Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.2017, Side 18
18 Helgarblað 26. maí 2017fréttir
Fræðslunefnd Sjúkraliðafélags-
ins hefur lagt fram tillögu við starfs-
greinaráð um að breytingar verði
gerðar á námskrá nema í brúar-
námi, en það er námsleið sem gef-
ur starfsmönnum í heilbrigðisþjón-
ustu sem uppfylla tiltekin skilyrði
möguleika til að afla sér sjúkraliða-
menntunar með því að taka 60 ein-
inga nám í stað 120 eininga.
Brúarnámið hefur verið gagn-
rýnt harðlega og hafa margir félags-
menn í Sjúkraliðafélaginu meðal
annars talið það vera gengisfellingu
á náminu. Helstu breytingar sam-
kvæmt tillögunni eru að inntöku-
skilyrðum verði breytt, í stað 23 ára
aldurstakmarks komi 25 ára ald-
urstakmark. Vinnustaðanám verði
metið til átta eininga og sextán ein-
inga starfsþjálfun verði bætt við, en
sá einingafjöldi var áður lagður að
jöfnu við fimm ára starfsreynslu. Þá
er nemum á brúarnámsleið gert að
ljúka náttúrufræði 103 áfanga og að
sækja sér starfsþjálfun á öðrum en
sínum upprunalega vinnustað.
Við þessar breytingar fer brúar-
námið frá 60 einingum upp í 90 ein-
ingar.
Kosningar til formanns félagsins
standa ný yfir, en Helga Dögg Sverr-
isdóttir býður sig fram gegn sitjandi
formanni, Kristínu Áslaugu Guð-
mundsdóttur.
Helga Dögg telur þetta vera skref
í rétta átt. „Það er greinilega verið
að hlusta á þær óánægjuraddir sem
komið hafa fram. Þetta er komið frá
félagsmönnum sem hafa látið í sér
heyra og það eru að verða breyting-
ar, sem er mjög gott. Hvort þetta nái
til að stuðla að fullum sáttum í fé-
laginu veit ég ekki,“ segir hún.
Úrslitin í formannskjörinu verða
kunngjörð á landsþingi Sjúkraliða-
félagsins þann 31. maí næstkom-
andi.
Miðvikudagur 23. Febrúar 20074
Fréttir DV
InnlendarFréttIr
ritstjorn@dv.is
Helga Dögg Sverrisdóttir
Frambjóðandi til formanns
félagsins segir tillögurnar
skref í rétta átt.
Sjúkraliðafélagið leggur fram tillögur um breytingar á brúarnáminu:
Óvíst um sættir hjá sjúkraliðum
Sofandi á
rauðu ljósi
Lögreglan á höfuðborgar-
svæðinu lenti í undarlegu atviki
aðfaranótt sunnudags. Þá voru
lögreglumenn kallaðir að gatna-
mótum Miklubrautar og Kringlu-
mýrarbrautar vegna kyrrstæðs
bíls á rauðu ljósi. Þegar á vettvang
var komið sá lögreglan mann á
þrítugsaldri steinsofandi undir
stýri. Bíllinn var læstur og að auki
í lausagangi. Sama hversu fast
lögreglan lamdi á rúðurnar rum-
skaði ökumaðurinn ekki. Að lok-
um hrökk hann þó upp af værum
blundi og opnaði bifreiðina. Mað-
urinn var handtekinn og færður
á lögreglustöð. Hann er grunaður
um akstur undir áhrifum lyfja.
Vargar gera
við grindverk
Lögreglan hafði hendur í
hári tveggja pilta eftir að þeir
unnu skemmdarverk við hús
Orkuveitunnar síðastliðið
föstudagskvöld á Akranesi.
Piltarnir viðurkenndu
verknaðinn og sáu að sér,
mættu skömmu síðar og gerðu
við grindverkið. Lögreglan á
Akranesi hafði þó í nógu að
snúast en þrisvar sinnum um
helgina aðstoðuðu þeir ofur-
ölvi einstaklinga að komast til
síns heima. Einn var þó svo
ölvaður að lögreglan lét lækni
skoða hann áður en honum
var skilað til síns heima.
FL Group
trompar Trump
FL Group hefur keypt sig
inn í verkefni Bayrock-fast-
eignafélagsins
í Bandaríkjun-
um fyrir rúma
þrjá milljarða
króna. Meðal
verkefnanna eru
þrjú hótel, þar á
meðal tvö í eigu
Donalds Trump,
bandaríska við-
skiptajöfursins sem í seinni tíð
er þekktastur fyrir þátttöku sína
í þáttunum The Apprentice.
Auk þessara verkefna hyggur FL
Group á fleiri fasteignaverkefni
víða um heim.
17 ára á 171
km hraða
Mikið var um ofsaakstur í
höfuðborginni um helgina.
Aðfaranótt laug-
ardags var 17 ára
gamall öku-
maður sviptur
ökuréttindum til
bráðabirgða eftir
að hann mældist
á 171 kílómetra hraða
á Miklubraut. Sömu viðurlög
hlaut annar maður á þrítugs-
aldri sem mældist á 142 kíló-
metra hraða á Hringbraut á
föstudagskvöld.
Alls mældi lögreglan 41
ökumann yfir leyfilegum há-
markshraða um helgina. Á
mánudag var einnig nokkuð
um hraðakstur en fimm mega
búast við ökuleyfissviptingu
í kjölfarið. Þeirra á meðal ók
einn á 144 km hraða á Hafn-
arfjarðarvegi.
Verkalýðsforkólfar eru sammála um að færa þurfi lágmarkslaun kjarasa
mninga nær
raunveruleikanum. Þeir vilja færa lægstu taxta nær markaðslaunum, me
ð því myndu
lægstu taxtarnir hækka um 50 þúsund krónur á mánuði.
Aðalkjarasamningur Starfgreina-
sambands Íslands og Samtaka at-
vinnulífsins rennur út um næstu
áramót. Í dag funda forkólfar verka-
lýðshreyfingarinnar þar sem rædd
verða áhersluatriði í komandi bar-
áttu. Undirbúningur fyrir kjara-
samningaviðræður er því hafinn á
fullu og ljóst að formenn verkalýðs-
félaga telja brýna þörf á að gera rót-
tækar breytingar.
Kristján Gunnarsson, formað-
ur Starfsgreinasambandsins, segir
mikinn hug í verkalýðshreyfingunni
til að ná fram úrbótum í komandi
kjarasamningum. Hann segir fund-
ina núna fyrst og fremst vera vinnu-
fundi til undirbúnings fyrir viðræður
í haust. „Fyrir síðustu samninga náð-
ist fínt samstarf aðildafélaganna og
ég vona að við náum því aftur í þetta
skiptið. Með því náum við að sam-
eina krafta okkar í stað þess að þeir
séu dreifðir. Ég hef fundið fyrir mikilli
samstöðu í hreyfingunni undanfarið
og er sannfærður um að við náum að
hnykla vöðvana vel í haust.“
Ekki mönnum bjóðandi
Aðalsteinn Árni Baldursson, for-
maður Verkalýðsfélags Húsavíkur,
telur brýnast að ráða bót á misskipt-
ingu sem sífellt verður meira áber-
andi í samfélaginu. Hann vill einnig
sjá kjarasamninga færast nær raun-
verulegum tímalaunum á markaði.
„Við höfum verið að skoða þróun
mála á síðustu árum á vinnumark-
aðnum og töluvert margt þarf að laga
í kerfinu. Misskiptingin í þjóðfélaginu
er orðin mjög áberandi þar sem hin-
ir ríku verða ríkari og hinir fátæku fá-
tækari. Það sjá allir að verkafólk get-
ur ekki lifað af lágmarkslaunum sem
skömmtuð eru samkvæmt núgild-
andi samningum. Það er einfaldlega
ekki mönnum bjóðandi,“ segir Að-
alsteinn Árni. „Það er mikið um yfir-
borganir í ýmsum störfum og liggur
fyrir að færa þurfi kjarasamninga nær
þeim launum sem greidd eru í raun.
