Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.2017, Blaðsíða 6
6 Helgarblað 12.–15. maí 2017fréttir
Ó
lafur Bragi Bragason er ekki
lengur eftirlýstur á heima-
síðu Interpol en alþjóðalög-
reglan hefur lýst eftir honum
í nærri 20 ár. Á heimasíðu
Interpol er nú aðeins lýst eftir ein-
um Íslendingi, Róberti Tómassyni.
Alfreð Clausen var um tíma með-
al eftirlýstra Íslendinga en var fjar-
lægður af vef Interpol í fyrra.
Enginn er eftirlýstur fyrir hönd ís-
lenskra yfirvalda á heimasíðunni. Það
er mikil breyting frá árinu 2015 þegar
átta erlendir ríkisborgarar voru eft-
irlýstir á vef Interpol. Ekki fást upp-
lýsingar um hvort mennirnir hafi ver-
ið framseldir til hlutaðeigandi landa.
Jón F. Bjartmarz, yfirlögreglu-
þjónn hjá embætti ríkislögreglu-
stjóra, segir í skriflegu svari til DV að
það sé misjafnt hvort eða hvenær til-
kynning um eftirlýsingu sé send aft-
ur eða áréttuð. Jón vildi lítið tjá sig
um hvort þeir sem íslensk yfirvöld
hafa lýst eftir hafi verið framseldir
hingað. Af svari hans að dæma er þó
vel mögulegt að mennirnir séu enn
ófundnir. Ísland hefur ekki haft full-
trúa hjá Interpol síðan á níunda ára-
tug síðustu aldar.
Eftirlýstur í tvo áratugi
Ólafur Bragi Bragason hafði verið
eftirlýstur af Interpol frá árinu 1998
fyrir hönd túnískra yfirvalda sem
gruna hann um að hafa flutt inn
tvö tonn af hassi til Túnis það sama
ár. Ólafur Bragi hefur ítrekað verið
dæmdur bæði á Íslandi og erlendis
fyrir fíkniefnabrot. Samkvæmt Þjóð-
skrá er Ólafur Bragi með lögheimili í
útlöndum en ekki er tilgreint í hvaða
landi. Hann verður sextugur síðar á
þessu ári.
Ólafur Bragi var síðast dæmdur í
fangelsi árið 1994 í Danmörku en þar
var hann handtekinn með 100 kíló
af hassi. Árið 1985 var hann í tvígang
handtekinn á Keflavíkurflugvelli þar
sem hann reyndi að smygla hassolíu
til landsins, annars vegar 10
grömmum af hassolíu í endaþarmi
og 100 grömmum sem hann faldi
í bók. Hann var þá dæmdur í sex
mánaða fangelsi.
Handtekinn í Þýskalandi
Líkt og fyrr segir hefur Ólafur Bragi
verið eftirlýstur í nærri tvo áratugi.
RÚV greindi frá því árið 1998 að
hann væri grunaður um að tilheyra
glæpasamtökum í Evrópu. Hann
hafði þá verið handtekinn í Karlsru-
he í Þýskalandi. Þá greindi Morgun-
blaðið frá því að Ólafur Bragi hafi
beðið íslensk stjórnvöld að fara fram
á að hann yrði ekki framseldur til
Túnis. Svo fór að honum var sleppt
úr gæsluvarðhaldi í Þýskalandi þar
sem yfirvöld í Túnis höfðu ekki afl-
að nægilegra gagna til að fá hann
framseldan. Þá var talið líklegt að
hann myndi snúa aftur til Íslands.
Aðeins einn enn eftirlýstur
Eini maðurinn sem enn er eftirlýstur
af Interpol og tengist Íslandi er
Róbert Tómasson. Hann fæddist
í Jórdaníu en gerðist íslenskur
ríkisborgari á tíunda áratugnum.
Hann flutti til Bandaríkjanna þar sem
hann var í lok árs 2001 handtekinn
og ákærður fyrir að hafa rænt og
hótað með byssu samstarfsmanni
sínum í bílaumboði í Kaliforníu.
Hann greiddi tryggingargjald en
síðan þá hefur ekkert spurst til
hans. Samkvæmt Þjóðskrá er hann
búsettur í Bandaríkjunum.
Íslendingar gómaðir
Íslensk lögregluyfirvöld hafa í gegn-
um tíðina óskað eftir aðstoð Interpol
við að lýsa eftir fjölda einstaklinga.
Þar á meðal eru bæði útlendingar og
Íslendingar. Nú er sú staða uppi að á
heimasíðu Interpol er ekki lýst eftir
neinum fyrir hönd Íslands. Meðal
Íslendinga sem hafa verið eftirlýst-
ir á síðustu árum má nefna Sigurð
Einarsson, fyrrverandi stjórnarfor-
mann Kaupþings, Gunnar Þór Grét-
arsson, sem var grunaður um smygl
á amfetamíni, og Jón Valdimar Jó-
hannsson, sem var dæmdur fyr-
ir líkamsárás á skemmtistaðnum
Spot í Kópavogi. Allir þrír hafa ver-
ið gómaðir.
