Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.2017, Page 32
Fædd og uppalin? Fædd í
Reykjavík og uppeldisárin í Breiðholti,
Ósló og með vinum í FRAM í Safamýr-
inni mótuðu mann.
Mér Finnst gaMan að …
vera í góðum félagsskap úti á golfvelli
eða á góðu felli/fjalli.
síðasta kvöldMáltíðin:
Sushi-ið frá Mr. Hai í Berlín. Dagur Sig
og Ingibjörg kona hans komu okkur á
bragðið. Hélt ég félli í yfirlið við hvern
bita.
Brennd eða graFin? Brennd,
minna pláss, ekkert ormaát takk. Forn-
leifafræðingarnir verða að finna önnur
bein en mín í framtíðinni.
Hvað gerirðu Milli
kl. 17–19? Horfi yfir Hádegismóa
úr útsendingarhljóðveri K100 og klára
vinnudaginn með Hvata í útsendingu
kl. 16–18 áður en ég held heim.
saMFélagsMiðlar eða
dagBlöðin? Hvort tveggja.
Hvað ertu Með í vinstri
vasanuM? Er ekki með vasa, en
væru þeir til staðar þá væri glossið
klárlega þar.
Bjór eða Hvítvín? Stundum bjór
og stundum hvítvín. Hvort tveggja þarf
þó að vera ískalt þegar ég renni því niður.
Hver stjórnar Fjarstýr-
ingunni á þínu HeiMili?
Ef ekki húsbóndinn þá krakkarnir. Er
frekar léleg í sjónvarpsáhorfinu nema
þegar kemur að fréttum og fréttatengd-
um þáttum.
Hvernig var Fyrsti koss-
inn? Ekki það eftirminnilegur að
hann rati á prent.
Hver væri titill ævisögu
þinnar? Fyrirmyndin og villingur-
inn.
Hver er drauMaBíllinn?
Mercedes Benz-jeppi sennilega.
Annars væri ég mest til í svona dróna-
bíl sem Airbus kynnti fyrir skömmu.
Fyrsta starFið? Fyrsta alvöru
starfið var hjá Sóma. Byrjuðum um
miðjar nætur að smyrja og taka utan
af eggjum. Systir mín var að vinna þar
og reddaði mér vinnu. Annars var það
sjoppustarf í Breiðholtskjöri í gegnum
mömmu og humarvinnsla. Byrjaði
svo í fyrsta fjölmiðlastarfinu samhliða
fjölmiðlabraut í Fjölbraut í Breiðholti.
Þá að skrifa um íþróttir í Sportlífi sem
var og hét, síðar sem sumarstarfsmað-
ur á Pressunni sálugu hjá Karli Th.
Birgissyni.
Fallegasti staður á
landinu? Það er ólýsanlega fallegt
að fá 360 gráðu sýn frá golfvellinum
á Seltjarnarnesi á góðu sumarkvöldi.
En ef ég fer út fyrir höfuðborgina þá
gleymist seint sú sýn þegar Þórsmörk
tekur á móti manni í heiðskíru veðri
eftir göngu af Fimmvörðuhálsi eða
fjöllin þar í kring. Allir sem geta farið
þessar leiðir ættu að veita sér þá upp-
lifun. Eins er mér minnisstætt er ég
flaug í þyrlu yfir Vestmannaeyjar. Allir
litir náttúrunnar – þvílíkt undur. Svo
ég tali nú ekki um fólkið sem þar býr.
Hvaða oFurkraFt værir
þú til í að vera Með? Að
taka Jane á móti Tarzan í einn dag eða
breyta fýlupúkum í gleðigjafa.
gist í FangakleFa? Nei.
sturta eða Bað? Sturta. Nýti
þetta baðkar mitt tvisvar á ári.
HúðFlúr eða ekki? Aldrei
fundið þörfina en finnst það töff á
flottum týpum.
Hvaða leynda HæFileika
HeFur þú? Ég get glatt börn með
því að leika eftir apa.
Hvað Fékk þig til að tár-
ast síðast? Ég tárast yfir mörgu.
Nú síðast í fimmtugsafmæli vinkonu
minnar þar sem Gunnar Þórðarson
flutti sjálfur lagið Vetrarsól ásamt syni
sínum. Í fyrsta lagi svo þakklát að upp-
lifa stundina og svo, þú veist textinn og
þetta fallega lag.