Þarna er nokkur gjá á milli sem nauð-
synlegt er að laga.“
Í ró og spekt
Vilhjálmur Egilsson, formaður
Samtaka atvinnulífsins, vonast til að
viðræðurnar gangi eðlilega fyrir sig
Hann telur æskilegast að viðræðum
yrði lokið áður en núverandi samn-
ingar rennur út um áramót. „Við
viljum ganga í viðræður um leið og
menn mæta aftur til vinnu að lokn-
um sumarfríum. Best væri ef hægt
væri að ljúka þessu þannig að nýir
samningar tækju beint við. Í mín-
um huga er mikilvægast að stokka
upp tryggingaréttinn sem snýr að
veikindum og örorku. Það er eitt
af stærstu verkefnunum á borðinu
núna,“ segir Vilhjálmur. „Síðan þarf
iðulega að huga að launatöxtun-
um og farið verður yfir þau mál. Það
hefur verið viðfangsefni kjarasamn-
inga um langt skeið að færa taxtana
sem næst því sem gengur og gerist á
vinnumarkaði. Ég skal ekkert segja
um það hvort gjáin sé meiri nú en
áður. Vonandi verður baráttan ekki
of hörð og menn geti unnið þetta
verkefni í ró og spekt. Við hlökkum
til að takast á við þetta á sem eðlileg-
astan máta.“
Bilinu verður að eyða
Vilhjálmur Birgisson, formaður
Verkalýðsfélags Akraness, segir mark-
mið félagsins skýr þegar kemur að
úrbótum kjarasamninga. Hann tek-
ur undir mikilvægi þess að laga þá
að markaðslaunum vinnumarkaðar-
ins. „Afstaða okkar til komandi kjara-
samninga er hvellskýr. Það verður að
vera meginmarkmið þeirra að verja
það markaðslaunakerfi sem byggt
hefur verið hér upp á undanförnum
árum og áratugum. Lágmarkstaxtar
verða að hækka til samræmis við þau
markaðslaun sem almennt er ver-
ið að greiða,“ segir Vilhjálmur. „Sam-
kvæmt könnunum má sjá töluverðan
mun á markaðslaunum og lágmarks-
launum kjarasamninga, munurinn
þar á liggur nærri 50 þúsund krónum
á mánuði. Það er alvitað að nú eru
um 20 þúsund erlendir verkamenn
á íslenskum vinnumarkaði og sam-
kvæmt upplýsingum frá Vinnumála-
stofnun er stór hluti þeirra að vinna
eftir berstrípuðum lágmarkstaxta.
Bilinu á milli markaðslauna og lág-
markslauna verður að eyða algerlega
í komandi samningum.“
LiFa ekki aF Laununum
TrauSTi HafSTEinSSon
blaðamaður skrifar: trausti@dv.is
Laga launin Forystumenn verkalýðs-
félaga undirbúa baráttuna fyrir
komandi kjarasamningaviðræður og
telja nauðsynlegt að gera úrbætur.
Mikils er vænst af nýrri ríkisstjórn. Hún hefur mikinn stuðning,
bæði meðal þjóðarinnar og innan þingsins. Vissulega urðu vonbrigði
með hvernig Sjálfstæðisflokkurinn valdi sína ráðherra. Í dag eru gerðar
meiri kröfur um jafnræði kynjanna en kemur fram í ráðherravali Sjálf-
stæðisflokksins.
Eitt af því brýnasta sem ríkisstjórnin verður að gera er að eyða því
kalda stríði sem fylgdi fyrri ríkisstjórn og einkum upphafsmönnum
hennar, Davíð Oddssyni og Halldóri Ásgrímssyni. Ekki er við það un-
andi að heiftin sem var milli manna endurtaki sig. Það er komið nóg og
það verður að vera heimilt að hafa aðrar skoðanir en ráðamenn og það
verður líka að vera heimilt að tjá þær skoðanir án þess að það merki
annað en skoðanamun. Ekki er lengur við það unandi að fólki sé skipt í
lið eða fylkingar, með eða á móti mönnum með alls kyns eftirmálum.
Fjölmiðlar hafa mátt búa við alls kyns aðfinnslur makki þeir ekki
rétt. Fjölmiðlum hefur ekki verið
svarað og þeir jafnvel ekki boðað-
ir á almenna blaðamannafundi
hafi þeir fjallað um mál eða mál-
efni með öðrum hætti en helstu
ráðamönnum hefur þótt henta.
Þessum leiðinlega kafla í sam-
skiptum er vonandi lokið. Hann
hvarf að mestu þegar gömlu for-
ingjarnir fóru frá. Samt eimdi eft-
ir af þessum þunga anda allt fram að kosningum. Í dag er gaman hjá
verðandi ráðherrum og þeir eru allir glaðir. Hvort þeir taka upp stífni
og þvinganir forvera sinna kemur ekki í ljós fyrr en störf nýrrar ríkis-
stjórnar verða metin og gagnrýnd.
Nú er tækifæri til að endurtaka ekki þau leiðindi sem hafa verið ráð-
andi og nú er tækifæri til að hætta að skipa fólki í lið og fylkingar. Pirr-
ingurinn og leiðindin eru best geymd í fortíðinni og það er óskandi að
hægt verði að hafa samskipti við ráðafólk með þeim hætti að ekki end-
urtaki sig sú úlfúð sem verið hefur. Eflaust verður andi síðustu kjör-
tímabila skoðaður þegar frá líður og reynt verður að varpa skýru ljósi á
það sem gerðist. Það fólk sem fór með landsráðin og það fjölmiðlafólk
sem var í sigti stjórnmálamannanna er ekki best til þess fallið. Aðrir
verða að skrifa sögu sundrungar og óvináttu.
Samfélaginu er nauðsynlegt að hér verði gagnrýnir fjölmiðlar og
ráðamenn verða að þola gagnrýna umfjöllun um störf sín. Trúlega eru
þessir vondu tímar í samskiptum fólks að baki og fram undan verða
vonandi eðlileg samskipti milli allra. Vonandi verða ekki heilu ríkis-
stofnanirnar lagðar niður mislíki ráðamönnum það sem frá þeim kem-
ur og vonandi verður ekki reynt aftur að berja í gegn lög um að sérstakt
opinbert leyfi þurfi til að gefa út dagblöð.
Sigurjón M. Egilsson
fimmtudagur 24. maí 200714
Umræða DV
Nýtt upphaf
Trúlega eru þessir vondu
tímar í samskiptum fólks
að baki og fram undan
verða vonandi eðlileg
samskipti milli allra.
Útgáfufélag: Dagblaðið-Vísir útgáfufélag ehf.
StjórNarformaður: Hreinn loftsson framkVæmDaStjóri: Hjálmar Blöndal
ritStjóri og áByrgðarmaður: Sigurjón m. Egilsson
fulltrÚi ritStjóra: janus Sigurjónsson
Umbrot: dV. Prentvinnsla: Prentsmiðja morgunblaðsins. Dreifing: Árvakur. dV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð.
fréttaStjóri: Brynjólfur Þór guðmundsson
aðStoðarritjóri: Sigríður Dögg auðunsdóttir auglýSiNgaStjóri: auður Húnfjörð
Stagbætt kerfi sem eng n vildi
Illskan
Nú þegar Guðni Ágústsson
hefur verip munstraður sem
formaður Framsóknarflokks-
ins er líklegt
að hann verði
að taka upp
annan stíl en
hann hefur sýnt
síðustu daga.
Guðni hefur
komist áfram
á skemmtileg-
heitum og orð-
heppni. Illskan fer honum verr
og ekki er líklegt að framsóknar-
fólk kjósi hann til formanns, þeg-
ar kemur að því að hann standi
frammi fyrir fólkinu, ef hann
verður enn fullur illsku og jafnvel
haturs. Það er ekki sá Guðni sem
fólkið þekkir.
Fyrri átök
Bæði Guðni Ágústsson og Siv
Friðleifsdóttir hafa tekið þátt í
hörðum átökum innan Framsókn-
arflokksins og það mun vænt-
anlega veikja stöðu þeirra þegar
kemur að því að velja flokknum
nýja forsytu. Valgerður Sverris-
dóttir og Magn-
ús Stefánsson
hafa haldið sig
meira utan við
hinar opinberu
orrustur Fram-
sóknarflokks-
ins og því ekki
ótrúlegt að litið
verði frekar til
þeirra þegar ný forysta verður kjör-
in. Hvað sem verður bíður Fram-
sóknar mikil vinna í endurgerð og
þá mun skipta miklu að forysta
flokksins verði þess bær að skapa
nýja ímynd og betri.