Var síðast í fangelsi í Líbanon
Sem dæmi um erlenda menn sem
voru nýlega á lista eftirlýstra fyrir
hönd íslenskra yfirvalda má nefna
Mohd Bashar Najeh Suleiman
Almasaid, sem var árið 2006 dæmd-
ur fyrir stórfelld fíkniefnalagabrot
en amfetamín og e-töflur fundust á
veitingastaðnum hans, Purple On-
ion. Hann flúði Ísland á skútu og var
síðast vitað til þess að hann væri í
fangelsi í Líbanon.
Annað dæmi sem má nefna er
Haítímaðurinn Yves Fancois, sem
var grunaður um kynferðisbrot
gegn barnabarni sínu. Hann kom
til landsins á grundvelli fjölskyldu-
sameiningar en talið er að hann hafi
flúið land árið 2014. Óvíst er hvort
búið sé að dæma í máli hans þar
sem nöfn eru nær alltaf afmáð úr
dómum vegna kynferðisbrota.
Að lokum má nefna Ali Zerbout,
sem var eftirlýstur um árabil á vef
Interpol, en hann var dæmdur árið
2002 í sex ára fangelsi fyrir að hafa
stungið Redouane Adam Anbari
fyrir utan Hróa hött í Fákafeni. Eftir
því sem DV kemst næst hefur hann
ekki verið gómaður. n
Ólafur Bragi ekki lengur
eftirlýstur af Interpol
n Enginn er lengur eftirlýstur af íslenskum yfirvöldum en voru átta árið 2015
Hjálmar Friðriksson
hjalmar@dv.is
Grunaður um smygl Gunnar Þór var
framseldur til íslands í fyrra.
Flúði á skútu Almasaid faldi fíkniefni á
Purple onion.
Framseldur Jón Valdimar var dæmdur
fyrir líkamsárás á Spot.
Eftirlýstur í 20
ár Ólafur Bragi
Bragason hafði verið
á lista Interpol frá
árinu 1998.
Stal jakka
og gítar
Héraðsdómur Reykjavíkur
dæmdi í vikunni karlmann á
fimmtugsaldri í fjögurra mánaða
óskilorðsbundið fangelsi fyrir
þjófnað og umferðar- og fíkni-
efnalagabrot. Maðurinn var með-
al annars ákærður fyrir að hafa
brotist inn í verslun Tónastöðvar-
innar í september í fyrra og stolið
þaðan gítar að óþekktu verð-
mæti. Stuttu síðar var hann gó-
maður í verslun Gallerí Sautján
í Kringlunni þar sem hann hafði
stolið jakka að verðmæti tæplega
38 þúsund krónur.
Maðurinn var einnig ákærð-
ur fyrir að aka undir áhrifum
fíkniefna og sviptur ökuréttind-
um. Maðurinn játaði brot sín fyrir
dómi en hann á að baki sakafer-
il. Auk þess að sæta fjögurra
mánaða fangelsi var maðurinn
sviptur ökuréttindum ævilangt og
dæmdur til greiðslu sakarkostn-
aðar að upphæð rúmlega 300
þúsund krónur.
Guðni á leið
til Færeyja
Forseti Íslands, Guðni Th. Jó-
hannesson, og frú Eliza Reid
halda í heimsókn til Færeyja
mánudaginn 15. maí næstkom-
andi. Í heimsókninni mun for-
seti eiga fundi með færeyskum
ráðamönnum, skoða skóla og
vinnustaði, halda fyrirlestur við
háskóla Færeyja og efla kynni við
Færeyinga með ýmsum hætti.
Með í för verða utanríkisráð-
herra, Guðlaugur Þór Þórðar-
son, og frú Ágústa Johnson, kona
hans, auk embættismanna.
Þetta kemur fram í tilkynningu
frá forsetaembættinu. Í upphafi
heimsóknarinnar á Guðni fund
með Aksel V. Johannesen, lög-
manni Færeyja. Þá skoðar forseti
minjasafn í Miðvogi, fiskvinnslu-
stöð á Vogey og þiggur kvöldverð
í boði bæjarstjóra Sörvágs. Á
þriðjudaginn mun Guðni flytja
fyrirlestur í boði háskólans í Þórs-
höfn, Fróðskaparseturs Færeyja,
og fjallar þar um landhelgisdeil-
ur þjóðanna við grannþjóðir á
liðinni öld og málefni hafsins í
samtímanum. Þann dag skoðar
hann einnig gallerí og listasafn
og heimsækir Nólsey skammt frá
Þórshöfn.
Á miðvikudegi mun Guðni
eiga fund með forsvarsmönn-
um SEV, orkuveitu Færeyja.
Stjórnendur hennar hafa sett
sér áhugaverð markmið um um-
hverfisvæna orku, sem byggir
öðru fremur á vindmyllum, enda
er vatnsorka af mjög skornum
skammti í landinu. Forseti mun
eiga fund með ráðherrum Fær-
eyja og heimsækja Lögþingið auk
þess að fræðast um bókmennta-
starf Færeyinga í húsi Williams
Heinesens, hins ástsæla sagna-
skálds. Þennan dag býður lög-
maður Færeyja forsetahjónum til
hátíðarkvöldverðar í Þórshöfn.