Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.2017, Blaðsíða 14
14 Helgarblað 12.–15. maí 2017fréttir
„Jónsdældin“
Júlíus vakti athygli á málinu á Face-
book-síðunni Aðgerðarhópur hátt-
virtra öryrkja og aldraðra. Þar komu
margir fram og sögðu álíka sögu af
sjálfsvígshrinunni í blokkunum. Einn
íbúi sagðist ekki geta sofið yfir þessu.
Ein kona sagðist hafa búið í blokk-
unum rétt fyrir aldamót. Hún sagði þá
orðna allt of marga sem hafa kastað
sér úr blokkunum. „Mér varð illa
brugðið þegar maður sem bjó þarna
bauð mér í sýnisferð í kringum blokk-
irnar þrjár og á leiðinni benti hann
reglulega á staði á jörðinni og sagði:
„þarna er Jónsdældin“ og „þarna er
Gunnudældin“ og svo framvegis.
Hann sagði mér að yfirleitt væri reynt
að fylla upp í dældirnar en stundum
hefði það ekki verið gert nægilega
vel. Þetta voru tugir dælda og nafna
og eftir hálfan hring í kringum blokk-
irnar treysti ég mér ekki meir, titraði,
skalf og grét,“ skrifaði konan.
Nýfluttur í blokkina
Leo J. W. Ingason, sagnfræðingur og
upplýsingafræðingur, er einn þeirra
fjölmörgu sem tjáðu sig á Face-
book-þræðinum. Hann missti son
sinn, Gunnar Leó, árið 2007 en hann
framdi sjálfsvíg með því að kasta sér
af þaki einna blokkanna. Hann hafði
flutt í blokkina þann sama dag.
„Hann bjó þarna á sjöttu hæð-
inni, þetta var reyndar daginn sem
hann flutti þangað. Hann var búinn
að vera öryrki en svo ákvað hann að
hann vildi búa sjálfstætt. Hann var
nú ekki nema bara daginn þar til
hann stökk af þakinu. Skugginn af
svona sjálfsvígum eltir nánustu að-
standendur alla tíð. Þetta snertir
marga aðra en þá sem sem svipta sig
lífi,“ segir Leo í samtali við DV.
Leo segir að Gunnar hafi verið afar
vel menntaður og hafi gegnt ýmsum
ábyrgðarhlutverkum. Hann hafði lok-
ið meistaragráðu í þýðingarfræðum
og var með tvöfalda gráðu frá Tón-
listarskólanum í Reykjavík. „Hann
var funkerandi lengst af og ekki öryrki
lengi fram að dánardegi,“ segir Leo.
Stjórnmálamenn mæta á
hátíðarstund
Leo tekur undir með Júlíusi og seg-
ir sjálfsvígshrinuna endurspegla
stöðu geðheilbrigðismála á Íslandi.
„Það eru svo fáir staðir til að leita
til, þá til lækna eða sérfræðinga. Þá
var ekki komið upp eins öflugt starf
eins og Pieta, sjálfsvígsforvarnar-
samtökin, og Ný dögun, samtök um
sorg og sorgarviðbrögð. Þau hafa
verið að vinna gott starf en það þarf
meira til. Stjórnmálamennirnir bera
ábyrgð á þessum sjálfsvígum. Þetta
er beinrekjanlegt til ábyrgðarleysis
hjá stjórnvöldum. Þetta er hálfgert
siðleysi því svo koma þeir kannski
á hátíðarstund, eins og í þessari Pi-
eta-göngu um daginn. Þá mæta þeir
sjálfir sem helst vilja gera minna en
ekki neitt fyrir þessa hópa,“ segir Leo.
Lítið breyst frá 2008
Mannlíf fjallaði um dauðsföll í Há-
túni árið 2008 og verður ekki bet-
ur séð en lítið hafi breyst síðan þá.
Tímaritið greindi frá því að á árunum
1997 til 2008 hefðu níu manns svipt
sig lífi í blokkunum. Nokkrir þeirra
höfðu hent sér af svölunum. Þá, fyrir
ríflega níu árum, var greint frá því að
unnið væri að því að kortleggja bet-
ur þarfir og veikindi fólks til að fækka
mætti sjálfsvígum í blokkunum.
