Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.2017, Blaðsíða 22
22 Helgarblað 12.–15. maí 2017fréttir - erlent
SjúkdómSvaldandi
óværur vakna til lífSinS
n Margt leynist í jarðveginum n Hlýnun jarðar hefur ýmsar afleiðingar í för með sér
F
araldsfræðingar hafa vaxandi
áhyggjur af því hvað kann að
gerast nú þegar hlýnun jarð-
ar er staðreynd og jarðveg-
ur, sem verið hefur frosinn
í þúsundir ára, er tekinn að þiðna.
Vísindamenn vita að ýmislegt getur
leynst í jarðveginum sem nú þiðn-
ar, þar á meðal bakteríur og vírus-
ar sem legið hafa í dvala í þúsundir
ára. Gæti mannkynið staðið frammi
fyrir baráttu gegn skæðri óværu sem
veldur hættulegum sjúkdómum eða
eru áhyggjurnar óþarfar? Breska rík-
isútvarpið, BBC, fjallaði ítarlega um
þetta á dögunum.
Engin vísindaskáldsaga
Einhverjir kynnu að halda að lýs-
ingin hér í byrjun umfjöllunarinnar
sé úr vísindaskáldsögu; óværa ligg-
ur í dvala í þúsundir ára en vaknar
svo til lífsins og veldur tilheyrandi
óskunda. Ekki þarf að leita lengra
en til ágústmánaðar 2016 til að finna
dæmi um atvik af þessu tagi. Á Yam-
al-skaga, í freðmýrum Síberíu, lést
tólf ára drengur og tuttugu veiktu-
st alvarlega eftir að hafa smitast af
miltisbrandi. Kenningin er sú að fyr-
ir 75 árum hafi hreindýr drepist á
þessum slóðum sem smitað var af
miltisbrandi. Hræið af dýrinu hef-
ur að líkindum sokkið í jarðveginn,
frosið í sífreranum. Þar lá það þar
til hitabylgja reið yfir svæðið sumar-
ið 2016 sem hafði þær afleiðingar að
jarðvegurinn þiðnaði. Þaðan er talið
að miltisbrandur hafi komist í fæðu-
keðju íbúa á svæðinu, en tvö þúsund
hreindýr á Yamal-skaga smituðust af
miltisbrandi í fyrrasumar.
Ekki einangrað tilvik
Mannskepnan hefur í gegnum ald-
irnar lifað í nánu samneyti við bakt-
eríur og vírusa. Sem betur fer höfum
við þróað með okkur getuna til að
kljást við margar af þeim allra skæð-
ustu; bakteríum sem valda sjúkdóm-
um eins og svartadauða og vírusum
sem valda bólusótt svo dæmi séu
tekin. Sýklalyf hafa aðstoðað okk-
ur í baráttunni við bakteríur en að
sama skapi hafa þær þróast þannig
að sumar eru ónæmar fyrir sýklalyf-
jum. Þó að framfarir í læknavísind-
um hafa verið miklar á síðastliðnum
hundrað árum óttast menn að at-
vikið sem varð í Síberíu í fyrra verði
ekki einangrað tilvik. Snemma á 20.
öldinni er talið að um milljón hrein-
dýr hafi drepist úr miltisbrandi í
norðurhluta Rússlands. Vegna frosts
í jörðu reyndist erfitt að grafa djúpar
grafir og því liggja hræin í grunnum
gröfum sem taldar eru vera allt að sjö
þúsund talsins.
Kjöraðstæður
Í umfjöllun BBC er bent á að yfir
sumartímann þiðni freðmýrar, sem
er samheiti yfir nyrsta gróðurbelti
jarðar, að hluta, eða um það bil 50
sentímetra niður í jarðveginn. Hlýn-
un jarðar á undanförnum árum hef-
ur þó gert það að verkum að sífellt
meiri jarðvegur þiðnar, jarðveg-
ur sem jafnvel hefur verið frosinn í
þúsundir ára. Og þar sem hitastig á
norðurheimskautinu hækkar þrefalt
hraðar en annars staðar á jörðinni
hafa menn áhyggjur af þróuninni.
„Í freðmýrum má finna kjörað-
stæður fyrir örverur og vírusa; þarna
er kalt, ekkert súrefni og myrkur,“
segir Jean-Michel Claverie, þró-
unarlíffræðingur við Aix-Marseille
háskólann í Frakklandi, við BBC.
„Sjúkdómsvaldandi vírusar sem
geta smitað menn eða skepnur geta
vel leynst í gömlum jarðvegslögum
í freðmýrum, þar á meðal einhverjir
sem valdið hafa alheimsfaröldrum í
gegnum tíðina,“ bætir hann við.
