Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.2017, Blaðsíða 69
menning - SJÓNVARP 49Helgarblað 12.–15. maí 2017
Mánudagur 15. maí
RÚV Stöð 2
16.45 Silfrið (14:35)
17.50 Táknmálsfréttir
18.00 Barnaefni
18.50 Krakkafréttir
19.00 Fréttir
19.25 Íþróttir
19.30 Veður
19.35 Kastljós
20.10 Afbrigðileg dýr
(Natural World:
Natures Misfits)
Dýralífsþættir frá BBC.
Í náttúrunni er víða
að finna sérkennileg
dýr sem greina sig frá
öðrum dýrum með
óvenjulegri hegðun.
Þar á meðal eru páfa-
gaukur sem kann ekki
lengur að flúga, björn
sem er grænmetisæta
og mörgæs sem býr
inni í skógi. Í þættinum
er meðal annars fylgst
með þessum dýrum
og einstökum lifnað-
arháttum þeirra.
21.10 Dicte (6:10) (Dicte
III) Þriðja þáttaröð
um Dicte Svendsen
klóku rannsóknar-
blaðakonuna í Árósum
sem einsetur sér að
leysa hverja gátuna á
fætur annarri. Meðal
leikenda eru Iben
Hjejle, Lars Brygmann,
Lars Ranthe, Ditte
Ylva Olsen og Lærke
Winther Andersen.
Atriði í þáttunum eru
ekki við hæfi ungra
barna.
22.00 Tíufréttir
22.15 Veðurfréttir
22.20 Rembrandt Bresk
heimildarmynd um
síðustu árin í lífi
hollenska málarans
Rembrandts sem
var uppi á sautjándu
öld. Á hápunkti ferils
síns lifði Rembrandt í
vellystingum og seldi
hvert málverkið á
fætur öðru. Seinna
varð hann gjaldþrota,
seldi lítið sem ekkert
og varð sárfátækur. Þá
málaði hann margar af
sínum bestu myndum
sem hafa mikil áhrif á
fólk enn í dag.
23.25 Skuggaleikur (4:4)
(Chasing Shadows)
Bresk spennuþáttaröð
um hóp rannsóknar-
manna sem rekur
slóðir raðmorðingja.
Aðalhlutverk: Reece
Shearsmith, Alex
Kingston og Alfie Field.
00.10 Kastljós
00.40 Dagskrárlok
07:00 The Simpsons
07:20 Tommi og Jenni
07:45 The Middle (16:24)
08:10 2 Broke Girls (12:24)
08:35 Ellen
09:15 Bold and the Beautiful
09:35 Doctors (53:175)
10:20 Who Do You Think
You Are (2:13)
11:05 The Comeback (3:8)
11:45 Project Greenlight
12:35 Nágrannar
13:00 Britain's Got Talent
16:35 The Simpsons
16:55 Bold and the Beautiful
17:20 Nágrannar
17:45 Ellen
18:30 Fréttir Stöðvar 2
18:55 Íþróttir
19:05 Fréttir Stöðvar 2
19:20 Brother vs. Brother
20:05 Hvar er best að búa?
20:45 Cardinal (1:6)
Dramatísk þáttaröð í
sex hlutum sem byggð
er á metsölubók Giles
Blunt. Sögusviðið er
smábær í Alqonquin-
flóa í Kanada þar
sem rannsóknarlög-
reglumennirnir John
Cardinal og Lise
Delorme freista þess
að leysa sérlega flókið
og ofbeldisfullt saka-
mál. Hins vegar gætu
leyndarmál Cardinals
úr fortíðinni stofnað
rannsókninni og um
leið ferli hans í hættu.
Ljóst er að málið teygir
arma sína víða og ef
það leysist ekki hið
snarasta eykst hættan
á nýju fórnarlambi. Því
er pressan á Cardinal
gríðarleg þar sem svo
mikið er í húfi á öllum
vígstöðvum.
21:30 The Path (8:13) Önnur
þáttaröð þessara
dramatísku þáttar-
aðar með Aaron Paul
(Breaking Bad) í hlut-
verki Eddie Lane sem
hrífst með kenningum
sértrúarsöfnuðar eftir
heimsókn á miðstöð
þeirra, skömmu síðar
snýst veröld hans á
hvolf og hann stendur
frammi fyrir erfiðum
ákvörðunum.
22:20 Vice (11:29)
22:55 Girls (9:10)
23:25 Blindspot (20:22)
00:10 Outsiders (6:13)
00:55 The Mentalist (3:13)
01:40 The Young Pope (7:10)
02:35 100 Code (10:12)
03:20 Murder (3:4)
08:00 Everybody Loves
Raymond (12:23)
08:25 Dr. Phil
09:05 Chasing Life (7:21)
09:50 Jane the Virgin
10:35 Síminn + Spotify
13:00 Dr. Phil
13:40 Top Gear: Patagonia
Special (2:2)
14:40 Psych (1:10)
15:25 Black-ish (18:24)
15:50 Jane the Virgin
(16:20) Skemmtileg
þáttaröð um unga
konu sem eignaðist
barn þrátt fyrir að
vera ennþá hrein mey.
Ástarmálin halda
áfram að flækjast
fyrir Jane og líf hennar
líkist sápuóperu.
Aðalhlutverkið leikur
Gina Rodriguez.
16:35 The Tonight Show
starring Jimmy
Fallon
17:15 The Late Late Show
with James Corden
17:55 Dr. Phil
18:35 King of Queens
(22:24)
19:00 Arrested Develop-
ment (12:15)
19:25 How I Met Your
Mother (6:24)
19:50 Superstore (9:22)
Bandarískur gaman-
þáttur um skrautlegt
starfsfólk í stórverslun.
