Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.2017, Síða 17
Helgarblað 12.–15. maí 2017 fréttir 17
ari, með tilliti til
styrkleika MDMA
í þeim. Skammta-
stærðir eru að verða
stærri, fíkniefnasal-
ar og dreifingar-
aðilar hér landi eru
jafnvel að skammta
og pressa pillur
sjálfir og neytend-
ur geta aldrei ver-
ið fullkomlega viss-
ir um hvað þeir eru
að kaupa og neyta. Í
nóvember 2015 var-
aði lögreglan við því
sem DV kallaði nas-
istasýru, en um var
að ræða LSD í töfluformi með haka-
krossi á. Efnið sendi marga neyt-
endur á sjúkrahús en heimildir DV
hermdu að dæmi væru um að efnið
væri markaðssett sem e-pilla en
innihélt ekkert MDMA.
Eins og fjallað hefur verið um í
fjölmiðlum á undanförnum árum
hafa komið fram nokkur dæmi
þess að ungt fólk hafi látið lífið eft-
ir neyslu e-taflna og MDMA. Emb-
ætti Landlæknis varar við að ein e-
tafla geti valdið eitrun sem leiðir til
dauða. Líkaminn venst á efnið og
smátt og smátt þarf aukið magn til
að ná sömu virkni og í fyrstu. Við
það aukast enn líkur á líkamlegum
og andlegum skaða. Ekki er vitað
með vissu hversu fljótt vanabind-
andi fíkn myndast.
Selt eins og sælgæti á Facebook
Ótal sölusíður fyrir fíkniefni er að
finna á Facebook þar sem allt frá
lyfseðilsskyldum lyfjum til kanna-
bisefna og harðra fíkniefna gagna
kaupum og sölum. Sölumennirn-
ir setja inn auglýsingar, oftast und-
ir dulnefni og falsprófílum, sem líta
út eins og hverjar aðrar óformlegar
smáauglýsingar í dagblöðunum.
DV fann nokkrar auglýsingar fyrir
e-pillur og MDMA-efni á einni slíkri
síðu.
Markaðssetning á e-pillum hefur
ávallt verið skrautleg og þær fram-
leiddar í úrvali lita og merkja. Eins
og sjá á meðfylgjandi myndum
er þarna einn notandi að auglýsa
grænar e-töflur með merki Apple-
tölvurisans þrykkt í undir heitinu
„Græna Eplið“. Stykkið af þeim
kostar 3 þúsund krónur en kaupa
má 10 stykki á 25 þúsund einnig.
Er tekið fram að Grænu Eplin séu
„mjög þjappaðar“ töflur.
Sami aðili er einnig að selja
Mollý, sem er markaðssett sem
hreinna MDMA, oft í duft- eða
kristallaformi og hefur notið mik-
illa vinsælda í íslensku skemmtana-
lífi undanfarin misseri. Svo miklum
raunar að talað var um Mollý-æði
fyrir ekki svo löngu síðan. Fram-
boðið og þar af leiðandi eftirspurnin
virðist enn vera til staðar af auglýs-
ingunum að dæma. Eins og sjá má
selur viðkomandi Mollý, sem einnig
er kallað M eða Emmi, í duftformi
í fremur sóðalegum hylkjum sem
augljóst er að viðvaningur hefur fyllt
á. Grammið af því kostar 16 þúsund
krónur en efnið er fáanlegt í fjórum
skammtastærðum. n
epli
Banani
greip
Ávaxtaðu betur
H
ö
n
n
u
n
: I
n
g
va
r
Ví
ki
n
g
ss
o
n
www.avaxtabillinn.is • avaxtabillinn@avaxtabillinn.is • 517 0110
Gómsætir veislubakkar,
sem lífga upp á öll tilefni.
Er kannski heilsuátak
framundan?
Ávextir í áskrift kosta um
550 kr. á mann á viku
og fyrirhöfn fyrirtækisins
er engin.
„
Einstaka
sinnum
sjáum við
töflusýni
með mjög
háum
styrk af
MDMA
Úrval Þessi dópsali er með úrval
af efnum, frá kókaíni, kannabis til
MDMA og amfetamíns og lækna-
dóps. Mynd Facebook
Pressa
pillur hér
Friðrik Smári
Björgvinsson
yfirlögreglu-
þjónn segir að
vísbendingar
séu um að
MDMA-duft
sé pressað
í pilluform
hér á landi.
Mynd RóbeRt
ReyniSSon