Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.2017, Page 22
22 umræða
Útgáfufélag: DV ehf. Stjórnarformaður og útgefandi: Björn Ingi Hrafnsson ritstjóri: Kolbrún
Bergþórsdóttir ritstjóri dv.is: Kristjón Kormákur Guðjónsson Fréttastjóri dv.is: Einar Þór Sigurðsson
Framkvæmdastjóri : Sigurvin Ólafsson umbrot: DV ehf. Prentun: Landsprent Dreifing: Árvakur
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu
formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru
hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.
aðalnúmer: 512 7000
auglýsingar: 512 7050
ritstjórn: 512 7010
fréttaskot
512 70 70
Heimilisfang
Kringlan 4-12, 4. hæð
103 Reykjavík
Sandkorn
Helgarblað 26. maí 2017
Það sem má ekki gleymast
O
kkur er sagt að hryðju
verkamenn vilji með morð
um sínum skapa glund
roða í samfélögum sem
alla jafna eru fremur frið
samleg. Okkur er líka sagt að við eig
um ekki að breyta háttum okkar í of
miklum mæli því um leið og við ger
um það hafi hryðjuverkamenn náð
ákveðnum árangri. Þetta er bæði satt
og rétt. Það er hins vegar illmögulegt
að láta eins og ekkert sé. Hryðjuverkin
í vestrænum lýðræðislöndum hafa
breytt of mörgu. Öryggisgæsla er á
stöðum sem áður voru taldir öruggir
og vopnuð lögregla sést oftar á ferli
en áður. Hættan á hryðjuverkum er
staðreynd. Þjóðir heims þurfa að lifa
með þeirri vitneskju og um leið getur
verið erfitt að vera óttalaus.
Í einfeldni hafa margir eflaust
talið að hryðjuverkamenn myndu
ekki láta til skarar skríða á stöðum
þar sem börn og ungmenni koma
saman, eins og á tónleikunum í
Manchester. Nú vitum við að þessum
mönnum er ekkert heilagt, líf barna
þykja þeim jafn lítils virði og líf
annarra. Allt þykir leyfilegt í barátt
unni við hin frjálslyndu þjóðfélög.
Ef vestræn gildi eru okkur kær,
sem þau hljóta að vera, þá stöndum
við vörð um þau. Við viljum búa
í frjálslyndu samfélagi sem hefur
mannréttindi í heiðri. Þess vegna
skiptir máli hvernig einstaklingar
bregðast við hryðjuverkum. Það er
merkilegt að um leið og illskan sýnir
andlit sitt þá birtist hið góða sam
stundis í öllu sínu veldi. Þetta höfum
við ítrekað séð og nú síðast í Man
chester. Eftir hina skelfilegu hryðju
verkaárás þar opnuðu bæjarbúar
heimili sín fyrir tónleikagestum sem
ekki komust heim og hið sama gerðu
hóteleigendur. Leigubílstjórar komu
til aðstoðar og keyrðu fólk heim án
þess að taka gjald fyrir. Útigangs
menn hlúðu að særðum börnum og
töluðu máli mennsku og mannúðar
við fréttamenn. Hjúkrunarfólk sem
var ekki á vakt hraðaði sér á vinnu
stað sinn. Enn á ný urðum við vitni
að samstöðu einstaklinga sem stóðu
frammi fyrir þeirri skelfilegu stað
reynd að tugir manna höfðu látið
lífið í hryðjuverkaárás. Eðlislæg við
brögð voru að koma náunganum til
aðstoðar. Það skiptir máli og má ekki
gleymast.
Það er mikilvægt að muna að hið
góða má sín langoftast allnokkurs í
baráttunni við illskuna. Ef við trúum
því að til séu gildi sem eiga alltaf við
þá höldum við okkar striki og lifum
okkar venjulega lífi um leið og við
vitum af hættunum. Samstaða er
örugglega eitt mikilvægasta tæki okk
ar í baráttu við hryðjuverkaógnina.
Við Íslendingar búum í nokkuð
öruggu samfélagi, en við getum ekki
látið eins og það komi okkur ekki
við þegar saklaust fólk er stráfellt í
hryðjuverkaárás. Við fáum stöðugt
fleiri fréttir af Íslendingum sem verða
vitni að slíkum árásum erlendis.
