Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.2017, Side 21

Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.2017, Side 21
umræða 21Helgarblað 26. maí 2017 – þessi stefna hefur mótað samfélög Norður- og Vestur- Evrópu undan- farna öld og gert þau sæmilega mannúðleg, og hefur ekki eingöngu verið útfærð af jafnaðarmanna- flokkum heldur líka að nokkru leyti af borgaral egum hægriöflum, eins og Sjálfstæðisflokknum íslenska. Stefna kommúnista er á sinn hátt jafn skýr, og gengur út á að öllu sé miðstýrt af ríkisvaldinu, en reynslan af þeirri stefnu er mun lakari, eins og sést á sjötíu ára tilraun með hana í Austur- Evrópu, sem endaði hrak- lega. Heilbrigðismál og prívatísering Þegar kemur að heilbrigðiskerfinu og einkarekstri á því sviði hrökkva menn gjarnan í kút og vilja fara mjög varlega, sem vonlegt er. Og al- veg án þess ég hafi skoðun á þeim nýju fyrirtækjum á Íslandi sem nú eru mest í umræðunni, eða að ég hafi kynnt mér þau mál nógu vel til að móta afstöðu, þá held ég að menn verði alltaf að skoða slíkt út frá því hvaða rekstrarform virkar best í hverju tilfelli: hvað sé lík- legast til að skila bestum árangri fyrir alla. Í því tilfelli kemur mér í hug stjórnartíð kratans Tony Blair í Bretlandi, en sá um margt ágæti stjórnmálamaður hefur sumpart að ósekju fengið verri eftirmæli en efni standa til, og margir nota hug- takið „blairismi“ sem skammar- yrði; hann gerði reyndar gríðar- lega bommertu með því að láta Breta fara í stríðið í Írak, en það var enginn blairismi reyndar, heldur sú breska utanríkisstefna að þeir stæðu jafnan með Bandaríkjum í átökum, og öfugt. En að mörgu leyti náðist í stjórnar tíð Blair merkur árangur í jafnaðarátt, enda naut hann lengi mikilla vinsælda og var margoft endurkjörinn. Eitt af því sem hann barðist fyrir var að eyða ýmsum biðlistum í heilbrigðiskerfinu sem voru þannig að margir biðu árum saman, oft sárkvaldir, eftir að kom- ast í einfaldar aðgerðir eins og lið- skipti eða við kviðsliti, á meðan hinir efnameiri gátu keypt sig inn á einkaklíník heima eða erlendis og látið lappa upp á sig. Þessu lofaði Verkamannaflokkurinn að breyta. Og þegar hann hafði verið kjörinn til valda var reiknað út hvað það myndi kosta að eyða biðlistunum, og fjárveiting til stóru opinberu spítalanna aukin sem því nam. En í svo umfangsmiklum og þungum batteríum skilaði sér ekki nema lítill hluti fjáraukningarinnar í að fram- kvæma nefndar aðgerðir. Hin stóru opinberu sjúkrahús eru auðvitað lífsnauðsynlegar stofnanir í hverju landi, með öllum sínum deildum og viðbúnaði og starfsfólki og tækj- um sem bjarga lífi fólks, og þar eru unnin endalaus kraftaverk. En til að eyða biðinni eftir einföldum að- gerðum þurfti það ekki til. Svo að kratastjórnin bauð þetta eiginlega út: teymi lækna og hjúkrunarliðs kom sér upp aðstöðu til að fram- kvæma tiltekna aðgerð og ekki ann- að, og svo voru sjúklingar keyrðir eins og á færibandi inn um austur- dyr og svo út að vestanverðu, hver á fætur öðrum frá morgni til kvölds, og þannig tókst að eyða öllum slík- um biðlistum á furðu skömmum tíma og með mun minni tilkostnaði en ætla mætti. Ríkið borgaði. Og vissulega þénuðu sumir ágætlega á þessu! En um leið var sá ójöfnuður úr sögunni að sumir gætu keypt sig fram fyrir: þess gerðist auðvitað ekki lengur nein þörf þegar biðlist- arnir voru ekki lengur til. Gamla Bifreiðaeftirlitið og skattur Opinber einkaréttarfyrirtæki hafa tendens til að reyna ekki að laða að sér kúnna: það þarf hreinlega ekki; annaðhvort koma þeir eða þeir fá ekkert. Raðirnar fyrir