Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.2017, Blaðsíða 36
Kvikmyndin Baywatch er nú frumsýnd um allan heim og á Íslandi í næstu
viku, 1. júní, en hún er byggð á samnefndri þáttaröð frá níunda og tíunda
áratug síðustu aldar. Í aðalhlutverkum eru Dwayne „The Rock“ Johnson, Zac
Efron, Prianka Chopra og Kelly Rohrbach auk Davids Hasselhoff og Pamelu
Anderson sem léku í sjónvarpsþáttunum. Stikla myndarinnar lofar góðu fyrir
aðdáendur strandvarðanna og því tilvalið að líta aðeins yfir upphaf og sögu
Baywatch-ævintýrisins auk helstu leikara fyrr og nú.
Baywatch-þættirnir voru frum-sýndir 23. apríl 1989 á sjón-varpsstöðinni NBC, en teknir úr
sýningu eftir aðeins eina þáttaröð (22
þætti), bæði vegna lélegs áhorfs og þess
að að stúdíóið GTG varð gjaldþrota.
Aðalleikari þáttanna, David Hassel-
hoff, taldi hins vegar að þættirnir ættu
frekari möguleika og ásamt höfundum
og framleiðendum þáttanna kom hann
þeim aftur á koppinn og í sýningu 23.
september 1991. Alls urðu þátta-
raðirnar 11 talsins með 22 þáttum í
hverri, samtals 242 þættir. Þættirnir
nutu gríðarlega vinsælda á árunum
1991–2001, þó meira á alþjóðavísu en í
Bandaríkjunum.
Sögusvið þáttanna var ekki flókið;
starf og líf strandvarða í Kaliforníu,
samskipti þeirra og hætturnar sem
steðja þeim og strandgestum. Algeng-
asta björgunaraðferð í þáttunum var
björgun fólks frá drukknun, en hættum
eins og jarðskjálftum, hákarlaárásum og
fjöldamorðingjum var hent reglulega
inn í handrit þáttanna svona til að
krydda þá aðeins.
Hliðarþáttaröð og kvikmyndir
Hliðarþáttaröðin Baywatch Nights varð
að veruleika 1995, sem leiddi til tveggja
þáttaraða, alls 44 þátta. Í þeim klæðir
Hasselhoff sig í fleiri flíkur og gerist
einkaspæjari ásamt félaga sínum úr
strandvarðaklíkunni.
Þrjár kvikmyndir sem fóru beint
á myndband fylgdu svo í kjölfarið:
Baywatch the Movie: Forbidden Para-
dise (1995), sem fjallaði um ferðalag
strandvarðanna til Hawaii, Baywatch:
White Thunder at Glacier Bay (1998),
þar sem strandverðirnir héldu í siglingu
til Alaska, og Baywatch: Hawaiian
Wedding (2003), sem var eins konar
„reunion“-mynd fyrir þáttaröðina í
heild. Hasselhoff lék að sjálfsögðu aðal-
hlutverkið í hliðarþáttunum og öllum
þremur kvikmyndunum og Anderson í
þeirri fyrstu og þriðju.
Þekkt þemalag
Þemalag fyrstu þáttaraðarinnar var
lagið Save me, flutt af Peter Cetera,
einum af forsprökkum hljómsveitar-
innar Chicago, og lék Bonnie Raitt á
gítar í laginu.
Nýtt þemalag var samið þegar
þættirnir voru endurnýjaðir með
annarri þáttaröð. Lagið I'm Always
Here er sungið og samið af Jimi
Jamison, söngvara hljómsveitarinnar
Survivor.
Baywatch fyrir nýja kynslóð
Áform um að endurvekja strand-
verðina hafa verið á teikniborðinu
síðan 2012 og árið 2014 var Johnson
fenginn til að leika aðalhlutverkið.
Framleiðslufyrirtæki hans, Seven
Bucks Productions, er eitt af nokkrum
sem standa að
myndinni. Tökur
hófust síðan í
byrjun árs 2016.
Það má búast að
við sól, strönd
og fáklætt fólk
í formi eigi eftir
að draga nýja áhorf-
endur jafnt sem eldri aðdáendur
í bíó til að sjá myndina, þrátt fyrir
að hún hafi fengið misjafna dóma
vestanhafs.
The Rock
enduRvekuR
BaywaTch
Ströndin er aftur örugg
Hin nýja Park-
er Hin lítt þekkta
Kelly Rohrbach
(fædd 2. janúar
1990) tekur við
flotholtinu af
Anderson
og leikur
C. J. Parker í
nýju myndinni.
GrjótHarður Leikarinn Dwayne Johnson (fæddur 2. maí 1972) sem tekur við skýlunni
af Hasselhoff er sannkallað hæfileikabúnt, hvort sem er á íþrótta-, framleiðslu- eða leiklistar-
sviðinu. Hann lék í háskólafótboltanum og vann til verðlauna þar áður en hann fylgdi í
fótspor föður síns og varð atvinnumaður í glímu og vann til fjölda verðlauna á farsælum ferli,
þar á meðal tíu sem heimsmeistari. Fyrir fyrsta aðalhlutverk hans í kvikmynd, The Scorpion
King árið 2002, fékk hann greiddar 5,5 milljónir dollara, sem þá var met sem launagreiðsla
fyrir fyrsta aðalhlutverk í kvikmynd. Johnson á eigið framleiðslufyrirtæki, Seven Bucks Pro-
duction, og leikur hann sjálfur í flestum afurðum þess. Ein af hans nýjustu myndum, The Fate
of the Furious, er tólfta tekjuhæsta mynd allra tíma. Árið 2016 var hann hæstlaunaði leikari
heims og á lista Time yfir hundrað áhrifamestu einstaklinga heims og 2015 valdi Muscle &
Fitness hann sem „Mann aldarinnar.“ Ævisaga hans, The Rock Says, kom út árið 2000 og
fór í fyrsta sæti metsölulista vestanhafs.