Spænska veikin
Þó að áhyggjur manna nú til dags
beinist einna helst að miltisbrandi
velta menn fyrir sér hvað annað
leynist í jarðveginum. Fólk og skepn-
ur hafa verið grafin í freðmýrum í
margar aldir. Í grein BBC er til dæm-
is bent á að í fjöldagröf einni í freð-
mýrum Alaska hafi spænska veikin
fundist. Spænska veikin var inflú-
ensufaraldur sem er mannskæðasta
farsótt sem sögur fara af, en talið er
að um 50 milljónir manna hafi lát-
ist árin 1918 til 1919. Þá er bent á
það að bólusóttarfaraldur hafi geis-
að í Síberíu á tíunda áratug 19. aldar.
Fórnarlömbin voru mörg hver grafin
við bakka Kolyma-árinnar sem
undanfarin ár hefur flætt yfir bakka
sína í nokkur skipti í leysingum.
Virkjuðu 30 þúsund ára vírus
En getur okkur staðið ógn af bakt-
eríum og vírusum sem legið hafa í
dvala, jafnvel í þúsundir ára? Svar-
ið við þessari spurningu er já þó það
eigi alls ekki alltaf við. Til að mynda
er vísað í tilraun sem Claverie, þró-
unarlíffræðingurinn sem vísað er
í hér að framan, framkvæmdi árið
2014 þar sem tókst að virkja tvo
vírusa sem legið höfðu í sífreran-
um í Síberíu í 30 þúsund ár. Þegar
endurlífguninni, eins og það er kall-
að, var lokið tóku vírusarnir við sér
og urðu smitnæmir, en sem betur fer
fyrir okkur hafa þeir einungis áhrif
á amöbur sem eru einfrumungar.
Þessi tiltekna tilraun rennir þó stoð-
um undir það að það sama sé hægt
að gera varðandi aðra vírusa. Í þessu
samhengi er þó rétt að benda á mun-
inn sem er á bakteríum og veirum;
bakteríur eru frumur sem lifa sjálf-
stæðu lífi, fjölga sér með skiptingu
og geta hreyft sig á meðan veirur eru
ekki skilgreindar sem sjálfstæðar líf-
verur.
Í umfjöllun BBC er einnig bent
á nýlega uppgötvun vísindamanna
í neðanjarðarhelli einum í Nýju
Mexíkó í Bandaríkjunum. Talið er að
bakteríurnar hafi ekki litið dagsins
ljós í fjórar milljónir ára, en þrátt fyr-
ir það voru þær ónæmar fyrir átján
algengum sýklalyfjum, þar á meðal
mjög sterkum lyfjum sem aðeins eru
notuð ef önnur lyf virka ekki. Engar
líkur eru á því að bakterían hafi kom-
ist í tæri við menn eða þróað með sér
ónæmi eftir að hafa komist í tæri við
sýklalyf. Vísindamenn telja að bakt-
erían hafi þróað ónæmið með sér
á náttúrulegan hátt, vegna þeirra
harðneskjulegu aðstæðna sem ríktu
í hellinum.
Möguleikinn fyrir hendi
Enn er þó of snemmt að segja til um
hugsanlegar afleiðingar og eins og
staðan er í dag sé engin ástæða til að
örvænta. Þó er bent á það í umfjöllun
BBC að heimsbyggðin, að minnsta
kosti lönd sem eru norðarlega á jarð-
kringlunni, þurfi að vera á varðbergi
vegna sjúkdóma sem einna helst
hafa herjað á íbúa í suðrænum lönd-
um. Ber þar helst að nefna malaríu,
kóleru og beinbrunasótt sem eru
landlægir sjúkdómar í mörgum af
heitari löndum heimsins.
„Miðað við þær rannsóknir sem
liggja fyrir þá eru líkurnar á því,
að hægt sé að lífga við sjúkdóms-
valdandi örverur, meiri en engar. En
hversu líklegt það er vitum við ekki,
en það er möguleiki. Þetta geta ver-
ið bakteríur sem er hægt að með-
höndla með sýklalyfjum, bakteríur
sem eru ónæmar fyrir náttúrulegum
sýklalyfjum eða vírusar. En ef örver-
an hefur ekki komist í tæri við mann-
fólk svo öldum skiptir þá gæti það
verið að ónæmiskerfi okkar sé ekki
tilbúið til að takast á við verkefnið.“ n
Einar Þór Sigurðsson
einar@dv.is
Síbería Hlýnun jarðar hefur ýmsar afleiðingar í för með sér.
Þróunarlíffræðingur „Sjúkdómsvaldandi vírusar sem geta smitað menn eða skepnur
geta vel leynst í gömlum jarðvegslögum í freðmýrum,“ segir Claverie.
„ Í freðmýrum má
finna kjöraðstæð-
ur fyrir örverur og vírusa;
þarna er kalt, ekkert súr-
efni og myrkur.