Heimurinn er þegar allt kemur til alls
ekki svo ýkja stór staður. Við sem í
honum búum eigum að lifa og starfa
í nafni kærleika og mannúðar. n
Það fer allt það mannlega af
einstaklingnum við drykkjuna
Þórarinn Tyrfingsson. – DV
Costco og heilsuleysið
Sigrún Magnúsdóttir, fyrrverandi
ráðherra Framsóknarflokksins,
hefur viðrað áhyggjur af því að
Costco muni flytja til landsins
ófrosið kjöt og það gæti valdið
sýkingarhættu. Þessi orð hennar
kalla fram í hugann áhyggjur
Sigmundar Davíðs Gunnlaugs
sonar af sýkingarhættu af erlendu
kjöti. Hann sagði í útvarpsviðtali:
„Ef menn borða til dæmis kjöt
erlendis sem er ekki nógu vel
eldað á fólk á hættu að innbyrða
þessa sýkingu og hún getur leitt
til breytingar á hegðunarmynstri.
Þannig að menn hafa jafnvel velt
upp þeirri spurningu og rannsak
að hvort þetta kunni að breyta
hegðun heilu þjóðanna.“ Nú er
að sjá hvað Costco gerir og hvort
innflutningur þess á erlendu
kjöti muni valda heilsuleysi
meðal þjóðarinnar.
Formaður á ný?
Óróinn í Framsóknarflokknum
er svo mikill að fastlega er búist
við að Sigurður Ingi Jóhannsson
muni víkja úr formannssæti
og láta Lilju Alfreðsdóttur eftir
stólinn. Svo virðist sem það sé
eina leiðin til að friða ólíkar fylk
ingar innan flokks. Stór hluti af
Sigmundararminum er talinn
líklegur til að sætta sig við þessa
niðurstöðu, með semingi þó.
Ekki er samt víst að það eigi við
um Sigmund sjálfan sem telur
illa hafa verið að sér vegið inn
an flokks og utan. Honum er
mikið í mun að rétta sinn hlut
og þáttur í því er stofnun félags,
Framfarafélagsins. Margir spyrja
sig hvort Sigmundur ætli sér í
fyllingu tímans að gera félagið
að stjórnmálaflokki þar sem
hann gegnir formannsembætti.
Þvættingur
Sitjandi ríkisstjórn er að sönnu
sundurtætt og vart hafa sést við
líka flokkadrættir og nú, nema
ef vera skyldi í tíð
vinstri stjórnar
innar sem lafði
óstarfhæf út kjör
tímabilið. Þing
menn stjórnar
liðsins tala hver
gegn öðrum og
andæfa stefnumálum ríkis
stjórnarinnar. Agnes Bragadóttir,
blaðamaður Morgunblaðsins,
lapti það upp eftir ónafngreind
um heimildum að þingmenn
Sjálfstæðisflokksins hyggist ekki
samþykkja ríkisfjármálaáætlun.
Morgunblaðið var rekið til baka
með staðlausa frétt sína og for
maður fjárlaganefndar, Haraldur
Benediktsson, gekk svo langt að
kalla hana þvætting.
Þú vinnur
frábært starf
Donald Trump er hæstánægður með Duterte, forseta Filippseyja. – ruv.is
Við verðum að leita allra leiða
til þess að standa saman
Guðni Th. Jóhannesson um baráttuna gegn hryðjuverkum. – Stöð 2
Afhentu undirskriftir Stjórn ungliðahreyfingar Amnesty International afhenti á miðvikudagsmorgun Þorsteini Víglundssyni, félags- og jafnréttismálaráðherra,
5.395 undirskriftir þar sem skorað er á stjórnvöld að taka á móti fleira flóttafólki og setja sér nú þegar markmið í þeim efnum. MynD SIGTryGGur ArIMyndin
„Eðlislæg viðbrögð
voru að koma
náunganum til aðstoðar.
Leiðari
Kolbrún Bergþórsdóttir
kolbrun@dv.is