Ásakanir
Guðni Ágústs-
son, settur for-
maður Fram-
sóknarflokksins,
hefur farið
mikinn gagn-
vart DV. Hann
kennir DV um
að sjálfur er hann ekki lengur ráð-
herra. Guðni telur skoðanakann-
anir sýna að Framsókn hafi verið
á uppleið þegar DV birti yfirlit yfir
gerðir ríkisstjórnarinnar og þá hafi
fylgið tekið að dala. Kunnugir telja
þetta einu skoðanakönnunina sem
Guðni hefur tekið mark á. Fram
að því hefur lítið verið að marka
spárnar. En svona er þetta.
Sandkorn
Einhver innbyggð spenna og mótsögn er í kvóta-
kerfi sem valdið hefur 20 ára borgarastríði á Íslandi.
Munum eftir því að minnkandi fiskafli og grunur
um ofveiði varð til þess að aðgangur að fiskistofnun-
um var takmarkaður. Það voru ekki rekstrarhagfræði-
leg rök sem réðu því að kvótakerfi var komið á heldur
rök fiskifræðinnar gegn ofveiði.
Skilningur almennings á verkan kvótakerfisins er
býsna mikill og því meiri sem hann verður, því meiri
verða særindin og vonbrigðin. Menn skilja að sægreif-
inn, sem leigir út kvóta á uppsprengdu verði, stingur
ríkisstyrk í vasann. Rentan af auðlindinni rennur fyr-
irhafnarlaust í vasa kvótahafans þótt í lögum standi að
auðlindir hafsins séu sameign þjóðarinnar. Kvótahaf-
inn er auk þess valdaður af bönkunum. Því fleiri sem
tonnin eru í eigu hans, því minni er áhætta bankanna
að lána honum og vextirnir lægri sem standa honum
til boða.
Það er herfilegur misskilningur að markaðsfrelsi sé
heilagt, einskonar guðdómleg forsjá og ósýnileg hönd
sem miði öllu til hins besta. Hafi stjórnmálamenn tal-
ið sig þurfa að setja lög til þess að tylla undir heilagt
markaðsfrelsi er að sama skapi hægt að breyta lögun-
um ef í ljós kemur að frelsi sumra er ófrelsi annarra.
Ef í ljós kemur að regluverkið veldur heiftarlegu órétt-
læti, átökum, uppdráttarsýki heilla byggðarlaga eða
stríðir gegn grundvallaratriðum aldagamallar fisk-
veiðimenningar, verður að breyta því. Ef regluverk
stjórnmálamannanna tortímir fiskveiðimenningu
sjávarbyggðanna verður að breyta því.
Allt er þeim mótdrægt
Skrifstofa Kambs á Flateyri er ekki félagsmálaþjón-
usta. Hvergi er kveðið á um samfélagslega ábyrgð fyr-
irtækja. Venjuleg fyrirtæki sinna þessari ábyrgð svona
í leiðinni ef reksturinn gengur vel. En kvótakerfið
heimilar sjávarútvegsfyrirtækjum í fullum rekstri að
selja allan kvótann og fara með arðinn hvert á land
sem er. Allt í nafni markaðsfrelsis sem var ekki einu
sinni tilgangur kvótakerfisins.
Menn hafa líka skilið á tuttugu árum að stjórnar-
skrárbundin atvinnu- og eignarréttindi annarra sem
lifðu af fiskveiðum, voru fótum troðin og höfð að engu
þegar kvótinn var bundinn við skip útgerðar með lög-
um. Þarf að nefna örlög Bakkfirðinga? Eða íbúðarhús
Jóns Helga Kocinski Gíslasonar og fjölskyldu hans
á Flateyri sem nú er að breytast í 11 milljóna króna
sumarbústað?
Bolvíkingurinn Kristinn H. Gu narsson metur það
svo að senn fækki um 100 í Bolu garvík og um 200 á
Flateyri. „Ég veit e ki betur en að stóru kvótahafarnir
hafi fengið að vera í friði. Þeir fá frið til þess að taka
út peningana sem liggja í kvótanum, þeir fá frið fyrir
öllum skyldum við aðra en sjálfa sig, þeir fá frið fyr-
ir útsvarinu, þeir fá frið til þess að leika sér í golfi um
áhyggjulausa ævidaga og það er rétt að framtíð þeirra
lítur nokkuð vel út,“ segir Kristinn á vefsíðu sinni.
Ofan á innbyggðan vanda kvótakerfisins er hag-
stjórnin fiskveiðum og -vinnslu afar mótdræg um
þessar mundir. Ef ekki væri fyrir hátt fiskverð á erlend-
um mörkuðum væri ástandið víðar mjög svart en á
Flateyri. Hér er um að tefla ruðningsáhrif fasteigna-
verðbólgunnar á höfuðborgarsvæðinu og stóriðjunn-
ar á Austurlandi. Þegar við bætist verðlag á leigukvóta,
sem menn væru fullsæmdir f á eiturlyfjamarkaði, er
fokið í flest skjól. Væri það ekki eins og hver önnur
sjálfsbjargarviðleit i ð lauma hluta af fiski framhjá
vigt við þessar aðstæður? Eða henda verðlitlu smæl i
og fiski, sem ekki er kvóti fyrir, í hafið? Nagar refurinn
ekki af sér loppuna til að sleppa úr gildrunni?
Kerfið sjálfu sér sundurþykkt
Í rauninni ættu menn að varast að dæma útgerð-
irnar of hart. Þær spila eftir leikreglum sem settar hafa
verið af löggjafarvaldinu. Kerfið er plástrað og stag-
bætt. Svokallaður byggðakvóti hefur verið innleiddur,
einskonar ölmusa og afsökunarbeiðni frá stjórnvöld-
um. Byggðakvótinn hittir fyrir útgerðir sem hafa keypt
eða leigt kvóta dýrum dómi. Forsvarsmönnum þeirra
þykir sem stjórnmálamenn gefi þeim langt nef. Fyrir
nú utan ruglinginn sem þetta skapar í neyðartilvikum
eins og á Flateyri.
Setjum sem svo að útgerðarfélög á norðanverðum
Vestfjörðum vilji kaupa kvóta af eigendum Kambs á
Flateyri. Er ekki hugsanlegt að seljendur kvótans fái
byggðakvóta í staðinn og sti gi andvirði selda kvótans
í vasann? Skyldi þetta vera vænleg leið til þess að fá út-
gerðir í heimabyggð til að kaupa Flateyrarkvótann?
Svo er að heyra sem Einar Oddur Kristjánsson frá
Sólbakka á Flateyri ætli að beita sér fyrir því að auð-
lindaumræðan verði en á ný tekin upp á Alþingi.
Síðastliðinn mánudag sagði Einar Oddur við Morg-
unhanann á Útvarpi Sögu: „Svona dæmi sem koma
upp verða til þess að löggjafinn og umræðan í landinu
kemst ekki hjá því að fara í gegn um auðlindaumræð-
una rétt einu sinni ... Við verðum að vera menn til að
fjalla um þetta hlutlægt og öfgalaust.“
JóhAnn hAuKsson
útvarpsmaður skrifar
„Skrifstofa Kambs á Flat-
eyri er ekki félagsmála-
þjónusta. Hvergi er kveð-
ið á um samfélagslega
ábyrgð fyrirtækja.“
Útvatnaður saltfiskur án beina til að sjóða
Sérútvatn. saltfiskur án beina til að steikja
Saltfisksteikur (Lomos) fyrir veitingahús
dugguvogi 12 - 104 reykjavík - S: 517 7040 - www.hobbyhusid.is
Opnunartími: mán-föst 10.00-18.00, laugard 13.00-17.00, sunnud 13.00-16.00
mikið úrVal
af hjólhýSum
Verð frá 1.690.000
og húsbílar verð frá 4.990.000
Skoðaðu úrvalið hjá okkur.