Þá ræddi Mannlíf við Pálínu
Esther Guðjónsdóttur, íbúa í blokk-
inni, og sagðist hún ekki geta beðið
eftir því að komast þaðan í burtu. „Ég
get ekki séð neitt jákvætt við að búa
hérna. Hér er of mikið af geðfötluðu
fólki og leiðinlegt að þurfa að horfa
upp á það. Maður er einmana í þessu
húsi,“ sagði Pálína árið 2008. n
Nágrannar Hildur kom að manninum rétt fyrir miðnætti á miðvikudaginn. „Þetta er bara hryllingur,“ segir Hildur. MyNd Sigtryggur Ari
Í gegnum tíðina hefur húsnæði öryrkja í
Hátúni 10 komist í fréttirnar í nokkur skipti
vegna harmleikja sem vakið hafa hörð
viðbrögð og umræðu um aðbúnað öryrkja
hér á landi.
Í maí 2007 hlaut sextugur öryrki
alvarleg annars og þriðja stigs brunasár á
20% líkamans eftir að hann fékk yfir sig
allt að 80° heitt vatn í sturtu. Maðurinn
lést af sárum sínum í júní. Slysið var rakið
til blöndunartækja í íbúðinni sem ekki voru
hitastýrð. Málið vakti hörð viðbrögð en
eftir slysið var ráðist í að ljúka endurnýjun
tækjabúnaðar í íbúðunum.
Í desember 2007 vakti önnur lítil frétt
úr öryrkjablokkinni í Hátúni mikinn óhug
á aðventunni þegar einstæð kona fannst
látin í íbúð sinni. Staðfesti lögreglan að
talið væri að konan hefði verið látin í
rúma viku í íbúðinni án þess að hennar
hafi verið vitjað. Þáverandi formaður ÖBÍ,
Sigursteinn Másson, harmaði atburðinn og
gerði þá kröfu um að farið væri yfir hvað
hefði brugðist.
Sams konar atvik hafði átt sér stað
tveimur árum áður, í desember 2005, þar
sem íbúi hafði verið látinn í íbúð sinni um
nokkra hríð.
Tímaritið Mannlíf fjallaði ítarlega um
bágbornar aðstæður og félagslega ein-
angrun öryrkja í Hátúni árið 2008. Var þar
vísað í tölur frá lögreglunni á höfuðborgar-
svæðinu þess efnis að 31 dauðsfall hefði
orðið í Hátúni 10, 10a og 10b frá því í byrjun
árs 1997. Þar af höfðu sjö einstaklingar
legið látnir í íbúð sinni í meira en einn dag.
Árið 2007 gerði Reykjavíkurborg svarta
skýrslu um málefni íbúa í Hátúni. Skýrslan
var stimpluð trúnaðarmál en Mannlíf fjall-
aði um innihald hennar. Í skýrslunni kom
fram að þjónustustig húsanna væri langt
frá því að vera ásættanlegt. Hátúnið var
sagt endastöð margra. Íbúar sögðu þá að
ástandið væri þrúgandi og það sagt geta
af sér veikt samfélag.
Harmleikir í Hátúni
Bágbornar aðstæður, félagsleg einangrun og kuldalegt hlutskipti
Staðreyndir
um sjálfsvíg
Á Íslandi
n 35 til 50 einstaklingar falla fyrir
eigin hendi ár hvert
n Árlega deyja um sex ungir karlmenn,
18–25 ára, vegna sjálfsvígs
n Ein kona, 18–25 ára, fellur fyrir eigin
hendi annað hvert ár að jafnaði
n Sjálfsvíg eru algengasta ástæða
dauðsfalla hjá ungum mönnum
Á heimsvísu
n Yfir 800 þúsund dauðsföll árlega
eru sjálfsvíg (WHO)
n Það er eitt dauðsfall vegna sjálfs-
vígs á 40 sekúndna fresti (WHO)
n Sjálfsvíg er þriðja algengasta
dánarorsökin í aldursflokknum 15–44
ára í heiminum (WHO)
n Þunglyndi er algengasta ástæða
örorku í heiminum (WHO)
Heimild: Útmeð’a – forvarnarverkefni
Geðhjálpar og Hjálparsíma Rauða krossins.
Missti son sinn „Stjórnmálamennirnir
bera ábyrgð á þessum sjálfsvígum,“ segir
Leo J. W. Ingason.
tíð sjálfsvíg Júlíus segist
hafa orðið vitni að fimm
sjálfsvígum síðan hann
flutti í blokkina. Á árunum
1997 til 2008 sviptu níu
manns sig lífi í blokkunum.
MyNd Sigtryggur Ari
„Ég vil
aldrei
heyra þetta
hljóð aftur