20:15 Top Chef (12:17)
21:00 Hawaii Five-0 (24:25)
Bandarísk spennu-
þáttaröð um sérsveit
lögreglunnar á Hawaii.
Steve McGarrett
og félagar hans í
sérsveitinni láta ekkert
stöðva sig í baráttunni
við glæpalýðinn, hvort
sem þeir eru að berjast
við morðingja eða
mannræningja.
21:45 Shades of Blue (2:13)
Bandarísk sakamála-
sería með Jennifer
Lopez og Ray Liotta
í aðalhlutverkum.
Lögreglukona neyðist
til að vinna með FBI
við að koma upp um
spillta félaga sína í
lögreglunni.
22:30 The Tonight Show
starring Jimmy
Fallon
23:10 The Late Late Show
with James Corden
23:50 Californication
00:20 CSI (13:23)
01:05 Scorpion (17:24)
01:50 Madam Secretary
02:35 Hawaii Five-0 (24:25)
03:20 Shades of Blue (2:13)
Sjónvarp Símans
G
rafin leyndarmál, Unfor-
gotten, breska spennu-
þáttaröðin sem RÚV sýn-
ir á þriðjudagskvöldum,
verður betri með hverj-
um þætti. Í þáttum eins og þess-
um er ekki sérlega algengt að jafn
vel sé hugað að sálfræðiþættinum
og gert er þarna. Áhorfandinn fær
glögga innsýn í sálarlíf persóna,
sem sumar geyma leyndarmál
sem vart þola dagsljósið.
Dagskrárlýsing benti til að hér
væri á ferð dæmigerður spennu-
þáttur sem myndi halda manni
við skjáinn: Lögreglan hef-
ur morðrannsókn þegar bein
ungs manns finnast í húsagrunni
39 árum eftir hvarf hans. Mað-
ur kom sér þægilega fyrir í sóf-
anum á hverju þriðjudagskvöldi
og horfði á þáttaröð sem er enn
betri en maður hafði átt von á. Í
þessum spennuþætti eru nokkrar
aukapersónur sem eru á svipuð-
um aldri, eldra fólk sem braut af
sér á yngri árum, mismikið reynd-
ar, og gat ekki gleymt því sem það
hafði gert á hlut annarra. Frábær-
ir leikarar túlka þessar brotnu
persónur á afar áhrifamikinn hátt
og maður sér sorg og iðrun í lífs-
reyndum andlitum þeirra. Þetta er
ansi magnað og það tekur stund-
um á að verða vitni að örvæntingu
persóna.
Þetta eru þættir sem minna
okkur á að lífið er þroskaferli eða
ætti allavega að vera það. Eldri
manneskja er ekki sú sama og hún
var á unga aldri, heldur yfirleitt
fremur vitrari (þótt ekki sé það
algilt). En það hjálpar ekki þess-
um sakbitnu persónum sem þjást
vegna þess sem þeim varð á svo
mörgum árum fyrr.
Þetta er óvenjulegur spennu-
þáttur því hann vekur mann til
umhugsunar. n
Brostin hjörtu
Grafin leyndarmál er spennuþáttur sem vekur mann til umhugsunar
Nicola Walker og
Sanjeev Bhask Leika
lögregluteymið í Grafin
leyndarmál.
Kolbrún Bergþórsdóttir
kolbrun@dv.is
Við tækið
„Frábærir leikar-
ar túlka þessar
brotnu persónur á afar
áhrifamikinn hátt.
h
ugh Bonneville, sem þekkt-
astur er fyrir leik sinn í
Downton Abbey, mun leika
rithöfundinn fræga, Roald
Dahl, í nýrri kvikmynd.
Dahl er höfundur fjölda klassískra
barnabóka og má þar nefna Matt-
hildu og Kalla og sælgætisgerðina.
Myndin mun fjalla um hjónaband
rithöfundarins og Óskarsverðlauna-
leikkonunnar Patriciu Neal. Dahl og
Neal gengu í hjónaband árið 1953 og
eignuðust fimm börn. Ýmiss konar
harmur sótti hjónin heim, fjögurra
mánaða sonur þeirra slasaðist alvar-
lega þegar leigubíll ók á barnavagn
sem hann var í, Sonurinn var tvö ár
að jafna sig. Tveimur árum síðar dó
sjö ára dóttir þeirra úr heilabólgu
eftir að hafa fengið mislinga. Neal
fékk heilablóðfall þremur árum síð-
ar og var þá barnshafandi.
Hún var í dái í þrjár vikur og
þegar hún komst til meðvit-
undar þurfti hún að læra að
ganga og tala á ný. Á þeim
tíma var það eiginmaðurinn
sem reyndist stoð hennar og
stytta. Neal fæddi síðan heil-
brigða dóttur. Hjónin skildu
árið 1983 eftir að upp komst
um framhjáhald Dahls.
Kvikmyndin mun fjalla
um sigra og harmleiki í lífi
tveggja frægra einstaklinga.
Leikstjóri myndarinnar
verður John Hay. Ekki hef-
ur verið tilkynnt hver muni
leika Patriciu Neal, en frétt
þess efnis er að vænta á
næstunni. n
kolbrun@dv.is
Bonneville leikur roald Dahl
Hugh Bonneville Mun leika Roald Dahl.
Patricia Neal og Roald Dahl Urðu að þola ýmis áföll.