FyrirMynd í líFinu? Vigdís
Finnbogadóttir er og verður alltaf
fyrirmynd. Annars lít ég mest til lifandi
fyrirmynda sem maður ber gæfu til að
umgangast, kynnast og læra af. Jafnt
karlmenn sem konur.
Hvaða sögu segja For-
eldrar þínir endurtekið aF
þér? Þegar ég var í frekjukasti og fékk
ekki mínu framgengt um 6–7 ára aldur-
inn. Þá var ég að öskra úr mér lungun
af reiði og náði í band og batt mig við
eldhússtólinn vel og rækilega og sagðist
aldrei ætla að losa mig. Það er til mynd
af mér þar sem ég sit enn nokkrum
stundum síðar í bikini-inu og með
útgrátið andlit en enn í þrjóskukasti.
Þetta er sagan af þrjósku minni og
stjörnumerki, ég er sem sé hrútur.
ertu Haldin sjúklegri
Hræðslu varðandi
eittHvað? Alveg laus við það.
Hver er Besta ákvörðun
seM þú HeFur tekið? Allar þær
ákvarðanir þar sem ég hef notað eigið
hyggjuvit, þær tel ég bestar er ég lít til
baka.
Furðulegasti Matur seM
þú HeFur Borðað?
Tunga og auga úr sviðum og pungur af
alíslenskum hrút.
Hvað er neyðarlegasta
atvik seM þú HeFur lent í?
Svo margt. En ég man enn vel hve
neyðarlegt það var að þurfa að fara með
mömmu til búðareiganda, sex eða sjö
ára, og skila svona Jell-o-hlaupdufti sem
ég hafði stolið með því að renna því inn
undir joggingbuxurnar. Það voru fleiri
sekir, en ég man að það þurftu ekki allir
að skila skömminni.
klukkan Hvað Ferðu á
Fætur? Upp úr 7.
leigirðu eða áttu? Á.
Hvaða Bók er á nátt-
Borðinu? Norðurslóðasókn eftir
Heiðar Guðjónsson – er að klárast.
Með HverjuM líFs eða liðn-
uM Myndir þú vilja verja
einni kvöldstund? Ég myndi
vilja eiga eina góða gæðakvöldstund
með Vigdísi.
Hver er Fyrsta endur-
Minning þín? Þegar ég festi mig
við stólinn í frekjukastinu!
líFsMottó? Don't take life too
seriously … It's not líke you're going to
get out alive.
uppáHaldsútvarpsMað-
ur/-stöð? Allt staffið á K100 að
sjálfsögðu!
uppáHaldsMatur/-drykk-
ur? Gott grill heima á sunnudögum.
uppáHaldstónlistar-
Maður/-HljóMsveit? Alicia
Keys enn í miklu uppáhaldi eftir
tónleika með henni. Þori ekki að byrja á
íslensku senunni þá móðga ég einhvern.
uppáHaldskvikMynd/-
sjónvarpsþættir? Ég man þig!
Myndin ekki síðri en bókin hennar Yrsu.
Annars hafa mér þótt þessir íslensku
þættir hafa virkað vel. Það er allavega
verið að framleiða heilan helling.
uppáHaldsBók? Síðasta bók
Åsne Seierstad, Einn af okkur, fannst
mér mjög merkileg.
uppáHaldsstjórnMála-
Maður? Allir sem sýna staðfestu,
fylgja sínum hugðarefnum og vinna vel.
Hulda Bjarnadóttir
er forstöðumaður þróunar-
sviðs Árvakurs. Hulda
hefur starfað sem fram-
kvæmdastjóri Alþjóðasviðs
Viðskiptaráðs Íslands og
FKA, Félags kvenna í
atvinnulífinu. Hulda hefur
einnig víðtæka reynslu
úr fjölmiðlum og næstu
mánaðamót mun hún snúa
aftur í útvarp á K100 með
nýjan síðdegisþátt, ásamt
Sighvati „Hvata“ Jónssyni.
Hulda svarar spurningum
vikunnar.
Til í að breyTa fýlupúkum í
gleðigjafa