NÚ GETUR
ÞÚ LESIÐ DV
Á DV.IS DV er aðgengilegt á dv.is og kostar netáskriftin 1.490 kr. á mánuði
Þetta líkist krókódíl að
dansa við pabba minn...
Andskotinn hafi það,
nú verðið þið að hætta þessu!
Ég er blekklessa! Tilviljanakennt
mynstur af litum! Ég líkist engu
öðru klikkhausinn þinn!
fyri 10 á m
n DV lítur um öxl og gluggar í gömul blöð n Lalli Johns á meðal þess sem bar á góm í maí 2007
Mikið æði hefur heltekið íslens a
æsku undanfarið en það er að leika
sér með svokallaða drakkó-karla. Í
raun eru þetta hausar af skrýtnum
fígúrum og líkist leikurinn furðu mik-
ið peningaharki. Hann snýst um það
að kasta drakkó-haus eins nálægt
vegg og mögulegt er. Sigurvegar-
inn hirðir hina hausana sem notað-
ir voru í spilinu. Nú hefur Melaskóli
riðið á vaðið og bannað leikföng-
in innan skólans en nokkur misklíð
hefur orðið vegna karlanna.
„Þetta er orðið dálítið peninga-
spursmál og það er alvarlegt,“ segir
Ragna Ólafsdóttir, skólastjóri Mela-
skóla, en eldri krakkarnir hafa not-
fært sér leikinn og haft karlana af
þeim yngri. Þá hefur verið tilkynnt
um hvarf nokkurra karla en Ragna
vill þó ekki fullyrða að um þjófnað
sé að ræða enda hefur slíkt alls ekki
komið í ljós.
Að sögn Rögnu leyfði skólinn
börnunum að leika sér með fígúr-
urnar til að byrja með. Hún segir
slíka leiki geta gagnast börnunum
vel og bendir á í því samhengi að ekki
öll börn vilji leika sér í boltaleikjum.
Hún segir þann vettvang geta ver-
ið ágætan fyrir börn til að hittast og
leika sér sem hún telur afar jákvætt.
Í því samhengi bendir hún á annað
æði sem gekk yfir hjá skólabörnum
fyrir örfáum árum en það var leikur
með Pókemon. Þar gátu börn skipst
á spilum og körlum. Þetta spil geng-
ur lengra því það líkist fjárhættuspili.
Hún bætir við að svona leikir geti
færst í miklar öfgar hægt og rólega.
„Þegar ég var lítil var þetta kallað
fimmaurahark,“ segir Ragna minnug
æskuáranna. Hún segir að oftar en
ekki hafi börnin þó notast við tappa
en stundum voru fimmaurarnir
lagðir undir.
Hún segir viðbrögð við banninu
hafa verið góð þótt sumir krakkar
geti verið ósáttir við það. Melaskóli
er þó ekki eini skólinn sem hefur
bannað þetta því frístundaheimil-
ið við skólann hefur gert það sama.
Svipuð vandamál komu upp og því
þótti vænlegast að biðja börnin að
leika sér heima með drakkó-karl-
ana.
valur@dv.is
föstudagur 25. maí 20074
Fréttir DV
Góður alhliða áburður.
Hentar vel í öll blómabeð, fyrir
matjurtir, skrautrunna og tré.
Inniheldur öll helstu næringar-
og snefilefni.
Berið á 3-4 sinnum yfir vaxtar-
tímann frá maí fram í miðjan júlí
www.aburdur.is
Gott í garðinn
Fæst í öllum helstu garðyrkju- og byg
gingavöruverslunum landsins
Telja kindur í
þjóðgarðinum
Skotveiðifélag Íslands stóð
fyrir rjúpn talningu á Þingvöll-
um á þriðjudaginn. „Þetta fer
þannig fram að hópur fólks röltir
um svæðið og telur þá karra sem
sjást,“ segir Einar Kr. Haraldsson
hjá Skotveiðifélaginu. Á vorin eru
karrarnir oft áberandi þar sem
þeir koma sér fyrir á hólum og
verja óðul sín.
Taldir voru sjö karrar og ei
hæna. Einnig varð vart við þrjár
kindur og tvo refi. Í fyrra fund-
ust fjórir karrar. Mesta fjölgunin
virðist vera meðal refa. Önn-
ur tófan var alhvít en hin var að
komast í dökkan feld.
InnlendarFréttIrritstjorn@dv.is
Dæmdur fyrir
ofsaakstur
Maður var dæmdur í 350
þúsund króna sekt í Héraðsdómi
Suðurlands fyrir umferðarlaga-
brot. Þegar maðurinn ók á sem
mestum hraða mældist hann á
160 kílómetra hraða. Þá var hann
einnig dæmdur fyrir að hylja
númeraplötuna á mótorhjólinu
gagngert til þess að koma í veg
fyrir að lögreglan gæti náð núm-
erinu. Maðurinn hefur margoft
gerst sekur um umferðarlaga- og
fíkniefnabrot. Þá var hann einnig
sviptur ökuleyfi í sex mánuði.
ÞEGIR UM EIGIN HAG
Verkalýðsfélag Vestfirðinga fund-
aði í gær með starfsmönnum Kambs
á Flateyri. „Þessi fundur er fyrst og
fremst til þess að ræða uppsagnirnar
og réttindi starfsmanna Kambs,“ segir
Finnbogi Sveinbjörnsson, formaður
Verkalýðsfélags Vestfirðinga.
Finnbogi segir að með þessu sé
verkalýðsfélagið að standa við loforð
sín við starfsmenn Kambs. „Þetta er
lokaður fundur. Við förum yfir þessi
mál með starfsfólkinu í rólegheitum,“
segir hann. Hinrik Kristjánsson for-
stjóri Kambs tilkynnti fyrir viku síðan
að fyrirtækið yrði selt. Þar með mis a
120 manns á Flateyri vinnuna, 65
manns í landvinnslu og 55 sjómenn.
Orðagjálfur ráðamanna
Þingflokkur Frjálslynda flokksins
hittist á miðvikudag og ræddi mál-
efni Flateyrar. Þingflokkurinn krefst
þess að ný ríkisstjórn láti að sér kveða
í málinu án tafar. „Allt tal um skoð-
un, athugun eða óvænta atburðarás
er orðagjálfur manna sem þora ekki
að takast á við sérhagsmunina sem
stjórnvöld eiga að stjórna en ekki
þjóna,“ segir í ályktun frá frjálslyndum.
Kristinn H. Gunnarsson, þingflokks-
formaður Frjálslynda flokksins, telur
athyglisvert að tvö fyrirtæki á Vest-
fjörðum hafi lent í viðlíka hremming-
um á skömmum tíma. „Annars vegar
var það Bakkavík í Bolungarvík sem
neyddist til þess að selja frá sér kvót-
ann og nú er það Kambur sem hættir
vinnslu,“ segir Kristinn.
Miklar skuldir
Þegar hafa tilboð verið samþykkt
í þrjá báta Kambs. Hinrik Kristjáns-
son framkvæmdastjóri og aðaleig-
andi félagsins segist lifa í þeirri von
að fjársterkir aðilar treysti sér til þess
að halda áfram útgerð á Flateyri. „Ég
vona bara að einhver sjái sér hag í því
að koma og taka yfir það sem hér er
eftir,“ segir hann.
Hann treystir sér ekki til þess að
leggja mat á það hver staða hans verði
þegar fyrirtækið verður gert upp.
Hans fyrsta markmið sé að greiða nið-
ur skuldir Kambs, sem séu talsverðar.
Þýðir ekki að gráta
„Það hjálpar okkur ekkert að gráta,“
segir Stanislaw Kordek, sjómaður á
Flateyri. Hann er sannfærður um að
einhver kaupandi finnist sem haldi
áfram útgerð á Flateyri. Hann segir að
til skamms tíma hafi reynst mjög auð-
velt fyrir fólk að fá lánsfé fyrir húsnæði
á Flateyri og telur að það verði erfitt
fyrir þá sem ekki finna sér vinnu.
„Ég stefni að því að kaupa bát og
fara að gera út sjálfur ef ekkert rætist
úr hlutunum hérna,“ segir Stanislaw.
