Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.2017, Side 6
6 Helgarblað 26. maí 2017fréttir
H
jónin Marta og Úlfur Ingi
Jónsson hafa farið þess
á leit við borgar yfirvöld
að þau úthluti fyrir-
tæki hjónanna, Reykja-
vik Eye Projects, viðeigandi lóð
undir Reykjavík Eye – parísarhjól
sambærilegt því sem er orðið eitt
af kennileitum Lundúna. Hjónin
sendu Degi B. Eggertssyni borgar-
stjóra formlegt erindi þann 9. maí
síðastliðinn þar sem verkefnið var
kynnt. Í umsókninni kemur fram
að parísarhjólið gæti orðið hjarta-
laga og nefnst „Hjarta Reykjavík-
ur“. Nokkrar staðsetningar koma
til greina, þar á meðal í Laugardal.
Samhliða er reiknað með að byggð-
ur verði upp skemmtigarður sem
byggist á íslenskum þjóðsögum og
hjátrú. Erindinu var vísað til um-
sagnar umhverfis- og skipulags-
sviðs Reykjavíkurborgar.
16 ára drengur með svipaða sýn
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem slíkar
hugmyndir kvikna. DV fjallaði um
tíu athyglisverðustu hugmyndirnar í
hugmyndasöfnun á vef Reykjavíkur-
borgar. Þar kom Tómas Helgi Bergs,
16 ára, með þá hugmynd að reisa
parísarhjól sem einmitt yrði nefnt
Reykjavík Eye. Sýn Tómasar Helga
var sú að parísarhjólið mundi rísa
við Hallgrímskirkjuturn og þannig
væri hægt að fá meiri yfirsýn og taka
betri myndir úr hjólinu en úr turnin-
um fræga. Með því myndu skapast
betri aðstæður til ljósmyndunar fyr-
ir erlenda ferðamenn og Íslendinga.
Útsýnishjól og skemmtigarður
Verkefnið sem Marta og Úlfur Ingi
hafa í huga er talsvert viðameira en
hugmynd Tómasar Helga. Verkefnið
er í raun tvíþætt. Annars vegar að reisa
og reka stórt útsýnis hjól á landi inn-
an borgarmarka Reykjavíkur. Sam-
hliða rekstri hjólsins er fyrir hugað að
setja upp og starfrækja skemmtigarð
sem höfða mun til allra aldurshópa.
Meginþema skemmtigarðsins verður
íslenskar þjóðsögur og hjátrú. Í um-
sókn hjónanna kemur fram „að þar
verði boðið upp á líflega leiki, íþrótt-
ir og aðra afþreyingu sem öll fjölskyld-
an getur haft gagn og gaman af.“ Hugs-
anleg staðsetning hjólsins er óráðin
en fjórar tillögur fylgdu með umsókn
Reykjavik Eye Projects. Meðal annars
að hjólið myndi rísa í Laugardalnum
á því svæði sem Fjölskyldu- og Hús-
dýragarðurinn er.
Reykjavik Eye Projects hefur
þegar tryggt sér einkarétt fyrir Ís-
land á samvinnu við fyrirtækið
Saloria Architects Ltd. í Lundúnum
en það vinnur að yfirhönnun sam-
bærilegra verkefna í Asíu og Mið-
Austurlöndum. Þá hefur Reykja-
vik Eye Projects einnig tryggt
sér samstarf við fyrirtækið
Starneth sem sérhæfir sig í
hönnun, byggingu og upp-
setningu útsýnis hjóla.
Þekktasta verkefni Starneth
er einmitt London Eye
sem flestir geta verið
sammála um að hafi
heppnast einstak-
lega vel.
Gæti orðið
hjartalaga og
heitið „Hjarta
Reykjavíkur“
Lesendur sjá eflaust
fyrir sér hringlaga
parísarhjól en í
umsókn Mörtu
og Úlfs Inga
kemur fram að
svo þurfi alls ekki
að vera. Ýmiss
konar lögun
önnur en hringur er í boði „sem
gæti gefið Reykjavik Eye ákveðna
sérstöðu og gert einkenni þess enn
sterkara. Við höfum fengið staðfest
frá fyrrnefndum samstarfsaðilum
að hægt sé að setja upp hjartalag
hjól, svo dæmi sé tekið. Slíkt hjól
gæti orðið eitt af framtíðartáknum
Reykjavíkur – „Hjarta Reykjavíkur“,“
segir í umsókn hjónanna.
Þá kemur fram að Reykjavik
Eye yrði fyrsta stóra útsýnishjólið á
Norður löndum og það nyrsta í heim-
inum. Hæð hjólsins er ráðgerð þrír
fjórðu hlutar af hæð London Eye.
Gert er ráð fyrir lokuðum hylkjum
á hjólinu sem verja mun gesti fyrir
veðri og vindum. Hver hringur mun
taka um 30 mínútur og standa vonir
Mörtu og Úlfs Inga til þess að glæsi-
legt útsýni verði helsta aðdráttar-
aflið.
Hjónin Marta og Úlfur Ingi Jóns-
son hafa verið búsett í Lundúnum í
tæp 25 ár. Þann tíma hafa þau verið
í verslunarrekstri og ýmsu sem við-
kemur nýtingu fasteigna. Þá hafa
þau framleitt skó fyrir stóra tískurisa
eins og Top Shop og Next. Í um-
sókn þeirra kemur fram að þessi
bakgrunnur hafi verið kveikjan að
Reykjavik Eye-verkefninu. „Þrátt fyrir
búsetu erlendis erum
við fyrst og fremst Ís-
lendingar, stolt af
okkar heimalandi
og viljum taka þátt
í að byggja upp
innviði á Íslandi
þannig að sem
flestir geti notið
góðs af,“ segir
í umsókn-
inni. n
Björn Þorfinnsson
bjornth@dv.is
n „Hjólið“ verður mögulega hjartalaga n „Hjarta Reykjavíkur“
Reykjavik Eye Í umsókn Mörtu
og Ulli Jónsson kemur fram að par-
ísarhjólið gæti orðið hjartalaga og
fengið nafnið: „Hjarta Reykjavíkur“.Sækja um lóð
fyRiR paRíSaRHjól
Marta Jónsson Hefur búið og starfað í
London í aldarfjórðung. Fyrirtæki hennar og
eiginmannsins, Úlfars Inga Jónssonar, hefur
óskað eftir lóð undir glæsilegt parísarhjól
innan borgarmarka Reykjavíkur.Sundaborg 1, reykjavík / Sími 777 2700 / xprent@xprent.iS
Gerum föst tilboð og veitum faglega ráðgjöf um
hvaða styrkleiki og tegund hentar þínum gluggum.
Hafðu samband og við mætum til þín.
Sólarfilmur
með hækkandi sól, hækkar hitinn! xprent er
með lausnina fyrir bæði heimili og fyrirtæki.
Sólarfilmurnar eru frá SunTek og eru til í
mismunandi tegundum og styrkleikum.