Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.2017, Blaðsíða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.2017, Blaðsíða 27
Helgarblað 26. maí 2017 KYNNINGARBLAÐ Útivist 3 Gæðastundir í veiðiferðum með Benelli Ítalska listasmíðin Benelli fagnar 50 ára afmæli Benelli fagnar 50 ára afmæli á þessu ári og hefur verið leiðandi á íslenskum markaði í hálfsjálfvirkum haglabyssum í 20 ár. Þetta merki er þekkt fyrir áreið- anleika, gæði og nýjungar í hönnun. Þetta er sannkallað toppklassa verkfæri í veiðiskapinn,“ segir Kjart- an Lorange hjá Veiðihúsinu Sakka og á þar við ítölsku Benelli-línuna í haglabyssum. Fyrirtækið var stofn- sett árið 1967 en stofnendurnir, Benelli-bræður, voru framleiðendur hinna vinsælu Benelli-mótorhjóla frá árinu 1940. Áhugi bræðranna á veiðum leiddi á endanum til þróun- ar Benelli-haglabyssunnar. Benelli hefur verið leiðandi merki í hálfsjálfvirkum haglabyssum og saga línunnar hefur einkennst af stöðugri vöruþróun, nýjungum og gæðaumbótum. Kjartan Lorange heldur áfram: „Þetta er ítölsk listasmíð sem til er í yfir 190 útfærslum, byssur sem henta smekk hvers og eins. Fimmtíu ára hnökralaus saga er nokkuð sem öll fyrirtæki yrðu stolt af. Benelli er orðið markaðsráðandi í heiminum þegar kemur að hálfsjálfvirkum haglabyssum, en enginn annar framleiðandi getur boðið upp á meira úrval og jafnmikið notagildi.“ Í tilefni afmælisins er í boði sérstök útgáfa af Benelli-byssunum sem aðeins er til í takmörkuðu upplagi – Raffaello Limited Edition 50. Kjartan bendir á að hlutdeild kvenna í skotveiði og skotfimi sé mjög að aukast en Benelli býður upp á margar byssur sem henta konum eða lágvöxnum og léttum skyttum. Annars vegar eru byssur fyrir smágerðara fólki minni og hins vegar tekur lögun Benelli-byssanna mið af líkamsvexti. Sem fyrr segir hefur Veiðihús- ið Sakka átt í löngu og gæfuríku samstarfi við Benelli. Eigandi Veiðihússins Sakka og starfsmenn fyrirtækisins eru allir miklir veiði- menn en fyrirtækið hefur þá stefnu að selja eingöngu þann búnað sem þeir sjálfir treysta og geta hugsað sér að nota við veiðar. „Veiðihúsið býður einnig upp á algjörlega skothelda (!) ábyrgð sem er fimm ár og verði byssa á ein- hverjum tímapunkti ábyrgðartímans ónothæf vegna bilunar eða galla sem kemur upp og ekki er unnt að leysa málið undir eins, þá útvegum við eigandanum byssu til afnota á meðan gert er við viðkomandi tæki. Við sjáum um alla þjónustu og erum með verkstæði sem Benelli hefur vottað, því þjónustuþátturinn skiptir okkur miklu máli, að þjónustan sé framúrskarandi,“ segir Kjartan og bætir við: „Veiði snýst um gæða- stundir, við viljum aðstoða okkar viðskiptavini við að auka þau gæði og fyrirbyggja að þessar stundir spillist með nokkrum hætti.“ Þess má til gamans geta að Veiðihúsið Sakka er að seinni hluta nafnsins nefnd eftir veiðihundi sem núverandi eigandi heildverslunar- innar átti, en hundurinn hét Sakka. Skotveiði er fyrst og fremst útivist – en villibráð er besta og heilnæmasta kjöt sem völ er á Kjartan minnir á að skotveiði snúist fyrst og fremst um útivist. Veiðiferð geti staðið yfir í nokkra daga en af þeim tíma fari bara örfáar mínútur í að skjóta af byssu. „En lokatakmarkið er vissulega að fella bráð, draga björg í bú. Nútíma- maðurinn þarf vissulega ekki að veiða sér til matar til að komast af en það er engu að síður afar eftir- sóknarvert að komast yfir villibráð enda er hún besta og heilnæmasta kjöt sem nokkur maður getur látið ofan í sig. Hvað er betra en að bjóða góðum gestum upp á villibráð í lok veiðiferðar eða gefa hana vinum og ættingjum í veislumatinn? Í þessu eru gríðarleg verðmæti fólgin. Síð- ast en ekki síst uppfyllir maðurinn ákveðna frumþörf sem í honum er þegar hann fellir villibráð.“ Að veiða í íslenskri náttúru er mannbætandi og gott fyrir líkama og sál. Veiðihúsið Sakka er heildverslun með fjölbreyttan veiðibúnað, til húsa að Hólmaslóð 4, 101 Reykjavík. Símanúmer er 562-0095 og net- fang er kjartan@vos.is. Heimasíða er veidihusid.is. Benelli-haglabyssurnar eru til sölu í öllum helstu veiðiverslunum landsins en sölustaðirnir eru eftir- taldir: Vesturröst, Veiðihornið, Hlað, Hlað Húsavík, Veiðiríkið Akureyri, Veiðiflugan Reyðarfirði. Kjartan leiðbeinir á konukvöldi á vegum Veiðihússins og Skotvís.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.