Stanislaw er íslenskur ríkisborgari.
Hann flutti til Íslands frá Póllandi og
hefur búið á Flateyri síðan 1995.
Verkalýðsfélag Vestfirðinga fundaði m
eð starfsmönnum Kambs og kynnti þ
eim rétt-
indi sín. Þingflokkur Frjálslynda flok
ksins segir að allt tal um skoðun og a
thugun á
málinu sé orðagjálfur. Eigandi Kambs
treystir sér ekki til þess að segja hver
nig hann
kemur út úr sölunni á fyrirtækinu.
Flateyri Hinrik Kristjánsson eigandi
Kambs á flateyri selur fyrirtækið. 120
manns missa vinnuna og afkoman
verður ótrygg fyrir marga fleiri. Hinrik
vonar að einhver haldi áfram útgerð
á staðnum.
Verkalýðsforinginn
ræddi uppsagnirnar
við starfsfólkið og
kynnti þeim réttindi
sín.
Sjómaðurinn stanilslaw Kordek hefur búið o
g unnið á flateyri í meira en tíu ár.
Hann hefur trú á því að útgerð verði haldið
áfram á flateyri. Ef það bregst þá hyggst
han fjárfesta í bát g fara sjálfur í útgerð.
Sigtryggur Ari jóhAnnSSOn
blaðamaður skrifar: sigtryggur@dv.is
Drakkó-karlar útlægir úr Melaskóla:
Leikfang hark bannað
Drakkó-æðið Börn á íslandi geta vart slitið si
g frá svokölluðum drakkó-körlum en
melaskóli sá sig knúinn til þess að banna þ
á eftir að bera fór á misklíð innan skólans
vegna þeirra.
mánudagur 21. maí 20072
Fréttir DV
Tíu tek ir fyri
hraðakstur
„Menn eru þungir á hægri
fætinum í blíðunni,“ segir Kristján
Örn Kristjánsson, varðstjóri hjá
Lögreglunni á Sauðárkróki.
Lögreglumenn frá Sauðárkróki
sem voru við umferðareftirlit á
þjóðveginum stöðvuðu tíu öku-
menn fyrir of hraðan akstur á rétt
rúmu tveimur klukkutímum
síðdegis í dag. Annar lögreglu-
bíll var við eftirlit skammt frá og
stöðvaði nokkra til viðbótar.
Kristján Örn segir óvenjulegt
að svona margir skyldu teknir við
hraðakst r í ljósi þess að mikil
umferð var á þessum slóðum.
Meðalhraði bíla var alm nnt um
90 kílómetrar á klukkustund en
þrátt fyrir það tóku margir fram úr
og sumir þeirra þóttu taka óþarfa
áhættu.
H eindýr á
veg m úti
Ófáir ökum nn hafa le t í ð
kindur hlaupi fyrir bíla þeirra.
Ökum nn s m eiga leið um
Austurland þu fa nú að hafa
augun hjá sér vegna öllu stærri
dýr . Samkvæmt upplýsingum
frá Vegagerðinni er mikið um að
hreindýr séu við vegi og töldu
starfsmenn stofnunarinnar því
ástæðu til að vara fólk við. Veg-
farendur eru beðnir um að aka
þar um með gát ef gerast kynni
að hreindýrin færu út á veginn
þegar bílar eiga þar leið um.
Meirihluti vill
álver á Bakk
Sjö af hverj tíu íbúum á
Norðausturlandi eru hlynnt-
ir því að álver verði byggt á
Bakka við Húsavík. Þetta eru
niðurstöðu skoðanakönnun-
ar sem Capacent Gallup gerði
fyr r Alcoa.
Stuðningur við álverið hef-
ur aukist frá því síðasta könn-
un var gerð í desember. Þá
voru 58 prósent hlynnt álvers-
byggingu, ellefu prósentustig-
um færri en núna. Könnunin
í dag sý ir að yfir 80 prósent
íbúa á Norðausturla di telja
að bygging álversins hefði já-
kvæð áhrif á búsetuskilyrði á
Norðurlandi.
Innl ndarFréttIr
ritstjorn@dv.is
Hjóla 230 sinnum
kringum landið
Þátttakendur í hjólreiða-
átakinu Hjólað í vinnuna hafa
lagt að baki meira en 300 þús-
und kílómetra. Þetta jafngildir
því að þátttakendur hafi hjólað
hringveginn hátt í 230 sinnum.
Áreynslan samsvarar því að
hjólreiðakapparnir hafi brennt
tíu milljón kaloríur á þeim
tveimur vikum sem átakið
hefur staðið yfir. Þá hafa þeir
sparað 61 tonn af útblæstri
koltvísýrings. Sigurður Ingi
Friðleifsson, framkvæmda-
stjóri Orkusetursins, hefur
svo reiknað út að hjólreiðarn-
ar hafi sparað þátttakendum
fjórar milljónir króna sem ella
hefði farið í kaup á eldsneyti.
Fyrrum gjaldkeri starfsmanna-
félags Norðuráls á Grundartanga er
grunaður um að hafa stolið einni og
hálfri milljón króna á meðan hann
gegndi embættinu. Málið hefur ekki
verið kært til lögreglu en aðalstjórn
starfsmannafélagsins mun taka það
fyrir á fundi bráðlega.
„Þetta er bara allt í vinnslu,“ seg-
ir Jakob Sigurðsson, formaður fé-
lagsins. Grunur vaknaði um meint
brot í byrjun maí. Þá á maðurinn
að hafa dregið undan fé í þau tvö
ár sem hann hefur gegnt embætti
gjaldkerans.
„Okkur var mjög brugðið þeg-
ar upp um málið komst,“ segir Jak-
ob en stjórnin vill reyna að gera
sem best úr málinu þrátt fyrir þann
óleik sem gjaldkerinn gerði starfs-
mönnum Norðuráls. Hann segir
að upp um málið hafi komist þeg-
ar farið var yfir uppgjörið í byrj-
un maí. Þá kom í ljós að uppgjörið
stemmdi ekki. Honum var þá vik-
ið úr gjaldkerastöðunni. „Þetta er
búið að vera mjög mikið áfall fyrir
okkur,“ segir Jakob. Ekki liggur fyrir
hvenær aðalfundur verður haldinn
hjá félaginu. Þá verður væntanlega
gert upp hvort gjaldkerinn verður
kærður fyrir athæfið en ekki er búið
að tilkynna málið til sýslumannsins
í Borgarnesi. Berist kæra til hans
mun hann áframsenda hana til lög-
regluembættisins á Akranesi sem
fer þá með rannsókn málsins.
Gjaldkerinn hefur aftur á móti
átt við veikindi að stríða undanfar-
ið en ekki liggur fyrir hvort honum
hafi verið sagt upp hjá Norðuáli.
Samkvæmt heimildum mun hann
þó vera að skipta um starf og hef-
ur heyrst að hann sé kominn með
vinnu annars staðar.
Framhald málsins verður ákveð-
ið á aðalfundi starfsmannafélags-
ins. valur@dv.is
Maður er sakaður um að stela frá starfsmannafélagi Norðuráls:
Gjaldkeri grunaður um stórþjófnað
Norðurál galdkeri starfsmannafélags
norðuráls er grunaður um stórfelldan fjárdrátt.
„Þetta kemur afar m kið á óvart,“ seg-
ir Jón Hja tason, ri höfundur og sagn-
fræðingur. Hann, bróðir hans og par
hafa verið ákærð fyrir að hafa nýtt sér
kerfisvillu í heimabanka Glitnis á Ak-
ureyri. Málið var þingfest í Héraðs-
dómi Norðurlands eystra á miðviku-
dag en þau neita öll sök. Bróðir Jóns,
Þorsteinn Hjaltason lögfræðingur er
einnig ákærður en honum er gefið að
sök að hafa svikið mest fé út úr bank-
anum, eða 24 milljónir.