utan búðir í Austur-Evrópu á kommún- istatímanum voru auðvitað merki um þetta. Ég man eftir gamla opin- bera Bifreiðaeftirlitinu, þarna ná- lægt Höfða hér í Reykjavík. Þar var nú ekki verið að dekra við við- skiptavinina. Ef það þurfti að fram- kvæma eitthvað, eins og að skipta um númeraplötur, þá mátti maður gera það sjálfur: manni var vísað út á malarplanið, tókst þar, ef heppn- in var fyrir hendi, að veiða upp úr slabbinu skiptilykla og þannig verk- færi, þau voru fest með ryðgaðri og snúinni keðju við níðþungar bíl- felgur svo þessu yrði ekki stolið. Vesgú. Og svo aftur í biðröðina. Sjálfur borga ég sem sjálfstætt starfandi verktaki mánaðarlega skatt af „reiknuðu endurgjaldi“, eða launum semsé, og tryggingar- gjald að auki. Áður fyllti maður út pappírsmiða með launaupphæð, skattinum og gjaldinu og svo var það greitt í banka, en fyrir nokkrum árum fór þetta inn á vefinn, sem heitir skattur.is. Og þar er ekki reynt að gera mönnum lífið einfalt. Væri þetta fyrirtæki sem gerði minnstu tilraun til að laða til sín viðskipta- vini, þá myndi eflaust standa á heimasíðunni eitthvað eins og: „Greiða staðgreiðsluskatt hér“. En það er ekki. Það er ekki fyrr en mað- ur er búinn að fatta að maður á að klikka á „vefskil“ sem maður kemst á sporið. Og læra líka að þegar þar er komið sögu á maður að klikka á „skila skýrslu“. Jæja, þetta lærist og gengur hnökralaust um hríð, þar til þeir hjá skattur.is finna upp á að gera breytingar. Og einn góð- an veðurdag, þegar nálgast eindaga þann fimmtánda viðkomandi mánaðar, þá kemst maður ekkert áfram og fær alltaf allt í hausinn á ný með flóknum útskýringum um að þessi og hinn reiturinn stemmi ekki saman, ásamt romsu af ýmsu öðru, þar á meðal um bifreiða- hlunnindi. Á endanum hringir maður, búinn að vera að reyna að fá að borga í þrjá daga og kominn með allt á dráttarvexti, og spyr hvað maður eigi að gera með þessi „bif- reiðahlunnindi“, sem forritið kvein- ar yfir en sem ég engin hef og hef aldrei haft. Nei, þá reyndist það ekki vera málið, heldur átti maður, eftir nýjustu breytingar, að færa inn greiðslu í lífeyrissjóð. Þessar upp- lýsingar um bifreiðahlunnindin voru bara svona gamanmál til að krydda tilveruna. Lífeyrinn greiðir maður reyndar annars staðar, og stendur í skilum með. En það dugir ekki heldur að færa hann til bók- ar, því nú þarf maður líka að færa inn persónuafslátt. Sem ég vissi ekkert hver væri nákvæmlega, en það reyndist vera upphæðin 52.907 krónur. Eins og allir gjaldheimtu- menn vita, og forritið auðvitað líka. En aftur er maður strand, því að í sérstakan reit á maður að setja inn launaupphæð mínus greiðslu í líf- eyrissjóð. Eins og tölvan sem tekur við þessu kunni ekki stærðfræði- aðgerðina um frádrátt. Og í hvaða reit ætli upphæðin laun mínus líf- eyrissjóðsgreiðsla eigi að fara? Jú, hann kallast, eins og öllum ætti að vera auðskilið „Þ.a. stofn í þrepi 1“. Það gat varla heitið neitt annað! n „Á endanum hringir maður, búinn að vera að reyna að fá að borga í þrjá daga og kominn með allt á dráttarvexti, og spyr hvað maður eigi að gera með þessi „bifreiðahlunnindi“, sem forritið kveinar yfir en sem ég engin hef og hef aldrei haft. Sölureikningur www.avaxtabillinn.is • avaxtabillinn@avaxtabillinn.is • 517 0110 Gómsætir veislubakkar, sem lífga upp á öll tilefni. Er kannski heilsuátak framundan? Ávextir í áskrift kosta um 550 kr. á mann á viku og fyrirhöfn fyrirtækisins er engin. vaxtareikningur Ávaxtaðu betur Á H ö n n u n : I n g va r Ví ki n g ss o n

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.