dæmi, þá var ég í London þegar John Major féll og Tony Blair var kosinn, en ég fékk líka að fjalla um viðskipti, leikhús, bækur og kvikmyndir – svo að segja allt nema íþróttir, sem ég sá ekki eftir að fá ekki að dekka.“ Sterkar konur Lone er fædd á Vestur-Jótlandi og finnur vel fyrir sameiginlegum örlögum Norðurlandaþjóðanna. „Sagnfræðilega eigum við sam- eiginlega fortíð og menning okkar er á margvíslegan hátt sú sama. Þessar þjóðir eru mikið til sammála um hvernig samfélag þær vilja og ef við tökum þá staðreynd að norræn- ar konur eru svona sterkar, þá á það sér rætur alveg aftur til sögualdar. Þegar mennirnir lögðust í víking, þurftu konur að taka stórar ákvarð- anir, varðandi rekstur býlisins og afkomu alls fólksins sem tengdist því. Sem minnir mig á Vikings-sjón- varpsþáttaröðina, sem ég var mjög hrifin af. Svo lenti ég í miklum rök- ræðum við brasilískan mann, sem sagði það forkastanlegt af BBC, að lúffa fyrir pólitískri rétthugsun og gera konurnar svona sterkar! Þar neyddist ég til þess að taka hann í smá sögutíma. Að þetta væri hárrétt, að skjaldmeyjarnar hefðu verið til og að konurnar hefðu tekið þátt í „bardaganum“, af hreinni og skærri nauðsyn og þetta væri ekkert sem vonda vinstra liðið hefði fund- ið upp, heldur hefði þetta verið þeirra veruleiki.“ Ísland sveipað töfrahulu! Hvernig lítur framtíðin út? „Ég var að skila þriðju Nóru Sand-bókinni, sem í þetta skipti snýst um vúdú-galdra og er byggð á sakamáli frá 2001. Samningurinn hljóðar upp á fjórar bækur, svo það kemur ein í viðbót. Svo koma margar þýðingar út á árinu, meðal annars á Spáni og í Þýskalandi, svo ég fer þangað – og svo er ég að von- ast eftir að komast á bókmennta- hátíðina á Íslandi í haust! Ég varð svo ánægð þegar ég frétti að Nóra kæmi út á Íslandi; ég hef alltaf séð það fyrir mér sveipað töfrahulu og lít á ykkur sem ljóð- rænasta fólk Norðurlandanna. Góðar viðtökur bókanna eru ómetanlegar, svo ég er enn að vona að hægt sé að hafa lifibrauð af því að vera rithöfundur – og skrifa svo nokkrar blaðagreinar inni á milli, að gamni. Þar fyrir utan er ég að fara að byggja hús á lóðinni sem ég keypti á Amager – og ætli það taki nú ekki töluvert af tíma mínum og orku. Ég er með arkitekt sem bað mig um að lýsa draumainnréttingunni og eftir að ég gerði það, sagði hún: „Já, þú vilt semsagt hafa eldhúsið og bóka- herbergið sambyggt!“ Jákvæð orka Síminn hennar hringir. Þetta er rektor Blaðamannaháskólans í Ár- ósum, að athuga hvort hún verði ekki klár í slaginn á eftir, því hún á að fara yfir verkefni nemendanna í kvöld og síðan leiðbeina þeim um það sem betur mætti fara næstu daga. Við kveðjumst og Lone Theils brunar af stað til Jótlands, full hressleika og jákvæðrar orku. n „Ég varð svo ánægð þegar ég frétti að Nóra kæmi út á Íslandi; ég hef alltaf séð það fyrir mér sveipað töfrahulu og lít á ykkur sem ljóðrænasta fólk Norðurlandanna. Lone Theils „Góðar viðtökur bókanna eru ómetanlegar.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.