Það var í ágúst síðastliðnum sem
maður kom til Þorsteins Hjaltasonar
lögfræðings á Akureyri og benti hon-
um á kerfisvillu í heimabanka Glitn-
is. Villan var til komin vegna mistaka
starfsmanna við forritun þannig að
kaup- og sölugengi víxluðust. Mað-
urinn mun hafa viljað vita hvort það
stæðist lög að nýta sér þessa villu. Í
kjölfarið stundaði Þorsteinn viðskipti
með gjaldeyri en hann ásamt bróður
sínum og parinu urðu sér út um 30
milljónir á einni viku. Þá er Þorsteinn
ákærður fyrir að hafa átt mestan hlut í
viðskiptunum. Honum er gefið að sök
að hafa hagnast um 24 milljónir með
tæplega fjögur þúsund færslum.
Vissi ekki um ólögmæti
„Þetta var gert fy ir opnum tjöld-
um og mér datt ekki í hug að þetta
væri saknæmt,“ segir Jón Hjaltason,
rithöfundur og sagnfræðingur um
málið. Hann taldi viðskiptin vera
hluta af tilboði með gjaldeyri. Sjálf-
ur hélt hann að ástæðan fyrir því að
hagnaðurinn væri svo mikill með
gjaldeyrinn væri sú að krónan væri
ekki tekin með þegar greitt væri fyrir
gjaldeyrinn. Þar hélt hann að gróðinn
væri fólginn.
Hann segir að það hafi ekki verið
fyrr en reikningur hans var frystur og
rannsóknarlögreglumenn bönkuðu
upp á hjá honum að í ljós kom hvern-
ig í pottinn væri búið.
Harkaleg viðbrögð
Jón hagnaðist um ríflega tvær
milljónir af viðskiptunum. Hann seg-
ir að viðskiptin hafi verið innan vé-
banda bankans allan tímann. Féð
hafi verið lagt inn á reikning hjá bank-
anum og því ekki um fjárhagslegan
skaða að ræða hjá þeim. Hann seg-
ist vera vonsvikinn yfir að málið hafi
þurft að fara svona langt enda hefði
nægt að ræða við hann og leiðrétta
stöðuna. Hann tekur sem dæmi að ef
bankinn gerir mistök og færir fé inn
á annarra manna reikninga þá tekur
hann féð til baka. Eins hefði Jón getað
greitt féð til baka enda um mistök að
ræða hjá bankanum sj lfum.
Bauð peninga til baka
„Þetta er með ólíkindum,“ seg-
ir Snæbjörn Magnússon, sem einn-
ig hefur verið ákærður fyrir athæfið
ásamt konu sinni. Hann segist hafa
boðið bankanum að fá féð til baka.
Það hafi engu breytt, þau voru ákærð
engu að síður. Hann segist sjálfur
hafa búist við því að málið yrði látið
niður falla. Hann segir málið í raun
hálf hallærislegt enda mistök bank-
ans sem urðu til þess að fjórmenn-
ingarnir nýttu sér smuguna. Þá virð-
ist það ekki hafa komið til greina að
leiðrétta málið með endurgreiðslu
peningsi s. Ljóst er að ákær n
kom Snæbirni mikið á óvart.
Hugsanlega sex ára fangelsi
„Ég er ekki búinn að sjá
öll gögn málsins,“ segir
Pétur Kristinsson lög-
fræðingur Þorsteins
Hjaltasonar. Hann
segir málið mjög
sérstætt og þá sér-
staklega vegna þess
að fólkið er ákært
fyrir mistök bank-
ans. Að auki spyr
hann hvort það sé í
lagi að bankinn geri mistök en svo eru
fjórmenningarnir ákærðir fyrir að nýta
sér viðskiptin sem bankinn býður upp
á.
Ver i fjórmenningarnir fundn-
ir sekir þá eiga þeir yfir höfði sér sex
ára fangelsi. En í almennu hegningar-
lögunu segir: „Þó að ef maður, sem
fengið hefur aðstöðu til þess
að gera eitthvað, sem ann-
ar maður verður bundinn
við, eða hefur fjárreiður fyrir
ðra á hendi, misnotar þessa
aðstöðu sína, þá varðar það
fangelsi allt að 2 árum, og má
þyngja refsinguna, ef mjög
miklar sakir eru, allt að
6 ára fangelsi.“
Þrír karlar og ein kona hafa verið ákærð fyrir að nýta sér kerfisvillu í heim
abanka
Glitnis í galdeyrisviðskiptum. Fólkið varð sér út um alls þrjátíu milljónir
króna. Hin
ákærðu eru meðal annars lögfræðingur, rithöfundur og rekstrarfræðingur
en öll neita
þau sök. Sá sem varð sér út um mest fé náði 24 milljónum á einni viku.
Valur grettissoN
blaðamaður skrifar: valur@dv.is
boT a e ki í kæ ni
„Þetta var gert fyrir
opnum tjöldum g mér
datt ekki í hug að þetta
væri saknæmt.“
Jón Hjaltason Hafði
ekki hugmynd um
saknæmi þess að
nýta sér kerfisvillu
heimab nka glitnis á
akureyri. málið kemur
honum veruleg á
óvart.
akureyri
atvikið átti sér stað á akureyri
í ágúst á síðasta ári.
23. maí 2007
21. maí 2007
DV Fréttir
mánudagur 21. maí 2007 9
„Það er ljóst að stjórnmálaflokkarn�
ir eru flestir að læra að nota mynd�
mál í auglýsingum sínum,“ segir
Gu mundur �ddur �agn�sson aug�
lýsingahönnuður. Hann bendir á að
flokkarnir séu að átta sig á því að of
mikill texti í auglýsingu frambjóðenda
sé vita gagnslaus því reynslan sýni
að kjósendur nenni ekki að lesa slíka
texta. Auk þess er að hans mati vita
gagnslaust að skreyta auglýsingar með
myndum af of mörgum frambjóðend�
um því það virðist rugla lesendur í
ríminu og hafa takmörkuð áhrif.
„Einföld slagorð og ekki fleiri en
einn eða tveir frambjóðendur á mynd
er s� tækni sem virkar hvað best og
flestir flokkanna fóru eftir því, nema
Frjálslyndi flokkurinn sem var allt�
af með verstu auglýsingarnar,“ segir
Guðmundur �ddur.
Íkon jafnréttis
Guðmundur �ddur tekur fram að
flokkarnir virðist kunna að nýta sér
kraft íkon þar sem lögð er áhersla
á jafnrétti. Kjósendur á Reykjavíkur�
svæðinu komust vart hjá því að sjá
parauppstillingar flokkanna, þar sem
myndir af Össuri og Ingibjörgu, Jón�
ínu og Jóni, Ómari og �argréti, Geir
og Þorgerði sendu öll þau skilaboð að
jafnrétti ríki milli kynjanna auk þess að
bæð kynin eigi foringja innan flokk�
anna. Guðmundi �ddi fannst Vinstri
hreyfingin grænt framboð ekki ná að
stilla upp jafn sannfærandi pari auk
þess sem Frjálslyndi flokkurinn hafi
líklega ekki haft neina konu í fram�
varðasveitinni til að bera fyrir sig.
Hrædd við myndmál
Það var helst Íslandshreyfingin
sem hafði hugrekki til að nýta sér kraft
myndmálsins að mati Guðmundar
�dds sem hreifst af auglýsingum sem
sýndu landslag með og án foss. „Aug�
lýsing Íslandshreyfingarinn r með ál�
dósinni sem var komin fram yfir síð�
asta söludag var mjög skemmtileg og
nýtti myndmálið vel auk þess sem mér
fannst notkun Framsóknarflokksins á
græna kallinum mjög góð, sérstaklega
í ljósi þess að allir vita að á eftir græna
kallinum kemur rauður kall,“ segir
Guðmundur �ddur og glottir við.
Yfir höfuð líkir Guðm ndur �ddur
notkun stjórnmálaflokkanna á mynd�
máli við hrópandi eyðimörk og telur
ástæður þess vera þær að hér ríki lýð�
ræði þar sem nokkur sátt sé um helstu
málefni. „Í alræðisríkjum og á stríðs�
tímum er myndmál mun meira notað
en í lýðræðisríkjum og ég geri ráð fyrir
að flokkarnir telji það ekki við hæfi fyrir
alþingiskosni gar,“ segir Guðmundur
�ddur og bendir á að ef flokkur leg �
ur mikla áherslu á ákveðið myndmál,
ei s og Framsóknarflokkurinn gerði
með græna kallinn, þá býður það upp
á að aðrir geri grín að því. „Takmörk�
uð notkun flokkanna á myndmáli er
stórmerkileg og hreint ótr�legt að til
dæmis stjórnarandstöðuflokkarn�
ir hafi ekki nýtt sér það betur,“ bætir
ann við.
