Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.2017, Page 14
14 Helgarblað 26. maí 2017fréttir
Sími 565 1489 - Hringhella 12 - 221 Hafnarfjörður - isror@isror.is - www.isror.is
Hjá Ísrör ehf færðu pressuvélar
og tengi til samsetningar stállagna
Hjá Ísrör færðu einnig PEX-STÁL HITAVEITURÖR/FITTINGS – HITAVEITU – LJÓSLEIÐARA OG GASSKÁPA
ÍDRÁTTARRÖR – VARÚÐARBORÐA – HERPIMÚFFUR og svo margt fleira
Bitlaus launalækkun kjararáðs
Ákvörðun um að lækka laun framkvæmdastjóra Íslandssjóða um fjórðung kemur aldrei til framkvæmda
K
jararáð hefur í nýbirtum úr-
skurði sínum ákvarðað laun
framkvæmdastjóra Íslands-
sjóða hf., dótturfélags Ís-
landsbanka, sem þýðir að
mánaðarlaun hans ættu að lækka
um fjórðung frá því sem var áður. Úr-
skurðurinn er hins vegar, líkt og í til-
felli Birnu Einarsdóttur, bankastjóra
Íslandsbanka, aðeins táknrænn og
breytir í raun engu.
Veruleg launalækkun
Kjararáð ákvað að laun fram-
kvæmdastjóra Íslandssjóða, Kjartans
Smára Höskuldssonar, sem tók við
starfinu í október síðastliðnum,
skyldu vera alls 1.536.976 krónur. Þótt
um sé að ræða laun í hærra lagi hjá
kjararáði þá er um að ræða umtals-
verða lækkun frá því sem var. Sam-
kvæmt ársreikningi Íslandssjóða voru
mánaðarlaun framkvæmdastjóra um
og yfir tvær milljónir króna í fyrra.
Laun framkvæmdastjórans lækka
því um á bilinu 23–25 prósent með
ákvörðuninni. Líkt og DV hafði áður
greint frá ákvað kjararáð að laun
Birnu Einarsdóttur, bankastjóra Ís-
landsbanka, í febrúar eftir að íslenska
ríkið eignaðist bankann að fullu síð-
asta vor skyldu lækkuð. Launin lækk-
uðu um ríflega 40 prósent við það en
líkt og DV greindi frá mun úrskurð-
urinn í raun engu breyta. Hvorki í til-
felli Birnu né annarra lykilstjórnenda
bankans og dótturfélaga.
Níu mánaða uppsagnarfrestur
Fram kemur í úrskurði kjararáðs
nú að í ráðningarsamningi fram-
kvæmdastjóra Íslandssjóða sé
kveðið á um níu mánaða upp-
sagnarfrest af hálfu félagsins. Til
að færa Kjartan Smára undir kjara-
ráð þarf fyrst að segja upp núver-
andi ráðningarsamningi hans hjá
Íslandssjóðum. Mun hann því að
óbreyttu halda fyrri launum í níu
mánuði samkvæmt ráðningar-
samningi. Þann 1. júlí næstkom-
andi taka gildi ný lög um kjararáð
sem fækka verulega þeim sem heyra
undir ráðið, og ákvörðunarvald um
laun starfsmanna ríkisbanka færist
aftur frá kjararáði til stjórna, í þessu
tilfelli Íslandssjóða.
Lítil stemming fyrir launalækkun
Miðað við það sem fram kom í
greinargerð stjórnar Íslandssjóða
fyrir kjararáði virðist lítil stemming
fyrir því að lækka laun fram-
kvæmdastjórans jafn hressilega og
kjararáð gerði síðan. Kemur með-
al annars fram í úrskurðinum að
stjórnin hafi ákveðið að leita úr-
skurðar fjármála- og efnahagsráðu-
neytisins um hvort kjararáð ætti
yfirhöfuð úrskurðarvald um laun
framkvæmdastjórans. Niðurstaðan
var hins vegar að svo væri.
Líkt og í tilfelli bankastjóra Ís-
landsbanka þá virðist sem launa-
lækkun framkvæmdastjóra dóttur-
félagsins, Íslandssjóða, hafi
verið eitthvað sem þurft hafi að
gera, vegna eignarhalds ríkisins, en
muni aldrei í raun koma til fram-
kvæmda. n
Sigurður Mikael Jónsson
mikael@dv.is
Táknræn lækkun Þrátt fyrir að kjararáð hafi ákvarðað Kjartani Smára Höskuldssyni töluvert lægri laun en hann var með áður hjá Íslandssjóðum þá mun ákvörðunin að öllum líkindum
ekki koma til framkvæmda. MyNd ÍSLaNdSbaNki.iS