Stjórnmálaflokkarnir eru að læra að nota myndmál í auglýsingum. Enn er
u dæmi um
ómarkvissar ólesandi auglýsingar. Sérfræðingur furðar sig á takmarkaðri
notkun á
myndmáli í að koma skilaboðum á framfæri.
HRÆDDIR VIÐ MYNDMÁL
Guðmundur Oddur
Stjórnmálaflokkarnir
eru að læra að nota
myndmál í auglýsing-
um, en þeir eru
almennt mjög ragir.
blaðamaður skrifar: skorri@dv.is
SkOrri GÍSlaSOn
Íslandshreyfingin minnir á afleið-
ingar náttúruspjalla „Þetta er gott
dæmi um sterka notku myndmáls með
þjóðlegum undirtóni“
Íslandshreyfingin og áldósin „Þetta
er gott dæmi um sterka notkun
myndmáls án flókins texta“
Sex til níu ára börn úr frístundamiðstöðvum öttu kappi og léku sér saman
:
Ka sabíl r ll á Ingólfstorgi
Sex til níu ára gamlir krakkar
kepptu í kassabílaralli á dögunum.
Bílarnir voru að hluta til smíðaðir af
krökkunum sem allir eiga það sam�
eiginlegt að vera �r frístundamið�
stöðinni við Frostaskjól.
„Þetta er árlegur atburður og það
má líkja þessu við uppskeruhátíð.
Bílarnir eru heimasmíðaðir kassa�
bílar sem krakkarnir og starfsmenn
unnu að í sameiningu í vetur,“ segir
Steinunn Gretarsdóttir, deildarstjóri
barnasviðs á Frístundamiðstöðinni
við Frostaskjól.
Börnin, sem koma �r mörgum
skólum í Reykj vík, söfnuðust sa �
an á Skólavörðuholti. Þaðan var
gengið fylktu liði í lögreglufylgd �t
á Ingólfstorg og því næst kepptu ár�
gangarnir innbyrðis i kassabílaralli.
Að því loknu kepptu starfsmenn sín
á milli.
Allir sem tóku þátt fengu bikar,
en einnig voru í boði fjórir bikar�
ar þar sem veitt voru verðlaun fyr�
ir pr�ðasta gönguliðið, bestu liðs�
heildina, frumlegasta bílinn og
hraðskreiðasta bílinn. „Það er alltaf
mikil stemning í kringum þetta og
krakkarnir eru b�nir að b�a til her�
óp t l þess að styðja sitt lið og slíkt.
Þetta reynir á ýmsa samskiptaþætti
hjá krökkunum og þeir þurfa að
að semja um hver gerir hvað. Hver
stýrir bílnum, hver hleypur og ýtir
og hver er í stuðningsliðinu. Sumir
líta að vísu á þetta sem mikla keppni
en flestir er á því að þetta sé bar
skemmtun,“ segir Steinunn.
Í lok dags komu svo Halli og
Heiðar í Botnleðju til þess að syngja
og skemmta krökkunum. „Þetta er í
þriðja skipti sem þessi hátíð er haldin
og það er nýbreytni að við fáum ein�
hvern til að skemmta og því má segja
að hátíðin sé alltaf að verða stærri í
sniðum. Það er voða gaman eftir all�
an æsinginn og keppnina að slaka á
og láta einhvern skemmta sér,“ segir
Steinunn.
Hátíð barnanna Börn úr ýmsum skólum komu saman og kepptu í kassabílaralli eftir
að hafa farið í skrúðgöngu.
í forsetabústaðn-
um á Þingvöll-
um. Fimm full-
trúar hvors flokks
taka þátt í við-
ræðunum. Forystumenn segja viðræður
ganga vel. Fundarstaðurinn er túlkaður
sem tilraun til að þvo Baugsnafnið af
stjórninni og nefna hana Þingvalla-
stjórn.
Sunnudagur 20. aí
FramHald á ÞinGvöllum
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Samfylk-
i garinnar halda áfram viðræðum sín-
um á Þingvöllum. Fundurinn hefst á há-
degi og stendur langt fram á kvöld.
Ný RíkIsstjóRN MYND Ð
Ingibjörg tók undir með Geir og sagði.
„�kkur miðaði vel áfram og það er
góður andi í þessum viðræðum. Það
var farið yfir nokkur mál og við teljum
líkur á að við náum niðurstöðu innan
ekki alltof langs tíma.“
Aðspurður um um ummæli Jón
Sigurðssonar u tr�naðarbrest vildi
Geir lítið segja og sagðist ekki ætla í
o ðaleiki. „Ég er undrandi á því en ég
ætla ekki að segja meira um það. Ég
tel að samstarf okkar hafi verið afar
gott og mun aldrei segja neitt annað
um það.“ Sömuleiðis sagði Geir ekk�
ert athugavert við framgang mála eft�
ir kosningar. Eðlilegt sé að menn tali
saman, það sé einfaldlega ferli sem
fari af stað að lokum kosningum. „Það
vita allir hvernig það gengur fyrir sig
og þó að menn séu í viðræðum þá eru
menn ekki bundnir og það er ekkert
að því að menn spjalli saman í því
ferli.“
Hvorugt Geir né Ingibjörg vildu
ræða nafngiftina Baugsstjórnin sem
Jón Sigurðsson gaf þeim. „Ég segi ekk�
ert um það, mér finnst það dæma si
sjálft.“ Eins gaf h�n lítið �t fyrir boð
framsóknar og Vinstri grænna um
stjórnarsamstarf. „�ér finnst þetta
vera eins og verið sé að reyna egna
fyrir mig og lokka mig �t �r þessum
viðræðum. En ég er í þeim af fullum
heilindum og geri ekkert með það í
sjálfu sér.”“
Miðvikudagur 23. Febrúar 20072
Fréttir DV
Ráðist á
sjálfboðaliða
„Ég var mjög hrædd og ótt-
aðist að við yrðum hreinlega
drepin. Mér fannst verst að vera
hjálparlaus og horfa upp á þá
berja vinnufélaga minn mjög
ill ,“ segir Ortrud Gessler Guðna-
son, sjálfboðaliði á vegum félags-
ins Ísland-Palestína.
Ortrud varð fyrir árás ísra-
elskra ungmenna á laugardag-
inn í Hebron, þar sem Pal-
estínumenn og Ísraelar deila
landsvæði, en Ortrud hefur starf-
ð þar við mannúðarmál síðustu
vikur. Sparkað var í maga hennar
og gengið harkalega í skrokk á
samstarfsmanni hennar með
þeim afl iðingum að han hlaut
heilahristing og skurði á höfði.
Unglingarnir spörkuðu ítrekað
í hann liggjandi og lömdu með
grjóti í höfuðið.
InnlendarFréttIr
ritstjorn@dv.is
Fyrirhugaðar breytingar á tíðni ferða og leiðakerfi Strætó bs.:
Breytingar gerð r eft talningu farþega
„Við erum að reyna að l ga leiða-
kerfið að notendunum. Í fyrsta skipti
höfum við náð að telja nákvæmlega
hvaða leiðir eru vinsælastar og h ar
flesta notendur er að finna. Út frá því
ætlum við að fækka ferðum á leiðum
sem lítið eru nýttar og fjölga ferðum
á vinsælum leiðum,“ segir Gísli Mart-
einn Baldursson, formaður umhverf-
isráðs Reykjavíkurborgar.
Strætó bs. hefur boðað breytingar
á leiðakerfi strætisvagn höfuðborg-
arsvæðisins sem taka gildi 3. júní. Frá
þeim degi ganga allir vagnar á hálftíma
fresti. Síðar í sumar, 18. ágúst, taka enn
frekari breytingar við. Þá verða sumar
leiðir færðar í 15 mínútn tíðni en aðr-
ar leiðir verða áfram á hálftíma tíðni.
Þessar breytingar eru gerðar eftir að
könnun fór fram á notkun strætis-
vagna sem þannig var kortlögð í fyrsta
skipti með nákvæmum hætti. Í gær
funduðu vagnstjórar Strætó bs. vegna
breytinganna og lýstu yfir áhyggjum
sínum vegna tíðra breytinga sem v ldi
ruglingi hjá þeim og farþegum. Valdi-
mar Jónsson, trúnaða maður vagns-
tjór nna, segir bílstjórum heitt í ham-
si.
Gísli Marteinn tekur undir áhyggj-
ur vagnstjóra Strætó bs. um að tíðar
breytingar valdi ruglingi hjá farþegum
og geti fælt farþega frá. Hann ítrekar að
að þessu sinni sé aðeins um aðlögun-
arbreytingar að ræða. „Við erum ekki
að kollvarpa kerfinu. Sumar leiðir sem
við héldum að væru vel nýttar eru það
einf ldlega ekki og aðrar betur nýttar
en við héldum. Við viljum einfaldlega
laga kerfið betur að notkun farþeg-
anna. Í sumar verða hins vegar allar
ferðir á hálftíma fresti.“ trausti@dv.is
Farþegar taldir eftir nákvæma talningu á ferþegum var ákveðið að gera breytingar á leiðakerfi strætisvagna og breyta tíðni ferða þeirra.
„Ég gaf syni mínum hluta af fénu í
fermingargjöf þannig að etta kom
sér vel,“ segir útigangsmaðurinn og
fanginn Lalli Johns.
Öryrkjabandalag Íslands hef-
ur kært auglýsingastofuna Himin
og haf fyrir afar umdeilda auglýs-
ingu sem Lalli lék í. Auglýsingin var
fyrir Öryggismiðstöðina og sýndi
stóra og ógnvekjandi ynd f Lalla.
Undir henni stóð: „Hver vaktar itt
heimili?“ M ið hefur ve ið kært til
siðanefnd r Auglýsingasambands
Íslands. Stofan Himinn og haf hefur
ákveðið að hætta auglýsingaherferð-
inni. Framkvæmdastjóri Öryrkja-
bandalagsins segir auglýsinguna ala
á ótta gagnvart heimilislausum.
Fékk hundrað þúsund
„Ég fékk nú ekki þrjúhundruð
þú und krónur, en ég hefði alveg
verið til í það,“ segir Lalli Johns en í
kæruskjali segir að talið sé að honum
hafi verið greidd sú upphæð fyrir fyr-
irsætustörfin. Sjálfur segist hann að-
eins hafa fengið rétt rúmar hundrað
þúsund krónur fyrir viðvikið. Hann
segist hafa g fið syni sínum hluta af
laununum sem hann fékk greidd.
Hann bætir við ð féð h fi því kom-
ið honum ansi vel. Aðspurður hvað
hann hafi gert við restina, segist hann
hafa keypt sér sjampó og sígarettur í
sjoppu sem hann kallar Krimmakjör,
sú er á Litla Hrauni.
Nývaknað módel
Í kæ skjali segir að framsetning
auglýsingarinnar sýni Lalla í heldur
ófrýnilegu ástandi. Þar stendur að
Lalli hafi verið sýndur í kuldalegu
umhverfi og verið illa til hafður.
„Ég var bara nývaknaður,“ segir
Lalli aðspurður um útganginn á sér
og gefur hann lítið fyrir það að hafa
verið t skulegur í auglýsingunni.
Hann segir engan hafa misnotað
bága aðstöðu sína en hann situr inni
á Litla-Hrauni fyrir þjófnað og er
auk þess heimilislaus. Hann segir að
eina eftirsjáin sé sú að hann hafi ekki
fengið nógu mikið borgað.
Snýst ekki um persónu
„Við telju að auglýsingin ali á
ótta gagnvart heimilislausu fólk ,“
segir Haf ís Gísladóttir fram-
kvæmdastjór Öryrkjabandalags-
ins. Hún telur auglýsinguna siðlausa
með öllu. Sjálf ítrekar hún það að
kæran snúist alls ekki um persónu
Lalla. Hann sé þó orðinn holdge v-
ingur heimilislauss fólks og honum
sé stillt upp ógnandi í auglýsingu ni.
Þar með er hún til þess fallin að ala
á fordómum og ótta gagnvart hinum
heimilislausu. „Þe ta er ekki samfé-
lag sem við viljum lifa í,“ segir Haf-
dís og bætir við að einhvers staðar
þurfi að draga línuna þegar átt er við
svo viðkvæman hóp sem á sér enga
málssvara.
Auglýsingu hætt
„Þessari herferð er lo ið,“ segir
viðskiptastjóri Himi s og hafs, uð-
mundur Pálsson, um viðbrögð við
kærunni. Aðspurður hverjar afleið-
ingar yrðu, félli dómur siðanefnd r
þeim í óhag, segir Guðmundur að
sennilega verði þá farið fram á að
herferðinni verði hætt, en það hafi
þegar verið gert. Auglýsingastofan
hefur verið kærð fyrir þriðju grein
siðalaga Auglýsingasambands Ís-
lands. Hún hljóðar þannig að aug-
lýsingar sk li ekki að ástæðulausu
höfða til ótta fólks.
Málið verður tekið fyrir í siða-
nefndinni innan skamms.
Auglýsingastofan Himinn og haf hefur verið kærð til siðanefndar Auglýsingasambands Ís-land v g a auglýsingar með Lalla Johns. Öryrkjabandalag Íslands kærir en sjálf r segist Lalli hafa notað féð sem hann fékk til þess að gef syni sí um í fermingargjöf. Framkvæmda-stjóri Öryrkjabandalagins segir uglýsin una la á ótta gagnvart heimilislausum.
lék í a glýs
R R on si
vALur grettiSSoN
blaðamaður skrifar: valur@dv.is
„ég fékk nú ekki þrjú-
hundruð þúsund krón-
ur, en ég hefði alveg
verið til í þ ð.“
Lalli Johns Situr inni á
Litla-Hrauni en hann lék í
umdeildri auglýsingu til
þess að geta gefið syni
sínum fermingarpe i g.
Byggja græna
gagnavinnsl
Varnarsvæðið í landi Sand-
gerðisbæjar verður í framtíðinni
vettvangur umhverfisvænnar
gagnageymsluþjónustu. Full-
trúar Sandgerðisbæjar o Data
Íslandia skrifuðu í gær undir
viljayfirlýsingu um uppbyggingu
á svæðinu. Búist er við að 20 störf
s apist við gagnavinnsluna.
Áætlað er að bygging á hús-
næði Data Íslandia hefjist síð-
ar á þessu ári. Endurnýjanleg
orka mun knýja starfsemina en
áhersla verður lögð á umhverf-
issjónarmið rekstrinum. Í fyrsta
áfanga er stefnt að því að byggja
um 800 fermetra og allt í allt
4.000 fermetra.
Sýknaður vegna
fornra reglna
Maður var sýknaður af
ákæru um ölvun og ólæti á
almannafæri í Héraðsdómi
Suðurlands í gær. Þar var sagt
að reglugerð, sem er ríflega
sextíu ára gömul, væri úrelt
og því bæri að sýkna mann-
inn. Í reglugerðinni seg-
ir að sekta megi menn um
heilar þúsund krónur gerist
eir sekir um hneykslanlega
heg un fyrir utan kirkjur eða
á götum bæjarins. Maður-
inn var þó sakfelldur fyri að
hlýða ekki fyrirmælum lög-
regluþjóna og þarf að greiða
tuttugu þúsund krónur í sekt
eð sæta fangelsi í tvo daga.
Samruni ógildur
Samkeppniseftirlitið ógilti
í gær samruna Frumherja og
Aðalskoðunar og álítur hann
hindra virka samkeppni.
Fyrr á árinu keypti Frum-
herji allt hlutafé Aðalskoðun-
ar og er það at Samkeppn-
isstofnunar að fyrirtækin
séu komin í einokuna stöðu,
bæði á markaði bifreiðaskoð-
unar sem og í eftirliti með
starfi vinnsluleyfishafa í sjáv-
arútvegi.
23. maí 2007
24. maí 2007
21. maí 2007